Sarpurinn

18.11.2009 - Georg Atli

Vegna tæknilegra mistaka gat ég ekki skrifað í Sarpinn í gær… hérmeð verður það leiðrétt.

Tiny Cities – Sun Kil Moon


Það er líklega erfitt að finna tvær hljómsveitir með jafn ólíkan tónlistar stíl og Modest Mouse, með sitt hvítt rusl-óhljóða rokk og hinn mjög svo brenglaða snilling Isaac Brock í fararbroddi og síðan rólega tregafulla Sun Kil Moon, þar sem Mark Kozolek (maður sem gæti örugglega dregið lífsneistann úr Mary Poppins með þyngstu lögunum sínum) er aðall, en…

Árið 2005 kom coverlagaplatan Tiny Cities út, á henni eru einmitt bara lög eftir Modest Mouse í flutningi Sun Kil Moon (Mark Kozelek finnst gaman að covera lög, hann hefur gefið út plötur með AC/DC, Kiss og Simon & Garfunkel coverum, og hann er líka mjög áhugasamur um lög John Denver og hefur gefið nokkur cover eftir hann út og nú var það sem sagt Modest Mouse). Á plötunni birtist algerlega ný sýn á Modest Mouse, lögin eru nánast óþekkjanleg í þessari útfærslu.

Á þessari plötu er það greinilegt að Mark Kozelek er mikil aðdáandi Modest Mouse og þá sérstaklega Isaac Brock og teextagerðinni hans, hann hægir á og teygir lögin einhvern veginn til þannig að hlustandinn þorir varla að anda svo brothætt er útsetningin (Exit does Not Exist). Textanum er hampað og í stað þess að kaldhæðnin í upprunalegu lögunum sé svona áberandi þá með einföldum áherslubreytingum í röddinni þá dregur hann úr henni og heyrir maður bara votta fyrir henni og textarnir verða aftur á móti mun aðgengilegri fyrir vikið (Tuckers Atlas).

Útfærsla Sun Kil Moon er rosalega innileg á allan hátt eins og nokkurs konar aðdáendabréf skrifað af Mark Kozelek til Isaac Brock. Mér finnst mjög erfitt að draga eitthvað eitt lag út sem uppáhalds en myndi líklega benda á Tiny Cities Made of Ashes og Grey Ice Water. Á Tiny Cities er það bara ljúf gítarmelódían og röddin hans Mark Kozelek sem bera lagið uppi og tilfinningin er svo innileg að það er eins að lagið sé ekki spilað af plötu heldur er eins og þeir séu einhversstaðar rétt hjá manni, í sama herbergi að spila á litlum tónleikum bara fyrir fáa útvalda. Grey Ice Water er svo mjög undarlegt að hlusta á (sérstaklega ef maður kannast við upprunalegu útgáfuna)stíllinn er mjög latin, svona eins og það sé hópur af Spánverjum að spila rólega lagið sitt á einhverjum tapas bar.

Mér finnst þessi plata alger snilld og ein allra best coverplata sem hefur verið gerð… alveg sama hvað pitchfork segir!

Tags: , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Sarpurinn | Comments Off

Topp 5 product placement – Georg Atli *Uppfært*

23.10.2009 - Georg Atli

Jájá…. við vorum öll frekar upptekin eða gleymin eða bara eitthvað allt annað en a.m.k. setti engin listann sinn hérna inn sorrý fyrir það, ég var búinn með minn og hérna kemur hann…

Það að koma einhverjum vörum inní sjónvarpsefni eða bíómyndir er vel þekkt, hver hefur ekki tekið eftir fallega uppstilltri kókflösku sem á einhvern undarlegan hátt virðist lýsa í annars myrkvuðu herbergi þegar myndavélin færist yfir einhver senu… þetta er líka mjög vinsælt í tónlistinni. Elsta dæmið um þetta er frá 1908 og í dag hafa t.d. hip-hop listamenn hafa nánast fullkomnað þetta nú til dags og núna heyrist varla rapplag án þess að það komi fram einhver vísun í eitthvað þekkt vörumerki hvort sem það er vegna þess að listamaðurinn fékk borgað fyrir það eða þessu bara var skellt inn af því það var kúl. Aftur á móti fer minna fyrir þessu í öðrum tegundum tónlistar, þetta er samt nokkuð algengt…(Uppfært! Henti inn lögunum sem ég átti)

5. Kodachrome – Paul Simon

Paul Simon ákvað það eftir á að nota nafnið á filmunni frá Kodak. Þetta er frekar dæmigert fyrir allt-annað-en-rapp-tónlistarheiminn, einhver vara sett inn í textan bara af því það passaði svo vel í lagið og síðan notar fyrirtækið lagið til að selja vöruna sína

4. Tiny Cities Made of Ashes – Modest Mouse

So we’re drinkin’ drinkin’ drinkin’ drinkin’ coca-coca-cola
I can feel it rollin’ right on down

Hér notar Isaac Brock nafn eins vinsælasta drykkjar í heimi í lagið sitt en ég hef samt aldrei heyrt þennann lagabút í neinni Kókauglýsingu… spurning hvort að það sé vegna þess að Kók vilji ekki tengja sig við hvítt rusl?

3. Temecula Sunrise – Dirty Projectors

Temperature rising
I can feel it all the way down
And what hits the spot, yeah, like Gatorade?
You and me baby, hittin’ the spot all night

Hin ofur heitu Dirty Projectors nota Gatorade… spurning hvort við eigum eftir að heyra þetta í einhverri auglýsingu í framtíðinni þegar allir eru búnir að átta sig á því hversu góð þessi hljómsveit er.

2. This Note’s for You – Neil Young

Soldið annars eðlis en öll hin lögin á listanum, Neil Young er ekki ánægður með það þegar listamenn selja lögin sín

This Notes For You (Video) – Neil Young and The Bluetones

1. Turn Up the Radio – Autograph

Þetta lag og þessi hljómsveit er svo soldið sér kafli. Hljómsveitin er stofnuð 1983 og þeirra fyrsta plata heitir Please Sign In og stóra hittið þeirra heitir Turn Up The Radio. Þeir sömdu við penna framleiðanda um það að pennafyrirtækið myndi kosta hluta af plötunni og þessu myndbandi:

Bandið var svo hluti af auglýsinga herferðinni.

Tags: , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | 1 athugasemd »

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin