Komandi tímar….
9.6.2010 - Georg Atli

Nú þegar að fyrri helmingur ársins er alveg að verða búinn þá finnst mér alltaf pínu skemmtilegt að skoða hvaða tónlistamenn eru búnir að lofa nýrri plötu. Hérna kemur svo listinn yfir það sem mér finnst allra helst:
Nýja pltan hennar MIA kemur út seinna í þessum mánuði (hún heitir þessu svaka netvæna nafni:/\/\ /\ Y /\) og svo Trent Reznor hætti með NIN og stofnaði nýja hljómsveit sem heitir How to Destroy Angels og þau ætla að gefa út samnefnda EP plötu (held amk að það verði bara EP, er samt ekki alveg viss) í byrjun júlí.
Í ágúst kemur svo langþráð plata frá Arcade Fire og þau eru aðeins byrjuð að leka út kynningarefni sem lofar bara ansi góðu. Flippararnir í !!! eru líka með plötu í ágúst þrátt fyrir að trommarinn þeirra hafi dáið fyrr á árinu, hún á að heita Strange Wether, Isn’t It?.
Í september eru svo margar stórar plötur á leiðinni en Nick Cave og vinir hans í Grinderman senda frá sér Grinderman 2 og nýja Interpol platan kemur líka þá og Hot Sauce Comittee, Pt. 1 frá gamlingjunum í Beastie Boys. Kanye West platan Good Ass Job á einnig að koma út í september og litli lærlingurinn hans Kid Cudi verður líka með nýja plötu þá og líka Panda Bear, Of Montreal og The Walkmen þannig að september verður ansi stór!
Svo skilst mér að hipparnir í Fleet Foxes og Anthony Hegarty að gefa út plötu í október… en ekki saman samt, þó að það yrði örugglega áhugavert.
Belle & Sebastian og danspoppararnir í Justice og Daft Punk ætla líka að gefa út plötu í ár en ég veit ekki hvenær.
og síðan en ekki síst þá eru Radiohead búnir að vera að teasa einhverri plötu í ár, en engin (nema kannski Thom Yorke) veit hvort það sé eitthvað til í því… það kom amk nýtt lag og þá vonar maður bara það besta.
Tags: !!!, arcade fire, Beastie Boys, Belle & Sebastian, Daft Punk, Fleet Foxes Antony & The Johnson, Grinderman, How To Destroy Angels, Justice, Kanye West, Kid Cudi, MIA, Of Montreal, Panda Bear, Radiohead, The Walkmen
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off
Topp 5 bestu hljómsveitanöfnin – Krissa
12.3.2010 - Kristjana
Vá þetta er svo gaman! Gleður orða- OG tónlistarnördið á sama tíma
First off, þau sem voru að detta inn og út af listanum:
The Blind Boys of Alabama Engan veginn innovative given the circumstances en flott nafn engu að síður. Svo eru þeir bara svo svalir!
Bombay Bicycle Club Hjólaklúbbur í Bombay? Likeit!
Seabear Hvaða snilld er það? Seabear. Sea bear. Sjávarbjörn? I’m intrigued!
Happy Mondays Jafn mikið og ég þoooli ekki Shaun Ryder, bara engan veginn, þá finnst mér nafnið frábært. Glaðir mánudagar. Ég er mögulega í vorskapi og finnst allt voða jákvætt og frábært
og svo topp5:
5. The Robot Ate Me
Skemmtilegt, skrítið, inniheldur robot og semur þar að auki fullt af lögum með svipað skrítnum titlum (og enn skrítnari textum). Yndi!
The Robot Ate Me – On Vacation
4. The Phenomenal Handclap Band
It is phenomenal! Ég fyllist alltaf óstjórnlegri löngun til að dilla mér og hlæja og hafa gaman og klappa þegar ég hlusta á þau – og nafnið endurspeglar algjörlega þá löngun.
The Phenomenal Handclap Band – 15 to 20
3. Suburban Kids With Biblical Names
Sem lætur mig alltaf fara að pæla í nöfnum og biblíunöfnum og afhverju krakkarnir ættu að heita biblíunöfnum (nú eða ekki).
Suburban Kids With Biblical Names – Loop Duplicate My Heart
2. She&Him
Í einfaldleika sínum finnst mér þetta nafn framúrskarandi frábært. Og svo finnst mér það passa obbosens vel við tónlistina.
1. Get Cape. Wear Cape. Fly.
Hversu æðislegt væri lífið ef það væri bara hægt? Redda skikkju, skella skikkju á sig, fljúga! Óhófleg bjartsýni og jákvæðni. I like it
Get Cape. Wear Cape. Fly. coverar D.A.N.C.E. með Justice
Tags: Bombay Bicycle Club, Get Cape. Wear Cape. Fly., Happy Mondays, Justice, Seabear, Shaun Ryder, She & Him, Suburban Kids With Biblical Names, The Blind Boys of Alabama, The Phenomenal Handclap Band, The Robot Ate Me
Flokkað undir Kristjana, Listar | 4 athugasemdir »
Topp 5 remix – Krissa
7.11.2008 - Kristjana

Tags: Crystal Castles, Death From Above 1979, Justice, Kings of Convenience, Klaxons, Koop, Röyksopp, Tepr, Yelle, Zero 7
Flokkað undir Kristjana, Listar | 2 athugasemdir »
Justice
11.6.2007 - Kristín Gróa

Þetta franska elektró dúó á víst að vera það allra heitasta þessa dagana. Fyrsta platan þeirra kemur út í dag og það er að byggjast upp þokkalegt hype í kringum þessa gaura. Þetta hljómar ágætlega og ætti svo sem að fá fólk til að hrista skankana þó það risti ekki sérlega djúpt. Myndbandið er nokkuð töff en ég er nú ekkert að missa mig yfir þessu samt… hvað finnst ykkur?
Tags: Justice
Flokkað undir Óflokkað | 2 athugasemdir »









