Topp 5 sömpl – Kristín Gróa

5.11.2010 - Kristín Gróa

5. M.I.A. – Born Free

Samplar Ghost Rider með költ sveitinni Suicide. Ekkert endilega besta samplið hennar M.I.A. (halló Paper Planes!) en samt töff.

M.I.A. – Born Free
Suicide – Ghost Rider

4. Danger Mouse – 99 Problems

Tæknilega séð meira mashup á 99 Problems og Helter Skelter heldur en sampl en ég treysti mér ekki út í nákvæmar skilgreiningar á því hvað er sampl og hvað ekki.

Danger Mouse – 99 Problems
The Beatles – Helter Skelter
Jay-Z – 99 Problems

3. Wavves – Mickey Mouse

Þetta lag af frábæru plötunni King Of The Beach notar byrjunina á Da Doo Run Run með The Crystals og það virkar! Útkoman er að mínu mati dálítið Animal Collective-leg en það er bara fínt.

Wavves – Mickey Mouse
The Crystals – Da Doo Run Run

2. Kanye West – Gold Digger

Stefið úr Ray Charles laginu I Got A Woman er það sem gerir þetta lag gott, punktur!

Kanye West – Gold Digger
Ray Charles – I Got A Woman

1. The Avalanches – Since I Left You

Þetta lag er eiginlega eingöngu sett saman úr sömplum og er alveg mega awesome. Talsvert afrek.

The Avalanches – Since I Left You

Tags: , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off

Topp 5 typpahöfuð – Georg Atli

2.10.2010 - Georg Atli

Í tónlistarheiminum eru ótrúlega margir listamenn sem hafa, af einhverjum óskiljanlegum ástæðum, bara algerlega misst það og orðið að einhverju sem er líklega best að kalla typpahöfuð (e. dickhead). Þetta fólk á það allt sameiginlegt að hafa ferið (eða er ennþá) ótrúlega frægt og það hagar sér á einn eða annann hátt eins og fávitar. Hérna koma þeir 5 sem mér finnst toppa þennan lista.

5. Billy Corgan


Mér finnst þessi maður óþolandi, allt frá útliti til tónlistarinnar, meira að segja nöfnin á plötunum þeirra eru yfirfull af tilgerð (Mellon Collie & the Infinite Sadness!?) og hroka. Hann þóttist vera einhver ótrúlegur indie-goth-rokkari en var samt alltaf bara  rokkstjörnu pósurnar alveg á hreinu, mér hefur alltaf fundist hann vera ótrúlega gervilegur. Hræðilega ofmetinn að mínu mati, verð samt að benda á honum (og mér) til björgunar að sumt af tónlistinni er mjög gott (t.d. lagið sem fylgir færslunni) og hann er alveg mjög fínn tónlistarmaður en líka alveg svakalegur penis.

Lag: Smashing Pumpkins – Today

4. Kanye West


Hérna kemur mjög dæmigert samtal (amk. efni þess ekki endilega orðin!) um Kanye West:

1: Vá! Ertu búinn að heyra nýja lagið með Kanye West? Það er geðveikt flott.

2: Já, hvernig finnur hann eiginlega alla þessa takta… og textinn maður, púff!

1: Verst hvað hann er mikil fáviti.

2: Já ég er ekki viss um að það séu margir sem eru meiri asnar en hann!

Ég held að öllir sem þola hann ekki finnist hann vera bjáni og líka öllum aðdáendum. Atvikið með Taylor Swift er líklega eitt og sér alveg nóg til að velja hann fávita áratugsins. Læt nýjasta lagið hans fylgja með, þar eru m.a. RZA, Jay-Z og Swizz Beatz.

Lag: Kanye West – So Appalled (feat. Jay Z, RZA, Swizz Beatz, Pusha T, Cyhi the Prynce)

3. Puff Daddy

Ég veit að hann heitir þetta ekkert lengur en ég nenni bara ekki að fylgjast með því hvað maðurinn kallar sig lengur. Puffy er til í að selja sig í hvað sem er, svo lengi sem það séu peningar í því. Hann er líka svo yfirgengilegur að manni getur bara ekki líkað vel við hann! Ég á bara ekkert lag með honum þannig að youtube verður að duga.

2. Moby


Moby er lítill og skrítinn kall sem er svo ótrúlega typpalegur í útliti að það er ótrúlegt. En það er svosem ekki ásæðan fyrir því að hann er á þessum lista mínum, ástæðan fyrir því er að í einhverju viðtali í einhverju blaði sem ég las þá var hann að segja frá uppáhalds partýleiknum sínum. Hann er svona: Moby sá eini sem tekur meðvitað þátt í honum og hann rennir niður buxnaklaufinni sinni, tekur félagann út og nuddar honum upp við eins marga og hann getur. Helst bara fræga samt en sem flesta samt.

Ég verð að viðurkenna að mér finnst þetta alveg svolítið fyndið, en þetta er samt bara eitthvað sem sönnum typpahausum dettur í hug.

Lag: Moby – Run On

1. Liam Gallagher


Liam Gallagher telur að andi John Lennon hafi tekið sér bólfestu í sínum eigin líkama… ég er ekki viss um að ég þurfi að skrifa mikið meira. Lagið sem fylgir er eitt af þeim fáu Oasis lögum sem að mér finnst ekki glötuð og það er meira af því að mér finnst útgáfa Ryan Adams svo góð (fylgir líka þó að hann sé ekki typpahöfuð).

Lag: Oasis – Wonderwall

Bónuslag: Ryan Adams – Wonderwall

Tags: , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | 2 athugasemdir »

Fullt af lögum!

8.9.2010 - Georg Atli

Minni á tónleika dagatalið okkar hérna til hægri, þið ættuð að geta fundið eitthvað skemmtilegt þar… fuuuulllt af skemmtilegum tónleikum framundan!

Ég er búinn að vera á leiðinni að setja mörg af þessum lögum hérna inn, í alveg merkilega langan tíma, en einhverra hluta vegna aldrei gert það… núna breytist það.

Byrjum á nokkrum nýjum og nýlegum lögum.

Í fyrsta lagi er Amiina að gera nýja plötu og búin að fá 2 nýja meðlimi og Dr. Gunni er að dreifa nýju lagi með þeim… af því að Topp 5 fílar íslenskt þá hoppum við á þá lest. (Takk Dr. Gunni!)

Svo var Justin Vernon/Bon Iver að syngja inn á lag með Kanye West, snilldarlag meira að segja.

Justin Vernon er greinilega þessi bissí týpa því hann var líka að syngja inn á lag með hljómsveitinni All Tiny Creatures.

Svo eitt lag sem kom út um daginn með eftirlæti allra hippsterana í dag Zola Jesus og annað með Fol Chen, sem er mjög skemmtilegt band

oooog svo uppáhaldið mitt tvö cover!!!
Lou Barlow (Lo-Fi hetja úr Sebadoh og Folk Implosion) kemur með live cover af laginu Bulletproof með La Roux.

síðan er það þessi fína útgáfa Taken by Trees (alveg þess virði að tjékka á þeirri hljómsveit) af laginu My Girls með Animal Collective, sem var einmitt eitt af bestu lögunum árið 2009! Platan þeirra East of Eden kom út í fyrra og svona sem bónusfróðleikur þá er heitir söngkonan í Taken By Trees Viktoria Bergsman og hún söng með Peter, Björn & John í laginu Young Folks.

Lög:
Amiina – What are We Waiting For
Kanye West – Monster (feat. Bon Iver, Jay-Z, Rick Ross, Nicky Minaj)
All Tiny Creatures – An Iris (feat. Justin Vernon)
Zola Jesus – Sea Talk
Fol Chen – The Holograms

Lou Barlow – Bulletproof (La Roux Cover)
Taken By Trees – My Boys (Animal Collective cover)

Tags: , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Óflokkað | 2 athugasemdir »

Til hammó með ammó!

18.3.2010 - Kristjana


1. Topp fimm á föstudegi varð þriggja ára í vikunni (þann 16.). Í tilefni af því fáum við þrjú random þrista lög:

Jay-Z – 99 Problems því 99 er deilanlegt með 3
De La Soul – 3 is the Magic Number for obvious reasons
The Arcade Fire – Neighborhood #3 (Power Out) því ég get ekki beðið eftir nýja frá Arcade Fire!

2. Í dag voru 840 færslur á Topp fimm. Í tilefni af því fáum við þrjú random lög sem saman mynda 840:

8 Tapes ‘n Tapes – Crazy Eights
4 Feist – 1, 2, 3, 4
0 Koop remixið af Zero 7 – In the Waiting Line

3. Það þarf nauðsynlega að halda upp á svona stórafmæli þannig að á morgun verður föstudagssurprise!

Tags: , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað | Comments Off

Topp 5 lög ársins – Georg Atli

8.1.2010 - Georg Atli


Ég á yfirleitt rosalega erfitt með að velja þessa árslista og sérstaklega lög ársins! Það eru miljón trilljón lög sem maður hlustar á á einu ári og að velja úr þeim (og þá sérstaklega bara 5!) er næstum því bara kvöl. Ég ákvað að velja bara uppáhaldslögin mín af þeim plötum sem ekki komast inn á topp 5 plötur ársins listann minn (þannig að lög af plötum ársins eru undanskilin)… og svo nokkur lög til viðbótar.

Við byrjum á þeim lögum sem voru næstum því á listanum:

Jay-Z – D.O.A. – Hvernig ætli rappið verði á næstunni þegar kóngurinn er búinn að tilkynna það að Auto-tune sé hallærislegt??
Bat For Lashes – Daniel/Glass/Sleep Alone – allt alveg jafn góð lög get ekki valið á milli
Julian Casablancas11th Dimensions eða bara eitthvað af plötunni hans hún kom öll rosa mikið skemmtilega á óvart.
Raekwon – House of Flying Daggers - Besta lagið sem hefur komið frá einhverjum úr Wu- Tang Clan í langan tíma (án þess þó að allt hitt hafi verið lélegt)
Yeah Yeah Yeahs- Zero Vanmetin Plata
The Temper Trap – Sweet Disposition – Gott lag af plötu sem olli mér rosalega miklum vonbrigðum (spáði bandinu mikilli velgengni í fyrra)
Peter, Björn & John – Nothing to Worry About - Mega hresst lag
Animal Collective – My Girls – Ég verð bara að viðurkenna að ég er ekki alveg að ná Animal Collective en þetta lag er samt rosalega gott.

og svo topplistinn minn:


5. JJ – Ecstasy

Þetta band er svo rosa hipp og kúl að það heitir bara JJ og platan þeirra heitir JJ n° 2 , ég held að þau séu sænsk og noti rosalega mikið af eiturlyfjum. Lagið er líka magnað það notar laglínu úr laginu Lollipop með Lil’ Wayne en syngja um E-pillur.


4. Grizzly Bear – Two Weeks

Ég spilaði þetta ansi mikið á árinu, það er af plötunni Veckatimest. Persónulega finnst mér bandið vera soldið of hæpað, platan er alveg góð en bara ekki jafn stórkostleg og margir vilja meina. Two Week stendur langt upp úr gæðalega séð.


3. Phoenix – Lisztomania

Að mínu mati besta lagið af einu mestu stuð plötu ársins (Wolfgang Amadeus Phoenix), bandið minnir mig alltaf soldið á Ástralana í Empire of the Sun, bara betra og minna gay. Ég átti í miklum erfiðleikum með að velja á milli þessa lags og 1901 sem er án efa skemmtilegasta lagið á plötunni. Franskt gæðapop. Versta við plötuna er eiginlega það hvað þessi tvö lög eru fáránlega góð að maður nær oft ekkert framhjá þeim og ef meapur kemst framhjá þeim og hlustar á restina þá blikna öll hin lögin soldið í samanburðinum. Ef þið eigið hana þá ættuði að prufa að byrja á lagi þrjú þá fattar maður nefnilega að hún er í alvöru mjög góð.


2. The Flaming Lips – Watching the Planets (feat. Karen O)

Gallsúru snillingarnir í Flaming Lips komu með eina af sínum bestu plötum ( á eftir og Soft BulletinYoshimi Battles the Pink Robots) á árinu hún heitir Embryonic og þetta finnst mér vera besta lagið og það skemmir alls ekki fyrir að ofurtöffarinn Karen O úr Yeah Yeah Yeahs syngur með. Ég átti mjöööög erfitt með það að skilja þessa eftir á Plötulistanum mínum, hún er geðveik.

P.S. myndbandið við lagið er ansi undarlegt og ef þið eruð mjög skotin í Wayne Coyne getiði séð typpið hans í því…


1. Girls – Lust For Life

Þetta lag kemur af plötunni sem heitir þessu líka ótrúlega sniðuga og alls ekkert óþolandi nafni ‘Album’ sem er annars full af hræðilega góðum lögum (t.d. Laura og Hellhole Ratrace) Lust for Life er alveg frábært, endalaust grípandi og nánast smitandi. Það er ekki hægt að hlusta á þetta lag án þess að fá það á heilann eða amk. syngja með viðlaginu. Platan er líka rosa góð en ekki alveg nógu góð til að komast inn á topp 5 hjá mér (reyndar kæmist hún líklega ekki inn á topp 20 heldur) en hún er samt rosa góð.

P.S. og til að halda áfram með vafasöm myndbönd með alsberu fólki þá er lust for life myndbandið hér.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off

Sarpurinn

20.10.2009 - Georg Atli

DJ Danger Mouse – The Gray Album

Ég held að áður en DJ Danger Mouse stofnaði Gnarls Barkley með Cee-Lo þá hafi honum leiðst alveg svakalega. Fólk fær amk ekki jafn skrítnar (og vondar) hugmyndir og þessi plata er án þess að leiðast alveg svakalega… en það er alveg ótrúlegt hvað þessi plata er fáránlega góð miðað við hveru vond hugmyndin er…. Hugmyndin hans var sem sagt sú að taka vókalinn han Jay-Z (sem var gefinn út einmitt til þess að hvetja fólk til að fikta og sampla) og mixa hann ofan á hinar og þessar laglínur af hvítu plötu Bítlanna. Þetta er svo fáranlegt að það virkar… virkar mjög vel.

Platan kom út í mjög litlu magni árið 2004 (4000 eintök held ég að ég hafi lesið einhversstaðar) og planið var að selja eitthvað á netinu en þetta átti alltaf að verða lítil útgáfa, bara svona flipp. Danger Mouse fékk ekki einu sinni leyfi fyrir bítla lögunum af því hann bjóst ekki við að þetta myndi verða að neinu (auk þess sem hann var latur…) en að sjálfsögðu varð allt vitlaust hjá EMI útgáfu fyrirtæki Bítlanna og þeir kærðu og vildu að allir hættu að dreifa plötunni. Við þetta varð allt vitlaust og platan varð gríðarlega umtöluð og meira að segja þessi aktivistahópur mótmæli og ákvað að nota lagið í sína þágu og gefa það á sinni heimasíðu (og nokkrum öðrum) í mótmælaskyni. Nokkur samtök komu saman og póstuðu plötunni í einn sólarhring, þriðjudaginn 24 nóvember 2005, þessi dagur og þetta framtak er núna þekkt sem “Grey Tuesday” innan þessara hópa. Platan var sótt í yfir 100.000 eintökum þennan eina dag og er ennþá að ganga manna á milli á netinu (linkur á torrent neðst á síðunni, en ég er alls ekki að hvetja fólk til að downloada tónlist af torrent síðum á netinu… það er bannað!)

Danger Mouse notaði hin og þessi lög Bítlanna og samplaði eins og óður maður. Sjálfur segir hann að ónefndir aðilar sem sömdu tónlistina, bæði bítlar og Jay-Z hafi hringt óformlega í sig og óskað honum til hamingju með frábæra plötu og afsakað sig fyrir allt vesenið, en það er svo sem ekkert staðfest. Persónulega finnst mér platan vera ein af betri hip-hop plötum sem ég hef heyrt.


Annars eru þetta lögin í engri sérstakri röð og sömplin á disknum, er ekki alveg 100% viss samt með sömplin…



“99 Problems”

Samplið er “Helter Skelter”

“Allure”
Samplið er “Dear Prudence”

“December 4th”
Samplið er “Mother Nature’s Son”

“Dirt off Your Shoulder”
Samplið er “Julia”

“Encore”
Samplið er “Glass Onion” og “Savoy Truffle”

“Lucifer 9 (Interlude)”
Samplið er “Revolution 9″ og “I’m So Tired”

“Justify My Thug”
Samplið er “Rocky Raccoon”

“Moment of Clarity”
Samplið er “Happiness Is a Warm Gun”

“Change Clothes”
Samplið er “Piggies” og “Dear Prudence”

“My 1st Song”
Samplið er “Cry Baby Cry”, “Savoy Truffle” og “Helter Skelter”

“Public Service Announcement”
Samplið er “Long, Long, Long”

“What More Can I Say”
Samplið er “While My Guitar Gently Weeps”

Tags: , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Sarpurinn | 2 athugasemdir »

Topp 5 R&B – Kristín Gróa

12.10.2007 - Kristín Gróa

Það var ég sem stakk upp á þessum lista í einhverju stundarbrjálæði en svo lenti ég í bölvuðu veseni með hann. Þegar ég heyri “R&B” þá hugsa ég um MTV tónlist þar sem sætar stelpur syngja og hrista á sér rassinn og ljótir gaurar rappa eitthvað rugl á milli. Þegar ég fór að hugsa um listann þá lenti ég hins vegar í miklum vandræðum með að skilgreina R&B því þetta er svo vítt hugtak. Það er í raun hægt að flokka allt frá Ray Charles yfir í R. Kelly sem R&B en ég er að spá í að halda mig við nýlega tónlist.

5. Mary J. Blige – Family Affair

Þetta lag minnir mig alltaf á veturinn sem ég leigði með Berglindi vinkonu í Kópavoginum. Þetta var annað árið mitt í háskólanum (sem gerir þetta veturinn… uhh… 2001/2002) og við gerðum fátt annað en að horfa á sjónvarpið. Þá var þetta lag einmitt gríðarlega vinsælt og var spilað á repeat á PoppTíví og ég varð húkt.

4. Kelis – Milkshake

Kelis er svo töff. Það er í raun sama hvort maður tekur eitthvað gamalt eins og Caught Out There eða eitthvað nýlegt eins og hið frábæra Bossy, hún er alltaf með hlutina á hreinu. Lagið Young Fresh And New er reyndar alltaf í uppáhaldi hjá mér en þar sem ég er nýbúin að setja það á lista og þetta er alveg jafn flott þá fær það sætið í þetta sinn.

3. Erykah Badu – On & On

Mér hefur alltaf fundist Erykah Badu koma frá annari plánetu. Það er sko ekki tilviljun að hún var látin leika vúdúdrottningu í Blues Brothers 2000 oseiseinei. Maður hefur svo sem ekki heyrt mikið frá henni síðustu ár og það síðasta sem ég man um að hafa lesið um hana var að hún væri að hætta með André 3000. Nota bene þá eru nokkur ár síðan og ég man hvað mér fannst skrítið að þau væru fyrrverandi par því ég var alveg sannfærð um að hún væri bara geimvera og full af grænu slími að innan. Lagið er samt flott!

2. Beyoncé ft. Jay-Z – Crazy In Love

Ef einhver er fierce þá er það Beyoncé. Hún er geðveikislega sæt og flott, syngur fáránlega vel og lítur út fyrir að geta kýlt mann kaldan. Það sem meira er að þó hún hristi á sér rassinn eins og hinar stelpurnar þá gerir hún það á þann hátt að það fer ekki framhjá neinum hver er við stjórnina. Mér finnst hún vera einskonar Tina Turner nútímans… a force to be reckoned with. Ég held svei mér þá að þetta lag hafi snúið mér aftur til poppsins, þ.e. að geta viðurkennt að popptónlist er ekki alltaf drasl heldur getur hún stundum verið merkilegri tónlist en margt af indírokkinu sem á vanalega hug minn allan.

1. Amy Winehouse – Back To Black

Ekki veit ég hvernig lestarslysinu sem er Amy Winehouse tókst að gera þessa mögnuðu plötu eða hvernig þessi rödd getur komið úr þessum litla líkama. Það er eins og platan, og þá sérstaklega þetta lag, komi frá löngu liðinni tíð enda hljómurinn einhvernveginn gamall. Það eru ekki allir hrifnir af Mark Ronson en þetta gerði hann þó allavega vel og saman hafa þau náð þessum gamla R&B/soul hljómi. Ég hef örugglega spilað þetta lag oftar en nokkuð annað lag þetta árið.

Tags: , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar, Óflokkað | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin