Topp 5 mest hlustað á

6.7.2012 - Kristín Gróa

Ég var nú í pínu krísu með þennan lista þar sem ég vissi ekki alveg hvernig ég ætti að höndla hann. Upphaflega planið var að nota bara topp 25 listann í iTunes en vandamálið er bæði að hann er mengaður af hlaupalögunum mínum og svo er ég farin að hlusta svo mikið á Spotify að það er ekki mikið að marka hann lengur. Hei en eitthvað varð ég að miða við svo niðurstaðan er aðeins filteraður listi af því mest spilaða í safninu.

5. Guided By Voices – Game Of Pricks

Ég er algjör sökker fyrir ófullkomnun. Kæruleysisleg spilamennska og söngur, hrár hljómur og sú tilfinning að allt saman hangi á þvílíkum bláþræði að það gæti klúðrast á næsta augnabliki. Þetta er ástæðan fyrir að ég elska Guided By Voices og þó mörg lögin þeirra séu rosalega ófullkomin þá eru önnur algjörlega fullkomin… eins og Game Of Pricks.

4. Frightened Rabbit – Good Arms vs. Bad Arms

Annað kökk-í-hálsinn-lag. Mér finnst platan The Midnight Organ Fight alveg frábær og ég hlustaði á hana alveg í rot á sínum tíma. Það er reyndar Georgi Atla að þakka því hann benti mér á hana (og skrifaði jafnvel um hana?).

3. Janelle Monáe – Cold War

The ArchAndorid var plata ársins 2010 hjá mér svo það kemur lítið á óvart að þetta lag sé eitt af þeim mest spiluðustu í safninu.

2. The Band – Twilight

Ég fékk þetta lag á einhverju tónlistarbloggi fyrir nokkrum árum og hefur síðan þá fundist þetta sirkabát fallegasta lag í heimi. Þetta er sem sagt einfalt sketch af laginu sem kom síðar út í talsvert breyttri útgáfu. Ég fæ eiginlega kökk í hálsinn þegar ég hlusta.

1. The Walkmen – In The New Year

Djís hvað ég hlustaði mikið á You & Me. Ég hef ekki enn tekið nýju plötuna alveg í sátt en það er allt í lagi því ég hef þetta lag. Ó þetta lag. Hugsanlega uppáhalds lagið mitt eða allavega á topp… uhmmm… 50. Það er svo erfitt að velja uppáhalds.

Tags: , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off

90′s cover!

6.5.2010 - Georg Atli

Á laugardaginn heyrði ég smá af 90′s þættinum Sonic á X-inu, það er fyndinn þáttur. En þegar að ég hætti að hlusta þá fékk ég einhverra hluta vegna þetta lag á heilann…. veit ekki af hverju það var ekkert verið að spila N’Trance og mér finnst þetta bara ekkert skemmtilegt lag!

Eeeen svo mundi ég að ég átti þessa miklu betri útgáfu af laginu (sem kom út á Heads Roll Off smáskífunni) með Topp5 uppáhaldinu Frightened Rabbit

Tags: , ,
Flokkað undir Georg Atli | 2 athugasemdir »

Frightened Rabbit

22.2.2010 - Georg Atli


Af því að mér finnst að hljómsveitin Frightened Rabbit ætti að vera miklu vinsælli en hún er þá ætla ég að pósta tveimur lögum af næstu plötu frá þeim (hún kemur út 4. mars, held ég) sem á að heita Winter of Mixed Drinks

Swim Until You Can’t See Land

og

Nothing Like You

Tags:
Flokkað undir Georg Atli, Óflokkað | Comments Off

Topp 5 uppgjör – Georg Atli

22.1.2010 - Georg Atli

1. Hverjir voru bestu tónleikar sem þú sást á árinu?

Eins og svo margir þá neyðist ég til að kvarta yfir lélegu tónleika ári, en ég náði samt nokkrum ansi góðum og þeir voru báðir í þessari rosa snjöllu tónleikaröð Manstu ekki eftir mér. Ég sá Megas og Senuþjófana flytja Millilendingu (hann var rosalegur!) og líka Ensími taka Kafbátamúsík það var gaman.


2. Hvaða gamalt dót uppgötvaðir þú á árinu?

Í ár uppgötvaði ég loksins Beach Boys. Ekki það að ég hafi ekki vitað af þeim eða eitthvað svoleiðis en mér hefur bara aldrei þótt þetta vera neitt sérstaklega skemmtilegt en síðan loksins asnaðist ég til að fara að hlusta á þetta aftur og enn einu sinni og fannst það bara mjög skemmtilegt og Pet Sounds er geðveikt góð plata! Líka Ariel Pink, það voru nokkuð margar hljómsveitir sem sóttu innblástur í Ariel Pink’s Haunted Graffiti á árinu og hann fékk svona uppreisn æru, hann hefur reyndar bara verið að gefa út sólóplötur síðan 2003 þannig að hann telst kannski ekki vera gamalt.

3. Hver voru mestu vonbrigði ársins?

Ég varð nú ekkert fyrir rosalegum vonbrigðum með neitt á þessu ári, nefni kannski helst plötuna með The Temper Trap, ég heyrði lagið Sweet Disposition í fyrra og hélt að það væri enn ein góð Áströlsk hljómsveit að koma en aldeilis ekki platan þeirra var ótrúlega léleg plata…. þetta er eins og nýja dótið frá U2 nema bara miklu lélegra (og mér finnst U2 í dag ekki vera góð hljómsveit).

4. Hverju ætlaðirðu alltaf að tékka á á árinu en trassaðir?

Neutral Milk Hotel. Ég er búinn að vera á leiðinni að hlusta á þetta í langan tíma en bara aldrei lagt í það.

5. Hver er bjartasta vonin?

Mér finnst The XX vera rosa efnileg og líka svíarnir í JJ, þau gáfu út tvær plötur í fyrra (JJ nº 1 og JJ nº 2) og í ár ætla þau að gefa út sína þriðju plötu sem að á að heita JJ nº 3. Og svo féll ég alveg fyrir annari plötu Wild Beasts og á eftir að fylgjast spenntur með næstu útgáfum. Ég held líka að hljómsveitin Fanfarlo (mjög Beirut-legt) eigi eftir að gera það ansi gott á næstu árum.


6. Bónusspurning að eigin vali: Hvaða plötum á árinu 2010 ertu spenntastur yfir?

Fullt af góðum plötum að fara að koma út:

Arcade Fire, The Strokes, Massive Attack, Frightened Rabbit, Yeahsayer, The Magnetic Fields, The National, Four Tet, MGMT, Panda Bear, Interpol, Fleet Foxes, Cat Power, Sleigh Bells, The Walkmen og fullt fullt fullt í viðbót

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | 2 athugasemdir »

Topp 5 skil ekki af hverju þeir eru ekki stærri – Kristín Gróa

30.10.2009 - Kristín Gróa

Það er pínu erfitt að gera þennan lista því satt að segja þá skil ég alveg af hverju sum tónlist sem ég fíla mun aldrei verða vinsæl. Þá er hins vegar spurning um hvernig maður skilgreinir vinsældir því einhver getur verið stórstjarna í augum ákveðins hóps á meðan almenningur hefur aldrei heyrt nafn viðkomandi.


5. Augie March

Ég hef áður grátið það hér hversu óþekktir Augie March eru utan heimalandsins Ástralíu. Þetta er svona vel spiluð, útpæld tónlist með góðum textum en samt ekki boring og sálarlaus… að mínu mati.

Augie March – Addle Brains


4. Frightened Rabbit

Platan Midnight Organ Fight sem kom út í fyrra fór held ég framhjá mörgum… eða var ég ein um að finnast hún frábær? Þetta breakup lag inniheldur hina gullnu setningu “You’re the shit and I’m knee-deep in it”. Classic.

Frightened Rabbit – Backwards Walk


3. Love

Love fær hér sæti á lista fyrir allar hljómsveitirnar þarna úti sem náðu aldrei megavinsældum á starfstíma sínum en urðu eftirá mikils metnar og áhrifamiklar.

Love – Alone Again Or


2. Richard Hawley

Það er erfitt að skilgreina markhóp fyrir tónlist Richard Hawley. Konur um sjötugt? Þetta er unaðslega falleg tónlist með fallega gerðum textum, sungin af manni með flauelsrödd og hljómar eins og hún komi frá allt öðrum tíma. Ef hann hefði gert tónlist fyrir 50 árum þá hefði hann orðið stórstjarna.

Richard Hawley – Just Like The Rain


1. Coconut Records

Maður hefði nú haldið að Jason Schwartzman fengi meira umtal og athygli fyrir tónlistina sína, sérstaklega þar sem hún er awesome. Btw þá ættu allir að horfa á nýju Bored To Death þættina hans því þeir eru frrrrrrábærir. Takk.

Coconut Records – West Coast

Tags: , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | 1 athugasemd »

Frightened Rabbit

14.7.2008 - Kristín Gróa


Frightened Rabbit er skosk hljómsveit sem gaf út sína aðra breiðskífu, The Midnight Organ Fight, fyrr á árinu. Ég rakst á lagið Old Old Fashioned um daginn og fannst það svo frábært að ég fór að leita mér að meira dóti með þeim. Hverju komst ég að? Ég átti alveg fjölmörg lög með þeim sem ég hafði steingleymt að tékka á og lágu bara þolinmóð eftir að ég uppgötvaði þau. Skemmtilegt. Sérstaklega stendur upp úr breakup lagið Good Arms vs. Bad Arms sem er einnig að finna á nýju plötunni.

Frightened Rabbit – Old Old Fashioned
Frightened Rabbit – Good Arms vs. Bad Arms

Frightened Rabbit á MySpace

Tags:
Flokkað undir Kristín Gróa, Óflokkað | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin