Til hammó með ammó!

18.3.2010 - Kristjana


1. Topp fimm á föstudegi varð þriggja ára í vikunni (þann 16.). Í tilefni af því fáum við þrjú random þrista lög:

Jay-Z – 99 Problems því 99 er deilanlegt með 3
De La Soul – 3 is the Magic Number for obvious reasons
The Arcade Fire – Neighborhood #3 (Power Out) því ég get ekki beðið eftir nýja frá Arcade Fire!

2. Í dag voru 840 færslur á Topp fimm. Í tilefni af því fáum við þrjú random lög sem saman mynda 840:

8 Tapes ‘n Tapes – Crazy Eights
4 Feist – 1, 2, 3, 4
0 Koop remixið af Zero 7 – In the Waiting Line

3. Það þarf nauðsynlega að halda upp á svona stórafmæli þannig að á morgun verður föstudagssurprise!

Tags: , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað | Comments Off

Topp 5 remix – Krissa

7.11.2008 - Kristjana


5. Kings of Convenience – I Don’t Know What I Can Save You From (Röyksopp remix)
Byrjum bara á smá rólegheitum. Gott all round. Svo minnir það mig líka á bæði systkini mín :)

4. Zero 7 – In the Waiting Line (Koop remix)
Mér finnst upprunalega lagið gott og þetta æði! Skil ekki hvernig mér tókst að láta Koop fara algjörlega framhjá mér þar til síðastliðinn vetur. Fullkomið til að skella á þegar maður er að hafa sig til fyrir föstudagskvöldið ;)

3. Klaxons – Atlantis to Interzone (Crystal Castles remix)
Kristín á það víst til að hækka borðið sitt í vinnunni og standa þegar hún forritar. Þá kemur það líka stundum fyrir að hún fer að dilla sér við tónlistina. Þetta er pottþétt eitt af lögunum sem verður til þess að hún hækkar borðið! Engan veginn hægt að sitja kyrr þegar maður hlustar á þetta.

2. Yelle – À Cause des Garcons (Tepr remix)
Horfið bara á videoið! Þarfnast ekki frekari rökstuðnings ;)

1. Death From Above 1979 – Blood On Our Hands (Justice remix)
Föstudagslag!

Tags: , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Listar | 2 athugasemdir »

Sumar sumar – Koop og Yila

23.4.2008 - Kristín Gróa

Ég veit ekki afhverju svíarnir í Koop hafa farið svona algjörlega framhjá mér en um daginn heyrði ég lag með þeim á notuðu-fata-búðar-myspace-i hérna og daginn eftir heyrði ég sama lagið í bókabúð. Þetta var, nota bene, þegar hér var ennþá skítakuldi og rok og því engan veginn við hæfi þar sem mér finnst þetta meira vera sumartónlist par excellence.

Í dag rölti ég svo út í búð í pilsi, stuttermabol og flip flops…og varð ALLTOF heitt! Það þykir mér ótvíræð sönnun þess að sumarið er komið og tel því við hæfi að skella inn smá sumardóti. Núna er nefnilega tilvalið að hlusta aðeins á þessu hressu dúdda!

Við sjáum myndband…

Koop – Koop Island Blues [mp3]

Koop (feat. Yukimi Nagano) – Summer Sun [mp3]

Koop – Come to Me [mp3]

Koop á myspace

Svo er þetta lag líka búið að koma ansi oft upp hjá mér undanfarið en ég get bara engan veginn munað hvar ég fékk það, hvenær eða hvernig! Hvað er það? Ég semsagt veit alltof lítið annað en það að skemmtilegt og breskt er það :)

Ooog annað myndband…

Yila (feat. Scroobius Pip) – Astronaut [mp3]

Yila.co.uk

Blogged with the Flock Browser

Tags: , ,
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

June  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin