Topp 5 lög um hafið – Kristín Gróa
13.2.2009 - Kristín Gróa
5. Shearwater – Red Sea, Black Sea
Jonathan Meiburg og Will Sheff voru saman í Okkervil River en ákváðu að stofna hliðarsveitina Shearwater sem var outlet fyrir aðra tegund af tónlist en Okkervil River var að spila enda voru lögin meira og minna eftir Meiburg. Nú er Meiburg hættur í Okkervil River og Sheff hættur í Shearwater en samt eru allir vinir. Magnað!
4. Modest Mouse – Ocean Breathes Salty
Eitt gott af Good News For People Who Love Bad News.
3. Smashing Pumpkins – Porcelina Of The Vast Oceans
Þegar ég var unglingur dýrkaði ég og dáði Smashing Pumpkins og hlustaði á Mellon Collie And The Infinite Sadness svo oft frá byrjun til enda að ég get enn sungið orðrétt með öllum lögunum. Mér finnst sú plata reyndar enn mjög góð þó svo að Smashing Pumpkins hafi misst sjarmann fyrir löngu síðan.
2. Echo And The Bunnymen – Seven Seas
Alltaf þegar ég hlusta á Echo And The Bunnymen eða heyri yfirleitt minnst á þá þá dettur mér í hug senan í High Fidelity þegar Barry er að hrella viðskiptavin:
It’s almost impossible to find, especially on CD. Yet another cruel trick on all of the dumbasses who got rid of their turntables. But every other Echo and the Bunnymen album…
- I have all of the others.
Oh really. Well what about the first Jesus and Mary Chain?
- They always seemed…
They always seemed what? They always seemed really great, is what they always seemed. They picked up where your precious Echo left off, and you’re sitting here complaining about no more Echo albums. I can’t believe that you don’t own that record. That’s insane.
Ég held að enginn geri jafn tímalausa tónlist og Richard Hawley. Röddin hans bræðir hjartað mitt og þetta lag alveg sérstaklega.
Tags: Echo and the Bunnymen, Jesus and Mary Chain, Jonathan Meiburg, modest mouse, Okkervil River, Richard Hawley, Shearwater, Smashing Pumpkins, Will Sheff
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | 2 athugasemdir »
Eldað með rokkstjörnum
28.5.2008 - Kristín Gróa
Fyrir þau ykkar sem eruð áhugafólk um bæði mat og rokktónlist (eins og ég) er til hin fullkomna síða sem sameinar þetta tvennt… Cooking With Rockstars! Jessss. Þetta virkar þannig að það er tekið matartengt viðtal við tónlistarmann og svo lætur hann frá sér eina uppskrift sem er birt með viðtalinu. Fullkomið! Nýjasta myndbandið er með Will Sheff og Jonathan Meiburg úr Okkervil River og þarna má líka finna klippur með Rufus Wainwright, Jack Black, Britt Daniel úr Spoon og mörgum fleiri. Já og hversu mikið meira er ég orðin skotin í Will Sheff eftir að hafa heyrt hann tala um carpaccio og sjá að uppskriftin hans er að “Chocolate Caramel Tart with Sea Salt”?! OMG, be still my beating heart.
Tags: Britt Daniel, Jack Black, Jonathan Meiburg, Okkervil River, Rufus Wainwright, Spoon, Will Sheff
Flokkað undir Kristín Gróa, Óflokkað | 1 athugasemd »
