Topp 5 lög ársins 2011 – Snorri
30.12.2011 - Snorri
Fullt af frábærum lögum árið 2011 og alltaf jafn erfitt að setja saman svona lista. En fæst orð hafa minnsta ábyrgð…
Hér eru þau topp 20 lög sem fylgja fast á hæla þeirra 5 efstu – Í stafrófsröð:
Active Child – Hanging On
Adele – Set Fire to the Rain
Ane Brun – Do You Remember ?
The Antlers – I Don’t Want Love
Bombay Bicycle Club – Lights Out, Words Gone
First Aid Kit – The Lion’s Roar
Fleet Foxes – Sim Sala Bim
Gardens & Villa – Cruise Ship
James Blake – The Wilhelm Scream
Lia Ices – Daphne
Lykke Li – I Follow Rivers
Mason – Boadicea
Neon Indian – Polish Girl
Peter Bjorn and John – Second Chance
SBTRKT – Wildfire (feat. Little Dragon)
Slow Club – Two Cousins
Toro y Moi – New Beat
Tune-Yards – Bizness
When Saints Go Machine – Kelly
Youth Lagoon – 17
Og svo topp 5:
5. PJ Harvey – The Glorious Land
Það er erfitt að velja eitt lag af þessari mögnuðu plötu en þetta lag hitti beint í mark í fyrstu hlustun þrátt fyrir lúðurinn alræmda.
4. Washed Out – Amor Fati
Lag sumarsins. Eitt af mörgum myndböndum tekið á Íslandi á árinu.
3. iamamiwhoami – ; john
Kom tæknilega ekki út á plötu þar sem Jonna Lee fer óvenjulegar leiðir við að koma tónlist sinni til skila en myndbandið var sett á Youtube á árinu. Og þvílíkt myndband.
2. Wild Beasts – Bed of Nails
Af einni af bestu plötum ársins sem fékk ef til vill of litla athygli.
1. Bon Iver – Holocene
Það þarf nú ekki að segja meir um þetta lag og plötu en þegar hefur verið gert. Íslenskt landslag í aðalhlutverki í myndbandinu eina ferðina enn og svínvirkar eins og vanalega. Gæsahúð ársins 2011.
Tags: Active Child, Adele, Ane Brun, Bombay Bicycle Club, Bon Iver, First Aid Kit, Fleet Foxes, Gardens & Villa, iamamiwhoami, James Blake, Lia Ices, Lykke Li, Mason, Neon Indian, Pallers, Peter Bjorn and John, PJ Harvey, SBTKRT, Slow Club, The Antlers, Toro y Moi, Washed Out, When Saints Go Machine, Wild Beasts, Youth Lagoon
Flokkað undir Listar, Snorri | Comments Off
Fullt af “útlenskum tónleikum” á árinu
1.5.2011 - Georg Atli
Síðastliðin ár hafa verið ansi mögur þegar að það kemur að erlendum tónlistarmönnum að spila á Íslandi, að er líklega skiljanlegt. En núna í ár ætlar þetta heldur betur að breytast! Til að sanna mál mitt bendi ég ykkur á að lesa lengra…
Steingervingarnir í Eagles ætla að spila (löngu uppselt) og Cindy Lauper og svoleiðis… en svo eru líka alveg fullt af skemmtilegum tónlistarmönnum sem ætla líka að koma til okkar! Indíhausarnir eru náttúrulega búnir að fá ansi feitan bita með Deerhunter og Lower Dens (þó að þau ahfi ekki verið frábær þá er samt gaman að hafa séð þau) á Reykjavík Music Mess.
Svo kemur Elvis Costello og það er ansi flott dæmi. Harðkjarnaliðið fær svo að sjá eina af frægustu hljómsveitum þess tónlistarsviðs þegar Converge treður upp á Faktorý í júní (hafa þeir ekki komið áður??).
Maí er ansi góður tónleikamánuður því að þann 22. ætlar Caribou (og Sin Fang) að spila á NASA og það verður væntanlega geðveikt. Nokkrum dögum síðar verða spanjólarnir í hljómsveitin Ojos de Brujo að spila í tengslum við Listahátíð, það er alveg þess virði að tjékka á þeim ef að þið viljið heyra eitthvað aðeins öðruvísi eða ef að þið fílið “heimstónlist” (heimsins kjánalegasta nafn á tónlistarstefnu).
Síðan er Iceland Airwaves í október eins og venjulega og þar er þegar búið að tilkynna alveg heilan helling af flottum böndum, m.a. Beach House, tUnE-YarDs, Liturgy, John Grant og Zebra and Snake. Svo er einhver orðrómur um það að Fleet Foxes gætu verið á leiðinni þangað sem að væri frábært… en það eru mjög óstaðfestir orðrómar, ennþá.
Í gær var sagt frá því að Cut Copy ætli að spila í júlí. Ég held að það verði svakalegir partýtónleikar því að hressari syntharokksveit er vandfundin.
Svo er annar orðrómur um það að hljómsveitin Low (sem voru að gefa út plötu í byrjun apríl) sé væntanleg, en það er samt bara slúður sem að ég vona að verði að einhverju… þangað til að að það gerist getiði sótt þetta lag sem þau gáfu á heimasíðunni sinni.
Tags: Beach House, Caribou, Converge, Cut Copy, Cyndi Lauper, Deerhunter, Eagles, Elvis Costello, Fleet Foxes, John Grant, Liturgy, Low, Lower Dens, Ojos de Brujo, Sin Fang, tUnE-yArDs, Zebra and Snake
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | 2 athugasemdir »
Topp 5 sunnudagslög – Einar Birgir (gestalisti)
29.4.2011 - Georg Atli
Jæja… það var dræm þáttaka í listunum yfir páskana en nú komum við aftur með stæl…. eða eitthvað svoleiðis. Við fengum amk aldeilis frábæran gestalistamann með okkur. Einar Birgir er/var einn af skemmtilegustu tónlistarbloggurum landsins og það væri alls ekki vitlaust ef að þið fylgdust með blogginu hans (sem uppfærist vonandi einhvern tímann…), hann fékk sjálfur að velja sér þema og hann ákvað að taka fyrir sunnudagslög, gott stöff.
Listinn hans Einars Birgis:
Zunnudagur. Það er eiginlega óhugsandi fyrir mig að velja 5 topp sunnudagslög. Lagavalið breytist nær örugglega á hverjum sunnudegi eftir ástandi og skapi. En núna (allavega þegar þetta er skrifað) er sunnudagur og hér koma því fimm fín sunnudagslög. Reyndar verður þessu listi birtur á föstudegi en það er alveg óhætt fyrir þig, lesandi góður, að hlusta ótæpilega því það er enginn föstudags-partí-púper í þessu. Eða svona næstum því.
John Maus er vanmetinn snillingur og fyllilega verðskuldað sæti á sunnudagslistanum. Ég vona að 2011 og væntanleg plata hans færi honum lo-fi frægð og frama. Quantum Leap gefur fögur fyrirheit enda hreinræktaður dúndursmellur. Quantum Leap voru einnig uppáhald sjónvarpsþættirnir mínir í æsku. Scott Bakula 4eva og allt það.
Pornopop – Death Tape
Pornopop eru að fara gefa út nýja á plötu eftir smástund og er eftirvæntingin gríðarlega mikil hér á bæ. ‘Death Tape‘ lagið af síðustu plötu þeirra er alveg svakalegur sunnudagur. Drungi og melankólía og hin snargeðveiki Jim Jones að lesa síðustu orðin yfir söfnuðinum sínum áður en fjöldasjálfsmorðin í Jonestown urðu að veruleika 1978. http://en.wikipedia.org/wiki/Death_tape fyrir áhugasama.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Robin Pecknold – I’m Losing Myself (feat. Ed Droste)
Sunnudagslegasta lagið. Angurvært og undurfallegt. Robin Pecknold, forsprakki Fleet Foxes, gaf nýverið frá sér 3 laga vef/smáskífu fríkeypis sem vert er að gefa ærlegan gaum. Á þessu lagi sönglar Ed Droste úr Grizzly Bear einnig með honum. Fínt. Þess má kannski til gamans geta að hann hefur áður gefið út svona sóló stöff undir nafninu White Antelope sem er ekki síður æðislegt.
Einstaklega næs lag frá Pepper Rabbit. Voðalega upbeat og ljúft. Ég veit eiginlega ekkert um þennan dúett en þetta lag er góður sunnudagur.
Lykke Li – Sadness is a Blessing
Sunnudagur fyrir þunglyndissjúklingana. Ég reyndi einu sinni að hata Lykke Li en það gekk ekki upp, hún er alltof fín. Þetta er uppáhaldið af nýju plötunni og mikið sunnudagslag.
Tags: Fleet Foxes, Grizzly Bear, John Maus, Lykke Li, Pepper Rabbit, Pornopop, Robin Pecknold, White Antelope
Flokkað undir Gestalisti, Listar | Comments Off
Topp 5 borgir – Kristín Gróa
28.2.2011 - Kristín Gróa
Það er nú auðvelt að túlka þetta þema á margvíslegan hátt en ég ákvað einfaldlega að lista upp uppáhalds borgirnar mínar og hafa með lag sem tengist hverri borg.
5. Seattle
Ég hef bara farið til Seattle vegna vinnunnar en það skiptir í raun ekki máli því ég var svo ótrúlega dugleg að nýta allan lausan tíma í að labba um borgina og skoða allt sem ég gat. Ég hef bara verið ein í Seattle og það setur vissulega ákveðinn blæ á dvölina en samt skemmti ég mér stórkoslega vel vð að skoða mig um. Ég var sérstaklega dugleg við að labba um þegar ég var þarna að sumri til, æddi út um allt og borðaði ein á mörgum æðislegum veitingastöðum. Ég hef tvisvar fengið svona “shit hvað ég er í bestu vinnu í heimi” tilfinningu á vinnuferðalögum. Fyrra skiptið var þegar ég sat ein úti í sólinni á high-end kínverskum veitingastað í Brisbane með geðveikan mat og rauðvín… hitt skiptið var þegar ég sat ein inni á fínum sjávarréttaveitingastað í Seattle með krabba og hvítvín. Það er alveg hægt að njóta lífsins einn með sjálfum sér
4. San Fransisco
Ég eyddi tveimur vikum í San Fransisco sumarið 2005 og það var eitt af bestu sumarfríum sem ég hef farið í. Fyrir utan að við leigðum okkur Mustang og keyrðum meðfram ströndinni niður til Carmel (sem er hugsanlega fallegasta akstursleið í heimi) þá var bara svo gaman að vera í San Fransisco. Það eru vissulega neikvæðar hliðar á borginni og þá aðallega það yfirgengilega magn af dópistum og veiku fólki sem býr á götunni og betlar af manni endalaust. Ég sver að ég hef bara aldrei lent í öðru eins og þetta kom mér algjörlega í opna skjöldu. Kostirnir vega samt upp á móti göllunum. Það eru svo mörg skemmtileg og einstök hverfi þarna, hvert með sinn stíl og karakter. Borgin er rosalega falleg enda mikið landslag (úff mig verkjar í kálfana bara við að hugsa um hæðirnar) og svo skemmir ekkert fyrir að hafa útsýni yfir Golden Gate brúna og Alcatraz. Já og í San Fransisco fæst besti kínverski matur sem ég hef smakkað í heiminum… Kína meðtalið!
Grateful Dead – Sugar Magnolia
3. Barcelona
Það var eiginlega alveg óvart sem Barcelona varð ein af uppáhalds borgunum mínum. Ég hafði komið þangað áður en að vera þar í tvær vikur á eigin vegum innsiglaði alveg ást mína á þessari borg. Hún er bæði eldgömul og glæný, það er svo fallegt þar, maturinn er algjörlega geðveikur, rauðvínið flæðir (og cavað líka), maður getur grillast á ströndinni og svo farið í kjól og hæla að kvöldi til og fengið sér fínan drykk. Þessi borg hefur allt sem maður gæti mögulega þarfnast.
I’m From Barchelona – We’re From Barcelona
2. New York
Ég ætla ekki að þykjast vera einhver sjóaður New york fari því ég hef bara farið þangað einu sinni í vikuferð (já ég veit skandall) en það er bara eitthvað við New York sem veldur því að maður verður ástfanginn við fyrstu sýn. Ég var með skemmtilegu fólki, borðaði æðislegan mat í hvert mál, sá þúsund nýja hluti á hverjum degi, verslaði mikið og bara naut lífsins í botn. Ég þarf að fara að drífa mig aftur.
LCD Soundsystem – New York I Love You But You’re Bringing Me Down
1. London
Eina borgin á þessum lista sem ég kem til á hverju ári. Það er ekki einu sinni viljandi en það æxlast bara einhvernveginn alltaf þannig. Ég hef farið vinkonuferð, rómantíska ferð, mæðgnaferð, vinahópsferð, verslunarferð, heimsækja-ættingja-ferð… og það er alltaf jafn gaman. Stundum er bara gott að koma á stað þar sem maður þekkir allt. Þar sem maður kann á samgöngukerfið, veit hvar góði maturinn er (btw þá skil ég ekki þann mikla misskilning um að það sé ekki hægt að fá góðan mat í London), talar tungumálið og ratar um göturnar. Úff ég fór síðast í nóvemberlok og mig langar strax aftur!
Tags: Blur, Fleet Foxes, Grateful Dead, I'm From Barcelona, LCD Soundsystem
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off
Topp 5 uppgjör – Georg Atli
22.1.2010 - Georg Atli
1. Hverjir voru bestu tónleikar sem þú sást á árinu?
Eins og svo margir þá neyðist ég til að kvarta yfir lélegu tónleika ári, en ég náði samt nokkrum ansi góðum og þeir voru báðir í þessari rosa snjöllu tónleikaröð Manstu ekki eftir mér. Ég sá Megas og Senuþjófana flytja Millilendingu (hann var rosalegur!) og líka Ensími taka Kafbátamúsík það var gaman.
2. Hvaða gamalt dót uppgötvaðir þú á árinu?
Í ár uppgötvaði ég loksins Beach Boys. Ekki það að ég hafi ekki vitað af þeim eða eitthvað svoleiðis en mér hefur bara aldrei þótt þetta vera neitt sérstaklega skemmtilegt en síðan loksins asnaðist ég til að fara að hlusta á þetta aftur og enn einu sinni og fannst það bara mjög skemmtilegt og Pet Sounds er geðveikt góð plata! Líka Ariel Pink, það voru nokkuð margar hljómsveitir sem sóttu innblástur í Ariel Pink’s Haunted Graffiti á árinu og hann fékk svona uppreisn æru, hann hefur reyndar bara verið að gefa út sólóplötur síðan 2003 þannig að hann telst kannski ekki vera gamalt.
3. Hver voru mestu vonbrigði ársins?
Ég varð nú ekkert fyrir rosalegum vonbrigðum með neitt á þessu ári, nefni kannski helst plötuna með The Temper Trap, ég heyrði lagið Sweet Disposition í fyrra og hélt að það væri enn ein góð Áströlsk hljómsveit að koma en aldeilis ekki platan þeirra var ótrúlega léleg plata…. þetta er eins og nýja dótið frá U2 nema bara miklu lélegra (og mér finnst U2 í dag ekki vera góð hljómsveit).
4. Hverju ætlaðirðu alltaf að tékka á á árinu en trassaðir?
Neutral Milk Hotel. Ég er búinn að vera á leiðinni að hlusta á þetta í langan tíma en bara aldrei lagt í það.
5. Hver er bjartasta vonin?
Mér finnst The XX vera rosa efnileg og líka svíarnir í JJ, þau gáfu út tvær plötur í fyrra (JJ nº 1 og JJ nº 2) og í ár ætla þau að gefa út sína þriðju plötu sem að á að heita JJ nº 3. Og svo féll ég alveg fyrir annari plötu Wild Beasts og á eftir að fylgjast spenntur með næstu útgáfum. Ég held líka að hljómsveitin Fanfarlo (mjög Beirut-legt) eigi eftir að gera það ansi gott á næstu árum.
6. Bónusspurning að eigin vali: Hvaða plötum á árinu 2010 ertu spenntastur yfir?
Fullt af góðum plötum að fara að koma út:
Arcade Fire, The Strokes, Massive Attack, Frightened Rabbit, Yeahsayer, The Magnetic Fields, The National, Four Tet, MGMT, Panda Bear, Interpol, Fleet Foxes, Cat Power, Sleigh Bells, The Walkmen og fullt fullt fullt í viðbót
Tags: 2009, arcade fire, Ariel Pink, Árslisti, Beach Boys, Beirut, Cat Power, Ensími, Fanfarlo, Fleet Foxes, Four Tet, Frightened Rabbit, Interpol, JJ, Massive Attack, Megas, MGMT, Neutral Milk Hotel, Panda Bear, Senuþjófarnir, Sleigh Bells, Temper Trap, The Magnetic Fields, The National, The Strokes, The Walkmen, The XX, U2, Uppgjör, Wild Beasts, Yeahsayer
Flokkað undir Georg Atli, Listar | 2 athugasemdir »
Topp 5 plötur ársins, númer FIMM – Kristín Gróa
11.1.2010 - Kristín Gróa
Ég verð að viðurkenna að það voru ekki jafnmargar plötur sem heltóku mig eins og árið 2008 enda var erfitt að fylgja því eftir. Síðasti árslisti hjá mér hljóðaði svona:
5. Wolf Parade – At Mount Zoomer
4. The Dodos – Visiter
3. Vampire Weekend – Vampire Weekend
2. Fleet Foxes – Fleet Foxes
1. TV On The Radio – Dear Science
Í þetta skipti ætlum við að telja plötur árins niður dag frá degi svo í dag birtast aðeins runners up og fimmta sætið.
Runners up:
Smith Westerns – Smith Westerns
Dirty Projectors – Bitte Orca
The Mountain Goats – The Life Of The World To Come
The Pains Of Being Pure At Heart – The Pains Of Being Pure At Heart
The XX – XX
Yo La Tengo – Popular Songs
Fever Ray – Fever Ray
The Thermals – Now We Can See
Grizzly Bear – Veckatimest
Animal Collective – Merriweather Post Pavillion
Fimmta besta plata ársins að mínu mati er svo:

5. Yeah Yeah Yeahs – It’s Blitz!
Áður en ég tala nokkuð meira um plötuna sjálfa þá verð ég að segja að þetta er hands down uppáhalds plötucoverið mitt þetta árið, ef ekki þennan áratuginn. Rosalega flott og einföld hugmynd sem grípur augað. Mér fannst þessi plata aldrei fá sérstaklega mikla umfjöllun og í síðasta toppfimm hittingi vorum við öll sammála um að hún væri gróflega vanmetin og að hún myndi örugglega ekki skora hátt á árslistunum. Já við vorum greinilega í ruglinu því hún skoraði síðan bara rosa hátt á árslistunum og lögin á henni líka. Jáhhá!
Burtséð frá því öllu þá er þetta bara killer plata sem er vissulega dálítið brotthvarf frá því sem YYY hafa verið að gera en inniheldur engu að síður nokkur af sterkustu lögum þeirra frá upphafi eins og Zero, Heads Will Roll og Hysteric.
Tags: 2009, Animal Collective, Árslisti, Dirty Projectors, Fever Ray, Fleet Foxes, Grizzly Bear, Smith Westerns, The Dodos, The Mountain Goats, The Pains of Being Pure at Heart, The Thermals, The XX, TV on the Radio, Uppgjör, Vampire Weekend, Wolf Parade, Yeah Yeah Yeahs, Yo La Tengo
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off
Fimmtudagshressleiki!
19.2.2009 - Kristjana

Tags: arcade fire, Bright Eyes, Calvin Harris, Caribou, Carla Bruni, Chromeo, Dr. Dog, Eureka Birds, First Aid Kit, Fleet Foxes, Gogol Bordello, Man Man, Midnight Poutine, Plants & Animals, The Sarcastic Dharma Society, The Tom Fun Orchestra, Tom Waits
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað | 3 athugasemdir »
Uppgjör Árna á árinu 2008
10.1.2009 - Árni Sverrir
Sæl öllsömul og afsakið listaleysið mitt að undanförnu.
Hér kemur árið mitt…
1. Hverjir voru bestu tónleikar sem þú sást á árinu?
Held að ég hafi aldrei verið jafnlatur við að sækja tónleika og í ár en bestu tónleikar ársins eru:
Neil Young á Hróa…hef sjaldan séð nokkurn mann spila á gítarinn sinn af jafnmikilli hörku.
Grinderman á Hróa…gredda og grár fiðringur en samt með snyrtileikann í fyrirrúmi.
Reykjavík! á Kaffibarnum…þegar við gengum inn þá stóðum við á milli bassaleikarans og trommarans. Svo var Bóas klifrandi upp á öllu, fólk að góla í míkrófóninn, guttar að grípa í gítara og spila með, Jack Daniels flöskur sem gengu um meðal áhorfenda og svo bara svaka gaman.
Stones tribute á Dillon sportbar…óskilgetinn sonur Jaggers kom þarna fram því líkindin voru skuggaleg.
Síðast en ekki síst er þegar Heiða í Unun tók Lög unga fólksins á Menningarnótt í Friðarhúsinu…takk Óskar fyrir óskalagið
2. Hvaða gamalt dót uppgötvaðir þú á árinu?
Hef átt góðar stundir með Koggu frænku minni að hlusta á tónlist og hef því uppgötvað Pílu pínu og Glám og Skrám á nýjan leik. Mjög góð lög, ekki síst hjá Röggu Gísla.
Fór loksins að hlusta almennilega á Neil Young í tilefni af hróa. Silver and gold stendur upp úr af þeirri hlustun.
Megas og Passíusálmarnir. Fór að kenna 17. öldina og sálmarnir létu mig ekki í friði.
3. Hver voru mestu vonbrigði ársins?
Að hafa ekki farið á Þursana, Sigur rós, Björk í Norræna húsinu, Aldrei fór ég suður, Síldarbræðsluna í Borgarfirði eystri og Airwaves.
4. Hverju ætlaðirðu alltaf að tékka á á árinu en trassaðir?
Fleet foxes
Kings of Leon
MGMT
Bonnie Prince Billie
FM Belfast
Ólafur Arnalds
Heima með Sigur rós
5. Hver er bjartasta vonin?
Bon Iver er svaka skemmtilegt
Sin fang bous kom sterkur inn rétt fyrir jól
6. Ætlarðu á Hróa 2009?
hugsanlega…
Tags: 2008, Airwaves, Aldrei fór ég suður, Árslisti, Björk, Bon Iver, Bonnie Prince Billy, Bræðslan, Fleet Foxes, FM Belfast, Glámur og Skrámur, Grinderman, Heiða, Hróarskelda, Kings of Leon, Megas, MGMT, Mick Jagger, neil young, Ólafur Arnalds, Píla pína, Ragga Gísla, Reykjavík!, Rolling Stones, Roskilde, Sigur Rós, Sin Fang Bous, Unun, Uppgjör, Þursaflokkurinn
Flokkað undir Listar, Árni | Comments Off
Lokauppgjör 2008 – Krissa
10.1.2009 - Kristjana
1. Bestu tónleikar sem þú sást á árinu?
A close second var líklega að sjá The Kills þegar Kristín heimsótti Montréal deildina í maí. Bjóst einhvern veginn ekki við miklu en svo voru þau bara geðveik og það var svo brjálæðislega mikill kynþokki á sviðinu að maður varð næstum vandræðalegur við að horfa á það haha
2. Gamalt dót sem ég uppgötvaði á árinu:
Svo telst það nú kannski ekki gamalt, en kom allavega ekki út á árinu, að ég afrekaði loksins að hlusta á Panda Bear eftir að hafa keypt Person Pitch í byrjun ársins. Og ég skil engan veginn afhverju ég hlustaði ekki á hann fyrr? Hvaða rugl var það eiginlega? Ég meina, Bros er bara svo fáranlega æðislega awesomely gott lag!
Og já, svo tók ég allsvaðalegt æði aftur fyrir The Milk of Human Kindness með Caribou eftir að sjá hann í apríl – hann var bara simply of góður og ég var með plötuna á repeat næstu vikurnar þegar ég rölti um götur Montréal – endurtók algjörlega æðið sem ég fékk þegar hún kom út
3. Vonbrigði ársins
Engin ein plata eða hljómsveit sem ég varð fyrir neinum gríðarlegum vonbrigðum með á árinu. En tónlistartengd vonbrigði ársins eru samt svo mörg að þau eru í punktaformi:
- að missa af Dodos live í Montréal út af einhverju asnalegu eins og að þurfa að skila verkefni í skólanum eða e-ð.
- að neyðast til að sitja undir Rihanna á undan Kanye. Ég bjóst nú við að það yrði allavega hresst eða e-ð en það var bara…leiðinlegt! Held í alvöru að það skásta sem ég hafi um málið að segja sé að sviðið var alveg fínt haha. Hún var allavega engan veginn góð upphitun!
- að hafa gleymt (nei sko, bókstaflega, gleymt!) að mæta á El Perro del Mar og Lykke Li eftir að vera löngu búin að kaupa miða og vera búin að tala um tónleikana oft í vikunni. Fatta svo í hádeginu daginn EFTIR tónleika að ég átti að vera e-s staðar kvöldið áður.
- að hafa ekki skellt mér á M.I.A. þegar hún var að spila úti. Man ekki hvort það var forgangsröðun sem réði eða hvað en það var klárlega rugl að fara ekki!
- að hafa ekki séð Duchess Says þegar ég var nýkomin út til Kanada – heyrði plötuna viku seinna eða e-ð og varð ansi fúl!
- Xiu Xiu tónleikarnir sem ég fór á voru pínu vonbrigði. Upphitunin (Thao Nguyen and the Get Down Stay Downs) var betri en sjálft aðalnúmerið, allavega það kvöldið!
- Og síðast, en alls ekki síst, sé ég eftir að hafa gengið út úr miðasölunni 5 mín áður en Tom Waits hóf spilerí í Mobile í Alabama í sumar – út af einhverju svona asnalegu eins og að sætin væru svo fáranlega léleg og miðaverðið svo hátt. Ég meina, hversu oft fær maður tækifæri til að sjá Waits live? Þó það sé bara í partial view? ;/
4. Ætlaði alltaf að tékka á en trassaði:
5. Bjartasta vonin
6. Hvaða tónleikar komu þér mest á óvart á árinu?
Svo kom Sam Amidon mér skemmtilega á óvart á Airwaves
Tags: 2008, Árslisti, Bob Dylan, Bon Iver, Brad Barr, Caribou, Duchess Says, El Perro Del Mar, Fleet Foxes, Kanye West, Lykke Li, M.I.A., Man Man, Panda Bear, Patrick Watson, Rihanna, Sam Amidon, Thao Nguyen and the Get Down Stay Downs, The Dodos, The Kills, Tom Waits, Uppgjör, Xiu Xiu
Flokkað undir Kristjana, Listar | Comments Off
Lokauppgjör 2008 – Kristín Gróa
9.1.2009 - Kristín Gróa
1. Hverjir voru bestu tónleikar sem þú sást á árinu?
Ég sá reyndar alveg fáránlega mikið af flottri tónlist á árinu en þeir fara allir í einn graut því ég afrekaði strax í febrúar að sjá bestu tónleika lífs míns. Ég gerði mér ferð til Kaupmannahafnar til að sjá hetjuna mína hann Neil Young spila og ég kem aldrei til með að upplifa annað eins. Hálft settið var hann einn acoustic og svo kláraði hann þetta með hljómsveit og gaf allt í botn með old black á öxlinni. Að sjá átrúnaðargoðið sitt spila öll sín bestu lög í fantagóðu formi í tvö þúsund manna sal er eitthvað sem er ekki hægt að toppa. Ég sá hann reyndar aftur á Hróarskeldu og það var geðveikt en þessir tónleikar í Kaupmannahöfn voru út úr kortinu.
2. Hvaða gamalt dót uppgötvaðir þú á árinu?
So the great affair is over but whoever would have guessed
It would leave us all so vacant and so deeply unimpressed
It’s like our visit to the moon or to that other star
I guess you go for nothing if you really want to go that far
Leonard Cohen. Tjah kannski fullmikið sagt að ég hafi verið að uppgötva hann á árinu en lengi vel var New Skin For The Old Ceremony eina platan sem ég hafði hlustað á. Ég bætti þremur plötum í safnið á árinu og féll pínku fyrir kallinum. Textarnir hans eru kreisí góðir.
3. Hver voru mestu vonbrigði ársins?
The Notwist platan The Devil, You + Me. Ég keypti hana algjörlega óheyrða af því ég hafði lesið svo rosalega margt jákvætt um hana en jánei… mér fannst hún eiginlega bara leiðinleg. Ótrúlega unremarkable plata.
4. Hverju ætlaðirðu alltaf að tékka á á árinu en trassaðir?
Microcastles með Deerhunter hefur enn ekki fengið að hljóma í mínum eyrum en hún þykir almennt einn af hápunktum ársins. Ég var reyndar örugglega eina manneskjan sem kveikti aldrei á Cryptograms og samt á ég hana uppi í hillu… svo kannski fíla ég nýju ekkert heldur? Hmmm.
5. Hver er bjartasta vonin?
Á topp fimm plötulistanum mínum voru þrjár debut plötur en vinninginn hafa Fleet Foxes, það er engin spurning. Ótrúlega þroskuð og vönduð frumraun sem þeir sendu frá sér.
6. Bónusspurning að eigin vali
Hverjar voru bestu íslensku plötur ársins?
FM Belfast – How To Make Friends, Sigur Rós – Með suð í eyrum við spilum endalaust og Ultra Mega Technobandið Stefán – Circus.
Tags: 2008, Árslisti, Deerhunter, Fleet Foxes, FM Belfast, Hróarskelda, Leonard Cohen, neil young, Roskilde, Sigur Rós, The Notwist, Ultra Mega Technobandið Stefán, Uppgjör
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off












