Topp 5 erlendar plötur ársins 2012 – Snorri

11.1.2013 - Snorri

Jæja best að rísa upp frá dauðum til að pósta einum árslista – síðasti póstur var einmitt líka árslisti :)

Fullt af góðum plötum á árinu en ég finn að ég hlusta núna minna á heilar plötur en ég gerði þannig að stundum er erfitt að átta sig á heildargæðum þeirra. En Topp 5 plöturnar hef ég hlustað mikið á frá A-Ö.

Óþarfi að vera eitthvað feiminn – hér koma topp 20, sæti 20-6 á hundavaði og svo Topp 5 með smá röfli með:


20. Niki and the Dove – Instinct

19. Kindness – World, you need a change of mind
18. Wild Nothing – Nocturne
17. Lana Del Rey – Born to die
16. Choir of Young Believers – Rhine Gold
15. Exitmusic – Passage
14. Hot Chip – In Our Heads
13. Purity Ring – Shrines
12. Here We Go Magic – A Different Ship
11. Frank Ocean – Channel Orange
10. First Aid Kit – The Lion’s Roar
9. Grimes – Visions
8. Grizzly Bear – Shields
7. Django Django – Django Django
6. Chairlift – Something

5. Perfume Genius – Put Your Back N 2 It.

Persónuleg, brothætt, áhrifamikil. Ein hugrakkasta plata ársins.

4. Jessie Ware – Devotion

Nýjasta stjarnan í London senunni. Silkimjúk röddin og bóhem stíllinn minnir á hina einu sönnu Sade en Jessie setur sinn eiginn lit á þessa afar vel pródúseruðu plötu

3. Beach House – Bloom

Þau klikka aldrei. Kannski ekki mikil breyting frá síðustu plötu sem var alveg frábær en þessi formúla virkar og sum af bestu lögum hljómsveitarinnar frá upphafi eru á þessari plötu.

2. Iamamiwhoami – Kin

Þessi plata fór mjög leynt á árinu og vakti að mínu mati of litla athygli. Jonna Lee er þekkt fyrir afar súrealísk ‘high-concept’ myndbönd sem eru kafli út af fyrir sig en platan er full af frábærri elektróník og nær engan veikan blett að finna.

1. Alt-j – An Awesome Wave

Ég byrjaði ekki að hlusta almennilega á þessa plötu fyrr en seint á árinu 2012 en hún greip mig frá fyrstu hlustun. Ég veit ekki alveg hvernig ég á að lýsa plötunni en hljómsveitin kemur með ferska vinda inn í bresku senuna. Á allt það lof sem hún hefur fengið skilið.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Listar, Snorri | Comments Off

Topp 5 lög ársins 2011 – Snorri

30.12.2011 - Snorri

Fullt af frábærum lögum árið 2011 og alltaf jafn erfitt að setja saman svona lista. En fæst orð hafa minnsta ábyrgð…

Hér eru þau topp 20 lög sem fylgja fast á hæla þeirra 5 efstu – Í stafrófsröð:

Active Child – Hanging On
Adele – Set Fire to the Rain
Ane Brun – Do You Remember ?
The Antlers – I Don’t Want Love
Bombay Bicycle Club – Lights Out, Words Gone
First Aid Kit – The Lion’s Roar
Fleet Foxes – Sim Sala Bim
Gardens & Villa – Cruise Ship
James Blake – The Wilhelm Scream
Lia Ices – Daphne
Lykke Li – I Follow Rivers
Mason – Boadicea
Neon Indian – Polish Girl
Peter Bjorn and John – Second Chance
SBTRKT – Wildfire (feat. Little Dragon)
Slow Club – Two Cousins
Toro y Moi – New Beat
Tune-Yards – Bizness
When Saints Go Machine – Kelly
Youth Lagoon – 17

Og svo topp 5:

5. PJ Harvey – The Glorious Land
Það er erfitt að velja eitt lag af þessari mögnuðu plötu en þetta lag hitti beint í mark í fyrstu hlustun þrátt fyrir lúðurinn alræmda.

4. Washed Out – Amor Fati
Lag sumarsins. Eitt af mörgum myndböndum tekið á Íslandi á árinu.

3. iamamiwhoami – ; john
Kom tæknilega ekki út á plötu þar sem Jonna Lee fer óvenjulegar leiðir við að koma tónlist sinni til skila en myndbandið var sett á Youtube á árinu. Og þvílíkt myndband.

2. Wild Beasts – Bed of Nails
Af einni af bestu plötum ársins sem fékk ef til vill of litla athygli.

1. Bon Iver – Holocene
Það þarf nú ekki að segja meir um þetta lag og plötu en þegar hefur verið gert. Íslenskt landslag í aðalhlutverki í myndbandinu eina ferðina enn og svínvirkar eins og vanalega. Gæsahúð ársins 2011.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Listar, Snorri | Comments Off

Jæja…..

26.4.2010 - Georg Atli

um daginn einhvern tímann setti ég inn færslu um dularfulla youtube notandann iamamiwhoami núna virðist það vera orðið nokkuð ljóst hver þetta er,  amk hver það er sem syngur veit ekki hvort þetta sé hljómsveit eða hvað. Í nýjasta myndbandinu sést andlit sönkonunar ansi vel og ég (og reyndar flestir af þeim sem hafa verið að fylgjast með þessu og bloggað) verð ansi hissa ef þetta er ekki sænska söngkonan Jonna Lee (húrra fyrir Snorra!). Mér virðist sem þetta sé ansi mikil viðsnúningur amk svona tónlistarlega séð…. en þetta er mjög flott hjá henni. Ég fann svo þessa síðu þar sem einhverjir hafa aldeilis krufið litlu vísbendingarnar og mynmálið í myndböndunum hennar, nokkuð áhugavert og útpælt… eða alveg roooosaleg tilviljun. Hérna er svo mynd af henni ef þið nennið ekki að klikka á tenglana.

Tags: , ,
Flokkað undir Georg Atli, Óflokkað | 2 athugasemdir »

iamamiwhoami

27.3.2010 - Georg Atli

Ok nú ætla ég aðeins að elta hæpið…

Á youtube er notandi sem kallar sig iamamiwhoami, hann (notandinn) hafa ekki skrifað neinar persónnulegar upplýsingar um sig (nema að Vanuatu er sett í country) og það virðist enginn vita hver þetta er.

En málið er það að þessi notandi hefur verið að uploada skrítnum en ótrúlega flottum (tónlistar)myndböndum í rúmann mánuð. Ég er búinn að vera að fylgjast með þessu með hálfum hug  en núna í síðustu viku kom alvöru tónlistarmyndband í fullri lengd er og ég er orðinn ansi forvitinn líka.

Það er búið að vera að henda fram nokkrum misundarlegum tilgátum að hver sé heilinn á bak við þetta t.d. Lady Gaga, Trent Reznor, MGMT og Goldfrapp síðan er komið í ljós að þetta er örugglega ekki Goldfrapp (var að gefa út 80′ syntha partýplötu) ekki MGMT (voru að gefa út veit-ekki-alveg-hvað-ég-á-að-kalla-það-plötu) og tæplega er þetta Lady Gaga eða Trent Reznor….

Þau nöfn sem mér finnst líklegast (þ.e. ef þetta er einhver sem er frægur fyrir) er annað hvort systkinið úr The Knife (eða bæði) en það er ein athyglisverðasta kenningin um iamamiwhoami er að þetta sé Christina Aguilera! Allskonar fólk úti um allan heim hefur verið að pósta sannanir fyrir þessu.

Dæmi 1.

öll myndböndin (nema það nýjasta heita bara einhverjum talnarununöfnum. Einhverjir tóku talnagildi stafrófsins (a=1, b=2 c=3, osfrv.) lögðu saman þversummuna og fengu þetta út:

Prelude 699130082.451322 = (38.17) = (CH.AG) = CH. AG. (Sem á að standa fyrir CHristina AGuilera)
9.1.13.669321018 = I. A. M. CH. (Kennigarsmiðirnir lesa “I am Christina” út úr þessu)
9.20.19.13.5.723378 = I.T.S.M.E.C. (Þeir lesa “it’s me Christina” út úr þessu)

Dæmi 2.

Þetta er víst promomynd sem Sony í þýskalandi setti upp fyrir nýjustu plötuna hennar.

Mér finnst það ansi merkilegt ef að Christina Aguilera er að gera þessi myndbönd og tónlistina en ég held samt frekar að þetta sé The Knife sérstaklega af því að ég las einhversstaðar (man ekki hvar) einhvern veginn tengingu við jordgubbtarta, sem er víst sænska og þýðir jarðaberjaterta… og líka af því að þetta hljómar ekkert eins og Christina Aguilera og er alveg gallsúrt.

Tags: , ,
Flokkað undir Georg Atli, Óflokkað | 2 athugasemdir »

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin