Plata mánaðarins: Gil Scott-Heron – I’m New Here
16.3.2010 - Georg Atli
Þessi plata er búin að vera á næstum því non-stop repeat hjá mér í margar vikur og í hverri hlustun heyrir maður eitthvað nýtt sem er alveg þess virði að skrifa langa pistla um.
Núna ætla ég samt bara að skrifa smá um lagið “The Crutch”.
Uppbyggingin á plötunni er soldið sérstök:
15 lög á plötunni, 3 cover og 1 sem er byggt á texta John Lee Hooker og 5 “lög” sem eru styttri en mínúta og síðan er platan römmuð inn með ljóði/hugleiðingu sem er lesið upp og skipt í 2 hluta (fyrsta og síðasta lag).
Þetta gerir það samt að verkum að maður tekur einhvernveginn frekar eftir frumsömdu lögunum hans. Lag vikunnar er mitt uppáhaldslagið mitt á þessari plötu, a.m.k. í þessari viku.
The Crutch segir frá fíkli en Gil Scott-Heron er ekki að dæma neinn. Hann segir frá þannig að það er ljóst að hann þekkir til þessa lífs sagan er myrk og hann er ekkert að draga undan, lýsingin er raunsæ. Richard Russell sem síðan sjálft lagið og það er þétt og einhvernvegin þröngt… maður fær næstum innilokunnar tilfinningu og textinn er eins og alltaf magnaður.
“…a world of lonely men and no love, no god.”
Lag: The Crutch
Tags: Gil Scott-Heron, John Lee Hooker, Richard Russell
Flokkað undir Georg Atli, Plata mánaðarins | Comments Off
Topp 5 í boði Buddy Miles Express
4.2.2009 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn
And now for something completely different… eða kannski ekki svo. Tónlistargrúskarinn Stefán Jónsson heldur úti síðunni Buddy Miles Express og skrifar þar reglulega mjög skemmtilega tónlistarpistla með hljóðdæmum. Hann gaf sér tíma til að sjóða saman einn toppfimm lista fyrir okkur sem kemur hérna sem smá innskot frá áður auglýstri dagskrá. Take it away…
Topp 5 byltingarlög

5. Thunderclap Newman – Something In The Air
Something in the Air/Wilhelmina [Single]
1969
Pródúsað af sjálfum Pete Townshend í The Who. Lagið hét upphaflega Revolution en hætt var við það nafn til að forðast rugling við samnefnt lag Bítlanna.

4. John Lennon – Give Me Some Truth
Imagine
1971
“Im sick and tired of hearing things
From uptight, short-sighted, narrow-minded hypocritics
All I want is the truth
Just gimme some truth
Ive had enough of reading things
By neurotic, psychotic, pig-headed politicians
All I want is the truth
Just gimme some truth”
Lennon í flugbeittum gír. Í uppgjöri við sig og sína og skefur ekkert undan! Þetta getur átt við í dag!

3. The Clash – The Guns Of Brixton
London Calling
1979
Kreppa, óeirðir, lögregluofbeldi og skemmdaverk og þetta er England í lok áttunda áratugarins og í þessu lagi The Clash er þetta allt saman pakkað snilldarlega saman í baneitraðan samfélagsskírskotunarkokteil! …annars bara frábært lag af frábærri plötu!

2. MC5 – Motor City Is Burning
Kick Out The Jams
1969
Gamalt John Lee Hooker lag í frábærum búningi þar sem framvarðarmaður MC5 liða Rob Tyner lofar leyniskyttur Svörtu hlébarðanna vegna aðkomu þeirra í frægum óeirðum í Detroit 1967.

1. Janis Ian – Society’s Child
Society’s Child (Baby I’ve Been Thinking)/Letter to Jon [Single]
gefið út 1965,1966 & 1967
Veit ekki alveg af hverju ég valdi þetta lag! Kannski að ég heyrði það fyrst í þætti um Bítlana og árið 1967 sem ég fann á bókasafni FVA hér í den. Þar heyrði ég þetta lag og líkaði vel við enda farinn að hlusta á Dylan, Donovan, Cohen o.fl. af meira mæli en áður þannig þessi unga vísna- og þjóðlagasöngkona hitti beint í mark með þessari samfélagsádeilu sem er sjálfsævisöguleg uppreisn gegn kerfinu. En það má geta þess til gamans að stelpan er ekki nema 13 ára gömul þegar hún semur og hljóðritar þetta lag en lagið fjallar um forboðna ást stelpu og blökkumanns á viðkvæmum tímum í sögunni!
Tags: Bob Dylan, Donovan, Janis Ian, John Lee Hooker, John Lennon, Leonard Cohen, MC5, Pete Townhend, Rob Tyner, The Clash, The Who, Thunderclap Newman
Flokkað undir Gestalisti, Listar | Comments Off
