Topp 5 lög á tungumáli sem ég skil ekki – Kristín Gróa

27.8.2010 - Kristín Gróa

Vandamálið við þennan lista er að viðfangsefnið eru lög á tungumáli sem ég skil ekki þegar auðveldara hefði verið að lista upp lög á tungumáli sem ég tala ekki. Ég skil t.d. sænsku alveg gróflega en það er ekki séns að ég tali hana!

5. Suresh Wadekar – Goro Ki Na Kalo

Það kom í ljós þegar ég renndi í gegnum safnið mitt að ég á óheyrilega mikið af Bollywood tónlist. Það er reyndar góð og gild ástæða fyrir því og það tengist hinni klassísku mynd Disco Dancer en þaðan kemur þetta lag einmitt. Öllu þekktara lag úr þeirri mynd er lagið Jimmy Jimmy Jimmy Aja sem M.I.A. coveraði/samplaði í laginu Jimmy (sem hún skrifaði síðan sjálfa sig fyrir á plötuumslaginu… don’t know what that’s about).

4. Lady Q & Shinoske & Misae – Dame Dame No Uta

Mögulega mesta ofurhýper japanska lag allra tíma. Það er alveg þreytandi að hlusta á það en samt svo undarlega skemmtilegt. Þetta var sem sagt einu sinni opening credits lagið fyrir japönsku anime teiknimyndaseríuna Crayon Shin-chan og meira veit ég ekki.

3. France Gall – Poupée de cire, poupée de son

Ég laumaði með einu frönsku lagi á listann en það er bara af því ég skil aðeins glefsur af textanum (þó ég skilji t.d. textann við Quelqu’un m’a dit alveg 80%). Frönskuskilningur minn er vægast sagt mjög takmarkaður og gleymdur.

2. Pixies – Isla De Encanta

Me voy! Me Voy! Me voy!

1. Tito Puente & His Latin Jazz Ensemble – Guantanamera

Ég á Guantanamera í fjórum mismunandi útgáfum og get satt að segja ekki gert upp á milli þeirra því þær eru allar góðar á sinn hátt. Engin þeirra jafnast þó á við það þegar ég var að rölta um Mission hverfið í San Fransisco og gekk fram á fólk á besta aldri sem var að syngja og spila lagið af mjög einlægri gleði á gangstéttarbrúninni.

Tags: , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off

Til hamingju með afmælið Krissa!

18.9.2007 - Kristín Gróa

Til að gleðja frankófílinn Kristjönu á 25 ára afmælisdaginn langar mig að setja hérna inn tvö gömul frönsk lög :)


Það fyrra er sungið af France Gall sem var ein af frönsku yé-yé tónlistarmönnunum og naut gríðarlega vinsælda í Frakklandi á sjöunda áratugnum. Lagið Poupée de cire, poupée de son er eftir konung slísísins eða sjálfan Serge Gainsbourg. Þau sigruðu Eurovision keppnina árið 1965 fyrir hönd Lúxemborgar með þessu lagi og ég er ekki frá því að þetta sé með betri júróvisjónlögum sem ég hef heyrt.


Það síðara er lagið 7 heures du matin með annari yé-yé söngkonu sem heitir Jacqueline Taieb. Hún vísar í The Who og Little Richard, minnist á Paul McCartney og Elvis Presley og garage hljómurinn í þessu plús franska röddin gera þetta allt frekar töff.

Tags: , , , , , , , ,
Flokkað undir Óflokkað | 3 athugasemdir »

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin