Topp 5 fyllerískántrý – Bobby Breiðholt (gestalisti)

20.5.2011 - Georg Atli

Við höldum áfram með semí-reglulegu gestalistamennina okkar og í þetta skiptið er það enginn annar en Bobby Breiðholt sem að heiðrar okkur með nærveru sinni. Hann er formaður tónlistarbloggsins B-town Hitparade og plötusnúður og svoleiðis. Ennfremur er Bobby hönnuður og til að tengja það á þægilegan hátt við tónlistarbloggið okkar þá gerði hann m.a. þetta plötucover og líka þetta og ég hvet ykkur eindregið til að fara og skoða flickrið hans… það er voða flott.

Já og svo fannst mér það svo skemmtilegt að mig langar líka að taka það sérstaklega fram að þema listans kemur frá honum og þetta er eini gestalistamaðurinn sem hefur látið mynd af sér fylgja listanum sínum. Húrra fyrir því!!

Höfundinn að hlusta á kántrý

Mynd: Höfundurinn að hlusta á Kántrý.

Kántrý er fyllerístónlist. Það er eitthvað við swingið og syngjandann sem krefst þess að maður fái sér í glas og góli með. Enda lögin auðvitað langoftast um drykkju, kvennafar og ástarsorg. Síðan eru ballöðurnar auðvitað fullkomnar fyrir vangadans og/eða trúnó. Ég tók saman fimm lög sem fjalla á einn eða annan hátt um drykkju og djamm. Endilega fáið ykkur skota í glas og njótið.

5. Roger Miller – Chug-a-Lug

Roger Miller er sami gæinn og gerði ‘King of the Road‘. Sveitalubbar að drekka landa og hoppa heljarstökk. Fín byrjun á kvöldinu.

4. Porter Wagoner – Misery Loves Company

Alveg frábær texti. Eitt af mörgum lögum þar sem sögumaðurinn drekkir sínum sorgum á barnum. Nema að Porter slær þessu bara upp í volæðispartý. Porter er einna frægastur fyrir að hafa uppgvötað Dolly Parton og gerðu þau alveg dásamlega tónlist saman. ‘I Will Always Love You‘ eftir Dolly er um hann.

3. George Jones – Just One More

Enginn listi um kántrý er fullkominn án George Jones, hvað þá listi um drykkjukántrý. Hann er algjör goðsögn, ein skærasta stjarna kántrýsögunnar og einn mesti drykkjudurgur sem sögur fara af. Frægt er þegar konan hans Tammy Wynette (mikið kántrýlegend sjálf) faldi alla bíllyklana hans svo hann kæmist ekki á barinn. George stökk bara á sláttuvélina sína og dólaði sér á henni á djammið.

2. Flying Burrito Brothers – Sin City

Það er skylda að hafa Gram Parsons með. Ég ætlaði að hafa George Jones tvennu og setja inn Byrds útgáfuna af You’re Still on my Mind en fann hana ekki á youtube. Endilega tékkið á meistaraverkinu Sweetheart of the Rodeo með The Byrds.
En hér er lag af öðru meistaraverki Gram Parsons, Gilded Palace of Sin með Flying Burrito Brothers. Ægifagurt lag sem varar við hættunni sem fylgir saurlíferni.

1. Rodney Crowell – Bluebird Wine

Endum þetta á fútti. Rodney Crowell er oft talinn með Steve Earle, David Allan Coe og Townes van Zandt sem aðal gæjarnir í Outlaw Country senunni í 70′s sem var í raun byrjunin á Alt. Country stefnunni. Þetta er úr frábærri heimildamynd sem heitir Heartworn Highways þar sem allir þessir gæjar koma fram.

BÓNUS!

Townes van Zandt – Waiting around to Die

Bara ef einhver hefur ekki heyrt þetta lag eða séð þetta myndband. Ef það kemur ekki upp smá kökkur við að horfa á þetta, þá ertu ekki mannlegur.

Tags: , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Gestalisti, Listar | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin