Myndbönd og svoleiðis

6.6.2011 - Georg Atli

Jájá búinn að vera lægð í færslunum hérna hjá okkur, bætum úr því í vikunni. Lofa!
Til að byrja uppbætinguna þá kemur hérna ein færsla með svona allskonar myndböndum sem að ég er búinn að vera að skoða síðastliðnar vikur eða svo, en aldrei nennt að setja hingað inn:

Beirut kom með nýtt lag, það er gott. Allir hljóta að fíla Beirut af því að Zach Condon virkar bara sem svo ótrúlega næs gaur!

Beirut – East Harlem by Revolver USA

Það er komið go á Caribou, í þetta skiptið verða tónleikarnir 28 júní… nú þurfum við bara að vona að að verði ekki annað helvítis eldgos. Myndband við lagið Jamelia kom út einhvern tímann í byrjun árs en það er viðeigandi þrátt fyrir það.

Caribou – Jamelia from Video Marsh on Vimeo.

Kanye West gaf loksins út myndbandið við Monster, en það lak einhver frum útgáfa af því einhvern tíman fyrir síðustu jól… myndbandið er skrítið.

Björk sendi frá sér teaser fyrir lag af Biophilia verkefninu sínu, lagið heitir Crystalline… það er bæði sk´ritið og gott.

björk – road to crystalline from Björk on Vimeo.

DJ Leon Botha dó í gær, en hann var í töffarasveitinni Die Antwoord. Botha var litli skrítni gaurinn sem leit pínu út eins og fóstur. Hann var líka sá maður sem lifði lengst með þessum sjúkdómi og áhugaverður málari og allskonar.

Die Antwoord – Enter the Ninja from daniel michel on Vimeo.

Svo ætla ég að setja inn nýjasta myndbandið frá froðupopparanum Bruno Mars… ég verð að taka það fram að mér finnst lagið eiginlega alveg glatað, en myndbandið er frábært og sjálfur Leonard Nimoy (dr. Spock) sýnir stórkostleg tilþrif í því. Þið gætuð kannski bara horft á myndbandið á mute eða eitthvað en horfiði endilega á það.

… og svo verður eitthvað fullt að gerast í vikunni, fylgist með!

Tags: , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off

Topp 5 erlendar plötur 2010- Kristín Gróa

23.1.2011 - Kristín Gróa

Eins og vanalega þá panikkaði ég þegar kom að því að gera upp árið. Bæði er úr svo miklu að velja og svo veit ég líka að það er svo margt sem ég hlustaði aldrei á og missti af. Þannig er það víst alltaf. Ég get ekki sleppt því að minnast á tíu runner up plötur því þær eru of góðar sleppa þeim (svindlari!). Það kemur kannski ekki mikið á óvart á þessum lista en stundum er það bara þannig.

Í engri sérstakri röð:

The Roots – How I Got Over
Charlotte Gainsbourg – IRM
Sufjan Stevens – Age Of Adz
Erykah Badu – New Amerykah Part Two (Return Of The Ankh)
Robyn – Body Talk
Wavves – King Of The Beach
Beach House – Teen Dream
Gil Scott-Heron – I’m New Here
The Walkmen – Lisbon
Vampire Weekend – Contra

5. Surfer Blood – Astro Coast

Þessi plata er einfaldlega barmafull af góðum lögum. Hún byrjar á kicker með Floating Vibes, fer svo í Swim sem er hálfgerður surf-headbanger og svo þaðan yfir í Take It Easy sem er svona sólskinslag sem ég tengi einhverra hluta við Hawaii. Ég gæti þrætt mig í gegnum öll lögin en staðreyndin er sú að það er ekki eitt slakt lag á plötunni heldur er hún 40 mínútur af skemmtilegheitum.

Surfer Blood – Floating Vibes

4. The National – High Violet

Ó Matt Berninger, hve þú dáleiðir mig með rödd þinni og hefur gert frá því ég heyrði hana fyrst. Það eru yfirleitt engir augljósir megahittarar á plötum The National (þó Bloodbuzz Ohio komist ansi nálægt því) en þær eru algjörlega dáleiðandi. Ég get bara ekki gert upp við mig hvaða plata er í mestu uppáhaldi, Alligator, The Boxer eða High Violet. Það er ekki algengt að hljómsveitir bombi út þremur plötum í röð sem eru svo yfirgengilega góðar að maður getur ekki gert upp á milli þeirra svo ég bíð spennt eftir næstu plötu.

The National – Sorrow

3. The Arcade Fire – The Suburbs

Ég var rosalega sein til að byrja að hlusta á þessa plötu þó hún sæti þolinmóð í tónlistarsafninu og biði áheyrnar. Hún er pínu yfirþyrmandi svona klukkutíma löng með alveg 16 lög svo þar þarf smá þolinmæði til að hún nái að síast inn í heild. Það er hins vegar ekki hægt að neita því að hún er stútfull af alveg rosalega góðum lögum sem standa ein og sér en mynda samt sterka heild. Modern Man, Rococo, City Of Children, We Used To Wait og Sprawl II (Mountains Beyond Mountanis) standa upp úr hjá mér þessa stundina en staðreyndin sú að það er rosalega erfitt að velja á milli laganna. Þessi er á alveg á mörkunum að slá Funeral út en sú plata hafði þessi fyrstu plötu vá-sjokk-geðveikt áhrif með sér svo það er erfitt að bera þær saman.

The Arcade Fire – City With No Children

2. Kanye West – My Beautiful Dark Twisted Fantasy

Ég meika Kanye West auðvitað ekki fyrir fimm aura… eða ég hef ekki gert það fyrr en núna. Ég var fyrirfram alveg í mínus þegar ég byrjaði að hlusta á þessa plötu en ég get ekki neitað því að hún er alveg frábær. Skrítin, hreinskilin, catchy og stórfengleg. Þetta er algjör rússíbanareið. Strax í fyrsta lagi þegar ég heyrði stefið Can we get much higher?! þá var ég hooked. Ekki besta plata allra tíma og ekki alveg besta plata ársins en samt alveg djöfulli jaw dropping góð plata.

Kanye West – Gorgeous (feat. Kid Cudi)

1. Janelle Monáe – The ArchAndroid

Hvaðan kom þessi kona og þessi plata? Hún hafði allavega farið framhjá mér þangað til að ég fékk The ArchAndroid óvænt í hendurnar. Þetta er metnaðarfyllsta debut plata sem ég man eftir í svipinn. Hverslags crazy hæfileikarík manneskja hefur ferilinn á óflokkanlegri þemaplötu í þremur hlutum sem fjallar um ástir og örlög vélmennis og er með Saul Williams, Big Boi og Kevin Barnes á kantinum eins og ekkert sé eðlilegra? Það er vissulega hægt að nefna nokkur lög sem hápunkta (Tightrope, Cold War og Faster koma fyrst upp í hugann) en það er platan sjálf og það hversu heilsteypt hún er sem tryggir toppsætið.

Janelle Monáe – Come Alive (The War Of The Roses)

Tags: , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar, Óflokkað | Comments Off

Topp 5 erlendar plötur 2010 – Georg Atli

21.1.2011 - Georg Atli

Árið var gott og það var alveg fullt fullt af góðri tónlist. Eins og vanalega á árslitum þá var fáránlega erfitt að velja bara 5 plötur á listann og of ósanngjarnt að nefna ekki fleiri þannig að ég byrja á næstum því listanum mínum (og eins og alltaf er þetta ekki í neinni sérstakri röð):

The Tallest Man on Earth – The Wild hunt -> Sænskur Bob Dylan og þó að sú líking hljómi ekkert sérstaklega þá gerir tónlistin það.
Local Natives – Gorilla Manor -> Þessi plata hefði verið í 6. sæti. Þræl fínt popprokk.
The Black Keys – Brothers -> The Black Keys eru aftur farnir að gera það sem að þeir gera svo frábærlega; spila blúsrokk.
Das Racist – Sit Down Man -> Besta rappplata síðasta árs
Kanye West – My Beautiful Dark Twisted Fantasy -> Næst besta rappplata síðasta árs og ofmetnasta plata ársins
Grinderman - Grinderman 2 -> Skítugt, hart, hátt, pönkað gæða rokk frá söngvara The Birthday Party
Vampire Weekend – Contra -> Mest gleymda plata ársins, furðulega góð þó að þetta sé pínu það sama og á fyrri plötunni
Los Campesinos – Romance is Boring -> Ég skil ekki af hverju það eru ekki allir að blasta Los Campesinos
Sleigh Bells – Treats -> Dísæt og krúttuð óhljóða geðveiki
The National – High Violet -> Besta plata The National
Toro y Moi – Causers of This -> Vanmetnasta plata ársin
Sam Amidon – I See the Sign -> Allt sem Sam Amidon gerir er gott.

og svo Topp 5 plötur ársins:

5. Joanna Newsom – Have One on Me
Ég var lengi að fatta tónlistina hennar Joanna Newsom og fílaði engan vegin fyrstu plötuna hennar The Mil-eyed Mender (2004) og nennti ekki einu sinni að hlusta á plötuna Y’s (sem kom út í millitíðinni) en féll eiginlega strax fyrir fyrsta laginu sem ég heyrði af þessari plötu. Ég þyrfti líklega að gefa hinum plötunum meiri séns.

Lag: Jackrabbits

4. Fang Island – Fang Island
Þetta var það sem kom mér líklega mest á óvart í erlendri tónlist. Þetta er svo sem ekkert neitt sem að maður hefur aldrei heyrt áður, því þetta minnir á bæði Ratatat og íslensku ofurtöffarana í Retron. En þetta er samt rosalega skemmtilegt. Mjög skemmtilegt gítarrúnk af bestu gerð.

Lag: Sideswiper

3. Arcade Fire – The Suburbs
Arcade Fire náðu nýjum hæðum í dramatískri og yfirdrifinni tónlist sem hljómar eins og ef að þú tækir heila þáttaröð af einhverri sápuóperu og tækir allann ofleikinn og mjúku linsurnar og allt glysið go myndir breyta því í 16 lög og setja það á eina plötu… nema að tónlistin er geðveikt góð.

Lag: City With No Children

2. Gil Scott-Heron – I’m New Here
Gil Scott-Heron gaf út sína fyrstu plötu í 15 ár og hún var rosaleg. Fullt af flottum textum, þéttur taktur, coverlög sem engium datt í hug að myndu vera þarna og svakalega flott lög. Varð til þess að ég fór að hlusta á allt gamla stöffið hans aftur.

Lag: The Crutch

1. Titus Andronicus – The Monitor
Titus Andronicus kom mér mikið á óvart (fannst Airing of Grievences samt rosa góð)og gaf út alveg geðveikt góða pönk plötu, nútíma útgáfan af pönki en það er samt pönk. Þetta er grjót hart pólitískt og þrælskemmtilegt. Ég var allt árið alveg að fara að skrifa langan pistil um það hvað þessi plata er dásamlega skemmtileg og góð en einhvern veginn hætti ég alltaf við. Mest spilaða platan í 2010 plötusafninu mínu.

Lag: A Pot In Wich to Piss

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off

Sarpurinn – Georg Atli

16.11.2010 - Georg Atli

Svona af því að raddirnar um nýja plötu frá einu mesta og besta tónskáldi sögunnar verða æ háværari þá er ágætt að kíkja örsnöggt á síðustu plötuna hans.

Aphex Twin – Druqs

Aphex Twin er eiginlega mystískur karakter frekar en eiginlegur tónlistarmaður. Í fyrsta lagi gerir hann stórkostlega tónlist sem engin leið er að eyrnamerkja á einhvern ákveðinn hátt (sést t.d. vel á þessari plötu) heldur blandar hann öllu saman og og snýr því á hvolf. Sjálfur flokkar hann tónlistina sína undir “Braindance” sem er reyndar ansi gott nafn! Í öðru lagi hefur hann verið að gefa út tónlist undir  8 mismunandi nöfnum (sem ég veit af en þau gætu vel verið fleiri), vegna þess að hann vill sjálfur ákveða hversu margar plötur hann gefur út og hverslags tónlist er á þeim. Að lokum hefur hann það fyrir venju að ljúga hiklaust í öllum viðtölum sem hann fer í, t.d. sögur um það að hann hafi keypt sér skriðdreka á Ebay.

Ein svona sagan er þannig að Madonna (sem var amk. einu sinni mikill aðdáandi) hringdi í hann og bað um að fá að vera með í einhverju lagi frá honum. Hann svaraði víst þannig að það væri lítið mál og þegar Madonna kom í stúdíóið hans var henni rétt textablað þar sem á stóð “MOO!”… Madonna átti að baula eins og kýr í laginu. Góð saga en það er erfitt að vita hvort hún sé sönn…

Platan Druqs verður seint talin með bestu verkum Aphex Twin (Richard D. James) en hún er samt rosalega góð og mjög merkileg. Platan hljómar milu meira eins og einhverskonar safnplata. Þarna virðist Aphex Twin hafa hent 30 lögum (sem hann valdi af handahófi) í plötuútgefandann sinn og sagt honum að gefa þeta út því hann vantaði pening (önnur góð saga segir að hann semji tónlist einungis fyrir sjálfan sig en gefi bara út 2. flokks efni sem hann týmir að senda frá sér þegar honum vantar pening).

Lög plötunnar eru þannig mjög blönduð, sumt minnir mann á fyrstu plötuna hans (Selected Ambient Works 85-92), annað hljómar eins og eitthvað af þessu gallsúra industrial “Drill n’ Bass” sem var á Richard D James Album og svo setur hann stundum í píanógírinn og hljómar eins og að hann hafi verið að hlusta á Eric Satie og hugsað “ég get gert þetta!”.

Það er reyndar eitt af píanó lögunum af plötunni sem varð til þess að ég fór að hlusta aftur á Aphex Twin (eftir alltof langa hvíld!). Lagið Avril 14th var nefnilega samplað af tveimur ólíkum artistum fyrir stuttu. Annars vegar voru það snillingarnir í Lonely Island (Saturday Night Live) sem gerðu lagið Iran So Far (þetta er snilld!), þar er lagið byggt upp í kringum lagið hans Aphex Twin og vakti víst ekki mikla lukku hjá honum (og örugglega ekki heldur hjá Mahmoud Ahmadinejad!). Síðan samplaði Kanye West lagið inn í sitt lag (Blame Game, líklega besta lagið af nýju plötunni hans og besta lag sem Kanye hefur nokkurn tíman gert!) en allavega þá koma nokkur lög hér þannig að þið getiðkannski áttað ykkur aðeins á plötunni.

Lög:
Aphex Twin – Avril 14th
Aphex Twin – Father
Aphex Twin – Omgyjya Switch7
Aphex Twin – Vordhosbn
Aphex Twin – Cock Ver10

Kanye West – Blame Game (ft. John Legend, Chris Rock)

Tags: , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Sarpurinn | 1 athugasemd »

Topp 5 sömpl – Kristín Gróa

5.11.2010 - Kristín Gróa

5. M.I.A. – Born Free

Samplar Ghost Rider með költ sveitinni Suicide. Ekkert endilega besta samplið hennar M.I.A. (halló Paper Planes!) en samt töff.

M.I.A. – Born Free
Suicide – Ghost Rider

4. Danger Mouse – 99 Problems

Tæknilega séð meira mashup á 99 Problems og Helter Skelter heldur en sampl en ég treysti mér ekki út í nákvæmar skilgreiningar á því hvað er sampl og hvað ekki.

Danger Mouse – 99 Problems
The Beatles – Helter Skelter
Jay-Z – 99 Problems

3. Wavves – Mickey Mouse

Þetta lag af frábæru plötunni King Of The Beach notar byrjunina á Da Doo Run Run með The Crystals og það virkar! Útkoman er að mínu mati dálítið Animal Collective-leg en það er bara fínt.

Wavves – Mickey Mouse
The Crystals – Da Doo Run Run

2. Kanye West – Gold Digger

Stefið úr Ray Charles laginu I Got A Woman er það sem gerir þetta lag gott, punktur!

Kanye West – Gold Digger
Ray Charles – I Got A Woman

1. The Avalanches – Since I Left You

Þetta lag er eiginlega eingöngu sett saman úr sömplum og er alveg mega awesome. Talsvert afrek.

The Avalanches – Since I Left You

Tags: , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off

Ný og fín myndbönd.

26.10.2010 - Georg Atli

Um daginn kom nýtt myndband frá Reykjavík! og það voru fleiri að senda frá sér myndbönd, bæði íslenskir og útlenskir, hérna koma örfá.

Hjaltalín og Árni Súri gerðu þetta við lagið Sweet Impression

Kanye West gerði snarbrjálað 34 mín. langt myndband/stuttmynd með Hype Williams við lagið Runaway.

Nýstirnið Glasser gerði myndband við Mirrorage.

Hljómsveitin Hundreds in the Hands (sem ég þekki ekkert) gerðu myndband með Daniels, sem gerði myndbandið við Underwear fyrir FM Belfast.

og síðan rakst ég á þetta frekar brjálað myndband við lagið My Recue frá hljómsveitinni Canyons í því leikur Kphu the Killer stórt hlutverk ásamt því að leikstýra…

Canyons – My Rescue from Modular People on Vimeo.

Tags: , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli | 1 athugasemd »

Topp 5 typpahöfuð – Georg Atli

2.10.2010 - Georg Atli

Í tónlistarheiminum eru ótrúlega margir listamenn sem hafa, af einhverjum óskiljanlegum ástæðum, bara algerlega misst það og orðið að einhverju sem er líklega best að kalla typpahöfuð (e. dickhead). Þetta fólk á það allt sameiginlegt að hafa ferið (eða er ennþá) ótrúlega frægt og það hagar sér á einn eða annann hátt eins og fávitar. Hérna koma þeir 5 sem mér finnst toppa þennan lista.

5. Billy Corgan


Mér finnst þessi maður óþolandi, allt frá útliti til tónlistarinnar, meira að segja nöfnin á plötunum þeirra eru yfirfull af tilgerð (Mellon Collie & the Infinite Sadness!?) og hroka. Hann þóttist vera einhver ótrúlegur indie-goth-rokkari en var samt alltaf bara  rokkstjörnu pósurnar alveg á hreinu, mér hefur alltaf fundist hann vera ótrúlega gervilegur. Hræðilega ofmetinn að mínu mati, verð samt að benda á honum (og mér) til björgunar að sumt af tónlistinni er mjög gott (t.d. lagið sem fylgir færslunni) og hann er alveg mjög fínn tónlistarmaður en líka alveg svakalegur penis.

Lag: Smashing Pumpkins – Today

4. Kanye West


Hérna kemur mjög dæmigert samtal (amk. efni þess ekki endilega orðin!) um Kanye West:

1: Vá! Ertu búinn að heyra nýja lagið með Kanye West? Það er geðveikt flott.

2: Já, hvernig finnur hann eiginlega alla þessa takta… og textinn maður, púff!

1: Verst hvað hann er mikil fáviti.

2: Já ég er ekki viss um að það séu margir sem eru meiri asnar en hann!

Ég held að öllir sem þola hann ekki finnist hann vera bjáni og líka öllum aðdáendum. Atvikið með Taylor Swift er líklega eitt og sér alveg nóg til að velja hann fávita áratugsins. Læt nýjasta lagið hans fylgja með, þar eru m.a. RZA, Jay-Z og Swizz Beatz.

Lag: Kanye West – So Appalled (feat. Jay Z, RZA, Swizz Beatz, Pusha T, Cyhi the Prynce)

3. Puff Daddy

Ég veit að hann heitir þetta ekkert lengur en ég nenni bara ekki að fylgjast með því hvað maðurinn kallar sig lengur. Puffy er til í að selja sig í hvað sem er, svo lengi sem það séu peningar í því. Hann er líka svo yfirgengilegur að manni getur bara ekki líkað vel við hann! Ég á bara ekkert lag með honum þannig að youtube verður að duga.

2. Moby


Moby er lítill og skrítinn kall sem er svo ótrúlega typpalegur í útliti að það er ótrúlegt. En það er svosem ekki ásæðan fyrir því að hann er á þessum lista mínum, ástæðan fyrir því er að í einhverju viðtali í einhverju blaði sem ég las þá var hann að segja frá uppáhalds partýleiknum sínum. Hann er svona: Moby sá eini sem tekur meðvitað þátt í honum og hann rennir niður buxnaklaufinni sinni, tekur félagann út og nuddar honum upp við eins marga og hann getur. Helst bara fræga samt en sem flesta samt.

Ég verð að viðurkenna að mér finnst þetta alveg svolítið fyndið, en þetta er samt bara eitthvað sem sönnum typpahausum dettur í hug.

Lag: Moby – Run On

1. Liam Gallagher


Liam Gallagher telur að andi John Lennon hafi tekið sér bólfestu í sínum eigin líkama… ég er ekki viss um að ég þurfi að skrifa mikið meira. Lagið sem fylgir er eitt af þeim fáu Oasis lögum sem að mér finnst ekki glötuð og það er meira af því að mér finnst útgáfa Ryan Adams svo góð (fylgir líka þó að hann sé ekki typpahöfuð).

Lag: Oasis – Wonderwall

Bónuslag: Ryan Adams – Wonderwall

Tags: , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | 2 athugasemdir »

Fullt af lögum!

8.9.2010 - Georg Atli

Minni á tónleika dagatalið okkar hérna til hægri, þið ættuð að geta fundið eitthvað skemmtilegt þar… fuuuulllt af skemmtilegum tónleikum framundan!

Ég er búinn að vera á leiðinni að setja mörg af þessum lögum hérna inn, í alveg merkilega langan tíma, en einhverra hluta vegna aldrei gert það… núna breytist það.

Byrjum á nokkrum nýjum og nýlegum lögum.

Í fyrsta lagi er Amiina að gera nýja plötu og búin að fá 2 nýja meðlimi og Dr. Gunni er að dreifa nýju lagi með þeim… af því að Topp 5 fílar íslenskt þá hoppum við á þá lest. (Takk Dr. Gunni!)

Svo var Justin Vernon/Bon Iver að syngja inn á lag með Kanye West, snilldarlag meira að segja.

Justin Vernon er greinilega þessi bissí týpa því hann var líka að syngja inn á lag með hljómsveitinni All Tiny Creatures.

Svo eitt lag sem kom út um daginn með eftirlæti allra hippsterana í dag Zola Jesus og annað með Fol Chen, sem er mjög skemmtilegt band

oooog svo uppáhaldið mitt tvö cover!!!
Lou Barlow (Lo-Fi hetja úr Sebadoh og Folk Implosion) kemur með live cover af laginu Bulletproof með La Roux.

síðan er það þessi fína útgáfa Taken by Trees (alveg þess virði að tjékka á þeirri hljómsveit) af laginu My Girls með Animal Collective, sem var einmitt eitt af bestu lögunum árið 2009! Platan þeirra East of Eden kom út í fyrra og svona sem bónusfróðleikur þá er heitir söngkonan í Taken By Trees Viktoria Bergsman og hún söng með Peter, Björn & John í laginu Young Folks.

Lög:
Amiina – What are We Waiting For
Kanye West – Monster (feat. Bon Iver, Jay-Z, Rick Ross, Nicky Minaj)
All Tiny Creatures – An Iris (feat. Justin Vernon)
Zola Jesus – Sea Talk
Fol Chen – The Holograms

Lou Barlow – Bulletproof (La Roux Cover)
Taken By Trees – My Boys (Animal Collective cover)

Tags: , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Óflokkað | 2 athugasemdir »

Komandi tímar….

9.6.2010 - Georg Atli

Nú þegar að fyrri helmingur ársins er alveg að verða búinn þá finnst mér alltaf pínu skemmtilegt að skoða hvaða tónlistamenn eru búnir að lofa nýrri plötu. Hérna kemur svo listinn yfir það sem mér finnst allra helst:

Nýja pltan hennar MIA kemur út seinna í þessum mánuði (hún heitir þessu svaka netvæna nafni:/\/\ /\ Y /\) og svo Trent Reznor hætti með NIN og stofnaði nýja hljómsveit sem heitir How to Destroy Angels og þau ætla að gefa út samnefnda EP plötu (held amk að það verði bara EP, er samt ekki alveg viss) í byrjun júlí.

Í ágúst kemur svo langþráð plata frá Arcade Fire og þau eru aðeins byrjuð að leka út kynningarefni sem lofar bara ansi góðu. Flippararnir í !!! eru líka með plötu í ágúst þrátt fyrir að trommarinn þeirra hafi dáið fyrr á árinu, hún á að heita Strange Wether, Isn’t It?.

Í september eru svo margar stórar plötur á leiðinni en Nick Cave og vinir hans í Grinderman senda frá sér Grinderman 2 og nýja Interpol platan kemur líka þá og Hot Sauce Comittee, Pt. 1 frá gamlingjunum í Beastie Boys. Kanye West platan  Good Ass Job á einnig að koma út í september og litli lærlingurinn hans Kid Cudi verður líka með nýja plötu þá og líka Panda Bear, Of Montreal og The Walkmen þannig að september verður ansi stór!

Svo skilst mér að hipparnir í Fleet Foxes og Anthony Hegarty að gefa út plötu í október… en ekki saman samt, þó að það yrði örugglega áhugavert.

Belle & Sebastian og danspoppararnir í Justice og Daft Punk ætla líka að gefa út plötu í ár en ég veit ekki hvenær.

og síðan en ekki síst þá eru Radiohead búnir að vera að teasa einhverri plötu í ár, en engin (nema kannski Thom Yorke) veit hvort það sé eitthvað til í því… það kom amk nýtt lag og þá vonar maður bara það besta.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin