topp 5 karókí – Georg Atli

5.6.2009 - Georg Atli

Karókí er fyndið.

5. Take on Me – a-ha

Það er ótrúlega fyndið að hlusta á fólk rembast við háutónana í þessu lagi. Vont og óþægilegt en fyndið.

4. Solid – Ashford & Simpson

80′ dúettaslagari sem er skemmtilegt að með ofsalega undarlegan kafla þar sem báðir aðilar syngja:

The thrill is still hot
hot
hot hot
hot
hot
hot
hot.

rosa hratt og engin sem er ekki Nickolas Ashford, Valerie Simpson eða professional karókí syngjari nær þessu.

3. My Way – Sid Vicious

Flestir reyna að syngja Frank Sinatra útgáfuna af þessu en hljóma eins og Sid Vicious útgáfan… bara ekki á góðan hátt.

2. Schools Out – Alice Cooper

Klassískt í próflokadjamminu

1. Hey Jude – The Beatles

Bara af því að ég heyrði (oftar en einu sinni) svo magnaða útgáfu af þessu lagi á Live Pub.

og svo eitt aukalag (af youtube) fyrir víetnamana fyrir ofan mig…

Tags: , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off

Topp 5 dúettar – Krissa

12.9.2008 - Kristjana

5. Frank and Nancy Sinatra – Somethin’ Stupid 
Golden oldie :)

4. Antony and the Johnsons and Boy George – You Are My Sister
Þetta er bara of fallegt!
Antony og Boy George hjá Jonathan Ross
3. David Bowie and Queen – Under Pressure
Víjj föstudagshresst og skemmtilegt! :)

2. Johnny Cash and Will Oldham – I See a Darkness
Þetta lag er svo fullkomið fyrir röddina í Johnny Cash. Og þegar Oldham bætist við í viðlaginu setur það algjörlega punktinn yfir i-ið!
1. Bob Dylan and Johnny Cash – Girl From the North Country
Það er allt gott við þetta lag, ALLT!
Og sexy-time honourable mentions:
Serge Gainsbourg and Jane Birkin – Je t’aime, moi non plus
Þetta lag er náttúrulega bara ooof! Slísbollurinn í essinu sínu
The Roots feat. Erykah Badu – You Got Me
Ég hlustaði e-n tíma á þetta lag nokkurn veginn á repeat í rútu milli Washington og New York fyrir nokkrum árum. og tókst samt ekki að fá nóg af því…það er bara æði æði ÆÐI!
Client feat. Carl Barât – Pornography
Án raddarinnar í Carl er þetta lag ekkert spes…en sem dúett – úff!
Pornography án Carl [video]
Pornography með Carl [video]

Tags: , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Listar | Comments Off

Topp 5 karlmannsnafnalög – Erla Þóra

8.2.2008 - Erla Þóra

5. Me & Bobby McGee – Janis Joplin

Freedom’s just another word for nothing left to lose,
Nothing don’t mean nothing honey if it ain’t free, now now

Alltaf fundist röddin í Frú Joplin afskaplega töff. Þetta lag er líka alveg æðislegt sing-along-song. Hef eiginlega ekkert meira um þetta mál að segja.

4. Mack The Knife – Frank Sinatra

Someones sneaking round the corner

Could that someone be mack the knife

Þetta lag er bara svo innilega svalt. Manni langar bara að vera uppi á Rat Pack tímunum, fá sér viskí í lágt glas með tveimur stórum ísmolum (oj) og reykja vindil (ojoj).

3. Daniel – Elton John

Gotta love me some Elton John. Fyndið hvað ég tengi alltaf lög við fyrsta staðinn sem ég heyrði lögin á. Þetta lag heyrði ég fyrst í fjölskylduferð til Costa del Sol árið 1999 (að mig minnir). Krissa leyfði mér að hlusta á það í geislaspilaranum sínum upp á þaki á hótelinu okkar og ég man að ég horfði upp í loftið meðan Herra John söng:

Daniel is travelling tonight on a plane
I can see the red tail lights heading for Spain

Good times :)

2. Dirty Harry – Gorillaz

I need a gun to keep myself from harm
All the poor people are burning in the sun

Þetta lag, live í Manchester, með krakkakórnum er svooooo flott! Lagið varð í svo miklu meira uppáhaldi hjá mér eftir að ég sá þessa tónleika. Check out the clip:

1.Maxwell’s Silver Hammer – The Beatles

Bang! Bang! Maxwell’s silver hammer
Came down on her head.
Bang! Bang! Maxwell’s silver hammer
Made sure that she was dead.

Þetta er bara svo fáránlega fyndið og skemmtilegt lag! Þvílíkur texti, þvílíkt rugl. Maxwell clearly has issues. Man ennþá eftir því þegar ég fattaði fyrst um hvað var verið að synga. Þá mátti heyra mig segja: “Say whaaat?”.

Tags: , , , ,
Flokkað undir Erla Þóra, Listar | Comments Off

Topp 5 lög til að þrífa við – Krissa

18.1.2008 - Kristjana

Að mínu mati þurfa góð ‘þrifalög’ helst að:
  • vera frekar upbeat
  • vera þannig að maður gleymi alveg stað og stund
  • vera tiltölulega stutt (ef þau eru of löng gæti maður allt í einu dottið aftur í raunveruleikann og fattað að maður er ekkert að gera neitt skemmtilegt í alvörunni, maður er bara að þrífa)!

Lögin fimm hér að neðan uppfylla þessi skilyrði svona nokkurn veginn. Ég get ekki fyrir nokkra muni raðað þeim í röð eftir því hversu góð þau eru. Hins vegar er crucial atriði að raða þeim upp þannig að þau stuðli að frábærum þrifum (*hóst* *hóst*). Þetta er bara eins og að búa til mixtape, það þýðir ekkert að hrúga lögunum inn hvernig sem er, það þarf að pæla í röðinni ;)

So, voila, hérna eru nákvæmlega 16,7 mínútur af úthugsaðri þrifatónlist. Clean clean clean away…


Chemical Brothers – Setting Sun

Ég er alveg obsessive compulsive yfir að allt þurfi að vera hreint…og á sínum stað…og að allt sé hornrétt…og…svo er ég líka alveg sjúúúklega löt að þrífa! Þetta er, eins og gefur að skilja, alveg hræðileg blanda!
Þar af leiðandi þarf ég eitthvað svakalegt til að koma mér af stað. Eitthvað eins og óendanlega drífandi taktinn í Setting Sun! Ég gæti klárlega verið komin á fullt eftir fyrstu hálfu mínútuna.


The Zutons – Dirty Dancehall

Í beinu framhaldi þarf eitthvað upbeat sem verður til þess að maður getur ímyndað sér að maður sé alveg jafn svalur og Abi Harding og einhvers staðar allt annars staðar, dancing the night away, án þess þó að slaka á í þrifunum!


The Wintermitts – This City

Aðeins rólegra, maður má nú ekki ofgera sér :) Ótrúlega auðveldur endurtekinn texti svo maður getur strax sungið með…og dáðst að letilegri og flottri röddinni…


The Avett Brothers – Matrimony

Klárlega hægt að gleyma sér fullkomlega í 2 mínútur og 50 sekúndur. Ímynda sér að maður sé kominn niður til North Carolina, sé á einhverju sveitó balli með banjói og fiðlum dansandi hoe-down eins og vitleysingur. Gerist ekkert betra!!!


Frank Sinatra – I Won’t Dance

Svo þarf maður á endanum að róa sig aðeins niður. Þegar maður er alveg að verða búinn, er bara svona rétt að strjúka af og er farinn að hlakka til að koma sér þægilega fyrir á sófanum með tebolla og góða bók…þá er Sinatra fullkominn! Maður getur þá dillað sér og sungið með, jafnvel tekið nokkra snúninga, og verið óendanlega sáttur við sjálfan sig! Fullkominn endir :)

Tags: , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Listar | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin