Gus Gus kveður Nasa

6.3.2012 - Kristjana

Ef þetta er ekki ástæða til að skella sér í dansskóna…

(Líklega) síðustu tónleikar Gus Gus á Nasa verða haldnir þann 12. maí. Gus Gus hafa þetta um málið að segja:

“Þetta ástarsamband Gus Gus og NASA má vart lýsa með orðum.

En gerum það samt.

Kemestrí, spenna og rómantík er það helsta sem einkennt hefur þetta langa hjónaband. Losti, vinátta og væntumþykja eru einnig orð sem koma upp í hugann.

En þetta ástarsamband fær ekki að vara að eilífu. Það er komið að kveðjustund þar sem faðir hússins er ekki sáttur við ráðahaginn og vill ekki að dóttirin sé í slagtogi með teknó-tónlistarmönnum.

Það stefnir allt í lokun Nasa þannig að stórsveitin mun koma fram í síðasta skiptið á BESTA tónleikastað á Íslands fyrr og síðar.

Miðasala hefst á miði.is miðvikudaginn 7. mars.

Húsið opnar kl 21:00 og sér DJ Margeir um að hita upp kofann. Gus Gus fer á svið stundvíslega kl 22:30.

Með vinsemd og virðingu… söknuði :(

Tags: ,
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað | Comments Off

Íslensk tónlistarmyndbönd á Northern Wave Film Festival

31.1.2012 - Georg Atli

Næstkomandi mars (2.-4. mars 2012) verður haldin alþjóðleg stuttmyndahátíð í Grundarfirði. Þó svo að það eitt og sér sé skemmtilegt verður valið íslenska tónlistarmyndband ársins í leiðinni og mér finnst það ennþá skemmtilegra. Ykkur til yndisauka þá ákvað ég að birta lista yfir þau myndbönd sem hafa verið tilnefnd hér að neðan og m.a.s. að linka á þau líka. Dyggir lesendur hafa alveg örugglega séð mörg myndbandanna áður hérna hjá okkur en þau eru samt mjög góð/skemmtileg þannig að það má alveg horfa aftur. Ég mæli meira að segja eindregið með því að þið horfið á öll myndböndin. Hins vegar nenni ég ekkert að skrifa um þau en bendi þess í stað á mjög skemmtilegt blogg frá Gogoyokoliðum. Það er líklega rétt að taka tvennt fram, í fyrsta lagi þá er listinn hér að neðan fenginn að láni af heimasíðu hátíðarinnar (northernwavefestival.com/) og í öðru lagi þá eru það áðurnefndir Gogoyokopennnar sem tilnefna myndböndin á listann.

ÍSLENSK TÓNLISTARMYNDBÖND TILNEFND AF GOGOYOKO.COM

123 Forever með Apparat Organ Quartet
Leikstjóri: Gerda Klotz
Feels Like Sugar með Hjaltalín
Leikstjóri:Rúnar Ingi
Because Of The Blood með Sin Fang
Leikstjóri:Máni M. Sigfússon
Sneaky Boots með Kiriyama Family
Leikstjóri:Gunnar Örn Birgisson
Hellbound Heart með Reykjavík!
Leikstjóri:Bowen Staines
River með Snorra Helgasyni
Leikstjóri:Máni M. Sigfússon
Tranquility með Who Knew
Leikstjóri:Einar Baldvin Arason
Implosions með Agent Fresco
Leikstjóri:Jónatan Grétarsson
Sharpen The Knife með Who Knew
Leikstjóri:Sigurjon Bjarni Sigurjonsson
Oh Dae Su II með We Made God
Leikstjóri:Óskar Bragi Stefánsson
Slowlights með Sin Fang
leikstjórn: Máni M. Sigfússon
Over með GusGus
Leikstjórn Ellenar Lofts & Thorbjarnr Ingasonar
Smashed Birds með Sóley
Leikstjórn: Inga Birgisdóttir
Kimba með Retro Stefson
Leikstjórn: Árni Sveinssonar
Never Forever með Singapore Sling
Leikstjórn: Þórður Grímsson
Skeletons Having Sex on a Tin Roof með Orphic Oxtra
Leikstjórn: Bergrún Snæbjörnsdóttir
I Don’t Want To Go To Sleep Either með FM Belfast
Leikstjórn: Árni Rúnar Hlöðversson
Bed of Needles með Steed Lord
Leikstjórn: Steed Lord (ásamt Sonya Tayeh)
American með FM Belfast
Leikstjórn: Árni Rúnar Hlöðversson
Two Boys með Sin Fang
Leikstjórn: Inga Birgisdóttir

Tags: , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off

GUSGUS TÓNLEIKAR 17.DES Á NASA

7.12.2011 - Georg Atli

Jón Jónsson og GusGus kynna með stolti og sturlun!!

Gusgus á Nasa þann 17.desember!

• Heitari og eitraðari
• Ferskari og hressari
• Dýpri og dansvænni

… fyrir unga sem aldna, allt frá herra Ólafi Ragnari til Ingva Hrafns!

Það er óhætt að segja að nýjasta afurð hljómsveitarinnar, Arabian Horse hefur farið sigurför um heiminn síðan hún kom út á þessu herrans ári.

Bandið hefur aldrei verið eins skothelt á sviði með þremur af bestu söngvurum landsins í sókninni …
• Urður Hákonardóttir
• Daníel Ágúst Haraldsson
• Högni Egilsson

Svo skipa vörnina þeir allra hörðustu í hljóðheimi raftónlistarinnar
• President Bongo
• Biggi Veira

Hljómsveitin hefur staðið í ströngu á síðastliðnum misserum og spilað víðsvegar um heim við frábærar viðtökur. Arabian Horse hefur fengið afbragðs dóma og er mest selda breiðskífan á hinu virta plötufyrirtæki : Kompakt, frá Köln í Þýskalandi.

Að upplifa Gus Gus á NASA er ógleymanlegt og ætti að koma flestum í rétta jólagírinn. Tónleikar sem þessir seljast upp á skot stundu svo tryggðu þér miða sem allra fyrst á midi.is.

Hús opnar kl 21:00 með DJ Margeiri en Gus Gus fer stundvíslega á svið kl 22:30.

Tags: ,
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning, Tónleikar | Comments Off

Nýtt Gus Gus Myndband

7.8.2011 - Georg Atli

Um daginn þá sendu Gus Gus frá sér myndband við lagið Over. Það er gott, tjékkiði á því:

Það voru þau Ellen Lofts og Þorbjörn Ingason sem að leikstýrðu og Karl Óskarsson tók herlegheitin upp.

Tags:
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off

Topp 5 uppgjör – Rósa Guðrún

22.1.2010 - Rósa Guðrún

Nýliða Topp 5 – Uppgjör 2009 – Rósa Guðrún

1. Hverjir voru bestu tónleikar sem þú sást á árinu?

Ég fór nú ekki á ýkja marga tónleika á síðasta ári. Það eru kannski tvennir tónleikar sem standa uppúr þó. Aðrir tónleikar voru föstudagskvöldið á tónlistarhátíðinni Bræðslunni. Það var nokkurskonar upphitunarkvöld fyrir laugardagskvöldið en þá var ég farin úr plássinu. Það sem var skemmtilegast á þessum tónleikum voru prýðispiltarnir í Árstíðum og síðan Jónas Sig., einnig stóðu piltarnir í BSig (núna Monotown) sig vel. Stemmning var mjög góð smitaði það frá sér í spilamennskunni.Hinir tónleikarnir voru tónleikar Nico Muhly á Airwaves tónlistarhátíðinni. Hann er nútíma tónskáld sem spilaði einn á flygil í Iðnó og var með smá elektróník með sér. Með honum spilaði og söng pilturinn Helgi Valur sem heillaði alla uppúr skónum með sínum fagra söng upp í hæstu hæðir og með fínu básúnuspili. Alveg hreint frábærir tónleikar sem komu skemmtilega á óvart.

2. Hvaða gamalt dót uppgötvaðir þú á árinu?

Anita O’day er jazzsöngkona af gamla skólanum sem ég kolféll alveg fyrir á síðasta ári þökk sé tónlistarsafni Borgarbókasafnsins. Hún er hreint út sagt dásamleg og slær ekki slöku við drotningunni Ellu Fitz.
Set inn link á eitt sem nú allir þekkja:

3. Hver voru mestu vonbrigði ársins?

Veit nú ekki hvort maður má tala svona. En jú það sem olli mér vonbrigðum á árinu var einna helst Hafdís Huld. Hafði einhvern veginn alltaf haft pínu væntingar til þessarar stelpu, þó ég hafi aldrei sérstaklega fylgst með henni. Vorkenndi henni alltaf líka smá í kringum Gus Gus rifrildið á sínum tíma. Hún hafði yfirleitt fengið góða dóma fyrir það sem hún var að gera og sérstaklega þá barnaplötuna sína Englar í Ullars0kkum. En þegar hún gaf út þessa leiðinlegu plötu á síðasta ári verð ég að segja að ég varð fyrir miklum vonbrigðum. Hún hefur ágætis rödd, þó hún sé ekkert besta söngkonan, en lagasmíðarnar fundust mér ekki skemmtilegar og frekar barnalegar (og þetta á ekki að vera barnaplata) og textarnir þeim mun hallærislegri. Get heldur ekki lýst því hversu mikið ógeð ég var búin að fá á Kónguló. En hún fékk góða umfjöllun í fjölmiðlum og ágætisspilun svo það eru eflaust einhverjir ekki á sama máli. En þetta er nú barasta mín skoðun og eins gott að mennirnir séu ekki allir eins.

4. Hverju ætlaðirðu alltaf að tékka á á árinu en trassaðir?

Var alltaf á leiðinni að tékka á Bon Iver. Hafði alltaf heyrt Skinny Love í bílnum á leiðinni hingað og þangað og söng alltaf hástöfum með. Elska svona einfaldar lagasmíðar sem virka svona hrikalega vel.


5. Hver er bjartasta vonin?

Hef ekki hugmynd um hver gæti verið bjartasta vonin. Dettur helst í hug smástráka hljómsveitina Sykur sem eru að koma sterkir inn á Íslandi allavega. Hafa hlotið gríðarlegar vinsældir á síðustu mánuðum. Hef ekki séð þá sjálf en kannski maður skellir sér til að vera hipp og kúl eins og hinir einhvert kvöldið ;)


6. Bónusspurning að eigin vali – Hverja viltu helst sjá á tónleikum 2010?

Held ég gæfi æru mína til að sjá Beyoncé á tónleikum shiiiiisck!!!!! Það yrðu án efa bestu tónleikar í HEIMI!!!! Hún er alveg ótrúleg :) …..og svo eru tútturnar með henni alveg fáránlega töff :) Ég meina gella sem getur dansað sungið og hlaupið um í 2 tíma á 15cm hælum á skilið Nóbelsverðlaun!

Tags: , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Listar, Rósa Guðrún | 2 athugasemdir »

Topp 5 dónalög – Halldór

6.3.2009 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn

Skemmtileg pæling í gangi þessa vikuna.

Gus Gus – Ladyshave

I guess I must have messed it up
When I gave you the ladyshave.

Dónalegt lag, dónalegur texti og dónalegur söngur. Myndbandið bætir svo ofan á það.

Gus Gus – Ladyshave on MUZU.

Sebastien Tellier – Fingers of steel

Ég gat ekki gert dónalagalista án þess að henda einum Frakka inn á listann. Augljósi kosturinn hefði verið Serge en ég ákvað að velja frekar Sebastien Tellier sem hefur þetta skemmtilega franska dónakallaútlit. Fingers of Steel hljómar líka eins og dónalag, synthadónalag.

Isaac Hayes – Shaft

Who’s the black private dick
That’s a sex machine to all the chicks?
SHAFT!
Ya damn right!

Það bókstaflega lekur af þessu lagi, eðaldónaskapur þarna á ferðinni. Bara gítarinn ætti að vera 18+

The Starland Vocal Band – Afternoon Delight

Gonna find my baby, gonna hold her tight
gonna grab some afternoon delight.
My motto’s always been; when it’s right, it’s right.

Þetta lag kom sterkt inn í Anchorman og jafnvel enn sterkar inn í Arrested Development þáttunum. Mjög skemmtilega jolly seventís dónaskapur.

Tom Waits lag listans

Tom Waits lagið sem ég valdi á þennan lista er skemmtilegt nokk af sömu plötu og fyrsta lagið sem ég valdi, Closing Time. Þetta lag heitir Ice Cream man.

Well I’m clickin’ by your house about two forty-five
with sidewalk sundae strawberry surprise
I got a cherry popsicle right on time
A big stick, mamma, that will blow your mind

Cause I’m a ice cream man, I’m a one-man band, yeah
I’m a ice cream man, baby
Honey, I’ll be good to you

Ekki mjög vel falinn dónaskapur þar á ferð og hinn 23 ára gamli Tom Waits hljómar eins og mun eldri dónakall. Lagið er líka gríðarskemmtilegt.

f you missed me in the alley, baby, don’t you fret
Come back around and don’t forget
When you’re tired and you’re hungry and you want something cool
got something better than a swimming pool

You see me coming, you ain’t got no change
Don’t worry baby, it can be arranged
Show me you can smile, baby just for me
Fix you with a drumstick, I’ll do it for free

Minnir mig á línu úr kvikmyndinni Down By Law eftir Jim Jarmusch; I scream, you scream, we all scream for ice cream.

Tags: , , , , ,
Flokkað undir Listar | 3 athugasemdir »

Topp 5 trúarlög – Vignir

30.11.2007 - Kristín Gróa

5. George Michæl – Faith
Jú, maður verður að halda í trúna…. og leðurjakkann.

4. Gus Gus – Believe
I’m no jesus but I’m close to him,
We talk all the while.
I’m no jesus but he comforts me,
We walk side by side.

Daníel Ágúst er ágætis staðgengilsjesús, reddar manni ef maður er að drukkna og svona.

3. Depeche Mode – Personal Jesus
Dave Gahan reddar manni ef að Jesús svarar ekki bænum manns.

2. Monty Python – Every Sperm is Sacred
Kaþólska kirkjan hefur í gegnum tíðina passað upp á að fólk sé örugglega duglegt að fjölga sér í þeirra nafni og ekki sulla öllu út um allt. Helsti gallinn er að maður gæti misst börnin sín í læknisfræðilegar tilraunir.

1. A Perfect Circle – Judith
You’re such an inspiration for the ways
That I’ll never ever choose to be
Oh so many ways for me to show you
How the savior has abandoned you
Fuck your God
Your Lord and your Christ
He did this
Took all you had and
Left you this way
Still you pray, you never stray
Never taste of the fruit
You never thought to question why

Maynard fær útrás fyrir tilfinningum sínum um trú móður sinnar og hvernig hún gaf kirkjunni allt sitt líf.

Tags: , , , ,
Flokkað undir Listar | Comments Off

Topp fimm bestu vorlögin sem fá mann til að langa að hlaupa um í grasinu og kasta frisbí og minna á að lífið er nú bara ágætlega skemmtilegt – Vignir

13.4.2007 - Kristín Gróa

1. Modest Mouse – Float On
Þetta finnst mér vera eitt skemmtilegasta vorlag í heimi. Lagið er alveg frábært, gott vorgrúv í því og svo er Isaac Brock óeðlilega jákvæður í þessu lagi.

2. Led Zeppelin – Rock & Roll
Þetta lag er svoleiðis ekki rangnefnt! Frábært lag sem fer strax af stað og kemur manni í góðan fíling. Manni langar mest að vera í rauðum Cadillac blæju(with the top down) að keyra í gegnum eyðimörkina á leiðinni til Las Vegas. We can’t stop here! This is bat country!

3. Gus Gus – Believe
Þetta lag minnir mig á að vera 14-15 ára pjakkur og hlusta á Polydistortion og Homework með Daft Punk þangað til að það komu göt á diskana! Lagið eldist líka alveg rosalega vel og er ennþá algjör snilld

4. Herbert – Something Isn’t Right
Ég er bara alls ekki frá því að þetta sé vorlagið mitt í ár. Ég er reyndar alveg vel seinn á fattinu en… all is well that ends well :)

5. Yann Tiersen – Soir de fête
Þetta lag er nú held ég bara það persónulegasta á listanum. Seinasta vor var held ég bara það skemmtilegasta sem ég hef átt. Þá fór ég líka í fyrsta skipti til París með unnstunni minni. Sú ferð er einhver sú best heppnaðasta ferð sem ég hef nokkurn tímann farið í og eru allar klisjur um “Paris in the Springtime” bara dagsannar. Það eru allir afslappaðir og laid back, ástfangnir og í sleik. Þetta varð síðan lag ferðarinnar og tróðum við aldeilis oft upp á götuhornum með þessu lagi. Þegar ég hugsa um vor, þá hugsa ég um París og þegar ég hugsa um París þá hugsa ég um þetta lag. Reyndar er Amelie soundtrackið liggur við bara soundtrack borgarinnar

Tags: , , , ,
Flokkað undir Listar | 1 athugasemd »

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin