Sarpurinn

29.3.2012 - Georg Atli

Geoff Farina – Reverse Eclipse

Á ofanverðurm tíunda áratug síðustu aldar varð til hljómsveit sem heitir Karate. Hún gaf frá sér 7 plötur á um það bil 11 árum (síðasta kom út 2007) sem flestar eru góðar en reyndar þá stendur platan In Place of Real Insight (1997) uppúr sem algert meistarastykki. Þessi sarpur er samt ekki um neina af plötum Karate heldur ætla ég að beina eyrum ykkar að einni af sólóplötum söngvara, gítarleikara og aðallagahöfundar hljómsveitarinnar.

Platan Reverse Eclipse kom út árið 2001 (nákvæmlega á milli tveggja lélegustu platna Karate) og maðurinn á bak við hana var áðurnefndur söngvari, Geoff Farina. Hann er menntaður jazzgítarleikari og það heyrist vel því aðaðalsmerki Karate var alltaf hvernig þeir blönduðu indí tónlistinni við klassískan jazz gítarleik. Þetta skín ennþá betur í gegn á sólóplötunum frá Farina (skiljanlega) og í rauninni eru plöturnar hans miklu meiri nútímajazz en alternative/indie/post-rock blandan sem Karate var þekkt fyrir.

Annað sem að mætti kalla aðalsmerki Geoff Farina var textagerðin. Textarnir hans voru mjög óhefðbundnir og yfirleitt þá skilur maður ekkert (amk ekki ég) sérstaklega það sem þeir fjalla um og það virðist oft vere mikilvægara fyrir Farina að setja saman flottar línur en merkingarbæran texta, þetta virkar samt vel við tónlistina hans enda er óþarfi að vera endalaust að snobba fyrir frábærum textum… stundum þarf bara ekkert að vera einhver djúpstæð merking á bak við þá, stundum þurfa þeir bara að hljóma flott.

Lögin sem bera af eru upphafslögin 2 (Special Diamonds og The Left-Handed Way) og svo Henningson or Hemmingway en reyndar er öll platan mjög góð, þægileg og skemmtileg að hlusta á.

Tags: ,
Flokkað undir Georg Atli, Sarpurinn | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin