Plata mánaðarins

12.3.2012 - Georg Atli

Ruddinn – I Need a Vacation

Ég var svo lélegur að skrifa um plötu mánaðarins í síðasta mánuði að ég ákvað bara að framlengja febrúar plötuna fram í mars. Þess vegna ætla ég að byrja á því að benda á fyrstu færsluna um I Need a Vacation.

Lag þessarar viku er hinsvegar titil lagið. Það passar bara svo ótrúlega vel við veðrið þessa dagana. Ég held amk að það séu ekki margir landsbúar sem að eru ekki að láta sig dreyma um hlýjar strendur eða einhverskonar frí.

Lagið er sungið af Ruddanum og Heiðu (úr Hellvar) og eins og annarsstaðar á plötunni þá passa raddirnar vel saman og lagið er vel danshæf. Svo er einhvern vegin töluverður nostalgíufílíngur yfir því, eins og maður hafi bæði heyrt það og skemmt sér (vel) yfir því einhvern tíman miklu fyrr. Persónulega finnst mér þetta vera skemmtilegasta lagið á plötunni.

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Tags: ,
Flokkað undir Georg Atli, Plata mánaðarins | Comments Off

Plata mánaðarins

13.2.2012 - Georg Atli

Ruddinn – I Need a Vacation
Loksins er komið að nýrri færslu um plötu mánaðarins. Í þetta skiptið er það nýjasta plata Ruddans sem kallast I Need a Vacation. Platan kom reyndar út í águst í fyrra þannig að hún er kannski ekkert glæný en það breytir því ekki að hún er mjög skemmtileg. Þessi plata er þriðja plata Ruddans og hún var í vinnslu í heil 3 ár. Heiða Eiríksdóttur (úr Hellvar) syngur flest lögin á plötunni en Ruddinn syngur líka auk þess sem Skapti Soulviper syngur eitt laganna á plötunni.

Tónlist Ruddans er staðsett einhversstaðar á milli rokk tónlistar og synthapopps og minnir um margt einmitt á Hellvar og auk þess heyrir maður sterk áhrif frá póst-pönki níunda áratugarins (það er mjög stutt í líkingar við hljómsveitir eins og t.d. New Order og jafnvel Cabaret Voltaire). Lögin er öll þannig uppbyggð að tempóið er hátt og platan er skemmtileg að hlusta á.

Við byrjum á laginu Too Distant for Us, sem er þriðja lag plötunnar. Það er Sungið af Heiðu og ég fann meira að segja myndband við það á youtube, gaman að því. PLötuna er hægt að nálgast á Gogoyoko.

Tags: ,
Flokkað undir Georg Atli, Plata mánaðarins | Comments Off

Annáll Kimi Records

13.1.2012 - Kristín Gróa

Kimi Records átti glimrandi gott ár í músík og stóð að útgáfu nokkurra hljómplatna sem hafa fengið prýðilegar viðtökur, eins sáu þeir um dreifingu og kynningu á nokkrum titlum. Árið hófst með útgáfu á annarri breiðskífu Sin Fang, Summer Echoes, en hún kom út í mars. Fékk hún prýðilegar viðtökur, en fólki þykir þetta að öllu jöfnu mjög góð plata. Því næst kom platan Don’t Want to Sleep með FM Belfast (Morr music gaf út). Platan fór í verslanir þann 3. júní síðastliðinn. Í ágúst gáfum við út aðra breiðskífu Snorra Helgasonar og nefnist hún Winter Sun. Sú plata féll vel í kramið hjá skrípentum og hlustendum og meðal annars valdi Dr. Gunni hana sem plötu ársins.

Um mitt sumar fór allt að tryllast á skemmtistöðum miðborgarinnar sökum óvæntasta smells ársins. Niðrá strönd í sexy schidt endurgerð fékk fólk til að æpa af fögnuði og gleði. Í tilefni því gaf Kimi lagið út á rafrænu formi í þessari dansvænu útgáfu og var því vel tekið.

Í lok ágúst gáfu jaðarjazzararnir í ADHD út sína aðra breiðskífu, ADHD 2 og sömuleiðis komu út plöturnar Stop That Noise með Hellvar og Hermigervill leikur fleiri íslenzk lög, en Kimi sá um dreifingu á þessum titlum.

2. september gáfum við út plötuna We Sink (í samstarfi við Morr music) með henni Sóley. Sú plata endaði ofarlega á flestum árslistum og þykir platan frábær í alla staði.

Þann 1. október kom platan Haglél út með Mugison og hefur hún slegið öll met og hefur meðal annars verið seld í um 28 þús eintökum. Um miðjan október komu svo út tvær plötur. Við upphaf Airwaves hátíðina kom út platan Mount Modern með Dad Rocks! í tilefni af fyrstu tónleikum hans hér á landi, en Snævar Albertsson er að öllu jöfnu búsettur í Danmörku. Svo kom út platan Locust Sounds með Reykjavík!, 14 laga plata sem fer alla leið í rokkinu.

Sömuleiðis gáfum við í Kima út okkar fyrstu kvikmynd, í samstarfi við Kjartansson ehf, en myndin Backyard kom út á DVD og fylgir hljómdiskur með myndinni og inniheldur hann lög úr myndinni.

Í nóvember kom svo út platan Nology með Nolo. Unggæðingarnir úr úthverfum höfuðborgarinnar enduðu útgáfuárið okkar með bravúr, en platan þykir unaðsleg.

Í apríl hélt Kimi Records sína fyrstu tónlistarhátíð og kölluðum við hana Reykjavík Music Mess, þar úði og grúði af músík og minnistæðustu tónleikar hátíðarinnar voru frábærir tónleikar Deerhunter, goðsagnakennd framkvæmd Sudden Weather Change á tónlist Ghostigital, en þar nutu þeir aðstoðar Einars Arnar Benediktssonar. Reykjavík Music Mess verður svo haldin aftur á þessu ári, en að þessu sinni í maí.

Allt í allt gott ár hjá þeim tónlistarmönnum sem Kimi leggur lag sitt við.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa | Comments Off

Tarnús jr. með nýja plötu

18.11.2011 - Georg Atli

Lo-Fi jálkurinn Tarnús jr. stígur hér fram á völlinn á ný með svefnherbergisplötuna My God Is Mad.
Þessi tilraunakenndi tónlistarbræðingur inniheldur 8 angurvær og hættulega kynþokkafull indí popplög og
platan fylgir frumburðinum Original Cowboy sem hann gaf sjálfur út árið 2006

Tarnús jr. er listamannsnafn Grétars Magnúsar Grétarssonar (Tarnús eldri er listmálari og faðir hans).
Grétar Magnús starfrækir einnig hljómsveitina Rafgashaus sem hefur ávalt komið hressilega á óvart
þá sjaldan að hún skýtur upp kollinum á tónleikum. Voru þeir m.a kallaðir hetjur kvöldsins í dómi um tónleikakvöld á Airwaves hátíðinni í fyrra

Hellvar hefur nýlega endurhljóðblandað lagið Pussycat af fyrri plötu Tarnús jr. og mun það poppa fram í dagsljósið fyrr en seinna.

Platan My God Is Mad verður einungis gefin út stafrænt og er hún fáanleg á öllum helstu tónlistarveitum netsins.
Plötuútgáfan CCBB (Ching Ching Bling Bling) hljóðjafnar, styður við og dreifir.

Hér er hægt að nálgast breiðskífuna á Bandcamp: http://chingchingblingbling.bandcamp.com/
Tarnús jr. á Þúskjánum: http://www.youtube.com/tarnusjr

Tags: , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning | Comments Off

Hellvar – Stop That Noise

30.10.2011 - Georg Atli

Fyrir nokkru síðan gaf hljómsveitin Hellvar út sína aðra breiðskífu, hún heitir Stop that Noise. Hljómsveitinni tókst að breytast alveg helling síðan á síðustu plötu þau eru m.a. hætt a vera bara tvö og orðin að heilli hljómsveit og þar af leiðandi hefur hljómurinn þeirra orðið þéttari. Hellvar hafa líka fært sig fjær þessum elektróníska hljóðheim sem þau bjuggu sér til og farin að hljóma miklu meira eins og rokkhljómsveit. Þannig er það skemmtilegt að heyra hvað lögin þeirra ganga vel upp, það er nefnilega ekkert á hverjum degi sem að maður heyrir rokkhljómsveit spila lög sem eru alveg næstum því bara elektró og komast upp með það (þetta virkar líka í hina áttina, elektróband að spila rokk). Dæmi um þetta er t.d. lagið Falsetto:

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Þessi nýja plata er tekin upp live og það skeilar sér í skemmtilegri “stemmningu” í lögunum. Maður færist nær hljómsveitinni og þessi steríla tilfinning sem stundum kemur á plötur er víðsfjarri. Það er svona pínu sama stemning og á tónleikum bara með miklu betra hljóði, þægilegri sætum og svo er ekkert milli-laga-spjall. Það heyrist líka vel að þeir sem að tóku upp hafa alveg vitað hvað þeir voru að gera.

Stop that Noise er í heildina fín plata. Þau í Hellvar eru greinliega ekki hrædd við það að prufa nýja hluti í tónlistinni sinni og það er vel. Reyndar þó er fjölbreytnin líka helsti galli þessarar plötu og stundum virkar hún svolítið laus í sér, mikið vaðið úr einu í annað og hún finnur sér einhvern veginn ekki neinn ákveðinn stað. Þannig virkar platan eiginlega best ef maður hlustar bara á eitt lag í einu því að það er fullt af góðum lögum hérna t.d. hittarinn Ding an Sich og nýja lagið Morcau de GaitéYou Say I Know er dáleiðandi ljúft lag og Amma Anna er lag sem að gæti næstum því verið með Cocteau Twins. Það sem að mér finnst hins vegar vera allra best við plötuna er hún Heiða Eiríksdóttir söngkona, hún gerir öll lögin bara aðeins betri.

Hellvar – Anna Amma

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Hellvar gefa plötuna sína út sjálf en Kimi Records dreifa henni í plötubúðir og svo má að sjálfsögðu finna hana á Gogoyoko.

Tags: ,
Flokkað undir Georg Atli, Plötuumfjallanir | Comments Off

Kaffi, Kökur og Rokk og Ról!!

27.10.2011 - Georg Atli

Einhverra hluta vegna virðist það hafa farið framhjá mörgum að það er alveg gríðarlega skemmtileg tónleikaröð er í fullum gangi. Á (næstum) hverjum þriðjudegi síðan í byrjun september hefur Arnar Eggert Thoroddsen haft yfirumsjón með Kaffi, kökum og rokki og róli og fengið stórann hóp af skemmtilegustu hljómsveitum íslands til að spila saman.

Tónleikaformið er aðeins öðruvísi en gengur og gerist því húsið opnar kl. 20:00, tónleikarnir byrja svo hálftíma seinna og eru búnir um kl. 22:00. Já og það kostar bara 500 kall inn OG það eru kökur og kaffi! og allt áfengislaust að sjálfsögðu. Þriðja hvern þriðjudag er svo UNG SÁÁ með dagskrá.

Ég er búinn að ná að mæta tvisvar og sjá Agent Fresco og Mammút og síðan Retro Stefson og NOLO og í bæði skiptinn hefur verið frábær skemmtun. Það er einhvern veginn allt miklu afslappaðra á þessum kvöldum, salurinn er í minni kanntinum, hljóðið fínt og stemningin hefur verið mjög innileg og þægileg. Ég mæli hiklaust með þessu!

Hingað til hafa eftirfarandi bönd mætt og leikið listir sínar:
Benni Hemm Hemm + Prinspóló, Saktmóðigur + Hellvar, Agent Fresco + Mammút, Sóley + Samaris, Snorri Helga + Hermigervill.

Í gær voru svo Retro Stefson og NOLO að spila þar sem NOLO spiluði lög af væntanlegri plötu og Retro Stefson sýndi það og sannaði að það er enginn (í heiminum!?) betri í því að byrja partý en þau, þegar að þau fengu fullt af ófullu fólki til að dansa eins og enginn væri morgundagurinn auk þess að standa og sitja nákvæmlega eins og Retro-liðar sögðu til um og mér skilst að það sé ekkert svo auðvelt.

Næsta þriðjudag verða svo svakalegir rokktónleikar þegar að Reykjavík! og Hljómsveitin Ég mæta í Edrúhöllina (Efstaleiti 7) og ég ætla að halda því fram að það megi enginn missa af því.

Það sem eftirlifir vetri lýtur dagskráin þannig út:
8. nóv: UNG SÁÁ með dagskrá
15. nóv: Ekki Búið að Tilkynna (EBT)
22. nóv: Lára + Rúnar Þórisson
29. nóv: EBT
6. des: UNG SÁÁ með dagskrá
13. des: SKÁLMÖLD + Angist
20. des: Lay Low + gestir
27. des: Mugison + Jónas Sig

Tags: , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off

Hellvar gefur út STOP THAT NOISE

12.9.2011 - Georg Atli

Hljómsveitin Hellvar sendir frá sér sína aðra breiðskífu Stop That Noise í samstarfi við Kimi records.

Önnur breiðskífa hljómsveitarinnar Hellvar, Stop That Noise, verður fáanleg í forsölu hjá gogoyoko á miðnætti föstudaginn 8. september. Opinber útgáfudagur plötunnar er hins vegar miðvikudagurinn 14. september en þá kemur platan í verslanir.

Þann sama dag og platan kemur út (14. september) mun hljómsveitin halda útgáfu- og hlustunarpartý í Nýlenduvöruverzlun Hemma og Valda Laugavegi 21. Gleðin hefst klukkan 21:00 en þá verður einnig nýr meðlimur hljómsveitarinnar kynntur til leiks. Það er enginn annar en Haukur Viðar Alfreðsson úr Morðingjunum sem mun leysa Sverri Ásmundsson undan bassaskyldum, en Sverrir flytur með fjölskyldu sinni til Danmerkur í Október.

Eins og allir vita byrjaði hljómsveitin Hellvar sem dúett sem hægt og rólega óx í kvintett en í hvert sinn sem hljómsveitin bætir við sig meðlimi er viðkomandi látinn halda að minnsta kosti 20 mínútna uppistand. Haukur hlýtur þar enga undanþágu og samkvæmt hefðinni þarf hann að sýna og sanna að hann þoli vægðarlaust sviðsljósið.

Fyrstu lögin af Stop That Noise, Ding an Sich og I Should Be Cool, hafa notið töluverðra vinsælda á Rás 2 og X-inu 977 og er Hellvar á bullandi siglingu þessa dagana eftir vel heppnaða tónleikaferð til Bandaríkjanna í sumar. Framundan er mikil spilamennska til að fylgja plötunni eftir, fyrirhugaðir eru útgáfutónleikar í lok september sem og heill hellingur af tónleikum á og í kringum Iceland Airwaves.

Aron Arnarsson stjórnaði upptökum og sá um hljóðblöndun á Stop That Noise en um tónjöfnun (mastering) sá JJ. Golden frá Golden Mastering, JJ hefur m.a. unnið með böndum eins og Primus, Sonic Youth, Calexico og Neurosis. Hljómurinn á plötunni er því kraftmikill, krassandi og eins og hann gerist bestur. Um umslagshönnun sá Svavar Pétur Eysteinsson.

Hellvar – I Should be Cool

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Tags: , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning | Comments Off

Tónleikasamantekt *Uppfært*

22.6.2011 - Georg Atli

Fullt að gerast um helgina… hafiði samband ef við erum að gleyma einhverju eða bara ef ykkur langar til að hafa samband, það er alltaf gaman að fá aðdáendapóst. Facebook, Twitter, comment, tölvupóstur

Miðvikudagur
Á Sódómu ætla Endless Dark að hita upp fyrir evróputúrinn sinn. Upphitun er í höndum Haffa Haff (!?) og Andvara. Húsið opnar kl. 21:00 og það kostar 1000 kall inn

Á Rósenberg verður blústvenna, en þar ætla Blússveit Þollýar og Strákarnir hans Sævars að spila. Tónleikarnir byrja kl. 21:00 og það kostar 1000 kall inn

Fimmtudagur
Gogoyoko heldur áfram með Wireless tónleikaröðina sína. Að þessu sinni eru það Bloodgroup sem að taka sína slagara og spila þá órafmagnaða. Tónleikarnir byrja kl. 21:00 í Hvítu Perlunni, miðinn kostar 1500 og fæst í forsölu í 12 tónum

Á Rósenberg verður Suðurríkjatryllingur. Brother Grass og Illgresi ætla að spila þar frá kl. 21:00 og það kostar 1500 kall inn. Enginn posi.

Á Sódómu verða Ferlegheit, Eldberg og Vintage Caravan með tónleika. Þeir byrja stundvíslega kl. 22:00 og það kostar 1000 kr. inn

Á Bar 11 verður Kreppukvöld og um 22:30 ætla Ikea Satan að trylla fólkið þar. Ókeypis inn.

Það verða svo tónleikar í Kaffistofunni kl 17:00 -19:00. Þar ætla Prinspóló og Sóley að spila.

Föstudagur
Á Bar 11 verður Grillveisla X 977 og Bar 11. Þar verður eflaust einhver tónlist og fínerí.

Á Sódómu verður hljómsveitin Orion með Master of Puppets tribute tónleika. En það eru þeir Björn Þór Jóhannsson, Kristján B. Heiðarsson, Magni Ásgeirsson, Magnús Halldór Pálsson og Rúnar Þór Þórarinsson sem skipa hljómsveitina Orion. Húsið opnar 20:00 og það kostar 2000 kr inn.

Á Sódómu verður annar Suðurríkjatryllingur og þar fylgja sömu upplýsingar og á föstudegi nema það að tónleikarnir byrja kl. 22:00

Á Faktorý verða hljómsveitirnar Vigri, Nóra og Hellvar að spila. Tónleikarnir eru “algerlega að tilefnislausu” og byrja kl. 22:00 og það kostar bara 500 kall inn.

Laugardagur
Á Sódómu verða Askur Yggrasils, Dimma og Sólstafir með tónleika. Húsið opnar 22:30 og það kostar 1000 kr. inn

Sunnudagur
Á Faktorý verður ennþá stærri SunnuJazz. Byrjar kl 21:30 og það er frítt inn eins og alltaf.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

Tónleikasamantekt

4.5.2011 - Georg Atli

Fullt af tónleikum eins og venjulega og við ætlum að taka þá saman og setja í eina færslu ykkur til yndisauka. Ef það er eitthvað sem að við gleymum/vitum ekki af endilega látiði okkur vita með því að senda okkur smá línu, t.d. hér, hér eða jafnvel í pósti, toppfimmafostudegi[hjá]gmail.com

Miðvikudagur

Á Rósenberg verða Steini Eggerts og Óperuídýfurnar að syngja um lífið. Byrjar kl. 21:00 og miðinnm kostar 1500 kr.

Fimmtudagur

Í Tjarnarbíói munu Bjartmar og Bergrisarnir fagna plötunni Skrýtin veröld og góðu ári með tónleikum. Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og það kostar 2500 krónur inn. Miðasala á midi.is.

Á Rósenberg verður Rokkabillýband Reykjavíkur með sína árlegu vortónleika. Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og það kostar 1800 krónur inn. Miðasala á midi.is. Sjá nánar hér.

Á Dillon verður mikið af tónlist en þar koma fram The Assasin Of A Beautiful Brunette, Postarctica og The Wicked Strangers. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það er frítt inn. Nánari upplýsingar hér.

Á Norðurpólnum verða þriðju tónleikarnir í tónleikaröðinni ‘Rafmagnslaust á Norðurpólnum’ og í þetta sinn eru það Svavar Knútur og Hljómsveitin Ég sem koma fram. Tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 21:00 og það kostar 1500 krónur inn. Sjá nánar hér.

Á Hressó verður Valdimar með tónleika sem eru hluti af tónleikaröð Gogoyoko. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og er frítt inn á meðan húsrúm leyfir. Sjá nánar hér.

Á Faktorý verður rótarkvöld með Atla Kanilsnúð. Sjá nánar hér.

Á Boston verður franski tónlistarmaðurinn Michael Wookey að spila frá kl. 21:00.

Á Prikinu verður mánaðarlegt breakbeat.is kvöld en þar koma fram Maggi B, Kalli og Skeng. Hefst klukkan 21:00 og það er frítt inn. Sjá nánar hér.

Föstudagur

Á Dillon koma fram hljómsveitirnar Gang Related, Ofvitarnir og No To Self. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það er frítt inn. Sjá nánar hér.

Á Faktorý verður Svínarí #2 og þar verða hljómsveitirnar Who Knew, Hellvar og The Hydrophobic Starfish. Húsið opnar kl. 22:00, tónleikarnir hefjast kl. 23:00 og það er frítt inn. Sjá nánar hér.

Á Sódóma verður bandaríska hljómsveitin White Cowbell Oklahoma með tónleika. Einnig koma fram The Vintage Caravan og Texas Muffin. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það kostar 1000 krónur inn. Sjá nánar hér.

Á BAR11 verður Wildcat rockabilly tryllingur með El Camino, 59′ers, Haffa Haff, Daníel Ágúst og Krumma. Frítt inn. Sjá nánar hér.

Laugardagur

Á Rósenberg verða tónleikar með Láru Rúnars og Lay Low. Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og það kostar 1000 krónur inn. Sjá nánar hér.

Á efri hæðinni á Faktorý verða hljómsveitirnar Valdimar og Æla með tónleika. Tónleikarnir hefjast kl. 23:00 og það kostar 1000 krónur inn. Sjá nánar hér. Á neðri hæðinni verður DJ Margeir og það kostar ekkert inn. Sjá nánar hér.

Sunnudagur
Á Rósenberg verður Thor Kristinsson með tónleika, þeir byrja kl. 21:00 og það kostar 1500 kr. inn

Á Faktorý verður SunnuJazzinn á sínum stað

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Kristín Gróa, Tónleikar | 2 athugasemdir »

Tónleikar vikunnar

31.3.2011 - Kristín Gróa

Tónleikasamantektin kemur fullseint fyrir fimmtudagskvöldið en þeir sem eru snöggir ættu að geta náð þessu.

Fimmtudagur

Á Faktorý halda feðginin Lára og Rúnar sameiginlega tónleika. Tónleikarnir hefjast 22:00 og það kostar þúsund krónur inn. Nánari upplýsingar hér.

Á neðri hæðinni á Faktorý verður Nate Dogg tribute kvöld, hefst klukkan 22:00 og það er frítt inn. Nánari upplýsingar hér.

Á Sódóma verður nýbylgju sýbylgja þar sem fram koma , Hellvar, Baku Baku og Hljómsveitin Ég. Hefst kl. 22:00 og það kostar skitinn 500 kall inn. Sjá nánar hér.

Á Dillon koma Gutlarar og fram og hefst fjörið kl. 22:00. Sjá nánar hér.

Föstudagur

Á Faktorý verður svínarí! Frí tónleikaveisla með Agent Fresco, Reason To Believe og The Vintage Caravan. Tónleikarnir hefjast kl. 23:00 og það er tilboð á barnum. Sjá nánar hér.

Á Sódóma verða Stóns með Rolling Stones tribute. Miðinn kostar 1500 krónur. Nánar hér.9

Á Dillon spila Exizt, Storyteller og Moy. Sjá nánar hér.

Laugardagur

Á Sódóma spilar bandaríska metalhljómsveitin Today Is The Day og það kostar 2000 krónur inn. Nánari upplýsingar hér.

Á Dillon verður brjálaður blús en þar kemur J.Ó. Bluespower fram. Sjá nánar hér.

Á er heldur betur stórviðburður en það er sjálfur Ghostface Killah sem heldur tónleika. Miðinn kostar 3900 krónur og nánari upplýsingar er að finna á nasa.is.

Sunnudagur

Á Faktorý verður dúnmjúkt djasskvöld sem hefst kl. 21:30 og það er frítt inn. Sjá nánar hér.

Eins og áður þá gerum við ekki ráð fyrir að þetta sé tæmandi listi svo þið megið endilega láta okkur vita ef þið vitið af einhverju fleiru.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Tónleikar | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin