Tónleikasamantektin

11.5.2011 - Kristín Gróa

Það er ekki jafn rosalegt framboð af tónleikum og um síðustu helgi en það er samt fullt skemmtilegt í gangi! Ef við erum að missa af einhverju þá megið þið endilega láta okkur vita.

Miðvikudagur

Á Rósenberg verður léttur djazz og blús en þar mun nýskipað og (að okkur vitandi) ónefnt tríó koma fram. Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og það kostar 1000 krónur inn. Sjá nánar hér.

Fimmtudagur

Á Rósenberg spilar dúettinn MoR en hann samanstendur af Margréti Eir og Róberti Thórhallssyni. Tónleikarnir hefjast kl. 21:30. Sjá nánar hér.

Á Dillon verða styrktartónleikar en hljómsveitin Morning After Youth er að vinna að sinni fyrstu plötu og vantar smá aur. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það kostar litlar 500 krónur inn. Sjá nánar hér.

Föstudagur

Á Rósenberg ætlar hljómsveitin Árstíðir að spila efni af væntanlegri plötu í bland við eldra efni. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það kostar 1500 krónur inn. Sjá nánar hér.

Á Dillon spila hljómsveitirnar Caterpillarmen, Bob og Coral. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það kostar ekkert inn. Sjá nánar hér.

Á Faktorý ætlar hljómsveitin XIII að spila plötuna SALT í heild sinni. Einnig koma fram In Memoriam og Hoffman. Tónleikarnir hefjast á miðnætti og það kostar 1000 krónur inn. Sjá nánar hér.

Laugardagur

Á Dillon verður Proggóvisjón fyrir þá sem hafa ekkert gaman að júróvisjón en þar koma fram Murrk, Postartica og Draumhvörf. Tónleikarnir hefjast kl. 10:00 og það kostar ekkert inn. Sjá nánar hér.

Á Faktorý verður kanilkvöld #3. Hefst kl. 23:30 og það kostar ekkert inn. Sjá nánar hér.

Á NASA verður mikil júró gleði en þar verður Eurovision partý Páls Óskars með fullt af júró hetjum. Húsið er opið frá 00:00 – 05:00. Það kostar 2000 krónur í forsölu á midi.is en 2500 krónur við dyrnar. Sjá nánar hér.

Ef þig langar í algjört mótvægi við júróbrjálæðið verður opið hús í Hörpu allan daginn. Húsið opnar á laugardagsmorgun kl. 11 í tveimur minni tónleikasölunum, Norðurljósum og Kaldalóni. Þar koma fram Karlakórinn Fóstbræður, Gissur Páll Gissurarson, Kammersveit Reykjavíkur, Ólafur Arnalds, Caput-hópurinn, kór Íslensku óperunnar, Kristinn H. Árnason, Björn Thoroddsen og Kazumi Watanabe og tríó Tómasar R. Einarssonar.

Á laugardagskvöld kl. 20:00 byrja svo tónleikar í Silfurbergi, næststærsta sal Hörpunnar. Þar munu koma fram Apparat Organ Quartet, Mammút, Agent Fresco, Valdimar, Hjaltalín, Jónas Sigurðsson og ritvélar framtíðarinnar, Lights on the Highway og HAM. Ókeypis er á alla tónleika í Hörpunni á laugardag.

Sunnudagur

Í Merkigili á Eyrarbakka koma söngvaskáldin Uni og Jón Tryggvi sem hluti af menningar- og bæjarhátíðinni Vor í Árborg. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 og það kostar ekkert inn. Sjá nánar hér.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Tónleikar | Comments Off

Styrktartónleikar Kerans

16.3.2011 - Georg Atli

Í kvöld eru þó nokkrir tónleikar sem að væri sniðugt að kíkja á. Tónleika samantektin er í vinnslu og kemur einhvern tíman í dag eða kvöld en þangað til verðiði bara að tjékka reglulega á okkur.

Þanað til ætla ég bara að birta nokkrar tilkynningar sem að við höfum fengið í vikunni. Byrjum á styrktartónleikunum á Sódóma, þar er verið ða safna fyrir lítinn veikann strák sem heitir Keran. Það er ekki hægt að finna mikið betri hluti til að eyða peningunum sínum…

p.s. myndin er tekin af dv.is ef er ekki í lagi að hún sé hérna, sendiði okkur þá bara línu.

Styrktartónleikar Kerans

Lay Low
Hoffman
Jón Jónsson
Haffi Haff
Friðrik Dór
Sing For Me Sandra

Sódóma Reykjavík
Miðvikudaginn 16. apríl kl 21:00

Miðvikudaginn 16 mars verður haldin sannkölluð tónlistarveisla á Sódómu Reykjavík.
Um er að ræða styrktartónleika fyrir Keran litla sem er með tauga- og vöðva
hrörnunarsjúkdóminn SMA. Keran er aðeins tveggja ára gamall og vilja þeir sem
halda tónleikana og tónlistarmennirnir sem koma fram hjálpa fjölskyldunni
fjárhagslega þar sem margt smátt gerir eitt stórt. Hann er ekki á leið í aðgerð eða
slíkt, enda ekki hægt að “lækna” þennan sjúkdóm.Þeir sem koma fram á þessum
styrktartónleikum Kerans eru: Lay Low, Hoffman, Jón Jónsson, Haffi Haff, Friðrik Dór og Sing
for me Sandra. Flexi verður á tökkunum og ljósamaður verður á staðnum þannig að
allt verður gert til þess að kvöldið verði sem eftirminnilegast. Miðaverð er 1000 kall en
frjáls framlög eru vel þegin. Húsið opnar kl 21 og mun fyrsta atriði byrja um 21:30.
Allur aðgangseyrir rennur óskiptur til fjölskyldu Kerans.
Þeir sem ekki sjá sér fært að mæta á tónleikana en vilja láta gott af sér leiða geta
lagt beint inn á söfnunarreikning Kerans litla. Reikningurinn er : 0331-13-700426.
Kennitala: 150309-2710.
Einnig hvetjum við fyrirtæki til þess að styrkja þetta
málefni með því að leggja inn á söfnunarreikninginn.

Það kostar bara 1000 kall inn en miðasölufólkið tekur glaðlega við meiri pening en það

Tags: , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin