Topp 5 dúettar – Kristín Gróa
12.9.2008 - Kristín Gróa

5. Sonny & Cher – The Beat Goes On
Mér finnst þetta óskiljanlega skemmtilegt lag… ég held það sé takturinn.

4. Dolly Parton & Kenny Rogers – Islands In The Stream
Ég eins og allt of margir á mínum aldri heyrði þetta lag í fyrsta sinn sem rapp með viðlagið eitthvað í líkingu við Ghetto Superstar… that is what you are…. Þvílík misþyrming. Já en ég veit að þetta er nett hallærislegt lag en mér finnst það samt alveg æði. Ég er líka svoddan sökker fyrir hallærislegheitum.

3. Serge Gainsbourg & Jane Birkin – Je T’aime… Moi Non Plus
Hér er verið að taka dúettinn alveg á annað plan… fjúff ég roðna bara.

2. Peter Gabriel & Kate Bush – Don’t Give Up
Á einhvern hátt er alveg rökrétt að Peter Gabriel og Kate Bush hafi tekið upp lag saman. Lagið er ofboðslega fallegt og myndbandið mjög eftirminnilegt í einfaldleika sínum.

1. Nancy Sinatra & Lee Hazelwood – Some Velvet Morning
Mjög súrrealískt lag en samt svo frábært. Koverið hjá Primal Scream og Kate Moss er jafn vont og þetta lag er gott. Ughh.
Tags: Dolly Parton, Jane Birkin, Kate Bush, Kate Moss, Kenny Rogers, Lee Hazelwood, Nancy Sinatra, Peter Gabriel, Primal Scream, Serge Gainsbourg, Sonny & Cher
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | 1 athugasemd »
The Kills
27.3.2008 - Kristín Gróa

The Kills voru mikið hæp þegar debut platan þeirra, Keep On Your Mean Side kom út árið 2003. Ég sjálf var (og er) virkilega hrifin af þeirri plötu og hlustaði mikið á hana á sínum tíma. Þau voru svo eitt af stærstu nöfnunum á Airwaves sama ár en það ár var einmitt árið sem ég fór alein á Airwaves fjögur kvöld í röð. Hvort er það sorglegt eða bara rokk? Ég veit það ekki en ég veit að mér fannst settið þeirra það gott að mér var sama þó ég væri ein.
Þau gáfu út plötuna No Wow árið 2005 sem var ágæt en heillaði mig aldrei mjög mikið. Akkúrat núna þegar Jamie Hince er alltaf í fréttunum fyrir það að vera nýi gaurinn hennar Kate Moss droppa þau þriðju plötunni sem nefnist Midnight Boom og lofar reyndar góðu enn sem komið er. Lagið Cheap And Cheerful þykir mér ansi gott og svo byrjar það á hrottalegum horhósta sem hlýtur að vera svaka töff.
The Kills – Cheap And Cheerful
The Kills – Goodnight Bad Morning
Tags: Jamie Hince, Kate Moss, The Kills
Flokkað undir Kristín Gróa, Óflokkað | 2 athugasemdir »
