FM BELFAST kynnir nýtt lag og myndband
26.6.2012 - Georg Atli
Það er skammt stórra högga á milli, í gær sögðum við frá væntanlegri komu Japandroids hingað til lands og nú er frábæra fólkið í FM Belfast að gefa út nýtt lag OG myndband!! Við fengum tilkynningu frá FM Belfestingum um útgáfuna og hún fylgir að sjálfsögðu neðst. Eins og önnur myndbönd frá FM Belfast þá er það mjög skemmtilegt og ég hvet ykkur endilega til að hlusta og horfa á það.
FM Belfast kynnir með stolti nýjasta lag sitt, DeLorean. Lagið er flutt á heimatilbúinn hljóðgervil sem var smíðaður af Árna Plúseinum (Árni Rúnar Hlöðversson). Þó hljóðfærið líti út eins og brotið útvarp gefur það frá sér öruggan og ákveðinn hljóm.
Myndband við lagið hefur fengið frábærar viðtökur en því er leikstýrt af Magnúsi Leifssyni og með aðalhlutverk fer Njörður Njarðarson. Á vegi Njarðar verður dularfull videospóla og óvæntir atburðir fylgja í kjölfarið. Áhorfendum er ráðlagt að fylgjast vel með og píra augun þar sem ótal smáatriði prýða leikmyndina. Góða skemmtun!
Tags: FM Belfast
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning | Comments Off
FM Belfast – Stripes
5.5.2012 - Georg Atli
Við höldum áfram í myndbandagírnum því að fyrr í dag þá birtist nýtt myndband á veraldarvefnum!! Steinar Júlíusson og Oscar Gränse gerðu hrikalega skemmtilegt og flott stop-motion vídjó fyrir FM Belfast. Það er gert við lagið Stripes sem kom út sem smáskífa um daginn (amk í útlöndum)!
Tags: FM Belfast
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off
Íslensk tónlistarmyndbönd á Northern Wave Film Festival
31.1.2012 - Georg Atli
Næstkomandi mars (2.-4. mars 2012) verður haldin alþjóðleg stuttmyndahátíð í Grundarfirði. Þó svo að það eitt og sér sé skemmtilegt verður valið íslenska tónlistarmyndband ársins í leiðinni og mér finnst það ennþá skemmtilegra. Ykkur til yndisauka þá ákvað ég að birta lista yfir þau myndbönd sem hafa verið tilnefnd hér að neðan og m.a.s. að linka á þau líka. Dyggir lesendur hafa alveg örugglega séð mörg myndbandanna áður hérna hjá okkur en þau eru samt mjög góð/skemmtileg þannig að það má alveg horfa aftur. Ég mæli meira að segja eindregið með því að þið horfið á öll myndböndin. Hins vegar nenni ég ekkert að skrifa um þau en bendi þess í stað á mjög skemmtilegt blogg frá Gogoyokoliðum. Það er líklega rétt að taka tvennt fram, í fyrsta lagi þá er listinn hér að neðan fenginn að láni af heimasíðu hátíðarinnar (northernwavefestival.com/) og í öðru lagi þá eru það áðurnefndir Gogoyokopennnar sem tilnefna myndböndin á listann.
ÍSLENSK TÓNLISTARMYNDBÖND TILNEFND AF GOGOYOKO.COM
123 Forever með Apparat Organ Quartet
Leikstjóri: Gerda Klotz
Feels Like Sugar með Hjaltalín
Leikstjóri:Rúnar Ingi
Because Of The Blood með Sin Fang
Leikstjóri:Máni M. Sigfússon
Sneaky Boots með Kiriyama Family
Leikstjóri:Gunnar Örn Birgisson
Hellbound Heart með Reykjavík!
Leikstjóri:Bowen Staines
River með Snorra Helgasyni
Leikstjóri:Máni M. Sigfússon
Tranquility með Who Knew
Leikstjóri:Einar Baldvin Arason
Implosions með Agent Fresco
Leikstjóri:Jónatan Grétarsson
Sharpen The Knife með Who Knew
Leikstjóri:Sigurjon Bjarni Sigurjonsson
Oh Dae Su II með We Made God
Leikstjóri:Óskar Bragi Stefánsson
Slowlights með Sin Fang
leikstjórn: Máni M. Sigfússon
Over með GusGus
Leikstjórn Ellenar Lofts & Thorbjarnr Ingasonar
Smashed Birds með Sóley
Leikstjórn: Inga Birgisdóttir
Kimba með Retro Stefson
Leikstjórn: Árni Sveinssonar
Never Forever með Singapore Sling
Leikstjórn: Þórður Grímsson
Skeletons Having Sex on a Tin Roof með Orphic Oxtra
Leikstjórn: Bergrún Snæbjörnsdóttir
I Don’t Want To Go To Sleep Either með FM Belfast
Leikstjórn: Árni Rúnar Hlöðversson
Bed of Needles með Steed Lord
Leikstjórn: Steed Lord (ásamt Sonya Tayeh)
American með FM Belfast
Leikstjórn: Árni Rúnar Hlöðversson
Two Boys með Sin Fang
Leikstjórn: Inga Birgisdóttir
Tags: Apparat Organ Quartet, FM Belfast, Gus Gus, Hjaltalín, Kiriyama Family, Orphic Oxtra, Retro Stefson, Reykjavík!, Sin Fang, Singapore Sling, Snorri Helgason, Sóley, Steed Lord, We Made God, Who Knew, Who Made God
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off
Topp 5 íslenskar plötur 2011 – Kristín Gróa
13.1.2012 - Kristín Gróa
Árið 2011 er í mínum huga ár íslenskrar tónlistar. Það kom út alveg gríðarlegt magn af vönduðum og skemmtilegum plötum og ég hef persónulega aldrei hlustað jafn mikið á íslenska tónlist. Húrra fyrir íslenskum tónlistarmönnum! Að vanda skulum við byrja á 10 plötum sem náðu ekki á topp fimm en mér þykir samt vert að minnast á:
Lay Low – Brostinn strengur
GusGus – Arabian Horse
Snorri Helgason – Winter Sun
Nolo – Nology
Vigri – Pink Boats
FM Belfast – Don’t Want To Sleep
Orphic Oxtra – Kebab diskó
Gang Related – Stunts & Rituals
ADHD – ADHD2
Ben Frost & Daníel Bjarnason – SÓLARIS
5. Reykjavík! – Locust Sounds
Rokkplata ársins! Gríðarlega metnaðarfull og skemmtileg plata sem rokkar fyrir allan peninginn. Ég hafði fram að þessu aldrei hlustað mikið á Reykjavík! en hafði horft dáleidd á þá live enda leitun að betra live bandi. Nú er ég farin að hlusta og mun aldrei hætta.
4. Mugison – Haglél
Þetta er líklega plata ársins svona almennt séð enda náði hún til allra. Ég hef aldrei hitt neinn sem hefur nokkuð slæmt um Mugison eða hans tónlist að segja og þar held ég einmitt að töfrarnir séu. Hann er allra. Hann er nógu kúl fyrir hipsterana en nógu alþýðlegur fyrir ömmurnar. Allir vinna. Það er frábært að sjá viðtökurnar við þessari plötu og þær eru algjörlega verðskuldaðar. Þetta er í raun látlaus lítil plata en stundum er minna meira.
3. Sin Fang – Summer Echoes
Þessi plata er líklega andstaðan við Haglél. Hér er ekkert lítið, látlaust eða einfalt heldur allt svo gríðarlega flókið og samofið að þegar ég hlusta þá get ég ekki annað en velt því fyrir mér hvernig í fjáranum maðurinn fer að því að láta þetta allt passa svona fullkomnlega saman. Mér finnst platan sterk út í gegn en ég heillaðist samt mest af laginu Fall Down Slow sem varð mitt fyrsta ofspilaða lag ársins 2011.
2. Sóley – We Sink
Ég viðurkenni að þegar ég hlustað á Theater Island í fyrsta sinn þá náði ég henni ekki alveg en eftir að hafa séð Sóley spila live þá gaf ég henni annan séns og heillaðist algjörlega. Ég beið því We Sink með mikilli eftirvæntingu og varð engan veginn fyrir vonbrigðum. Mér finnst ég vera að fara inn í annan heim þegar ég set þessa plötu af stað og í hvert sinn hlusta ég frá upphafi til enda… nema kannski þegar ég er að spila Smashed Birds á repeat en það er algjörlega uppáhalds. Það er líka alveg ofboðslega gaman að heyra lögin af plötunni live en Sóleyju og Jóni Óskari tekst á einhvern undraverðan hátt að spila bara tvö en koma samt öllu til skila.
1. Of Monsters And Men – My Head Is An Animal
Það má alveg ásaka mig um að vera hlutdræga þegar kemur að Of Monsters And Men og ég skal alveg gangast við því. Ég get hins vegar lofað því að ég myndi ekki setja þau á toppinn á árslistanum mínum óverðskuldað og staðreyndin er sú að hef ekki hlustað jafnmikið á nokkra íslenska plötu á árinu. Mér finnst hún alltaf skemmtileg, fæ aldrei leið á lögunum og syng með hverju lagi. Mér finnst ekki eitt slakt lag á þessari plötu og ég er ekki hissa á að EP platan Into The Woods hafi toppað Billboard Heatseekers listann. Framtíðin er björt!
Tags: adhd, Ben Frost, Daníel Bjarnason, FM Belfast, Gang Related, GusGus, Lay Low, Mugison, Nóló, of monsters and men, Orphic Oxtra, Reykjavík!, Sin Fang, Snorri Helgason, Sóley, Vigri
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off
Annáll Kimi Records
13.1.2012 - Kristín Gróa
Kimi Records átti glimrandi gott ár í músík og stóð að útgáfu nokkurra hljómplatna sem hafa fengið prýðilegar viðtökur, eins sáu þeir um dreifingu og kynningu á nokkrum titlum. Árið hófst með útgáfu á annarri breiðskífu Sin Fang, Summer Echoes, en hún kom út í mars. Fékk hún prýðilegar viðtökur, en fólki þykir þetta að öllu jöfnu mjög góð plata. Því næst kom platan Don’t Want to Sleep með FM Belfast (Morr music gaf út). Platan fór í verslanir þann 3. júní síðastliðinn. Í ágúst gáfum við út aðra breiðskífu Snorra Helgasonar og nefnist hún Winter Sun. Sú plata féll vel í kramið hjá skrípentum og hlustendum og meðal annars valdi Dr. Gunni hana sem plötu ársins.
Um mitt sumar fór allt að tryllast á skemmtistöðum miðborgarinnar sökum óvæntasta smells ársins. Niðrá strönd í sexy schidt endurgerð fékk fólk til að æpa af fögnuði og gleði. Í tilefni því gaf Kimi lagið út á rafrænu formi í þessari dansvænu útgáfu og var því vel tekið.
Í lok ágúst gáfu jaðarjazzararnir í ADHD út sína aðra breiðskífu, ADHD 2 og sömuleiðis komu út plöturnar Stop That Noise með Hellvar og Hermigervill leikur fleiri íslenzk lög, en Kimi sá um dreifingu á þessum titlum.
2. september gáfum við út plötuna We Sink (í samstarfi við Morr music) með henni Sóley. Sú plata endaði ofarlega á flestum árslistum og þykir platan frábær í alla staði.
Þann 1. október kom platan Haglél út með Mugison og hefur hún slegið öll met og hefur meðal annars verið seld í um 28 þús eintökum. Um miðjan október komu svo út tvær plötur. Við upphaf Airwaves hátíðina kom út platan Mount Modern með Dad Rocks! í tilefni af fyrstu tónleikum hans hér á landi, en Snævar Albertsson er að öllu jöfnu búsettur í Danmörku. Svo kom út platan Locust Sounds með Reykjavík!, 14 laga plata sem fer alla leið í rokkinu.
Sömuleiðis gáfum við í Kima út okkar fyrstu kvikmynd, í samstarfi við Kjartansson ehf, en myndin Backyard kom út á DVD og fylgir hljómdiskur með myndinni og inniheldur hann lög úr myndinni.
Í nóvember kom svo út platan Nology með Nolo. Unggæðingarnir úr úthverfum höfuðborgarinnar enduðu útgáfuárið okkar með bravúr, en platan þykir unaðsleg.
Í apríl hélt Kimi Records sína fyrstu tónlistarhátíð og kölluðum við hana Reykjavík Music Mess, þar úði og grúði af músík og minnistæðustu tónleikar hátíðarinnar voru frábærir tónleikar Deerhunter, goðsagnakennd framkvæmd Sudden Weather Change á tónlist Ghostigital, en þar nutu þeir aðstoðar Einars Arnar Benediktssonar. Reykjavík Music Mess verður svo haldin aftur á þessu ári, en að þessu sinni í maí.
Allt í allt gott ár hjá þeim tónlistarmönnum sem Kimi leggur lag sitt við.
Tags: adhd, Dad Rocks!, Deerhunter, FM Belfast, Ghostigital, Hellvar, Hermigervill, Kimi Records, Mugison, Nóló, Prinspóló, Reykjavík!, Sin Fang, Snorri Helgason, Sóley, Sudden Weather Change
Flokkað undir Kristín Gróa | Comments Off
Topp 5 lög ársins – Georg Atli
30.12.2011 - Georg Atli
Ég á alltaf í erfiðleikum með þennan lista, ég er einhvern vegin bara þannig að ég er miklu meira fyrir plötur en stök lög… eða það held ég alltaf, en svo fer ég að hugsa þetta aðeins betur og þá koma alltaf fullt af lögum í hugan á mér sem mér finnst alveg frábær, með eða án hinna laganna á plötunni. Mér fannst líka ótrúlega erfitt að skera niður í þessi lög og enn erfiðara að skera niður í topp 5 (sem sést líklega best á því að þau eru 6), öll hin lögin sem ég nefni eru nefnilega líka frábær. Hérna koma sem sagt lög ársins að mínu mati, fyrst nokkur sem komust ekki alveg á listann (í engri sérstakri röð) og svo topp fimm sex lögin mín.
Cass McCombs – The Lonely Doll
Kurt Vile – Baby’s Arms
Lower Dens – A Dogs Dick
PJ Harvey – The Words that Maketh Murder
James Blake – Wilhelm Screams
Foster the People – Pumped up Kicks
Skurken – Stiklur
Tune-Yards – Gangsta
Reykjavík! – Sneak
Unknown Mortal Orchestra – Ffunny Ffrends
FM Belfast – Happy Winter
Fist Fokkers – Emilio, Don by the Schoolyard
IMMO – Barcelona
Sir Michael Rocks – I See
Samaris – Góða Tungl
Topp 5-6 lög ársins:
5. – 6. Lana del Rey – Video Games
Söngurinn rétt svo lekur útúr henni en er samt ótrúlega flott.
5.- 6. Snorri Helgason – River
Frábært lag, frábær plata. að velja þetta lag fram yfir hin lögin á plötunni er samt smá svindl því að það græðir á myndbandinu, sem mér finnst vera vel heppnað.
4.The Antlers – I Don’t Want Love
Falsettan nær mér alltaf! Mér finnst The Antlers vera vanmetin hljómsveit, sé eiginlega eftir því að hafa sleppt þeim á Airwaves…
3. Náttfari – Lævís Köttur
Náttfari gerðu virkilega góða plötu og þetta lag er einfaldlega rosalegt.
2. Mugison – Stingum Af
Þetta er eins nálægt þvíað vera jafntefli og það getur orðið… en samt ekki. Mugison gaf út rosa flotta plötu og þetta lag er frábært, nær einhvern veginn til allra og fangar íslenskan sumarandi (úff.. háfleygt!) betur en flest annað.
1. Gotye – Somebody I used to know
Ég er búinn að vera með þetta lag á heilanum síðan ég heyrði það fyrst, eina lagið sem að ég veit um (sem kom út í ár) sem náði til breiðaðr hóps en Mugison. Virkilega flott popp.
Tags: Cass McCombs, Fist Fokkers, FM Belfast, Foster the People, Gotye, IMMO, James Blake, Kurt Vile, Lana Del Rey, Lower Dens, Mugison, Náttfari, PJ Harvey, Reykjavík!, Samaris, Sir Michael Rocks, Skurken, Snorri Helgason, The Antlers, tUnE-yArDs, Unknown Mortal Orchestra
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off
Úrvalslisti Kraums
7.12.2011 - Georg Atli
Nú er desember og árslok nálgast óðfluga, en þá er einmitt frábærlega gaman (og erfitt) að vera tónlistarnörd og kynna sér alla árlistanna. Hér á Íslandi er það yfirleitt (amk undanfarin ár) tónlistasjóðurinn Kraumur sem ríður á vaðið með sinn 20 plötu úrvalslista. Sá listi var birtur í gær en endanlegur listi verður svo birtur 16. des.
Samkvæmt heimasíðu Kraums fer valið fram á eftirfarandi hátt:
Framkvæmd Kraumslistans 2011 er með þeim hætti að sex manna dómnefnd valdi 20 plötur á Úrvalslista Kraumslistans en við honum tekur 20 manna dómnefnd og velur bestu plöturnar þannig að eftir standa 5 til 6 verðlaunaplötur
Dómnefnd Kraumsverðlaunanna er skipuð 20 aðilum sem allir hafa mikla reynslu af því að hlusta á og fjalla um íslenska tónlist á ýmsum sviðum fjölmiðla. Formaður dómnefndar er Árni Matthíasson.
Í úrvalslistanefnd áttu sæti ásamt Árna Matthíassyni: Andrea Jónsdóttir, Trausti Júlíusson, Egill Harðarson, Helena Þrastardóttir og Hildur Maral Hamíðsdóttir.
Þessar plötur komust á úrvalslistann:
- ADHD – ADHD2
- Anna Þorvalds – Rhízoma
- Ben Frost og Daníel Bjarnason – SÓLARIS
- Dead Skeletons – Dead Magick
- FM Belfast – Don’t want to sleep
- For a Minor Reflection – EP
- Helgi Hrafn Jónsson – Big Spring
- Hljómsveitin Ég – Ímynd Fíflsins
- Lay Low – Brostinn Strengur
- Nolo – Nology
- Of Monsters and men – My Head is an Animal
- Ofvitarnir – Stephen Hawking/Steven Tyler
- Ragga Gröndal – Astrocat Lullaby
- Reykjavík! – Locust Sounds
- Samaris – Hljóma Þú (ep)
- Sin Fang – Summer Echoes
- Skurken – Gilsbakki
- Snorri Helga – Winter Sun
- Sóley – We Sink
- Sólstafir – Svartir Sandar
Tags: adhd, Anna Þorvalds, Ben Frost, Daníel Bjarnason, Dead Skeletons, FM Belfast, For a Minor Reflection, Helgi Hrafn Jónsson, Hljómsveitin Ég, Lay Low, Nóló, of monsters and men, Ofvitarnir, Ragga Gröndal, Reykjavík!, Samaris, Sin Fang, Skurken, Snorri Helgason, Sóley, Sólstafir
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off
Nýtt myndband frá Næsaranum
18.11.2011 - Georg Atli
- Við lag Benna Hemm Hemm, FF ekki CC-
Í dag, 18. nóvember 2011, kl. 15 á íslenskum staðartíma verður nýtt myndband frumsýnt víðsvegar um internetið. Myndband þetta er í leikstjórn Næsarans og er við lagið FF ekki CC eftir Benna Hemm Hemm af hin stórgóðu Skot (er kom út í fyrra á vegum Kimi Records). Platan kom nýverið út á erlendum mörkuðum sem og sjötomma með viðkomandi lagi. Á bakhlið sjötommunnar er að finna stórgóða endurgerð FM Belfast á sama lagi. Eins er bakhlið á umslaginu endurgerð af FM Belfast sömuleiðis.
Um Næsarann:
Næsarinn er hópur sem settur var saman þegar Spaugsstofan var tekin af dagskrá RÚV. Nú er Spaugsstofan á Stöð 2. Næsarnir eru: Árni Vilhjálmsson, Máni Sigfússon, Sindri Már Sigfússon, Örvar Þóreyjarson Smárason og fleiri.
Tags: Benni Hemm Hemm, FM Belfast
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning | Comments Off
Nýtt myndband frá FM Belfast
18.11.2011 - Georg Atli
FM Belfast voru að senda frá sér myndband við lagið Vertigo. Máni M. Sigfússon leikstýrir en hann virðist vera aðalmaðurinn í þeim bransa þessa dagana, en auk FM Belfast hefur hann nýlega gert myndbönd fyrir Sin Fang, Sóley, Snorra Helga og Benna Hemm Hemm.
Tags: Benni Hemm Hemm, FM Belfast, Sin Fang, Snorri Helgason, Sóley
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off
Reykjavík! heldur útgáfutónleika!
8.11.2011 - Georg Atli
Hljómsveitin Reykjavík! ætlar að halda útgáfutónleika á fimmtudag (10. nóv). Þar ætla (auk Reykjavíkur!) frábærar hljómsveitir að spila, FM Belfast og Markús Bjarnason úr Markús and the Diversion Sessions og svo verður líka matur frá Tjöruhúsinu! Þetta verður væntanlega með sveittari partýum þessa árs. Í tilefni af þessu öllu saman þá fengum við fréttatilkynningu og af því að það er vitnað í undirritaðan í henni þá verður hún að sjálfsögðu birt hér að neðan orðrétt!
Reykjavík! kynnir útgáfutónleika: MATUR, MÚSÍK OG DANS
Hljómsveitin Reykjavík! mun fagna útgáfu breiðskífunnar Locust Sounds með heljarinnar veislu á KEX Hosteli fimmtudaginn 10. nóvember næstkomandi. Hljómsveitin er geigvænlega stolt af plötunni, enda er hún góð (birtir dómar endurspegla það líka… það eru alveg dæmi hér að neðan og allt) og hefur því ákveðið að gera frekar spes og frekar geðveikt partý fyrir alla sem eru í góðu stuði!
Þar sem Tjöruhúsið, hinn sögufrægi ísfirski veitingastaður, er einn útgefenda plötunnar þótti eðlilegt að endurspegla það á útgáfutónleikunum! Því munu þau Magnús Hauksson og Ragnheiður Halldórsdóttir elda sitt og bjóða tónleikagestum kost á því að kaupa sér aðgang að þeirra dýrindis fiskihlaðborði (með kola og steinbíti og plokkfiski og súpu og öllu!) á sérstöku útgáfutónleikaverði.
Meðan á borðhaldi stendur í borðsal KEXins mun hinn indæli trúbador Markús Bjarnason (fyrrum Skáti, núverandi forsprakki Markús & The Diversion Sessions) leika sín ljúfu lög og halda uppi stuði.
Að því loknu hefjast hinir eiginlegu tónleikar, en þar mun Reykjavík! tjalda öllu til og spila plötuna af frægri innlifun og krafti (“…með allra bestu tónleikasveitum landsins.” – Arnar Eggert Thoroddsen).
Þegar síðasti gítarinn hefur brotnað mun svo uppáhaldshljómsveit allra, FM BELFAST, leika fyrir léttum diskódansi svo hljómsveitarlimir og aðrir geti fagnað vel heppnuðum tónleikum og góðum mat.
Einnig verður á KEXinu sýning á verkum Ingu Maríu Brynjarsdóttur, er prýða umslag LOCUST SOUNDS. Inga María hannaði einmitt umslagi (“Geðveikt umslag” – Frosti á Xinu og líka Erpur Eyvindarson). Myndirnar sem prýða umslagið hafa verið prentaðar í takmörkuðu upplagi og verða fáanlegar á sanngjörnu verði.
Þar sem rými er takmarkað á KEXinu eru aðeins 120 miðar í boði á tónleikana! Eru því áhugasamir hvattir til þess að festa sér miða eins fljótt og auðið er!
Miðaverð á mat+tónleika er aðeins 5.500 kr og miðaverð á tónleikana staka er 2.000 kr.
Miða er hægt að fá á www.midi.is og í Bókabúð Máls og Menningar.
http://midi.is/tonleikar/1/6764
UM LOCUST SOUNDS
Platan LOCUST SOUNDS hefur fengið frábæra móttökur og þykir mörgum vera besta, aðgengilegasta og æðislegasta verk Reykjavík!ur til þessa (samt hafa allar hinar plöturnar þótt vera meistaraverk líka, við eigum alveg fimm stjörnu dóma til að sanna það!). Arnar Eggert Thoroddsen fór fögrum orðum um Locust Sounds í fjögurra stjörnu plötudómi í Morgunblaðinu og sagði meðal annars: “Platan býr yfir mörgum og mismunandi blæbrigðum en heildarpakkinn er svo gott sem skotheldur”. Og ekki nóg með það, heldur dýrkaði líka Dr. Gunni plötuna í Fréttatímanum og sagði að sveitin skipaði sér í VIP lið íslensks rokks með henni.
Svo sagði Georg Atli á tónlistarblogginu sívinsæla Topp fimm á föstudegi (www.toppfimmafostudegi.com) að sér hefði nánast orðið “…flökurt af snilld” af því að horfa á Reykjavík! spila á KEXinu á síðustu Airwaves tónlistarhátíð! Hvern langar ekki að verða flökurt af snilld (sérstaklega þegar sá hinn sami er nýbúinn að hrúga í sig heilu hlaðborði af ljúffengum fiskveitingum)?
Dagskrá:
19:20 – Kynning og ræða (ca) + BRANDARI
19:30 – Borðhald hefst, Markús spilar músík
21:00 – Borðhaldi lýkur
21:20 – Reykjavík! leikur músík
22:45 – FM Belfast leikur músík
Tags: FM Belfast, Markús and the Diversion Sessions, Reykjavík!
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning, Tónleikar | Comments Off













