Muck – Slaves

11.4.2012 - Georg Atli

í síðastliðin apríl fyrir næstum ári síðan fór ég á tónleika með hljómsveitinni Fist Fokkers það var rosa stuð sem ég er svo sem búinn að skrifa um en þar voru mín fyrstu (og mjög svo ánægjulegu) kynni af hljómsveitinni Muck. Þá höfðu Muck eingöngu gefið út eina stuttskífu (Vultures) og þéttur hljómurinn og krafturinn í tónlistinni kom mér skemmtilega á óvart og ég gat ekki annað en hrifist með, eftir tónleikana fór ég svo heim og beið eftir stóru plötunni þeirra með öndina í hálsinum… kannski ekki alveg með öndina í hálsinum en þeir voru að minnsta kosti komnir inn á kostið hjá mér sem áhugaverð hljómsveit og frábært live band.

Fyrir nokkru síðan fékk ég svo (loksins) fyrstu plötu Muck í hendurnar. Platan heitir Slaves, kom út í lok janúar og inniheldur 14 lög. Það tók alveg 2 ár að taka plötuna upp og að sögn Muck þá leyfðu þeir sér að prófa sig áfram og gerðu allskonar tilraunir með hljóminn enda er lokaafurðin frekar frábrugðin Vultures stuttskífunni. Muck fengu líka til sín aðstoð á plötunni en Úlfur Alexander (Swords of Chaos og Fist Fokkers) og Tumi Árnason (The Heavy Experience) eru þeim til aðstoðar í sitthvorum 2 lögunum.

Áður en ég skrifa meira verð ég fyrst að viðurkenna að ég er voðalega lítið inní í þessari harðkjarna senu. Það er ein og ein hljómsveit sem mér finnst virkilega vera góðar og skemmtilegt að hlusta á en það verður að segjast að það á aðallega við um tónleika, ég hef hlustað á fáar plötur og á enn færri sem hljóma eitthvað svipað og Muck. Mér finnst aftur á móti mjög gaman á tónleikum og, að sjá t.d. Fist Fokkers, I Adapt og Muck er eitthvað sem ég get hiklaust mælt með, krafturinn og orkan sem kemur þá fram er hreinlega ótrúleg.

Mér finnst það vera frekar kvikindislegt að hafa fyrsta lag plötunnar eins og það er. Lagið Now er nokkurskonar intro fyrir plötuna og samanstendur í af ýmsum lágværum hljóðum (lágtíðni og braki og svoleiðis) þannig að ósjálfrátt þá hækkaði ég vel í græjunum mínum til að heyra hvað væri að gerast. Rétt tæplega 1:30 mínútum síðar lést ég nánast úr hjartaáfalli. Strax í öðru lagi plötunnar er nefnilega rétti tónnin settur og þessi kraftur sem ég talaði um fyrr brýst í gegn og skilur mann eftir nánast vankaðann, en á góðann hátt samt. Platan er síðan keyrð áfram með miklum hamagangi og þessu offorsi. Söngurinn/öskrin, gítar og trommur leika lykilhlutverk í tónlistinni og í fyrstu hlustun virðist aðalmálið vera að skapa sem mestann hávaða og ganga fram af hlustandanum.

En eftir nokkrar hlustanir þá kom það mér rosalega á óvart að heyra hvað þessi tónlist er margslungin og melódísk. Muck blandar brjálaðri keyrslu saman við allskonar óhefðbundnar tilraunir sem maður tengir kannski helst við listaspíru noise (í þessu samhengi er snjallt að benda á lagið Muck, en þar er borvél í stóru hlutverki).

Muck – Muck

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Hljómurinn sem Muck hefur þróað með sér einkennist af þessum bræðing og ég þori að fullyrða (þrátt fyrir vanþekkingu mína á stefnunni) að það eru ekkert rosalega margar hljómsveitir í þessum geira sem leyfa sér jafn mikla tilraunamennsku í sínum tónsmíðum, þá er jafnvel hægt að líkja þessu við ágengann spunajazz, sem er reyndar spilaður frekar hratt….
Hápunktar plötunnar eru lögin I Stand Alone (sem er einmitt annað lag plötunnar og leggur grunninn), Wake og Host.

Muck – I Stand Alone

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Platan kom mér rosalega á óvart og þá sérstaklega vegna þess hversu aðgengileg og melódískt hún er, þrátt fyrir allt. Það er miklu meira í þessari tónlist en bara double kicker og öskur, sem ég verð að viðurkenna að voru mín allra fyrstu viðhorf gagnvart senunni. Maður skilur ekki textann en mín vegna þá er það allt í lagi því að þó að ég sé hrifinn af góðri textagerð þá finnst mér það alls ekki nauðsynlegur hluti af góðri tónlist. að mínu mati styður söngurinn í tónlist Muck við andrúmsloftið og stemninguna sem myndast í lögunum.

Þetta er virkilega góð plata bæði vegna tónlistarinnar sem er spiluð (vönduð, frumleg og kemur manni sífellt á óvart) og svo líka vegna þess að hún neyddi mig á ákveðinn hátt að koma út úr mínum tónlistarlega þægindarramma og hlusta á eitthvað með nýjum formmerkjum og hugsannagangi og í allra bænum farið á tónlieka með þeim því að það er hrein snilld (fimmtudaginn 12. apríl á Faktorý).

Endilega náið ykkur í eintak af Slaves, þó að það væri ekki nema bara til að hlusta á eitthað aðeins öðruvísi stöku sinnum og víkka sjóndeildarhringinn.

Muck gefa plötuna sína út sjálfir og þið getið keypt hana á gogoyoko og í þessum helstu plötubúðum, bendi líka á heimasíðu drengjanna og tumblr-ið þeirra.

Tags: , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Plötuumfjallanir | Comments Off

Topp 5 lög ársins – Georg Atli

30.12.2011 - Georg Atli

Ég á alltaf í erfiðleikum með þennan lista, ég er einhvern vegin bara þannig að ég er miklu meira fyrir plötur en stök lög… eða það held ég alltaf, en svo fer ég að hugsa þetta aðeins betur og þá koma alltaf fullt af lögum í hugan á mér sem mér finnst alveg frábær, með eða án hinna laganna á plötunni. Mér fannst líka ótrúlega erfitt að skera niður í þessi lög og enn erfiðara að skera niður í topp 5 (sem sést líklega best á því að þau eru 6), öll hin lögin sem ég nefni eru nefnilega líka frábær. Hérna koma sem sagt lög ársins að mínu mati, fyrst nokkur sem komust ekki alveg á listann (í engri sérstakri röð) og svo topp fimm sex lögin mín.

Cass McCombs – The Lonely Doll
Kurt Vile – Baby’s Arms
Lower Dens – A Dogs Dick
PJ Harvey – The Words that Maketh Murder
James Blake – Wilhelm Screams
Foster the People – Pumped up Kicks
Skurken – Stiklur
Tune-Yards – Gangsta
Reykjavík! – Sneak
Unknown Mortal Orchestra – Ffunny Ffrends
FM Belfast – Happy Winter
Fist Fokkers – Emilio, Don by the Schoolyard
IMMO – Barcelona
Sir Michael Rocks – I See
Samaris – Góða Tungl

Topp 5-6 lög ársins:

5. – 6. Lana del Rey – Video Games

Söngurinn rétt svo lekur útúr henni en er samt ótrúlega flott.

5.- 6. Snorri Helgason – River

Frábært lag, frábær plata. að velja þetta lag fram yfir hin lögin á plötunni er samt smá svindl því að það græðir á myndbandinu, sem mér finnst vera vel heppnað.

4.The Antlers – I Don’t Want Love

Falsettan nær mér alltaf! Mér finnst The Antlers vera vanmetin hljómsveit, sé eiginlega eftir því að hafa sleppt þeim á Airwaves…

3. Náttfari – Lævís Köttur

Náttfari gerðu virkilega góða plötu og þetta lag er einfaldlega rosalegt.

2. Mugison – Stingum Af

Þetta er eins nálægt þvíað vera jafntefli og það getur orðið… en samt ekki. Mugison gaf út rosa flotta plötu og þetta lag er frábært, nær einhvern veginn til allra og fangar íslenskan sumarandi (úff.. háfleygt!) betur en flest annað.

1. Gotye – Somebody I used to know

Ég er búinn að vera með þetta lag á heilanum síðan ég heyrði það fyrst, eina lagið sem að ég veit um (sem kom út í ár) sem náði til breiðaðr hóps en Mugison. Virkilega flott popp.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off

Topp 5 ártöl – Georg Atli

5.11.2011 - Georg Atli

Jæja já…. mér virðist það vera alveg ómögulegt að ná að skrifa fleiri svona umfjallanir um Airwaveskvöldin þannig að ég er bara að hugsa um að sleppa því og skrifa bara Topp 5 lista um það sem að mér fannst alveg frábært (hefði líklega verið viðeigandi að tækla þetta þannig frá upphafi en…) og meira að segja passar hann inn í þema vikunnar, ártöl (í gegnum ártalið 2011). Miðvikudagurinn og fimmtudagurinn eru ekki með í þessum lista af því að ég var búinn að skrifa um þá. Hápunktarnir þaðan er samt Náttfari, Markús and the Diversion Sessions, Sóley, Fist Fokkers og Beach House


Topp 5 Airwavesártalið 2011 – Georg Atli

5. Hermigervill á NASA (Sunnudagur)

Sunnudagurinn kom mér meira á óvart en í fyrra, brjáluð dagskrá á NASA og fullt af fólki sem var alveg til í að halda partýinu gangandi. Hermigervill sá svo til þess að partýið var geðveikt gott. Það er ekki auðvelt að fá fullt hús af útlendingum til að detta í stuð þegar að maður spilar skemmtara, hljóðgervla og syntha útgáfur af klassískum íslenskum lögum en Hermigervill er bara svo ótrúlega góður í því sem að hann gerir að ég er viss um að þau voru öll að raula Sísí í marga daga.

4. Hljómsveitin Ég í Hörpu (Föstudagur)

Ef það er eitthvað sem ég hef lært á undanförnum árum þá er það að Hljómsveitin Ég er geðveikt góð… líka á tónleikum. Það er ótrúlegt hvað það er hægt að leika sér mikið með popp/rokk lög á þeim 2 til 4 mínútum. Snilldar hljómsveit sem á skiliið miklu meiri athygli en hún fær.

3. Tune-Yards á NASA (Föstudagur)

Þetta var ein af hljómsveitunum sem ég “varð að sjá” og ég var alls ekki einn um það. Röðin fyrir utan NASA var fáránlega löng! Ég verð líka aðeins að minnast á að það er pínu undarlegt að hafa bara 3 dyraverði á vakt þegar að það er alveg gefið að það myndast löng röð á svona viðburðum. Í stuttu máli var Merrill Garbus og félagi hennar (sem ég held að enginn viti almennilega hvað heitir) frábær í alla staði, það er á svona tónleikum sem að Airwaves miðinn og röðin og allt það borgar sig fullkomlega.

2. John Grant í Hörpu (Laugardagur)

John Grant var hitt nafnið sem ég “varð að sjá”. Ég varð ekki heldur fyrir vonbrigðum með hann. Tónleikarnir hans voru einlægir og innilegir og allt skilaði sér fullkomlega. Það er sjaldgæft að sjá tónlistarmenn vera svona svakalega mikið “alvöru”. Svo syngur hann líka vel og textarnir hans eru hnyttnir og niðurdrepandi en samt einhvern veginn skemmtilegir. Virkilega gott.

1. Reykjavík! á Kexinu (Laugardagur)

Ég svona hálfpartinn datt inn á þessa tónleika. Ég var búinn að ákveða að sjá Reykjavík! bara á sunnudeginum og fara á eitthvað annað þetta kvöld en síðan hætti ég við það og ákvað að vera ömurlegur á sunnudeginum og vera bara heima þá (hvort eð er bara fullir útlendingar í bænum þá). Þetta reyndist vera gríðarlega góð ákvörðun. Þvílíkt snilld sem þessi hljómsveit er á sviði! Þessir off-venue tónleikar toppuðu semsagt allt það góða sem hátíðin hafði annars upp á að bjóða. Þeir voru svo góðir að mér varð næstum flökurt eftir tónleikana… flökurt af snilld. Svona tónleikar fá mann til að langa að vera sjálfur í hljómsveit.

Reykjavík! á Airwaves 2011 (off venue) from toppfimm on Vimeo.

Ég ákvað snarlega að mæta líka á tónleikana þeirra á sunnudeginum, það var líka góð ákvörðun.

Það þarf líka að minnast á eftirfarandi atriði sem voru líka mjög flott: Dad Rocks!, Of Monsters and Men og Sudden Weather Change

Tags: , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Airwaves, Georg Atli, Listar, Tónleikar | Comments Off

Airwaves fimmtudagskvöld – Georg Atli

26.10.2011 - Georg Atli

Úff hvað við erum eitthvað ógeðslega léleg þessa daganna, hér er fyrsta skrefið til þess að breyta því…

Þegar að ég skoðaði dagskránna fyrir hátíðina þá sá ég strax hvað fimmtudagskvöldið var erfitt. Alltof margt skemmtilegt að sjá og ég átti ótrúlega erfitt með það að velja og hafna. Kannski var það þess vegna sem ég kom mér svona seint af stað? Ég fór amk allt of seint af stað og missti þess vegna af allskonar sem ég ætlaði að sjá… eins og t.d. Hauschka í Fríkirkjunni (er enn að bölva því).

Ég náði samt að sjá svolítið (alltof lítið) af því sem var að gerast í Eldborgar sal Hörpu. Þar rétt náði ég í eittoghálft af síðustu lögum Daníels Bjarnasonar sem Sinfoníuhljómsveit Íslamds lék. Þau voru geðveikt flott. Það var ótúleg upplifun menningarplebba eins og mig (sem hefur aldrei séð Sinfóníuhljómsveitina spila á alvöru tónleikum!) að fá að sjá og upplifa þetta, þó að það hafi ekki verið nema eitt og hálft lag. Það fylgir því einhverskonar undarleg gapandi tilfinning (veit ekki alveg hún heitir en hún veldur því að maður gapir) að koma inn í Elsborg. Mér finnst þessi salur vera stórkostlegur.

Eftir að hafa séð þetta og var smá hlé á meðan að Sinfónían kom sér út úr salnum og ICE (International Contemporary Ensemble) hópurinn kom sér fyrir, þetta hlé ákvað ég að nýta til fulls og hljóp niður til að sjá Sean Lennon og Greg Sauniere spila einhvern þann trylltasta spuna sem ég hef séð undir sameiginlegu nafni Consortium Musicum. Það verður líka að nefna það að Sean Lennon var í algjöru aukahlustverki þarna, Greg Saunier er trommuleikari Deerhoof og besta lýsingin á hans frammistöðu þarna er líklega sú að hann var alveg sturlað góður. Hins vegar get ég ekki einu sinni sagt með fullri vissu á hvaða hljóðfæri Sean spilaði…

Eftir að hafa hlustað á trommurnar í smástund stökk ég aftur yfir í Eldborg og sá ICE spila verk Steve Reich. Það var mjög flott. Ég verð samt að viðurkenna það að fyrir hátíðina vissi ég ekkert um Steve Reich og byrjaði fyrst vikuna fyrir Airwaves að skoða hann eitthvað og ég er alveg viss um það að ef ég hefði þekkt verkin hans betur þá hefði þetta virkað betur fyrir mig. Ég hvet samt alla þá sem ekki þekkja til Steve Reich til þess að tjékka á honum, þetta er ansi gott.

Frá Eldborg hljóp ég (lesist sem “labbaði aðeins hraðar en venjulega”… hitt lítur bara betur út) niður á NASA og sá hljómsveitina Young Galaxy. Í rosalega stuttu máli þá var þetta ekkert sem hreif mig og ég forðaði mér fljótlega yfir í listasafnið til þess að sjá Beach House.

Þetta reyndist vera gríðarlega góð ákvörðun því að þrátt fyrir að hafa verið í Listasafninu (sem mér finnst vera einn af síðstu stöðum Airwaves á hverju ári) þá voru þau alveg frábær. Hljóðið var flott, lögin voru frábær, framkoman líflaus, stemningin var samt frábær og rödd Victoria Legrand er stórkostleg. Hins vegar kláraði ég ekki alveg tónleikana þeirra því að á Amsterdam var hljómsveitin Fist Fokkars að spila. Ég hafði komist að því á facebook að Fist Fokkers voru búinir að setja saman epískan lista yfir tökulög sem þeir fluttu á tónleikunum. Þar voru m.a. lög eins og Don’t Speak með No Doubt, Sinaed O’Connor útgáfu af Nothing Compares 2 U og Sabotage eftir Beastie Boys og í flestum tilfellum voru útgáfur Fist Fokkers betri en upprunalegu útgáfurnar. Frábært live band og ein af skemmtilegri tónleikum hátíðarinnar.

Moment kvöldsins var samt fyrsta lag Beach House Gila því að þau voru bara svo svakalega töff.
Beach House – Gila

Tags: , , , , , ,
Flokkað undir Airwaves, Georg Atli | Comments Off

Myndband frá Fist Fokkers!

19.10.2011 - Georg Atli

Ofurrokkararnir í Fist Fokkers gerðu myndband á dögunum með manni að nafni Craig Downing (ég veit ekkert meira um hann). Myndbandið er við lagið Relax and Decline og er gríðarlega…. hressandi!?

Fist Fokkers – Relax and Decline from craig downing on Vimeo.

Tags:
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off

Topp 5 Airwaves tilhlökkun – Kristín Gróa

12.10.2011 - Kristín Gróa

Það er alveg ótrúlegt að það sé komið að Airwaves hátíðinni enn einu sinni. Mér telst svo til að ég sé búin að fara á hverju ári síðan 2002 sem gerir þetta að tíundu hátíðinni minni í röð og geri aðrir betur! Ef það kemur ár sem ég fer ekki á Airwaves (án þess að vera hreinlega erlendis eða á sjúkrahúsi eða eitthvað álíka) þá veit ég að ég er orðin gömul. Ég er spennt fyrir rosalega mörgu í þetta sinn og þó ég hafi ákveðið að fylla listann minn með frekar fyrirsjáanlegum erlendum tónlistarmönnum þá mun ég reyna að missa ekki af eftirfarandi íslenskum tónlistarmönnum:

Berndsen
Borko
El Camino
Elín Ey
Fist Fokkers
Gang Related
GusGus
Hljómsveitin Ég
Just Another Snake Cult
Kiriyama Family
Markús and the Diversion Sessions
Mugison
Náttfari
NOLO
Of Monsters And Men
Orphic Oxtra
Prins Póló
Sin Fang
Snorri Helgason
Sóley
Stafrænn Hákon
Vigri

Ef ég næ að sjá helminginn af þessu þá verð ég mjög kát. Það má svo auðvitað ekki gleyma því að það skemmtilegasta við Airwaves er allt það sem maður sér óvart og heillar mann samstundis. Ég veit að þetta er orðin pínu klisja en þetta er það sem gerir hátíðina svona skemmtilega. Á hverju ári lendi ég í því að hugsa viku fyrir hátíð “ó shit ég er ekki búin að kynna mér hverjir eru að spila” en svo skiptir það aldrei máli. Það er ekki hægt að undirbúa Airwaves… það er bara hægt að njóta.

Jæja without further ado þá eru þetta þær erlendu sveitir sem ég er spenntust fyrir að sjá!

5. Iceage

Ungir danskir strákar sem eru búnir að vera fastir í hæpmaskínunni síðustu mánuði og það er alveg verðskuldað. Platan þeirra New Brigade er algjört monster og þetta ættu að verða alveg brjálæðislegir tónleikar. Það liggur við að mig langi til að vera tvítugur strákur í eina kvöldstund svo ég geti misst mig yfir þeim eeeen ég verð væntanlega aftast með krosslagðar hendur að missa mig innan í mér.

Iceage – White Rune

4. John Grant

Ég sé fyrir mér að þetta verði mjög tilfinnaþrungnir og innilegir tónleikar þar sem John Grant er rosalega mikið þannig. Textarnir hans eru alveg ótrúlega góðir og hreinskilnir. Lagið I Wanna Go To Marz er líka virkilega gott.

John Grant – I Wanna Go To Marz

3. Glasser

Það hefur ekki farið mikið fyrir Glasser en Ring var ein af betri plötum síðasta árs og hún læddist pínu aftan að mér. Þetta eru tónleikar sem gætu verið hit eða miss en ég hallast frekar að hit, sérstaklega ef maður þekkir lögin.

Glasser – Home

2. tUnE-yArDs

W H O K I L L er ein hæpaðasta plata ársins svo ég er væntanlega ekki ein um það að ætla að sjá tUnE-yArDs. Hæpið finnst mér reyndar algjörlega verðskuldað því þetta er líklega ein besta og jafnframt óvenjulegasta plata ársins og þau live clip sem ég hef séð eru ansi mögnuð. Algjört must-see.

tUnE-yArDs – Killa

1. Beach House

Þetta er líklega stærsta nafnið á hátíðinni í ár ef maður er svona pínu indísnobbari (eins og ég). Ég er búin að vera mjög hrifin af þeim frá því þau gáfu út plötuna Beach House árið 2006 og þau verða bara betri með hverri plötu.

Beach House – Gila

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Airwaves, Kristín Gróa, Listar, Tónleikar | Comments Off

Tónleikar vikunnar

7.4.2011 - Kristín Gróa

Það er brjálað að gera í tónleikunum þessa helgi og þá sérstaklega í kvöld. Endilega látið okkur vita ef þið vitið af einhverju sem við erum að missa af!

Fimmtudagur

Á Norðurpólnum verða rafmagnslausir tónleikar með hljómsveitinni Valdimar og Láru Rúnars. Húsið opnar kl. 20 en tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 21:00. Það kostar 1500 krónur inn. Sjá nánar hér.

Á Bakkus verða útgáfutónleikar Fist Fokkers en þeir gáfu út EP plötuna Emilio Estavez á dögunum. Muck og White Boys With Attitude koma líka fram. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það er frítt inn.

Eins og við minntumst á í gær þá verða Amiina og Borko á Faktorý í kvöld. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það kostar þúsundkall inn. Sjá nánar hér.

Á Sódómu verða Urmull og The Vintage Caravan og hefjast tónleikarnir kl. 22:00. Sjá nánar hér.

Á Dillon stíga No To Self og Ganon á stokk um tíuleytið. Kostar ekkert inn. Sjá nánar hér.

Á Spot í Kópavogi eru styrktartónleikar ME félags Íslands en þar munu blús band Marel og Andrea Gylfadóttir flytja blús. Það kostar 2000 krónur inn. Sjá nánar hér.

Föstudagur

Á Faktorý heldur reggísveitin Hjálmar tónleika sem hefjast kl. 23:00. Það kostar 1500 krónur inn. Sjá nánar hér.

Á Dillon verður rokkbomba en þar koma fram Otto Katz Orchestra, Saktmóðigur og Trust The Lies. Hefst kl. 22:00 og kostar ekkert inn. Sjá nánar hér.

Laugardagur

Á Faktorý verður kanilkvöld #2. Sjá nánar hér.

Á Sódómu snýr Glymskrattinn aftur og verður mikið rockabilly fjör. Fram koma The 59′s, The Cash Kid og El Camino. Húsið opnar kl. 22:00 og það kostar þúsundkall inn. Sjá nánar hér.

Á Dillon verða öll helstu lög Jimi Hendrix spiluð en þar munu The Jimi Hendrix Project láta ljós sitt skína. Tónleikarnir hefjast kl. 22:30 og það er frítt inn. Sjá nánar hér.

Sunnudagur

Á Faktorý verður SunnuJazz en þar verður spilaður dúnmjúkur djass. Hefst kl. 21:30 og það er frítt inn. Sjá nánar hér.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Tónleikar | Comments Off

Fist Fokkers!

4.3.2011 - Georg Atli

Haldiði að fyrsta EP plata hljómsveitarinnar Fist Fokkers sé ekki bara komin út! Hún heitir Emilio Estavez og ég er búinn að hlusta…. gott stöff! Tjékkiði endilega á henni á Gogoyoko.

En við fengum líka tilkynningu um þetta, hún kemur hérna:


Fyrsta EP plata tveggjamanna rokkbandsins Fist Fokkers, sem ber nafnið EMILIO ESTAVEZ, er nú loks komin á veraldarvefinn. Hægt er að kaupa niðurhal af henni á Gogoyoko, en einnig er hægt að streama henni og downloada tveimur lögum frítt af bandcampsíðu sveitarinnar. Platan er gefin út af Brak Records og verða áþreifanleg eintök af plötunni fáanleg í búðum á næstu vikum.

Platan var tekin upp af Alberti Finnbogasyni – Swords of Chaos, Heavy Experience ofl. – og masteruð af Aroni Arnarssyni. Lögin á plötunni eru lög sem spanna þriggja ára lífstíma Fist Fokkers og má líta á hana sem einskonar forsmekk á því sem koma skal. Nafnið á plötunni mun vera einskonar óður til hins geðþekka leikara Emilio Estevez – Breakfast Club, St. Elmos Fire, The Mighty Ducks – en aðspurðir að því hvers vegna nafnið væri skrifað öðruvísi í plötutittlinum höfðu Fist Fokkers menn þetta að segja:

“Við ætluðum upprunalega að láta plötuna heita Emilio Estevez. En síðan þegar Emilio komst að því hótaði hann að lögsækja okkur, þannig við urðum að breyta nafninu í Emilio Estavez til að sleppa við ákæru .”

síðan fylgdi með þessi líka geðveikt flotti video tíser (ég er geðveikt ánægður með alla þessa nýju plötu tísera):

Fist Fokkers // EMILIO ESTAVEZ \\ from Fist Fokkers on Vimeo.

Tags: , ,
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off

Tónleikar vikunnar!

9.12.2010 - Kristjana

Ó elsku desember. Smákökur, heitt súkkulaði og endalausir tónleikar. Tónleikaroundup vikunnar er því stórt, mikið og fjölbreytt. Let the games begin…

Fimmtudagur 9. des.

  • Jóladagatal Norræna hússins í Norræna húsinu kl. 12:34-13:30. Fjórða árið sem Norræna húsið stendur fyrir þessu skemmtilega dagatali. Á hverjum degi, 1.-23. des verður óvænt atriði í Norræna húsinu kl. 12:34. Gefið er upp hverjir koma fram í mánuðinum en ekki hvenær. Þannig verður hver dagur óvæntur – svona eins og að opna hvern dag í jóladagatalinu sínu. Æði. Meðal þeirra sem taka þátt í ár eru Amiina, Árstíðir, Bloodgroup, Ómar Ragnarsson, Ragnheiður Gröndal, Víkingur Heiðar, Útidúr og Stilluppsteypa. Semsagt fáranlega fjölbreytt!

    Markmiðið með jóladagatalinu er að bjóða upp á öðruvísi dagskrá, þar sem jólin sjálf koma ekki endilega við sögu heldur reynt að skapa kósí og góða stemningu og sleppa öllu jólaundirbúningsstressi.
  • Uni og Jón Tryggvi standa fyrir ljúfum og fallegum jólatónleikum þar sem þau munu spila róleg og falleg jólalög ásamt lögum af sólóplötum sínum, sem komu út fyrir síðustu jól.

    Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 í Mosfellskirkju í Mosfellsdal og kostar 1.000 kr inn. Því miður er ekki posi á staðnum þannig að passið að taka pening með.
  • Neðanjarðarfélagið BRAK Hljómplötur ætlar að halda upp á 38 ára afmæli Tré Cool, trommara Green Day, með tónleikum. Góð ástæða fyrir tónleikum. Fist Fokkers, Quadruplos, Markús & the Diversion Sessions, Ljósvaki og Loji verða á Faktorý, tónleikarnir hefjast kl. 21:30 og frítt verður inn.

    Stafrænn Hákon verður andlegur leiðtogi og stuðningsaðili kvöldsins og verður nýjasta afurð hans fáanleg á staðnum.
  • Hljómsveitin Ég og Hellvar verða á Sódóma í kvöld. Stroff átti einnig að koma fram en í stað þeirra kemur háleynilegt og spennandi upphitunarband. Gamanið hefst um 21:30 og 1.000 kr kostar inn.

Föstudagur 10. des

  • Dagurinn byrjar vel í hádeginu með Jóladagatali Norræna hússins.
  • Myrká, Porquesi o.fl. sjá um kvöldið á Sódóma. Húsið opnar kl. 22:00 og 1.000 kr kostar inn.
  • Fyrra kvöld Jólaplöggs Record Records 2010 verður á Faktorý. Bloodgroup, Ensími, Of Monsters & Men og Sing For Me Sandra bjóða upp á tónlistarveislu kvöldsins sem hefst á slaginu 22:00. Hægt er að kaupa miða á annað kvöldið fyrir 1.000 kr en armband sem gildir bæði kvöldin kostar 1.500 kr. Annars eru allar nánari upplýsingar hér.

Laugardagur 11. des

  • Jóladagatal Norræna hússins heldur áfram og byrjar að venju kl. 12:34.
  • Benni Hemm Hemm heldur upp á útgáfu Skots með tónleikum á Bakkusi. Þetta verður magnað kvöld því auk Benna Hemm Hemm munu Retro Stefson sjá um undirleik (eins og við upptökur á Skoti), Prins póló hitar upp, Bárujárn leikur nokkur lög eftir að Benni Hemm Hemm klárar og að lokum tekur DJ Öfull við.

    Allt þetta fyrir 1.000 kr, sé keypt í forsölu í Havarí, eða 1.500 kr við hurð. Best að tryggja sér miða í forsölu og mæta svo tímanlega en tónleikarnir hefjast kl. 21:00.
  • Sé ætlunin að kíkja í Havarí til að tryggja sér forsölumiða á útgáfutónleikana er líklega sniðugt að gera það um 16:00 því þá mun Benni Hemm Hemm hita upp fyrir tónleikana – í Havarí. Að sjálfsögðu verður frítt inn.
  • Seinna kvöld Jólaplöggs Record Records 2010 á Faktorý. Í þetta skipti koma fram Agent Fresco, Moses Hightower, Útidúr og For a Minor Reflection. Fjölbreytt og frábært kvöld sem byrjar 22:00.
  • Berndsen og Valdimar verða á Sódóma. Húsið opnar kl. 22:00, Valdimar stígur á stokk á miðnætti og Berndsen ætti að byrja um 01:00. Miðaverð er 1.000 kr.

Sunnudagur 12. des

  • Jóladagatal Norræna hússins er góð leið til að byrja sunnudaginn. Hver ætli komi fram í dag?
  • Uni og Jón Tryggvi ætla að bjóða upp á aðventutónleika heima hjá sér á Merkigili, Eyrarbakka. Svavar Knútur kemur við og töfrar fram jólaandann.

    Tónleikarnir hefjast kl. 20:00, heitt verður á könnunni og piparkökur í boði. Frítt er inn en frjáls framlög verða vel þegin. Tilvalið til að koma sér í jólastemninguna.

Mánudagur 13. des

  • Jóladagatal Norræna hússins kl. 12:34

Þriðjudagur 14. des

  • Jóladagatal Norræna hússins kl. 12:34

Miðvikudagur 15. des

  • Jóladagatal Norræna hússins kl. 12:34

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Tónleikar | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin