Topp 5 sunnudagslög – Kristín Gróa

1.5.2011 - Kristín Gróa

Úr því að ég var of sein með listann minn (eins og vanalega!) þá hugsaði ég með mér að ég gæti allt eins sett hann inn á sunnudegi í stíl við viðfangsefni listans. Sunnudagsmorgnarnir mínir verða afslappaðri og ánægjulegri eftir því sem tíminn líður og mér finnst sunnudagstónlist fyrst og fremst eiga að vera kunnugleg og dálítið afslöppuð. Þess vegna eru öll lögin á þessum lista öll með “gömlum” tónlistarmönnum. Það er kósí að hlusta á þetta. Í réttri spilunarröð:

Joni Mitchell – Chelsea Morning

Joni Mitchell væri dálítið sunnudagsleg ef textarnir hennar væru ekki oft svo erfiðir. Að byrja sunnudaginn á að hlusta á þetta morgunlag finnst mér hins vegar góð byrjun á deginum.

Neil Young – Out On The Weekend

Harvest er líklega sunnudagslegasta plata Neil Young svo það var frekar augljóst val að taka lag af henni. Hérna kemur líka kunnugleikinn sterkur inn því plötur sem ég hef hlustað á virkilega oft eru fullkomnar fyrir sunnudaga.

Nina Simone – Here Comes The Sun

Ahhh Nina. Fær mig til að brosa :)

Paul Simon – Mother And Child Reunion

Ég var satt að segja búin að gleyma þessu lagi þar til ég heyrði The Morning Benders covera það um daginn. Þetta er alveg frábært sunnudagslag sem kemur smá svona upbeat fílingi í daginn.

The Shadows – Foot Tapper

Þetta er mesta réttnefni á nokkru lagi frá upphafi alda. Fær mig alveg til að gleyma því í smástund að það er mánudagur á morgunn.

Tags: , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off

James Blake – James Blake

21.2.2011 - Georg Atli

í síðasta mánuði kom út fyrsta stóra platan hans James Blake (platan lak í desember). Árið 2010 hafði hann gefið út 3 E.P. plötur sem að vöktu mikla hrifningu gagnrýnenda og poppspekinga, reyndar svo mikla hrifningu að hæpið var nánast orðið óþolandi og snobbhænsnið ég var sko aldeilis búinn að ákveða að hlusta ekki á þessa plötu (ég veit ekki alveg afhverju… ég tek bara stundum svona undarlegar ákvarðanir) en svo fór ég að heyra lög með honum og varð að bíta í það súra epli að þetta var alls eki alslæmt og að hæpið átti kannski alveg rétt á sér. Því fleiri lög sem að ég heyrði því spenntari og spenntari varð ég fyrir stóru plötunni.

Svo loksins í síðustu viku fékk ég plötuna og hlustaði á hana. Í rosa stuttu máli er þessi plata frábær. Ég get ekki alveg útskýrt hvað það er sem að ég fíla svona mikið við hana en það er eitthvað við þetta sem gerir það að verkum að ég féll alveg fyrir þessari plötu.

Ég held samt að það sem að ég féll svona fyrir er hvað hann er óhræddur við að prufa allskonar, hann tekur hluti og hljóð og bara gerir eitthvað við þá (meðal annars tekur hann lag með Feist og gerir það betra) og svo virðist hann haft eitthvað plan fyrir plötuna og svo bara eftir að hafa tekið upp fyrstu lögin þá hætti hann bara við það plan og fór að gera eitthvað allt annað en lét lögin bara samt standa. Hann hrærir allskonar saman og gerir alveg þræl fína dubstep plötu.

Ég ætla að setja 4 lög hérna inn og það eru þessi fyrstu lögin sem að ég heyrði af plötunni (uppáhaldslagið mitt af plötunni, eitt sem að ég hef sett hér inn áður og svo Feist lagið) og svo eitt auka tökulag sem að ég heyrði löngu áður.

Wilhelms Scream
Limit To Your Love (Feist Cover)
I Mind
A Case of You (Joni Mitchell Cover)

Tags: , ,
Flokkað undir Georg Atli, Plötuumfjallanir | 2 athugasemdir »

Topp 5 vond cover – Theódór

2.10.2009 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn

Eins og það eru til mörg góð cover þá er þau einnig fjöldamörg sem eru slæm, hér eru nokkur þeirra:

5: Should I Stay Or Should I Go – Ice Cube og Mack 10 að covera The Clash.
Þó ég sé nú gefinn fyrir rapp og Ice Cube þá er þetta alveg hræðileg misþyrming á annars fínu lagi.

4:Monkey Gone To Heaven – Far að covera The Pixies.
Illa farið með frábært lag. Sumum finnst þetta sennilega ofsalega fínt en ekki mér.

3: A Case of You – Prince að covera Joni Mitchell.
Ég hef ekki mikið hlustað á Prince og hef í raun haft eitthvað á móti honum lengi. Ætlunin er þó að gefa
honum einhvern tímann séns. En ekki í þessu lagi. Mæli frekar með Tori Amos að covera þetta og þar sem ég
finn hvergi á netinu einhverja útgáfu af laginu og er þar að auki of tækniheftur til að láta lagið
bara eitt og sér inn, þá læt ég bara útgáfuna hennar Tori fylgja með.

2:Beat on the Brat – U2 að covera Ramones.
Hræðilegt, þetta fær mig til að þola U2 enn minna en ég geri nú þegar.

1:Magic Carpet Ride – Bedlam að covera Steppenwolf.
Þetta er eitt af mínum uppáhaldslögum, en þessi útgáfa, sem var á Resevoir Dogs soundtrackinu, er alveg off.
Hún kemur mér jafnmikið úr stuði eins og orginalinn kemur mér í stuð.

Tags: , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Listar | Comments Off

Topp 5 konur – Kristín Gróa

24.7.2009 - Kristín Gróa

Þessar konur er mér efst í huga þessa stundina.


5. PJ Harvey

PJ Harvey er rokkari eins og Nick Cave er rokkari. Það virðist augljóst að nefna þau í sömu setningunni í ljósi þeirra tengsla en það sem ég er að meina með þessu er að mér dettur enginn önnur tónlistarkona í hug sem er svona hrá og gróf. Hún er karlmannleg í tónlistinni sinni.

PJ Harvey – C’mon Billy

PJ Harvey – Snake


4. Joni Mitchell

Ef PJ Harvey er karlmannleg í sinni tónlist þá er Joni Mitchell andstæðan og ef ég ber saman PJ Harvey og Nick Cave þá myndi ég bera saman Joni Mitchell og Leonard Cohen. Ég veit ekki hversu hátt hlutfall af hennar aðdáendum eru konur en ég myndi giska á svona 85%.

Joni Mitchell – A Case Of You
Joni Mitchell – Free Man In Paris


3. Björk

Jú hún er mér ofarlega í huga, verandi íslensk og allt það, en ég held það sé erfitt að mótmæla því að hún er einn íkonískasti (vont orð en það eina sem mér finnst passa!) tónlistarmaður síðustu 15 ára.

Björk – 5 Years
Björk – Play Dead


2. Kate Bush

Eina leiðin til að lýsa Kate Bush er að segja að hún er öðruvísi. Ég kynntist tónlistinni hennar upphaflega í gegnum bróður minn og stundum var verið að gera grín að mér fyrir að hlusta á þessa kellingatónlist eins og einhver orðaði það. Ég hef sjaldan hlustað á tónlist sem er eins lítil “kellingatónlist” (hvað svo sem það nú er) og þetta. Þetta er öðruvísi, skrítið, skemmtilegt og ögrandi.

Kate Bush – The Big Sky
Kate Bush – The Man With The Child In His Eyes


1. Stevie Nicks

Ó Stevie. Söngvar hafa verið sungnir um þessa konu og það er ekki að ástæðulausu. Hún var auðvitað meðlimur í einni vinsælustu hljómsveit áttunda áratugarins og þegar frægðarsól hennar skein sem hæst þá var hún fögur, hæfileikarík og á einhvern hátt bæði sterk og brothætt í senn. Það er ekki skrítið að karlmenn hafi ædolæserað hana.

Ef þið hafið ekki enn séð þetta vídjó af henni að syngja alternate útgáfu af Wild Heart þá er það skylduáhorf. Það er eiginlega skylduáhorf samt og ég held ég horfi bara á það núna í þúsundasta skipti því ég fæ gæsahúð í hvert sinn.

Fleetwood Mac – Angel
Stevie Nicks – Wild Heart

Tags: , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | 2 athugasemdir »

Jólagjöf frá Okkervil River

12.12.2007 - Kristín Gróa


Það eru víst heitustu fréttirnar í dag að ein af hljómsveitum ársins, hin frábæra Okkervil River, var að setja saman coverlagasafn sem er hægt að ná í ókeypis á heimasíðunni þeirra. Húrra! Svona á að gera! Þeir kalla þetta Golden Opportunities Mixtape og þarna má finna sjö coverlög og eitt alveg orginal Okkervil River lag. Tracklistinn er:

1. April Anne eftir John Phillips
2. Simon Smith And The Amazing Dancing Bear eftir Randy Newman
3. I Want To Know eftir Charles F. Olsen og Ed Sanders
4. Do What You Gotta Do eftir Jimmy Webb
5. I Came Here To Say I’m Going Away eftir Serge Gainsbourg
6. The Blonde In The Bleachers eftir Joni Mitchell
7. Antarctica Starts Here eftir John Cale
8. Listening To Otis Redding At Home During Christmas eftir Will Sheff sjálfan
9. Solo eftir Sandy Denny

Eftir hverju eruði að bíða? Náið í þetta strax!

Tags: , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Óflokkað | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin