Topp 5 taktur – Kristján Freyr (gestalisti)
2.12.2011 - Georg Atli
Þema dagsins í dag er taktur og okkur fannst það eðlilegast að fá einhvern, sem hefur meira vit á takti en við, til að gera gestalista. Eftir langa umhugsun þá datt okkur sú snilld í hug að athuga með Kristján Frey trommuleikara í Reykjavík! og Prinspóló. En hann er afskaplega taktgóður maður og svo vinnur hann líka í bókabúð þannig að hann hlýtur að vita fullt annað líka, reyndar þá sagði hann orðrétt
“…svo mega lesendur Toppfimm alltaf kíkja á kallinn í Bókabúð Máls og menningar við Laugaveg 18 og þiggja ráðgjöf um jólabækurnar!“. Tónlistarspeki og jólabókaráðgjöf, það er góður díll! Ef þið viljið vita nánar hver þessi listamaður er þá getiði líka séð hann í kvöld, þegar hann spilar með Reykjavík! á Kaffibarnum. Þeir tónleikar byrja klukkan 22:00 og NOLO ætlar líka að spila. Næsta föstudag gætuði líka náð honum á Faktorý en þar verður Kristján að tromma með Prinspóló (Benni Hemm Hemm og Lay Low verða víst líka þar). Svo verður hann líka að spila með Reykjavík á Gauknum á þessum tónleikum hérna, ásamt Muck og Gang Related þann 8. desember.
En leyfum Kristjáni að fræða okkur um sína eftirlætis takta:
* S.H. DRAUMUR – GRÆNIR FROSTPINNAR
Það eru auðvitað nokkrir íslenskir trommarar sem ég lít mikið upp til, t.d. Óli Björn, Addi Geir og Helgi í Morðingjunum en ég held að halli ekki á neinn þegar ég nefni snillinginn Birgi Baldursson til sögunnar. Það er magnað þegar trommarar hafa svo mikinn karakter að þeir geri lögin að sínum…svo ég noti leiðinlegan frasa frá Bubba Mothens. Það er vitaskuld af mörgu að taka úr smiðju Bigga, hér er lagið Grænir frostpinnar af plötunni Bless með Svarthvítum draumi. Ég hef oft spilað þetta lag með Dr. Gunna, þegar eg var með honum í hljómsveit, og ég man ég hugsaði að ef ég hefði samið þetta lag með Gunna hefði mér ekki dottið í hug að fara þessa leið með taktinn. Frábært hugmyndaflug, með dass af jazzi og pönki.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
* RIDE – DREAMS BURN DOWN
Þarna er ein af mínum uppáhaldshljómsveitum, RIDE frá Oxford. Það band liðaðist í sundur uppúr 1994-5 minnir mig en blómatíminn var um 1990. Trommarinn Laurence “Loz” Colbert er frábær trommari, það eru þó samt aldrei neinir ægilegir stælar, bara heiðarlegur trommuleikur og stundum dramatízkur eins og í þessu lagi. Hann sándar einhvern alltaf svo töff og maður reyndi voða mikið að pikka upp hvert einasta break hjá honum. Sánd er auðvitað alltaf mikilvægt og ég hefði kannski átt að minnast á Flaming lips í því samhengi, nota alltaf þann referens í trommusándi. Man eftir því á næsta lista. Þetta er af plötunni Nowhere, sem ætti að vera á kennsluskránni í Indí 103 áfanganum. Og líka platan Going blank again.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
(Kristján valdi orginalinn en ég átti hann ekki þannig að ég setti þessa útgáfu í staðinn, hún er tekin af Peel Sessions)
* NINE INCH NAILS – MARCH OF THE PIGS
Þetta er náttúrulega óendanlega töff. Þessi plata olli straumhvörfum í lífi manns. Ég og Gummi vinur minn og félagi í hljómsveitinni Reykjavík! héngum mikið inní herbergi að hlusta á músík á gaggó og menntaskólaárum á Ísafirði. Það mætti segja að við höfum hlustað mikið á nýbylgjuna, þetta fyrra britpop í bland við Pantera, Megadeth og Slayer (sjitt, af hverju er ég ekki með Dave Lombardo á listanum?). Ég var meiri poppari meðan hann var meiri metall. Þarna mættumst við á miðri leið. Trent Reznor er auðvitað óþarflega kúl og þetta lag inniheldur auðvitað frábæran takt. Myndbandið við þetta lag er líka með þeim betri.
* GOJIRA – BACKBONE
Þegar kemur að metal þá fíla ég meira þegar menn eru að spila einhverja basic takta. Þó svo að Reykjavík! spili ekki endilega metal en þó agressíft rokk þá hef ég verið að þrjóskast við að nota ekki tvöfaldan sparkara. Valdimar félagi minn í bandinu hefur þó hótað því nokkrum sinnum að gefa mér tvöfaldan sparkara í afmælisgjöf. Hann gleymir því þó alltaf, hann man held ég ekki hvenær ég á afmæli. Hann á afmæli 15. júlí…! Valdi spilaði Gojira fyrir mig fyrir nokkrum árum og ég hreifst samstundis að þessu lagi. Ótrúlega basic trommutaktur og öflugur, sem koma auðvitað miklar hundakúnstir með tvöföldum sparkara og öðru. Ekki reyna þetta heima!
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
* YO LA TENGO
Ef ég er eitthvað illa fyrirkallaður eða í einhverju ójafnvægi þá set ég á plötu með Yo la tengo, þá lagast allt. Platan I can the heart beating as one er tímalaus snilld og ein af toppfimm plötunum í safninu. Við Svavar Pétur, félagar í Prinspóló eigum þetta dálæti sameiginlegt. Ég horfi mikið til hennar Georgiu Hubley í mínum trommuleik með Prinspóló, enda spilar hún mjög oft standandi á trommur eins og ég sjálfur…og auðvitað snllingurinn Moe Tucker í Velvet underground. Eins og sést á þessum stutta lista er ég mjög mikill aðdáandi einfalds trommuleiks og smekklegs. Svo er það nú oft þannig að aðrir en trommarar komi með skemmtilega nálgun, ég leyfi mér að nefna í því samhengi fyrrnefndan Svavar Prinspóló, Róbert í hljómsveitinni ÉG og Stefán Má Magnússon gítarhetju, sem kenndi mér mjög margt. EN hvað sem öðru líður er hér í endingu fallegt lag með Yo la tengo sem er svo viðeigandi í frostinu, lagið summer af plötunni Fakebook sem kom út árið 1990.
Þegar ég verð stór þá ætla ég að stofna hljómsveit þar sem ég syng og spila á trommur, hljómsveitin á að heita ENGILBERT JENSEN…en þangað til
þakka ég fyrir mig,
Kristján Freyr
Reykjavík!
Prinspólóspóló
Tags: Gojira, Nine Inch Nails, Prinspóló, Reykjavík!, Ride, Yo La Tengo
Flokkað undir Georg Atli, Gestalisti | Comments Off


