Íslenskur vínylmarkaður á Kexinu!

22.11.2012 - Georg Atli

Íslensk vínyl útgáfa stendur í miklum blóma þessi misserin enda er fátt eigulegra en góð (íslensk) tónlist á vínylplötu. Titlarnir hrúgast út í búðirnar í allskonar útgáfum, litaðar plötur, númeraðar plötur tvöfaldar plötur, 10″ plötur og allskonar margt fleira. Þess vegna er mér sérstaklega gleðilegt að birta þessa tilkynningu sem við fengum um Íslenskan vínyl markað semverður á Kex hostel á laugardag. Það Snorri Helgason sem stendur á bak við þetta skemmtilega framtak og þú getur (ef þú ert tónlistarmaður með “brakandi ferskan vínyl í pokahorninu”) meira að segja fengið að vera með, sendu bara póst á Snorra Helgason

Þeir sem ætla að vera með eru (ekki tæmandi listi því að það er alltaf að bætast nöfn við, best að fylgjast með á facebook):

Snorri Helgason, Borko, Tilbury, Retro Stefson, Ojba Rasta, Múm, Ásgeir Trausti, Ólöf Arnalds, Sin Fang, Legend, The Heavy Experience, Prinspóló, Hjálmar, Sigurður Guðmundsson og Memfismafían, Of Monsters and Men, For a Minor Reflection, Moses Hightower, Kira Kira, Valdimar, Berndsen og Lay Low.

Markaðurinn verður á Kex hostel á laugardaginn á milli 13 og 17 og það verður meira að segja lifandi tónlist líka! Hér er event-inn aftur.

Þangað til getið fengiuð smá innsýn inn í plötusafn Cut Chemist (Ozomatli, Jurassic 5)

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning | Comments Off

KEXP og Kex Hostel halda útitónleika

29.6.2012 - Kristjana

Í jafn unaðslegu veðri og hefur verið það sem af er sumri er fátt annað að gera en skella í útitónleika og gleði. Það er akkurat það sem Kex Hostel og bandaríska útvarpsstöðin KEXP ætla að gera laugardaginn 14. júlí í KEXPort (portið við Kex Hostel). Tónleikarnir munu hefjast kl. 12 á hádegi og ljúka um miðnætti.

Aðgangur verður ókeypis en þar sem stöðin treystir á framlög hlustenda í rekstri sínum mun fólki verða gert kleift að styðja bakið við henni með frjálsum framlögum. Meðal þeirra sem fram munu koma eru: Ghostdigital, Sóley, Hjálmar, Sudden Weather Change, Tilbury og Snorri Helgason. Alls munu 12 hljómsveitir koma fram á klukkutíma fresti á þessum maraþon tónleikum.

KEXP

Tónleikarnir eru haldnir til stuðnings útvarpsstöðinni KEXP í Seattle. Stöðin er líklega orðin flestum íslenskum tónlistarunnendum vel kunnug enda hefur hún verið áberandi á Airwaves hátíðum síðastliðin ár auk þess að vera ansi dugleg að breiða út boðskapinn um íslenskar hljómsveitir. Á síðustu Airwaves hátíð var KEXP með beinar útsendingar frá hátíðinni á Kex Hosteli. Á Airwaves ársins mun stöðin aftur verða með beinar útsendingar og ókeypis tónleika alla hátíðina.

Tags: , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Tilkynning | Comments Off

XMAS 2011 – til minningar um Hermann Fannar Valgarðsson

19.12.2011 - Georg Atli

Annað kvöld verður blásið til stórviðburðar í Hafnarfirðinum. Þar verða árlegir jólatónleikar X-ins (XMAS) sem að í þetta skiptið verða haldnir í minningu Hermanns Fannars, fyrrum alt muligt manns sem lést langt fyrir aldur fram í nóvember. Tónleikarnir eru (svona svolítið eins og Hemmi) aðeins öflugri en flest annað sem er í gangi í dag og flest stærstu nöfnin eru þarna (smellið á myndina að ofan til að sjá betur) og svo er líka mjög gaman að geta bent á það að hljómsveitin Súrefni ætlar að koma aftur saman og trylla gesti.

Allir eru að gefa vinnu sína og allur ágóði af miðaverðinu (sem er, að ég held, allt verðið) rennur svo í styrktar sjóð fjölskyldu Hemma þannig að þarna gætuði verið að skemmta ykkur frábærlega OG gera jólagóðverk ársins, sem verður að segjast að er ansi góður díll!

Svo ef að þið komist ekki eða hreinlega nennið ekki á tónleikana þá er líka hægt að leggja inn á þennan reikning:
Reikningsnr: 545-14-403403
Kennitala: 180507-3610

Eftir tónleikana verða svo fríar rútuferðir úr Hafnarfirði og inn í Kópavog, Garðabæ og að sjálfsögðu líka inn í höfuðborgina, þannig að fjarlægðin er engin ástæða fyrir því að sleppa þessu!
Hérna er hægt að kaupa miða og svo er hægt að læka hér og horfa á smá vídjó/auglýsingu fyrir viðburðinn sem útskýrir allt aðeins betur.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

Faktorý heldur upp á eins árs afmæli sitt!

13.7.2011 - Georg Atli

Tónleika- og skemmtistaðurinn Faktorý er orðinn eins árs gamall og fagnar því með látum þessa vikuna.

Það var helgina 15. – 18. júlí 2010 sem að hljómsveitirnar Hjálmar, Agent Fresco, Mammút, Feldberg, Benni Hemm Hemm og Retro Stefson stigu á svið og vígðu tónleikastaðinn Faktorý.

Nú þegar tónleikastaðurinn er orðinn eins árs gamall ber að fagna því með mikilli veislu og hefur Faktorý ákveðið að bjóða vinum sínum í fría tónleikaveislu alla næstu helgi.

Svona er dagskrá vikunnar:
Miðvikudagur:
Classic Pub Quiz kl. 20:00 – Ekkert þáttökugjald – fullt af vinningum!

Fimmtudag:
Dj Danni Deluxe kl. 22

Föstudagur:
Agent Fresco
For a Minor Reflection
Lockerbie
Úlfur Úlfur

Hefst kl. 23 – Frítt inn!
+ DJ KGB á neðri hæð frá miðnætti

Laugardagur:
Brain Police
The Vintage Caravan
Spector

Hefst kl. 23 – Frítt inn!
+ Dj Anna Rakel og Halli á neðri hæð frá miðnætti

Sunnudagur:
Sunnudagsjazzinn verður á sínum stað
Hefst kl. 21:30 – Frítt inn!

Tags: , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning, Tónleikar | Comments Off

Tónleikasamantekt

26.5.2011 - Georg Atli

Jæja samantektin kemur degi of seint en það er samt fullt að gerast og allt það. Sendið okkur línu (eða komment eða eitthvað bara) ef að við erum ekki með okkar á hreinu, toppfimmafostudegi[hjá]gmail.com

Fimmtudagur
Brother Grass verða með tónleika á Rósenberg. Tónleikarnir byrja kl. 21:15 og það kostar 1000 kall inn, enginn posi.

Afmæli Bob Dylan verður fagnað á Dillon með tónleikum, meira um það hér en þetta byrjar allt saman kl. 22:00.

Seinni tónleikar hljómsveitarinnar Orka verða í Norræna húsinu kl. 20:00 og það kostar ekkert á þá.

Hjálmar verða á gogoyoko tónleikum í Hvítu Perlunni. Þetta verða órafmagnaðir tónleikar sem byrja kl. 21:00 og það kostar 2500 kr. inn og allir tónleikagestirnir fá “hljóðblandaða upptöku af tónleikunum til eignar”!

Þriðju Heiladans tónleikarnir verða hjá Hemma og Valda. Þar verða Epic Rain / Beatmakin Troopa, PLX, Murya og DJ Kári að spila. Frítt inn og þetta byrjar kl. 21:00

Á Faktorý verða Sing for me Sandra, Yoda Remote, UMTBS og Jón Þór (söngvari/gítarleikari Dynamo Fog og Lödu Sport) að spila. Það er ókeypis inn og tónleikarnir byrja kl. 22:00

Föstudagur
Wistaria,Trust The Lies og Moldun verða á Dillon. Ókeypis inn og tónleikarnir byrja kl. 20:00

Ojos de Brujo eru að spila á listahátíð (Hörpu) en ég held að það sé uppselt.

Á Bar 11 verða ókeypis The 59´ers og El Camino í ókeypis Rockabillí veislu. Þetta byrjar klukkan 21:00

Á Faktorý verða Die Ukraniens, Orphic Oxtra og Caterpillarmen. 1500 kr. inn og tónleikarnir byrja kl. 22:00

Á Sódómu verða XXX Rottweiler með tónleika, DJ Stinnson og Limited Copy hita upp. 1300 kr. við hurð, tónleikarnir byrja kl. 23:00 og þið getið valið lög á setlistann hérna

Laugardagur
Á Dillon verða hljómsveitirnar Mighty Good Times og The Wicked Strangers með tónleika. Ókeypis inn.

Á Sódóma verða Skálmöld, Atrum og Darknote. Tónleikarnir byrja kl. 21:00 og það kosta 1500 kall inn og það má alveg geta þess að amk 2 fyrrnefndu böndin verða að spila á Wacken metalfestinu.

Sunnudagur
Sunnujazz á Faktorý um 22:00

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

Tónleikar vikunnar

7.4.2011 - Kristín Gróa

Það er brjálað að gera í tónleikunum þessa helgi og þá sérstaklega í kvöld. Endilega látið okkur vita ef þið vitið af einhverju sem við erum að missa af!

Fimmtudagur

Á Norðurpólnum verða rafmagnslausir tónleikar með hljómsveitinni Valdimar og Láru Rúnars. Húsið opnar kl. 20 en tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 21:00. Það kostar 1500 krónur inn. Sjá nánar hér.

Á Bakkus verða útgáfutónleikar Fist Fokkers en þeir gáfu út EP plötuna Emilio Estavez á dögunum. Muck og White Boys With Attitude koma líka fram. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það er frítt inn.

Eins og við minntumst á í gær þá verða Amiina og Borko á Faktorý í kvöld. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það kostar þúsundkall inn. Sjá nánar hér.

Á Sódómu verða Urmull og The Vintage Caravan og hefjast tónleikarnir kl. 22:00. Sjá nánar hér.

Á Dillon stíga No To Self og Ganon á stokk um tíuleytið. Kostar ekkert inn. Sjá nánar hér.

Á Spot í Kópavogi eru styrktartónleikar ME félags Íslands en þar munu blús band Marel og Andrea Gylfadóttir flytja blús. Það kostar 2000 krónur inn. Sjá nánar hér.

Föstudagur

Á Faktorý heldur reggísveitin Hjálmar tónleika sem hefjast kl. 23:00. Það kostar 1500 krónur inn. Sjá nánar hér.

Á Dillon verður rokkbomba en þar koma fram Otto Katz Orchestra, Saktmóðigur og Trust The Lies. Hefst kl. 22:00 og kostar ekkert inn. Sjá nánar hér.

Laugardagur

Á Faktorý verður kanilkvöld #2. Sjá nánar hér.

Á Sódómu snýr Glymskrattinn aftur og verður mikið rockabilly fjör. Fram koma The 59′s, The Cash Kid og El Camino. Húsið opnar kl. 22:00 og það kostar þúsundkall inn. Sjá nánar hér.

Á Dillon verða öll helstu lög Jimi Hendrix spiluð en þar munu The Jimi Hendrix Project láta ljós sitt skína. Tónleikarnir hefjast kl. 22:30 og það er frítt inn. Sjá nánar hér.

Sunnudagur

Á Faktorý verður SunnuJazz en þar verður spilaður dúnmjúkur djass. Hefst kl. 21:30 og það er frítt inn. Sjá nánar hér.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Tónleikar | Comments Off

Hjálmar á Faktorý.

24.2.2011 - Georg Atli

Eins og allir geta séð í tónleikasamantektinni þá er fullt fullt af tónleikum á morgun og um helgina m.a. ætla hinir þrælmögnuðu Hjálmar að vera með tónleika á Faktorý annað kvöld (föstudag 25. feb). Þetta ætti að vera góð skemmtun því að þeir eru að koma nánast beint frá 2 tónlistarhátíðum (By:Larm í Noregi og Nordklang í Sviss) þannig að þeir ættu að vera í óvenju góðri live æfingu. Húsið opnar kl. 22:00, tónleikarnir byrja kl. 23:00 og það kostar 1500 kr. inn.

Til að hita aðeins upp fyrir góða tónleika þá skulum við hlusta á tóndæmi.

Tags:
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | 1 athugasemd »

Tónleikar vikunnar!!

22.2.2011 - Georg Atli

Það er brjálað að gera hjá tónleikasjúkum í þessari viku, fullt af frábærum listamönnum að spila út um allan bæ. Samantektin verður líklega uppfærð þegar líður á vikuna, einfaldlega vegna ess að ég nenni ekki að setja þetta allt inn í einu, þannig að það er eins gott að fylgjast vel með. Sendið okkur endilega einhvers konar línu um það sem að við vitum ekki af, þið megið nota hvaða samskipta máta sem að þið viljið en árangursríkast verður að senda tölvupóst (toppfimmafostudegi[hjá]gmail.com), komment eða nota facebook vegginn okkar (sem að má gjarnan “líka við” og “deila” með öðrum)

Þriðjudagur
Fuglabúrið verður á Rósenberg. að þessu sinni verða KK og Myrra Rós að sjá um tónleikana sem að byrja kl. 21:00 og miðaverðið er 1500 kr.

Miðvikudagur
Á Kaffibarnum verður Extreme Chill og Weirdcore kvöld til heiðurs Biogen (takk fyrir alla tónlistina!). Þar verður svo mikið af raftónlistarfólki að spila að það nær engri átt. Allir þessir helstu og miklu miklu fleiri, bendi bara á facebook-eventinn máli ínu til stuðnings. Byrjar kl. 21:00 og það er frítt inn!

Fimmtudagur
Á Sódómu verða Swords of Chaos, Muck, Orphic Oxtra, Quadruplos og FM Belfast. Sjá nánar hér. Byrjar kl. 20:00 og 1000 kr. inn.

Mr. Silla verður á Bakkus ásamt We Are All Romans (USA) og DJ Bóasi. Tónleikarnir byrja kl. 20:00 og það kostar ekkert inn.

Á Rósenberg verður Fondúetta kvöld Svavars og Sjönu (Svavar Knútur og Kristjana Stefáns). 2000 kall inn og það byrjar kl. 21:00

Tónlistahátiðin Reykjavík-Bergen-Nuuk byrjar kl. 21:00 á/í Norðurpólnum.
miði á alla hátíðina kostar 4500 kr. (en það er líka hægt að kaupa sig inn á stök kvöld fyrir 2500) og allar nánari upplýsingar er hægt að finna hér.

Epískustu tónleikar kvöldsins verða síðan í Tjarnarbíó. Þar ætlar hljómsveitin Skálmöld að vera með tvenna útgáfu tónleika, annars vegar kl. 20:00 og hins vegar kl. 22:30. Það er enn hægt að fá miða á seinni tónleikana hér og þeir kosta 2900 kr stykkið (sem hljómar mikið en er það ekki miðað við gæði).

Hljómsveitirnar Tamarin og Draumhvörf verða á Dillon kl. 22:00, ókeypis inn.

Föstudagur
Seinna kvöldið á Reykjavík-Bergen-Nuuk (og alveg nákvæmlega eins og á miðvikudeginum þá: byrjar kl. 21:00 á/í Norðurpólnum.
miði á alla hátíðina kostar 4500 kr. (en það er líka hægt að kaupa sig inn á stök kvöld fyrir 2500) og allar nánari upplýsingar er hægt að finna hér.

Á NASA ætla Ham-arar að vera með frábæra tónleika sem að byrja kl. 22:00 og það kostar 1000 kall inn.

Hjálmar verða að spila á Faktorý kl. 22:00 og það kostar 1500kr. inn

Á Rósenberg ætla Hjaltalín að vera með tónleika. Þau byrja kl. 22:00 og það kostar 2000 kr. inn

Grapevine verða með opið svið (open mic night) hjá Hemma og Valda. Þar geta allir mætt með hljóðfærin sín og tekið lagið frá kl. 21:00, nánar í dagatalinu okkar.

Á Dillon verður The Jimi Hendrix Project með tónleika kl. 21:00, ókeypis inn.

Laugardagur
Hjaltalín verða aftur á Rósenberg með nákvæmlega sömu formerkjum og kvöldið áður.

Í TÞM (TónlistarÞróunarMiðstöðin út á granda)verða Wistaria, Blood Feud, Moldun og Trust The Lies. Þessir tónleikar byrja kl. 19:30 og það kostar bara 500 kall inn.

Ensími verða loksins með útgáfutónleika. Þeir verða á NASA og byrja kl. 22:00, það er hægt að kaupa miða á miði.is og þar kostar hann aðeina 1000 kr.

Sunnudagur
Vikulegt jazz-kvöld á Faktorý byrjar kl. 21:00

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | 3 athugasemdir »

Tónleikar vikunnar *laugardagurinn uppfærður*

3.11.2010 - Georg Atli

Það er allt brjálað að gera í þessari tónleikaviku og þess vegna verður tónleika rándöppið þrískipt!!

Fyrst ber að nefna tónleikaröðina hjá Ting:Direkt, en þar eru aldeilis fínir tónleikar á döfinni.

Á Fimmtudeginum verður danska hljómsveitin Slaraffenland, færeyingarnir í Budam og íslenska stórsveitin Orphic Oxtra í Tjarnarbíó. Showið byrjar kl. 21:00, en þess má geta að balkansveitin Orphic Oxtra voru að gefa út sína fyrstu plötu og það sem ég hef heyrt lofar mjög góðu… en meira um það síðar.

Föstudagurinn stendur fyrir partý en þá verða norsararnir í Datarock og íslensku böndin Retro Stefson og Berndsen. Þetta verður á NASA og það opnar kl. 22:00 og stuðið verður væntanlega geðsjúkt því að öll þessi bönd kunna rosalega vel að spila á tónleikum!

Á laugardeginum verða Hjaltalín og Scola Cantorum að sýna listir sínar ásamt Wildbirds & Peacedrums, sem eru sænsk, að spila í Fríkirkjunni kl. 20:00. Miðar á alla hátíðina er hægt að kaupa á miði.is (3900 kr) og síðast þegar ég vissi var ekki uppselt og það er líka hægt að kaupa miða á stök kvöld (1500 á fyrri tvo tónleikana og 2900 kr fyrir miða á Hjaltalín og co.).

Hjá Hemma og Valda er svo allt morandi í gúmmelaði, þar verður haldin “Off-Venue Aftershock” helgi. Nánast non-stop tónleikar alla helgina og það kostar ekkert inn!!! Dagskráin er hér:

Föstudagur 5 nóv*

19:00 Jóhann Kristinsson
20:00 Danny Malone (US)
21:00 Blæti
22:00 Júníus Meyvant
23:00 Orphic Oxtra
00:00 Bróðir Svartúlfs
01:00 Vicky

*Laugardagur 6 nóv*

18:00 Heima
19:00 Ylja
20:00 TBA
21:00 Mukkaló
22:00 Andvari
23:00 7 Berg
00:00 Maxe and the crackers
01:00 Futuregrapher

*Sunnudagur 7. nóv*

18:00 The moody orchestra
19:00 Bowen Staines (US)
20:00 Ylja
21:00 Johnny Stronghands
22:00 Enkidu

Í kvöld (miðvikudag) verða svo Skúli Mennski og hljómsveitin Grjót á Rósenberg og á Faktorý verða ókeypis tónleikar í nafni Stage Europe Networks. Þar verða hljómsveitirnar Hunting the Robot, …Kleinstadthelden, California Stories Uncovered, Geriko, World Service og The Assassin of a Beautiful Brunette, sem sagt mikið stuð í gangi þar.

Á fimmtudagskvöldinu verða tvennir útgáfutónleikar. Á Faktorý verður Sing For Me Sandra að fagna plötunni sinni, sem heitir Apollo’s Parade (hægt að hlusta hér!) og hún verður amk spiluð öll og hver veit hvað gerist meira en það! Who Knew ætla að hita upp og það er Ókeypis inn. Hinir útgáfutónleikarnir verða svo á Sódómu, en þar verða Cliff Clavin liðar væntanlega að gera allt vitlaust með sinni plötu,The Thief’s Manual. Sú plata er ansi góð og lög af henni hafa verið í ansi mikilli útvarpsspilun. Þar kostar 1000 kr. inn og opnar húsið kl. 21:00. Ef að einhverjum þótti þetta ekki níg þá verður hinn frábæri Prins Póló líka með útgáfutengda tónleika. Þeir verða á Venue kl. 21:00. Þar kostar ekki krónu inn og er enginn veit hvað/hverjir/hver Prins Póló er þá er amk hægt að hlusta á plötuna Jukk hér (áfram gogoyoko!!)

Á föstudagskvöldið er planið svona:

Danny Malone & Jóhann Kristinsson verða á Rósenberg. Svo áttu DR. Spock að vera á Faktorý en þeir þurftu að aflýsa vegna veikinda. Í Staðinn er hægt að fara á “sveittra bar-tónleika” á Sódómu þar sem Hjálmar og Nolo verða með partý af því að það var að koma út 200 síðna(!) ljósmyndabók um Hjálma. 1500 kr. miðinn þangað, bara selt við hurð og hún opnar kl. 22:00.

Danny Malone ætlar að aftur að vera á Rósenberg á laugardaginn en að þessu sinni er það Lára Rúnars sem ætlar að spila með honum. Á Faktorý verða svo, ótrúlegt en satt, ókeypis tónleikar! Núna er Fuzzfest og þar ætla að spila Dandelion Seeds, The Vintage Caravan, Perla, Sleeping Giant og Stg.Miller Misbehavious Daughters. Á Sódóma verða svo stórstjörnurnar Sverrir Stormsker og Kalli Bjarni. Stormsker ætlar að flytja nýtt efni af væntanlegri plötu og samkvæmt fréttatilkynningu þá munu þeir “rugla saman reitum og reita af sér rugl í bland við gömlu góðu perlurnar sem verða teknar í nýjum búningum!!” að getur ekki orðið neitt annað en merkilegt, húsið opnar kl. 22:00 og það kostar 1000 kr. inn.

Nánari upplýsingar og hugsanlega tengla má svo finna í dagatalinu okkar hérna til hægri (og niður býst ég við…) og ég ætla að ítreka enn einu sinni að ef einhver veit um eitthvað sem hvorki er í upptalningunni né á dagatalinu að senda okkur endilega línu á toppfimmafostudegi@gmail.com.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin