Úthlutun Kraums 2011
12.5.2011 - Georg Atli
Í gær tilkynnti Kraumur hvaða verkefni hefðu fengið styrki þetta árið.
Síðan 2008 hefur Kraumur styrkt meira en 70 hljómsveitir og ýmis verkefni tengd tónlist. Þetta er alltsaman frábært og vonandi heldur Kraumur þessu lengi áfram. Í ár fengu 15 verkefni og hljómsveitir styrki sem að námu samtals 9 milljónum. Þessi fengu styrki í ár (tölur fengnar beint af heimasíðu Kraums):
Pascal Pinon, Tónleikahald og kynning á frumburði sínum erlendis – 1.200.000
Retro Stefson*, Tónleikhald og kynningarstarf, Norðurlönd og Evrópa – 1.000.000
Árstíðir, Tónleikahald og dreifing í Rússlandi og Austur Evrópu – 800.000
Dikta*, Tónleikahald og kynning á verkum sínum í USA – 800.000
Endless Dark, Undirbúningsvinna og kynning á verkum sínum erlendis- 700.000
adhd, Kynningarvinna og tónleikar innanlands – 600.000
Kalli, Kynningarvinna á erlendum vettvangi – 600.000
Anna Þorvaldsdóttir, Undirbúningur og upptökur á portrait hljómdisk – 600.000
Who Knew, Tónleikahald á erlendum tónlistarhátiðum – 600.000
Eistnaflug, Innrás: Tónlistarhátíð í Neskaupsstað – 500.000
Aldrei fór ég suður, Innrás: Námskeið fyrir tónlistarmenn og gesti – 400.000
Guðmundur Steinn Guðmundsson, Innrás: Tónleikar innanlands – 300.000
Póst rokk & ról, Innrás: Tónleikar Lockerbie og fleiri um landið – 300.000
Sjóræningahúsið, Innrás: Tónleikasería á Patreksfirði – 300.000
Sleepless in Reykjavik, Myndbandagerð um íslenskt tónlistarlíf – 300.000
Samtals: 9.000.000
*Kraumur hefur áður stutt við undirbúning og upptökur á breiðskífum Dikta (Get it Together) og Retro Stefson (Kimambwe), sem sveitirnar vinna nú að því að gefa út og kynna á erlendum vettvangi – með stuðningi Kraums.
Persónulega finnst mér skemmtilegast að sjá annars vegar allar þessa tónleika og tónlistarhátíðir sem fara fram út á landi og svo líka Sleepless in Reykjavík því að mínu mati er þetta rosa flott framtak er í gangi þar og ætti að fá mun meiri athygli.
Tags: adhd, Árstíðir, Dikta, Endless Dark, Guðmundur Steinn Guðmundsson, Kalli, Pascal Pinon, Retro Stefson, Sleepless in Reykjavík, Who Knew
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off
Tónleikasamantekt
4.5.2011 - Georg Atli
Fullt af tónleikum eins og venjulega og við ætlum að taka þá saman og setja í eina færslu ykkur til yndisauka. Ef það er eitthvað sem að við gleymum/vitum ekki af endilega látiði okkur vita með því að senda okkur smá línu, t.d. hér, hér eða jafnvel í pósti, toppfimmafostudegi[hjá]gmail.com
Miðvikudagur
Á Rósenberg verða Steini Eggerts og Óperuídýfurnar að syngja um lífið. Byrjar kl. 21:00 og miðinnm kostar 1500 kr.
Fimmtudagur
Í Tjarnarbíói munu Bjartmar og Bergrisarnir fagna plötunni Skrýtin veröld og góðu ári með tónleikum. Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og það kostar 2500 krónur inn. Miðasala á midi.is.
Á Rósenberg verður Rokkabillýband Reykjavíkur með sína árlegu vortónleika. Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og það kostar 1800 krónur inn. Miðasala á midi.is. Sjá nánar hér.
Á Dillon verður mikið af tónlist en þar koma fram The Assasin Of A Beautiful Brunette, Postarctica og The Wicked Strangers. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það er frítt inn. Nánari upplýsingar hér.
Á Norðurpólnum verða þriðju tónleikarnir í tónleikaröðinni ‘Rafmagnslaust á Norðurpólnum’ og í þetta sinn eru það Svavar Knútur og Hljómsveitin Ég sem koma fram. Tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 21:00 og það kostar 1500 krónur inn. Sjá nánar hér.
Á Hressó verður Valdimar með tónleika sem eru hluti af tónleikaröð Gogoyoko. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og er frítt inn á meðan húsrúm leyfir. Sjá nánar hér.
Á Faktorý verður rótarkvöld með Atla Kanilsnúð. Sjá nánar hér.
Á Boston verður franski tónlistarmaðurinn Michael Wookey að spila frá kl. 21:00.
Á Prikinu verður mánaðarlegt breakbeat.is kvöld en þar koma fram Maggi B, Kalli og Skeng. Hefst klukkan 21:00 og það er frítt inn. Sjá nánar hér.
Föstudagur
Á Dillon koma fram hljómsveitirnar Gang Related, Ofvitarnir og No To Self. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það er frítt inn. Sjá nánar hér.
Á Faktorý verður Svínarí #2 og þar verða hljómsveitirnar Who Knew, Hellvar og The Hydrophobic Starfish. Húsið opnar kl. 22:00, tónleikarnir hefjast kl. 23:00 og það er frítt inn. Sjá nánar hér.
Á Sódóma verður bandaríska hljómsveitin White Cowbell Oklahoma með tónleika. Einnig koma fram The Vintage Caravan og Texas Muffin. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það kostar 1000 krónur inn. Sjá nánar hér.
Á BAR11 verður Wildcat rockabilly tryllingur með El Camino, 59′ers, Haffa Haff, Daníel Ágúst og Krumma. Frítt inn. Sjá nánar hér.
Laugardagur
Á Rósenberg verða tónleikar með Láru Rúnars og Lay Low. Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og það kostar 1000 krónur inn. Sjá nánar hér.
Á efri hæðinni á Faktorý verða hljómsveitirnar Valdimar og Æla með tónleika. Tónleikarnir hefjast kl. 23:00 og það kostar 1000 krónur inn. Sjá nánar hér. Á neðri hæðinni verður DJ Margeir og það kostar ekkert inn. Sjá nánar hér.
Sunnudagur
Á Rósenberg verður Thor Kristinsson með tónleika, þeir byrja kl. 21:00 og það kostar 1500 kr. inn
Á Faktorý verður SunnuJazzinn á sínum stað
Tags: 59'ers, Bjartmar og Bergrisarnir, Daníel Ágúst, El Camino, Gang Related, Haffi Haff, Hellvar, Hljómsveitin Ég, Kalli, Krummi, Lára Rúnars, Lay Low, Maggi B, No To Self, Ofvitarnir, Postartica, Rokkabillýband Reykjavíkur, Skeng, Svavar Knútur, Texas Muffin, The Assassin of a Beautiful Brunette, The Hydrophobic Starfish, The Vintage Caravan, The Wicked Strangers, Valdimar, White Cowbell Oklahoma, Who Knew, Æla
Flokkað undir Georg Atli, Kristín Gróa, Tónleikar | 2 athugasemdir »


