Topp 5 erlendar plötur ársins 2011 – Georg Atli

6.1.2012 - Georg Atli

Það er komið að erlendu plötunum. Eins og venjulega átti ég í erfiðleikum með að velja bara 5, það virðist nefnilega alltaf koma fleiri en 5 góðar plötur á ári. Fyrst kemur listi af plötum sem komust næstum því inn á listann eða mér finnst sérstaklega vert að minnast á.

Bill Callahan – Apocalypse
Fucked Up – David Comes to Life
Unknown Mortal Orchestra – Unknown Mortal Orchestra
Bon Iver – Bon Iver
Puzzle Muteson – En Garde
Feist – Metals
M83 – Hurry up we‘re Dreaming
King Creosote & John Hopkins – Diamond Mine (frábær plata, ætti 6. sætið á listanum mínum)
St. Vincent – Strange Mercy
Wye Oak – Civillian
Balam Acab – Wander/Wonder
Iceage – New Brigade
John Maus – We Must Become the Pitiless Censors of Ourselves
Toro y Moi – Underneath the Pine

Topp 5 plötur ársins

5. Shabazz Palaces – Black Up

Þessi náði inn á topp 5 hjá mér núna á síðustu vikunum fyrir birtingu. Hip-hop sem er meira en “bara” hip-hop. Allt gríarlega flókið eitthvað og útpælt og virkilega flott. Svona plata sem er góð og vinnur svo bara á. Pínu tilgerðarleg laganöfn samt.

Lag: 04 A Treatease Dedicated to the Avia 1

4. James Blake – James Blake

Flott plata frá konungi dubstep. Hún er hæg og róleg en ólgar samt undir. Hann er svo hæpaður að ég varð sjálfkrafa hikandi og fráhverfur honum en svo hlustaði ég á plötuna og fannst hún virkilega góð.

Lag: Limit to Your Love

3. tUnE-yArDs – Who Kill

Skemmtilegt að heyra eitthvað svona ferskt. Merrill Garbus græðir reyndar svolítið á frábærum Airwaves tónleikum í ár, þeir hífa þessa plötu aðeins upp. Það er ekki eitt leiðinlegt lag á þessari plötu.

Lag: Gangsta

2. Kurt Vile – Smoke Ring for my Halo

Slacker plata dauðans. Það er eins og Kurt Vile nenni ekki einusinni að syngja lögin og þau rétt svo leka út úr hátölurunum manns en samt svo mikið pönk á köflum… slacker pönk?. Frábær gítarleikur, letileg röddin og kaldhæðnin gera þessa plötu svo frábæra að þetta var eina platan í ár sem átti smá séns í fyrsta sætið mitt.

Lag: Baby’s Arms

1. PJ Harvey – Let England Shake

Nánast fullkomin plata, laaaaang best á árinu (þó að það hafi samt margt gott komið út). Frábær í alla staði og PJ Harvey sannar það enn og aftur að hún er svalasta konan í rokkinu í dag! Hárbeitt plata sem skítur föstum skotum á England og þá sérstaklega stríðin sem þau hafa tekið þátt í (og bara stríðsrekstur almennt). Lögin fjalla öll um liðna tíma en eiga samt sem áður öll vel við nútímann líka Þetta er svona “concept” plata en samt ekki alveg. Let England Shake er blóðug, nöturleg, skerandi beitt og mest af öllu ömurlega falleg.

Lag: The Glorious Land

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off

Topp 5 Airwaves tilhlökkun – Georg Atli

12.10.2011 - Georg Atli

Það er svo fáránlega margt sem mig langar að sjá á Airwaves í ár að það hreinlega tekur því ekki að nefna það allt! Þess vegna ætla ég bara að nefna nokkur atriði sem ég ætla að reyna mjög mikið að sjá en þau verða ekki einu sinni í neinni sérstakri röð, því ég get ekki valið á milli:

Fist Fokkers

Besta live band sem ég hef séð lengi.

Beach House

Það virðist svolítið gleymast að nefna Beach House í þessum Airwaves upptalningum. Frábær sveit og hafa bara gefið út frábærar plötur og Teen Dream (2010) stendur þar uppúr.

Iceage

Ég held að það hafi flestir bent á þessa í gestalistunum sínum. Platan þeirra er frábær og ef live flutningurinn þeirra hálfdrættingur á við hana þá eru þeir í góðum málum.

Hauschka

Þýskur píanó snillingur sem minnir að mörgu leiti á John Cage.

22 Pisterpirkko

Finnar með smá “cult following”. Finnar eru svo töff að þetta getur ekki klikkað.

Sin Fang

Sin Fang er svona “must see” hvar sem hann/þau er/u. Betri en af plötu sem er fjandi erfitt þegar maður dælir út frábærum plötum

Tune-Yards

Platan er frábær og það er eitthvað við tónlistina sem segir mér að þetta band sé frábært á sviði.

Dad Rocks!

Smá hæp í kringum þetta band í kringum Airwaves… allt sem ég hef heyrt af nýju plötunni hljómar voða vel.

Björk

Ég er mjög tvístígandi með það hvort að ég eigi að nenna að mæta í röðina fyrir Björk á Sunnudeginum, bara 200 miðar í boði og fyrstir koma fyrstir fá þannig að maður þarf líklega að fara bara beint í röð eftir tónleika laugardagsins. Ég veit samt að hún alveg fáránlega flott á sviðinu.

Reykjavík!

Nýja platan frá Reykjavík! er að fara að detta í búðir og miðað við það sem að ég hef heyrt af henni (sem er reyndar mjög lítið) þá er þetta ein af betri plötum ársins.

Tags: , , , , , , , ,
Flokkað undir Airwaves, Georg Atli | 1 athugasemd »

Topp 5 Airwaves tilhlökkun – Kristín Gróa

12.10.2011 - Kristín Gróa

Það er alveg ótrúlegt að það sé komið að Airwaves hátíðinni enn einu sinni. Mér telst svo til að ég sé búin að fara á hverju ári síðan 2002 sem gerir þetta að tíundu hátíðinni minni í röð og geri aðrir betur! Ef það kemur ár sem ég fer ekki á Airwaves (án þess að vera hreinlega erlendis eða á sjúkrahúsi eða eitthvað álíka) þá veit ég að ég er orðin gömul. Ég er spennt fyrir rosalega mörgu í þetta sinn og þó ég hafi ákveðið að fylla listann minn með frekar fyrirsjáanlegum erlendum tónlistarmönnum þá mun ég reyna að missa ekki af eftirfarandi íslenskum tónlistarmönnum:

Berndsen
Borko
El Camino
Elín Ey
Fist Fokkers
Gang Related
GusGus
Hljómsveitin Ég
Just Another Snake Cult
Kiriyama Family
Markús and the Diversion Sessions
Mugison
Náttfari
NOLO
Of Monsters And Men
Orphic Oxtra
Prins Póló
Sin Fang
Snorri Helgason
Sóley
Stafrænn Hákon
Vigri

Ef ég næ að sjá helminginn af þessu þá verð ég mjög kát. Það má svo auðvitað ekki gleyma því að það skemmtilegasta við Airwaves er allt það sem maður sér óvart og heillar mann samstundis. Ég veit að þetta er orðin pínu klisja en þetta er það sem gerir hátíðina svona skemmtilega. Á hverju ári lendi ég í því að hugsa viku fyrir hátíð “ó shit ég er ekki búin að kynna mér hverjir eru að spila” en svo skiptir það aldrei máli. Það er ekki hægt að undirbúa Airwaves… það er bara hægt að njóta.

Jæja without further ado þá eru þetta þær erlendu sveitir sem ég er spenntust fyrir að sjá!

5. Iceage

Ungir danskir strákar sem eru búnir að vera fastir í hæpmaskínunni síðustu mánuði og það er alveg verðskuldað. Platan þeirra New Brigade er algjört monster og þetta ættu að verða alveg brjálæðislegir tónleikar. Það liggur við að mig langi til að vera tvítugur strákur í eina kvöldstund svo ég geti misst mig yfir þeim eeeen ég verð væntanlega aftast með krosslagðar hendur að missa mig innan í mér.

Iceage – White Rune

4. John Grant

Ég sé fyrir mér að þetta verði mjög tilfinnaþrungnir og innilegir tónleikar þar sem John Grant er rosalega mikið þannig. Textarnir hans eru alveg ótrúlega góðir og hreinskilnir. Lagið I Wanna Go To Marz er líka virkilega gott.

John Grant – I Wanna Go To Marz

3. Glasser

Það hefur ekki farið mikið fyrir Glasser en Ring var ein af betri plötum síðasta árs og hún læddist pínu aftan að mér. Þetta eru tónleikar sem gætu verið hit eða miss en ég hallast frekar að hit, sérstaklega ef maður þekkir lögin.

Glasser – Home

2. tUnE-yArDs

W H O K I L L er ein hæpaðasta plata ársins svo ég er væntanlega ekki ein um það að ætla að sjá tUnE-yArDs. Hæpið finnst mér reyndar algjörlega verðskuldað því þetta er líklega ein besta og jafnframt óvenjulegasta plata ársins og þau live clip sem ég hef séð eru ansi mögnuð. Algjört must-see.

tUnE-yArDs – Killa

1. Beach House

Þetta er líklega stærsta nafnið á hátíðinni í ár ef maður er svona pínu indísnobbari (eins og ég). Ég er búin að vera mjög hrifin af þeim frá því þau gáfu út plötuna Beach House árið 2006 og þau verða bara betri með hverri plötu.

Beach House – Gila

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Airwaves, Kristín Gróa, Listar, Tónleikar | Comments Off

Airwaves gestalisti dagsins – Benson is Fantastic

11.10.2011 - Georg Atli

Gestalisti þessa fína mánudags kemur úr smiðju Benedikts Reynissonar betur þekktur sem Benson is Fantastic. Hann er plötusnúður extraordinaire, tónlistarbloggari og tónlistarmaður (Skátar) auk þess sem hann var með gríðarlega góða tónlistargrúskara útvarpsþætti hér og þar. Við fengum hann til þess að velja á sinn lista Topp 5 atriði sem tónlistargrúskarinn ætti ekki að missa af á Iceland airwaves

5. Dad Rocks! – Nothing Keeps Up

Dad Rocks! er hin alíslenski Danmerkurbúi Snævar Njáll Albertsson sem einnig fer fyrir hinni hreinræktuðu indísveit Mimas sem einnig kemur frá á Iceland Airwaves í ár. Sjálfur sver Snævar sig í ætt við mikilsmetna tónlistarmenn á borð við Bill Callahan og Why? Virkilega heilsteypt og gott stöff.

4. Deathcrush – Lesson #2 (for Cliff Burton)

Þetta hávaðarokktríó fékk nafnið sitt frá fyrstu þröngskífu hinnar alræmdu svartmálmsveitar Mayhem sem kom út árið 1987. Þríeykið spilar 21. aldar no wave og sækir áhrif sín í New York-sveitir á borð við Sonic Youth, White Skull og drone-metalsveitarinnar SUNN O))). Án efa eitt mesta rokkskrímslið á Iceland Airwaves í ár.

Lesson #2 (for Cliff Burton) by Deathcrush

3. Caged Animals – Girls On Medication

Caged Animals varð til þegar forsprakkinn Vincent Cacchione skipti á klessukeyrðum bíl sínum og laptoptölvu. Hann fór strax að grúska við að gera tónlist í herberginu sínu sem er blanda á sveimandi láfitli og melódískri raftónlist. Fyrsta breiðskífan er nýkomin út og heitir Eat Their Own.

2. Zun Zun Egui – Fandango Fresh

Zun Zun Egui er allra þjóða kvikindi sem gerir út frá hinni gróskumiklu tónlistarborg Bristol í Englandi. Tónlistin er algjör hrærigrautur og ýjar saman áhrifum frá reiknirokki Deerhoof, afróbíti Tony Allen og Fela Kuti og fundinni tónlist í ætt við tUnE-yArDs og Micachu and the Shapes.

1. Iceage – You‘re Blessed

Iceage er hljómsveit frá Kaupmannahöfn og er búin að vera á allra grúskara vörum síðustu tvö ár og sendi frá sér sína fyrstu skífu í fullri lengd í ár, New Brigade. Meðlimir sveitarinnar eru allir á nítjánda aldursári en eru búnir að vera að frá tólf ára aldri og sést það vel á frammistöðu þeirra á tónleikum. Iceage eru ódanskari en allt sem danskt er og sverja þeir sig mun meira í ætt við pigfuck-sveitir á borð við Big Black og Sonic Youth á níunda áratugnum sem, skotana í The Jesus and Mary Chain og nýrri drone-sveitir á borð við Women og The Men.

Tags: , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Gestalisti | Comments Off

Topp fimm mælir með á Airwaves: Iceage

10.10.2011 - Georg Atli

Danirnir í Iceage er svona um það bil að gera allt vitlaust í tónlistarpressunni um þessar mundir. Platan þeirra New Brigade þykir ein af þeim ferskustu sem kemur út í ár og þeir eru ansi líflegir á sviði. Þeir byrjuðu víst að spila saman þegar þeir voru 12 ára og eru því búinir að spila saman í ein 7 ár, túra um bandaríkin og fá frábærar umsagnir í Pitchfork, N.Y. Times og Stereogum… nokkuð gott miðað við ungan aldur. Þeir blanda öllum fjandanum saman í tónlistina sína (mikið pönk, mikið hardcore) og finnst best að keyra áfram í djöfulgangi, platan þeirra er 12 lög á undir 25 mínútum (að mig minnir).

Topp 5 (og reyndar Arnar Eggert líka) mælir með því að þið tjékkið á þessu, sérstaklega ef þið fílið alvöru rokk.

Iceage spila á laugardeginum kl. 00:20 á Gauknum

Tags: ,
Flokkað undir Airwaves, Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

Airwaves gestalisti dagsins – Arnar Eggert Thoroddsen

10.10.2011 - Georg Atli

Airwaves gestalistamann dagsins ætti ekkert að þurfa að kynna. Arnar Eggert Thoroddsen er einn af menningarpennum morgunblaðsins, dómari í Músíktilraunum og eitthvað ofsalega margt annað. Auk þess sem hann er mikill aðdáandi harða rokksins. Þessa dagana er hann líka að skipuleggja tónleikaröð (sem er mikil snilld) og í næstu viku eru einmitt tónleikar með Snorra Helgasyni og Hermigervli .

Það er alltaf eitthvað um rokk af níðþunga taginu á Airwaves og hér svona það helsta sem er að æsa upp þau gen í mér.

Endless Dark

Strákarnir í Endless fara með þetta post-hardcore sitt upp í hæstu hæðir. stórkostlegt tónleikaband. Bandið hefur þróast út og suður frá upphafi vega en virðast hafa neglt stefnuna núna og hafa verið að vaxa vel og dafna.

Agent Fresco

Hvað getur maður sagt? Besta rokkband Íslands í dag (fyrir utan Ham nottulega) og sem tónleikaband eru þeir ósigrandi. Ég man varla eftir ástríðufyllra bandi, það gefur alltaf allt í þetta og Arnór Núðla er frontari dauðans.

Ham

Ég ætla ekki að hafa mörg orð um þessa meistara, bestu sveit Íslands fyrr og síðar. Segi bara: HAM, HAM, HAM, HAM, HAM, HAM, HAM, HAM….

Hamferð

Færeyingar sem spila dramatískt doom með heimabrugguðum, færeyskum þunglyndisrigningarbrag. Hörkuband og flott live.

Deathcrush

Geðveikt band frá Noregi með svaka rokkskutlum í forgrunni, tvær Kim Gordon á verði einnar. Nafnið er það flottasta sem maður hefur heyrt lengi, en fyrsta plata Mayhem heitir þessu nafni (sem ég á á vínyl. Og nei, hún er ekki til sölu. Keypt á útsölu í Skífunni 1991 á 99 kr.)

Iceage

Djöfull er ég að fíla þessa dönsku sveit. Nett Joy Division í gangi (sjá nafn) en annars tryllt póstpönk með hardcoreáhrifum. Þetta geta Danirnir!

Liturgy

Svartmálmur frá Brooklyn. Ég fíla þennan ameríska vinkil á svartþungarokkið, eins og Wolves in the Throne room, þar sem unnið er með tónlistarformið en ekki endilega ímyndir. Liturgy virðist skipuð lattelepjandi hippsterum sem dæla síðan út avant-garde black metali. Thumbs up!

Muck

Æðisleg íslensk hljómsveit sem var einna fyrst sveita hérlendist til að þræða listfengu, avant neðanjarðar og nýbylgjurokki saman við brjálaða grindkeyrslu. Mér finnst vænt um þessa drengi.

Muck @ Holan from Ægir Freyr Birgisson on Vimeo.

Tags: , , , , , , , ,
Flokkað undir Airwaves, Georg Atli, Gestalisti | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin