Airwaves – Shabazz Palaces
30.10.2012 - Kristín Gróa
Nú er Airwaves nánast alveg skollið á og ég vildi óska að ég gæti verið heima í Reykjavík að upplifa alla tónlistina og stemninguna. Búhú. Það verður að bíða en á meðan ætla ég bara að horfa á þetta KEXP performance hjá hljómsveitinni sem ég er svekktust yfir að missa af. Ef þið ætlið ekki að sjá Shabazz Palaces þá skil ég bara ekkert í ykkur!
Tags: Airwaves, Iceland Airwaves 2012, Shabazz Palaces
Flokkað undir Airwaves, Kristín Gróa | 1 athugasemd »
Airwaves – Halleluwah
2.10.2012 - Kristín Gróa
Sölvi og Tiny úr Quarashi koma fram undir nafninu Halleluwah (sem hlýtur að vera Can reference?). Ég veit ekki mikið meira en lagið K2R er eiginlega alveg fáránlega catchy og vídjóið sem birtist í dag er rosa fínt og skemmtilegt. Ég myndi pottþétt tékka á þessu á Airwaves.
Tags: Airwaves, Halleluwah, Iceland Airwaves 2012
Flokkað undir Airwaves, Kristín Gróa | Comments Off
Airwaves – Hanne Kolstø
1.10.2012 - Kristín Gróa
Þá er Airwaves mánuðurinn loksins byrjaður og ekki úr vegi að fara að fókusera á nokkra listamenn og hljómsveitir sem koma fram á hátíðinni í ár. Ég er persónulega á frekar miklum bömmer að vera í Ameríkunni og missa af hátíðinni enda búin að mæta í tíu ár samfleytt og það eru mörg atriði sem ég hef augastað á. Ég ætla nú samt í raun ekki að fjalla um neitt þeirra í þetta sinn heldur ætla ég að beina athygli ykkar að hinni norsku Hanne Kolstø. Ég hef ekki heyrt í henni áður en hún var víst að gefa út plötuna Fast Black á dögunum og við fyrstu hlustun virðist þetta vera svona nokkuð áheyrilegt en kannski full átakalítið.
Tags: Airwaves, Iceland Airwaves 2012
Flokkað undir Airwaves, Kristín Gróa | Comments Off
Airwavesband dagsins!
6.7.2012 - Georg Atli
Þennan daginn er það hljómsveitin Úlfur Úlfur. hún kemur frá Suðárkróki og er eiginlega hljómsveitin Bróðir Svartúlfs endurfædd og endurnýjuð. Þeir félagar gáfu (í orðsins fyllstu merkingu) út plötuna Föstudagurinn Langi í fyrra og vöktu þó nokkra verðskuldaða athygli. Þið getið náð í plötuna hér á heimasíðu hljómsveitarinnar.
Í nýrri fréttum voru þeir að senda frá sér nýtt lag sem þeir unnu í samvinu við Emmsjé Gauta.
Tags: Emmsjé Gauti, Iceland Airwaves 2012, Úlfur úlfur
Flokkað undir Airwaves, Georg Atli | Comments Off



