Topp 5 óhefðbundin hljóðfæri sem mig langar að kunna á – Georg Atli

25.3.2011 - Georg Atli

Það eru alveg fuuuuullt af hljóðfærum sem að mig langar til að kunna á. Það er nefnilega þannig að ég kann ekkert á neitt hljóðfæri (fyrir utan það að ég kann að spila lagstúfinn “Góða Mamma” á þó nokkur hljóðfæri, er samt ekki viss um að það telji í margar FÍH einingar…). Hérna kemur svo listinn yfir þau óhefðbundnu hljóðfæri sem að mig langar til að kunna á.

5. Tesla Coils

Set þetta í fimmtasætið af því að þetta er ekki alveg hljóðfæri og það væri líklega vonlaust að spila eða æfa sig eitthvað á þetta heima hjá sér… en það væri samt awesome!

4. Gler orgel (glass harmonica)

Sá þetta fyrst um daginn. Benjamin Franklin fann þetta víst upp eftir að hafa dregið fingurinn eftir glasabarmi. Langar mest til að kunna á þetta af því að það lítur bara svo vel út… mjög fikt vænt amk.

3. Sög

Þið tryðuð aldrei hversu margar ógeðismyndir ég þyrfti að skrolla í gegnum til að finna þessa (helvítis bíómyndir!)

Ég hef alltaf verið sökker fyrir strengjahljóðfærum (sérstaklega selló) og finnst hljómurinn í söginni minna mig á strengina. Mér hefur líka alltaf fundist það ótrúlega mikill hyskisbragur á því að spila á sög (á góðann/skemmtilegann hátt samt) þangað til að ég heyrði í Nina Nastasia.

Lag: Nina Nastasia – Ocean

2. Stylophone

Youtube bandið Brett Domino trio seldi mér þetta hljóðfæri.

1. Theremin

Mér finnst þetta hljóðfæri vera algjör snilld. Maður kemur ekki við neitt, bara stingur í samband og er nálægt hljóðfærinu sínu! Þeramín er um það bil búið til út 2 loftnetum og 1 hátalara og það eru samt alveg alvöru tónlistarmenn sem að hafa notað það í lögin sín m.a. Portishead (Adrian Utley notaði reyndar bara Þeramín hljóð… en það telur samt samt) og Led Zeppelin. Frægast er samt líklega þetta lag með The Beach Boys.

Lag: Portishead – Mysterons

Tags: , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off

NÝTTNÝTTNÝTT!!!

1.11.2009 - Georg Atli

Jájájájá…. allt að gerast bara, af því að við erum búin að vera svo dugleg að skrifa í Sarpinn (sem verður fastur á þriðjudögum hér eftir) ætlum við að byrja með svona smá nýtt á móti honum. Í hverjum mánuði verður valin plata mánaðarins og hún kynnt svona þokkalega fyrir ykkur (vonandi). Þetta verður svona nýtt/nýlegt efni, en við ætlum að leyfa okkur að hafa þessi hugtök soldið teygjanleg þannig að enginn má verða brjálaður ef að platan sem við veljum er ekki alveg glæný! Planið er sem sagt að velja einhverja plötu og koma með smá kynningu í byrjun mánaðar og svo kæmi nýtt lag af plötunni í hverri viku eftir það og kannski einhver smá meiri umfjöllun… ef við nennum.

Það má alveg endilega senda inn tilnefningar um plötur í bæði Sarpinn og Plötu mánaðarins, en ég ætla ekkert að lofa því að við veljum það… eins má alveg ennþá senda inn hugmyndir um nýja lista… en allavega þá er fyrsta plata mánaðarins….


Girls – Album

Mér finnst þessi hljómsveit óþolandi!

Nafnið á bandinu er óþolandi Nafnið á plötunni er fáránlega óþolandi! Hæpið sem fylgir þessari hljómsveit er mest óþolandi, prufiði bara að googla hana, 94 milljón hits, ok ég átta mig alveg á því að það er hellingur þarna sem hefur nákvæmlega ekkert með bandið að gera en common það eru fleirri hit en Bítlarnir og Led Zeppelin til samans (það er satt, prufiði bara), og Pitchfork valdi Girls á lista með 500 bestu lögum áratugarins (sæti 383) áður en platan kom út. En mest af öllu finnst mér óþolandi hvað þrátt fyrir það hvað þetta er eitthvað kjánaleg hljómsveit þá er hún geðveikt góð!!! Þetta er ein af þessum plötum sem eiga eftir að verða allstaðar þegar árslistarnir birtast og á það algerlega skilið.

ó já, platan kemur út hjá True Panther, sem Matador á, og opnunarsíðan (fyrsti glugginn) þeirra er líklega mest óþolandi.

Aðal maðurinn í bandinu heitir Christopher Owens (það er þessi í Suede bolnum)og hann er svona gaur sem á annað hvort eftir að verða svona legendary cult hetja í músik eða brenna upp og enginn á eftir að muna eftir honum eftir 2 ár… ég held þetta fyrsta, þó það sé ekki nema bara útaf sögunni hans. Hann ólst upp í svona klikk amerískum sértrúarsöfnuði, sem heitir Children of God (í alvöru, hann heitir það) og þegar að söfnuðurinn neitaði að leyfa foreldrum hans að fara og sækja sér læknishjálpar fyrir eldri bróðir hans (sem dó) þá stakk pabbi hans af. Þetta varð til þess að þau mamma hans voru næstum útskúfuð úr hópnum og þurftu að búa á götunni (en samt innan samfélagsins) og yfirmenn hópsins þvinguðu mömmuna til að selja sig. Christopher stakk af 16 ára og var útigangsmaður þangað til að milljónamæringur frá Texas fann hann og tók hann undir sinn verndarvæng (án djóks!). Þá hittir Christopher, Chet ‘JR’ White og þeir verða vinir, taka ótrúlega mikið magn af pillum og öðru dópi og búa til þess plötu… sem heitir þessu svaka frumlega nafni: ‘Album’.
En eins og ég sagði þá er platan alveg frábær. Hún angar af sumri og stuði (orðaleikur) alveg langar leiðir og það er ekki hægt að hlusta á hana og fá ekki amk 2 lög brennd inní heilann. Þetta eru einfaldir textar og melódíurnar er svona lo-fi indie pop/rock. Ég þykist heyra áhrif frá Spiritualized (einni af mínum uppáhalds) og Grizzly Bear og Ariel Pink og meira að segja pínu Buddy Holly. En þó að þetta sé svona mikið stuð og partý þá er samt einhver drungi yfir þess öllu (kannski ekki annað hægt?) en samt svona jákvæðnis drungi, eins og “allt var einu sinni alveg ömurlegt og ég er ekki alveg kominn yfir það en það er eitthvað miklu betra að taka við núna”- stemmning!? Eini gallinn við þessa plötu sem ég get bent á er að lögin eru öll rosalega ólík. Þetta er svona eins og ekkert sérstaklega hreinn heitur pottur, það er allskonar drasl í honum sem þú veist kannski ekkert endilega afhverju það er þarna, en hann er samt heitur og notalegur… en einhvern veginn er það samt einn af kostunum við plötuna.

Ég ætla að setja fyrstu smáskífuna af plötunni hérna fyrir neðan. Frábært lag sem er frekar rólegt í byrjun og gírast svo aðeins upp í lokin, og svo samkvæmt planinu kemur annað lag í næstu viku og svo framvegis þangað til í desember þegar að það kemur ný plata.


Girls – Hellhole Ratrace

og líka vídjó.

Georg Atli

Tags: , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Plata mánaðarins | Comments Off

Sarpurinn

22.9.2009 - Georg Atli

Duran Duran – Thank You


Platan í dag er ansi sérstök, þessi plata er cover plata þar sem Duran Duran ætlaði að þakka (eins og nafnið gefur til kynna) listamönnum fyrir að hafa haft áhrif á sig og tónlistina sína. Þeir sögðu einhvern tímann að ef ekki hefði verið fyrir þessi lög þá hefði aldrei orðið neitt Duran Duran. Thank you kom út á eftir plötunni Duran Duran, eða brúðkaups plötunni, sem seldist í bílförmum og þótti nokkuð góð. John Jones (sem vann hjá/með George Martin og hefur unnið m.a. með Alice Cooper, Rolling Stones, Mark Knopfler, Paul McCartney og miklu fleirri stórum nöfnum) var fenginn til að stjórna upptökunum og var þess vegna mikil eftir vænting eftir þessari plötu.. Duran Duran piltarnir tóku upp plötuna á rúmum 2 árum, samhliða því sem þeir voru á tónleikaferð en misstu áhugan á henni og tókst einhvernveginn næstum því að drepa niður allt “buzz” í kringum plötuna. Síðan þegar hún loksins kom út nenntu þeir ekki að kynna hana né fara i tónleikaferð en voru skikkaðir í það að útgáfufyrirtækinu. Plata fékk lélega dóma og lélegar undirtektir af öllum… nema listamönnunum sem Duran Duran coveruðu á plötunni, þeim fannst flestum þetta vera voða flott!

Platan er full af allskonar skrítnum lagavalkostum (ég varð bara að birta lagalistann hérna fyrir neðan… ótrúlega gott stöff!), mér finnst það t.d. í besta falli fáránlegt að hlusta á Duran Duran blúscoverið af “911 is a Joke” með Public Enemy og titillaginu “Thank You” eftir Led Zeppelin….

En þeim tekst líka nokkuð vel upp, ekki oft en útgáfurnar af “Perfect Day” og White Lines” (Grandmaster Flash er með þeim í laginu) eru bara nokkuð flottar. Lou Reed segir meira að segja að Duran Duran útgáfan sé sú besta sem hann hefur heyrt af laginu sínu!!!

Og síðan eru lög eins og “Lay Lady Lay” sem er eins venjulegt og lag getur orðið, hundrað svona útgáfur til, inn á milli þannig að platan verður hvorki flott cover plata né léleg/fyndinn cover plata, bara eitthvað svona á milli en samt alls ekki miðlungs plata einhvernveginn…. Hjá mér er þessi plata eiginlega svona guilty pleasure.

Lagalistinn (og upphaflegir flytjendur inní sviga)

  1. White Lines (Grandmaster Flash)
  2. I Wanna Take You Higher (Sly & The Family Stone)
  3. Perfect Day (Lou Reed)
  4. Watching the Detectives (Elvis Costello)
  5. Lay Lady Lay (Bob Dylan)
  6. 911 is a Joke (Public Enemy)
  7. Success (Iggy Pop)
  8. Crystal Ship (The Doors)
  9. Ball of Confusion (The Temptations)
  10. Thank You (Led Zeppelin)
  11. Drive By (Duran Duran)
  12. I Wanna Take You Higher Again (Sly & the Family Stone)

Tags: , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Sarpurinn | Comments Off

Dónverk – Unnur Birna

6.3.2009 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn


Girl – The Beatles


Prúðu drengirnir frá Liverpool eru ekki allir þar sem þeir eru séðir. Í bakröddum endurtaka Harrison og McCartney “tit” á meðan fólk heldur að þeir syngi eitthvað annað og/eða saklausara…

Energi og trú – Stuðmenn


Jább. They know how to do it.

Whole Lotta Love – Led Zeppelin

Ég hef sett mér að reyna að hljóma einsog gítarinn á hápunktum.


Hyper Music – Muse


Pínu rude. En það hafa komið móment þar sem maður hefur viljað blasta þetta lag. Í fyrndinni sko.

Dalvísa – Jónas Hallgrímsson


Ég komst að því eftir að hafa verið að spila og syngja þetta lag, að það hljómar svolítið einsog dulbúin klámvísa. “Grösug hlíð með berjalautum”, “Glúfrabúi – hvítur foss”.
Enn fleiri myndlíkingar en í Hafið bláa hafið.
Dæmið fyrir ykkur sjálf. Mjög falleg vísa og lýsir umhverfi Hrauns í Öxnadal. Og e.t.v. einhvers fleira.

Tags: , , , ,
Flokkað undir Listar | Comments Off

Ástarhaf – Georg Atli

17.2.2009 - Georg Atli

Ég hef rosalega gaman af coverlögum og eftir að hafa sett Sea of Love í flutningi Tom Waits inn á síðasta lista kynnti ég mér aðeins nokkrar útgáfur af laginu. Það hafa reyndar rosalega margir listamenn tekið lagið (m.a. Iggy Pop, ef einhver á þá útgáfu þá má hann endilega hafa samband mig langar mikið að heyra hana) en hér koma nokkrir helstu…

The Honeydrippers

Hér er það enginn annar en Robert Plant sem coverar. Lagið er tekið af plötunni ‘The Honeydrippers, vol. 1’ með samnefndri hljómsveit sem var hliðarverkefni Plants. Gaman að benda á að þetta lag fór hærra á billboardlistanum en vinsælasta lag Led Zeppelin. Ótrúlega margir frægir listamenn spila á plötunni (m.a. Jeff Beck, Robert Plant og m.a.s. Paul Schaffer!!) Hérna eru gömul ’50s og ‘60s R&B lög tekin fyrir, mjög skemmtilegt.

Israel Kamakawiwo’ole

Snillingur frá Hawaii, dó árið 1997 38 ára gamall úr offitu. Eins sorglegt og það er þá er lagið stórskemmtilegt og hér spilar ukulele-ið stórt hlutverk (sem er alltaf hressandi). Allir ættu að þekkja hans túlkun á ‘Over the Rainbow’.

Cat Power

Chan Marshall hægir á laginu og það verður tregafullt og einlægt. Flott útgáfa af ‘The Covers Record’ en var líka í myndinni Juno.

Phil Phillips

Hér kemur svo orginallinn. Lagið var samið og fyrst spilað inn á plötu af Phil Phillips… veit svo sem ekkert meir um hann.

Tags: , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Óflokkað | 1 athugasemd »

Topp5… Pulsur – Georg Atli

16.1.2009 - Georg Atli

Matur er Matur er Pylsa??

Pulsulistinn

1. Prefab Sprout – The King of Rock and Roll

Hot dog, jumping frog, Albuquerque… meikar sense… eða ekki… eða bara alls ekki. Tékkiði endilega á textanum

2. David Lee Roth – Hot Dog and a Shake

I’m more that just a victim
of a hungry heart
kiss me quick
I’m double- parked

David Lee Roth er svangur og er að flýta sér…

3. Led Zeppelin – Hot Dog

Pulsa?

4. Captain Beefheart and The Magic Band – Tropical Hot Dog Night

Kafteinninn er alltaf jafn óræður, tvíræður og margræður…

5. NOFX – Hot Dog In A Hallway

Gæjarnir í NOFX eru það sem er oft kallað ,,chubby chasers” :-)

Áhugavert hvað pylsur virðast vera undarlega ofarlega í huga ólíkra tónlistarmanna og líka merkilegt að þetta er alls ekki tæmandi listi yfir pylsu/pulsu tengd lög….

p.s. hendi vídjó-linkum út og laga-linkum inn við tækifæri/nennu

Tags: , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off

Kreppulög – zvenni

10.10.2008 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn

A little lost – Jens Lekman
Soldið týnd þessa dagana.

The good times are killing me – Modest Mouse
Sona fer góðærið með mann, allt til helvítis….

Everybody’s Gotta Learn Sometimes – Beck
Fylleríið búið, kominn tími á þynnkubömmer og lærdóm.

Good Times, Bad Times – Led Zeppelin
góðæri, kreppa, við lifum þetta af…

The Times They Are A-Changing – Bob Dylan
Máski tími til að fara að líta inn á við, og sjá hvað má finna þar?

Tags: , , , ,
Flokkað undir Listar | 1 athugasemd »

topp fimm dýralög – zvenni

13.6.2008 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn

Hundar

Black Dog – Led Zeppelin
of langt síðan voff og vól…

Rain Dogs – Tom Waits

Blautur hundur busslandi í vatni og víni…

Thirsty Dog – Nick Cave & the Bad Seeds

Afsakanir og eftirsjá í þyrsta hundinum…

Wild Packs Of Family Dogs – Modest Mouse

Gengi strokuheimilishunda æðir um ruplandi og rænandi…

bob hunds 115:e dröm – bob hund

…og hundinn dreymir og dreymir.

Tags: , , , ,
Flokkað undir Listar | Comments Off

Topp 5 byrjunarlög – Vignir

17.5.2008 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn

5. Okkervil River- Our Life is Not a Movie or Maybe
Gott byrjunarlag þarf að grípa mann dálítið og gefa manni hugmynd um hvað maður á í væntum. Þetta lag nær að uppfylla það allt saman. Virkilega flott lag sem kemur manni meira og meira í gírinn fyrir plötuna. Textinn er alveg frábær og söguframsetningin er sterkasta spilið þar. Þegar komið er á 1:43 og Will Sheff öskrar “Hey! I’d watch it!” þá er maður búinn að kokgleypa þetta.

4. The Knife – Silent Shout
Silent Shout er alveg rosalega þétt plata með sinn eigin heim. Maður fær hálfgerða innilokunarkennd á því að hlusta á hana. Það er því mjög vandvirkt að koma manni inn í svona heim og verður byrjunarlagið því að hleypa manni inn í heiminn. Það er einmitt sem að þetta lag gerir. Maður eltir melódíuna í gegnum spegilinn.

3. Radiohead – Everything in its Right Place
Þegar Radiohead gáfu út Kid A var hemurinn búinn að bíða í ofvæni. Seinasta plata þeirra, OK Computer, var búin að skilgreina hvernig rokk yrði næsta áratuginn og sögur um nýtt sánd voru búnar að ganga um. Þegar maður fekk loksins plötuna í hendurnar og setti hana í, þá lét fyrsta lagið mann alveg vita að þetta væri ekki sama hljómsveit og maður hafði þekkt hingað til. Engin gítar heyrðist(reyndar ekki fyrr en í fjórða lagi) , rödd Thom Yorke effektuð í tætlur og það heyrðist ekki einu sinni í trommum. Þegar maður var búinn að venjast þessu nýja sándi komst maður að því að þetta væri bara alveg heví góð plata.

2. Led Zeppelin – Good Times, Bad Times
Ekki bara frábært byrjunarlag, heldur líka byrjunarlag einna bestu hljómsveitar allra tíma. Frábært riff byrjar lagið og trommusláttur Bonham keyrir mann inn í nýjan rokkheim, fullan af álfum, svikulum konum og alvöru rokki.

1. Black Sabbath – Black Sabbath
Ekki bara frábært byrjunarlag og ekki bara frábært byrjunarlag hljómsveitar heldur frábært byrjunarlag heillar tónlistarstefnu. Black Sabbath setti saman alla réttu íhlutina og bræddi þá saman og hamraði saman fyrsta alvöru þungmetalinn.

Tags: , , , , , , ,
Flokkað undir Listar | Comments Off

Góð lög með listamönnum sem ég fíla ekki – Zvenni

15.2.2008 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn

Stay (far away, so close) – U2
Á afar erfitt með Bono og U2 en þetta lag finnst mér í alvörunni gott og afar feginn að hafa uppgötvað það. Það er bara svo rosalega mikið af fólki sem dýrkar þetta band og í stað þess að lýsa yfir fyrirlitningu minni er U2 ber upp á góma get ég samviskusamlega haldið því fram að umrætt lag sé uppáhaldslagið mitt með þeim. Allir eru sáttir og ég skipti um umræðuefni.

I´m on fire – Bruce Springsteen.
Er í raun ekkert svakalega á móti Bruce Springsteen en hann hefur oft náð að fara í taugarnar á mér. Springsteen er hvíta karlmannlega verkalýðshetja Bandaríkjanna, soldill Rocky karakter, einfaldur og einlægur… svona eins og Bubbi. En í þessu lagi er hann bara fínn. Enginn hasar, saxasóló eða áberandi E-götugengislæti. Bara rólegt og fínt lag sem fær að njóta sín.

Mama Said- Metallica
Fílaði þá er ég var 14 ára þ.e. eina diskinn sem ég átti með þeim. Missti svo áhugann stuttu seinna og tók Zeppelin og Deep Purple fram yfir. Heyrði svo þetta lag einhvern tímann og fannst það bara nokk gott. Virkar eflaust ömurlegt og poppað í eyrum alvöru aðdáenda sveitarinnar. Held samt að það hefði notið sín betur í flutningi einhvers annars listamanns. Það er smá sona Johnny Cash dæmi í gangi…. oki máski ekki mikið en smá, þessi eftirsjá kúrekans eða eitthvað í þeim dúr. Alla veganna þá kemst það á listann minn.

Wonderwall – Oasis
Hef aldrei fílað Oasis. Flestir í kring um mig héldu ekki slefinu upp í sér yfir þeim og fólk fékk sér “Oasis/bítlaklippingu”. Ég mótmælti með því að fara með mynd af Keith Richards til rakarans og bað um Rolling Stones klippingu og var afar sáttur við eigin óhlyðni við ráðandi tískustrauma. En auðvitað skildi enginn vísunina og ég gekk undir nafninu Tina Turner í langann tíma sem bætti ekki álitt mitt á Oasis. Katsí hljómaröð með bítlavísunum (Gonna start a revolution from my bed) og handahófskenndum klisjum (where were you while we were getting high?) í textagraut er ekki mín hugmynd um góða músík. Wonderwall hefur vissulega þessi einkenni en máski vegna þess að ég geri í raun ekki mikla kröfur til bandsins er mér hætt að líka ílla við lagið. Af og til sleppa þægileg singalong lög í gegn (máski ellimerki) en það er bara allt í lagi, þ.e. ef það er bara einstaka sinnum.

Knowing me, knowing you – Evan Dando (Abba)
Abba er eitt af fáu böndunum sem ég fíla bara alls ekki og vil helst ekki þurfa að hlusta á. Knowing Me, Knowing You hefur aldrei gripið mig og ég aðeins álitið það eitt af mörgum leiðinlegum Abba lögum. En svo heyrði ég Evan Dando taka það og lagið var bara ansi gott. Ég taldi mér trú um að það væri Dando-ið sem væri að grípa en þegar lagið spilast í hausnum á mér þá er það ekki Dando útgáfan sem hljómar og það hræðir mig. Ég er ekki enn tilbúinn að viðurkenna almennilega Abba hlutann í laginu svo hér hljómar Dando. Ég veit að þetta er soldið svindl en ég er bara ekki að höndla að takast meira á við fordóma mína í bili. Þetta er alla veganna byrjun.

Tags: , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Listar | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin