Topp 5 ósmekkleg lög – Georg Atli

30.4.2010 - Georg Atli

Þegar að ég var að reyna að búa til lista yfir ósmekklegustu lögin sem ég myndi eftir þá myndi ég eiginlega ekki eftir neinu… þannig að ég ákvað bara að gera lista yfir myndbönd sem henta ekki allstaðar og eiginlega alls ekki í vinnuni eða fyrir þá sem eru undir 18:

5. Rammstein – Pussy

Mér finnst Rammstein eki skemtileg hljómsveit og þess vegna aldrei nennt að horfa á myndböndin þeirra en það var svo mikið talað um þetta myndband að ég horfði á það. Mér finnst það svolítið merkilegt sko… ádeilan og allt það. En þetta er reyndar ritskoðaða útgáfan, nennti ekki að fara og finna óritskoðuðu útgáfuna (og embed-link með) en þið getið fundið hana hér.

4. Flying Lotus – Parisian Goldfish

Flying Lotus finnst mér aftur á móti skemmtilegt að hlusta á og myndbandið er mjög merkilegt. Ég var búinn að setja það inn einhverntíman áður og þá fannst mér rétt að taka fram að það er ekki sniðugt að horfa á það ef maður er flogaveikur… það á líka við núna.

Flying Lotus “Parisian Goldfish” from Eric Wareheim on Vimeo.

3. M.I.A. – Born Free

nýtt myndband og nýtt lag (sem fylgir með) líka frá M.I.A. sem er örugglega það flottasta sem hefur komið frá Sri Lanka (án þess að ég sé að gera lítið úr Sri Lanka).

Lag: M.I.A. – Born Free

2. Devandra Banhart – Foolin’

Devandra Banhart er svona krúttlegur og skrítinn folk gaur. Þetta myndband er samt ekkert rosalega krúttlegt sko, þó að það sé ástarsaga.


Devendra Banhart “Foolin”

Devendra Banhart | MySpace Music Videos

1. Massive Attack – Paradise Circus

Mér finnst það einhverra hluta vegna mjög undarlegt af Massive Attack að fara þessa leið í myndbandagerð. Toby Dye gerði myndband/heimildarstuttmynd með aðalklámleikkonunni úr einhverri 70′s klámmynd, með tilheyrandi myndbrotum, maður man ekkert hvernig lagið er eftir að hafa horft á myndbandið en það er samt mjög gott… í alvöru og Hope Sandoval syngur, það er alltaf plús.

Massive Attack, “Paradise Circus” featuring Hope Sandoval | Triphop Blog
- Watch more Music Videos at Vodpod.

Tags: , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off

Topp 5 Plötur 2008 – Georg

2.1.2009 - Georg Atli

1. Bon Iver – For Emma, Forever Ago

Einlægasta og fallegasta og sárasta og besta plata sem ég hef heyrt í langan tíma… (ok hún kom út í des 2007 en mér finnst hún svo góð að ég ætla samt að hafa hana efsta á 2008 listanum)

Skinny Love à la Blogothèque

2. Cut Copy – In Ghost Colors

…sækadelic-elektró-rokk??? Rosalega flott og gott og hressandi, soldið líkt MGMT en mér finnst þetta betra.

Hearts On Fire:

3. Fleet Foxes – Fleet Foxes

Nýliðar ársins með ótrúlega þægilega plötu (þægilegt er meint á sem bestan hátt), þeir fá fullt lánað allstaðar frá og gera það bara mjög vel.

White Winter Hymnal

4. Marnie Stern – This Is It And I Am It And You Are It And So Is That And He Is It And

She Is It And It Is It And That Is That

Óhljóða-pönk-krútt (eða eitthvað svoleiðis) með geðveikt flottum gítar!

Ruler

5. Flying Lotus – Los Angeles

Hipp-hopp plata ársins

Vídjóið er hér, en það er víst ekki við allra hæfi (enda var það bannað af Youtube)… og það eru blikkljós svo ekki horfa ef þið eruð flogaveik…

Komust-ekki-alveg-á-listann-listinn

MGMT – Oracular Spectacular

Fucked Up – The Chemistry Of Common Life

Glasvegas – Glasvegas

Beck – Modern Guilt

Nick Cave – Dig, Lazarus Dig!

Vampire Weekend – Vampire Weekend

Portishead – Third

TV On The Radio – Dear Science

Tags: , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | 1 athugasemd »

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin