Íslenskur vínylmarkaður á Kexinu!

22.11.2012 - Georg Atli

Íslensk vínyl útgáfa stendur í miklum blóma þessi misserin enda er fátt eigulegra en góð (íslensk) tónlist á vínylplötu. Titlarnir hrúgast út í búðirnar í allskonar útgáfum, litaðar plötur, númeraðar plötur tvöfaldar plötur, 10″ plötur og allskonar margt fleira. Þess vegna er mér sérstaklega gleðilegt að birta þessa tilkynningu sem við fengum um Íslenskan vínyl markað semverður á Kex hostel á laugardag. Það Snorri Helgason sem stendur á bak við þetta skemmtilega framtak og þú getur (ef þú ert tónlistarmaður með “brakandi ferskan vínyl í pokahorninu”) meira að segja fengið að vera með, sendu bara póst á Snorra Helgason

Þeir sem ætla að vera með eru (ekki tæmandi listi því að það er alltaf að bætast nöfn við, best að fylgjast með á facebook):

Snorri Helgason, Borko, Tilbury, Retro Stefson, Ojba Rasta, Múm, Ásgeir Trausti, Ólöf Arnalds, Sin Fang, Legend, The Heavy Experience, Prinspóló, Hjálmar, Sigurður Guðmundsson og Memfismafían, Of Monsters and Men, For a Minor Reflection, Moses Hightower, Kira Kira, Valdimar, Berndsen og Lay Low.

Markaðurinn verður á Kex hostel á laugardaginn á milli 13 og 17 og það verður meira að segja lifandi tónlist líka! Hér er event-inn aftur.

Þangað til getið fengiuð smá innsýn inn í plötusafn Cut Chemist (Ozomatli, Jurassic 5)

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning | Comments Off

Tónleikar, tónleikar!

6.7.2012 - Georg Atli

Við erum búin að vera að fylla inn í tónleikadagatalið okkar og það á án efa fullt eftir að bætast við svo að það er snjallt að fylgjast með ef þið viljið ekki missa af!

En í kvöld er fullt að gerast og við mælum sérstaklega með tónleikum annars vegar á Dillon og svo á Faktorý í kvöld.

Á Dillon verða Gang Related að spila og með þeim verður tónlistarmaðurinn Nike (Andri Ásgrímsson úr Náttfara). Þeir tónleikar hefjast kl. 22:05 og það er frítt inn. Tjékkiði á KEXP tónleikunum þeirra frá 2011 til upphitunar.

Legend halda síðan síðbúna útgáfutónleika á Faktorý. Tónleikar hefjast kl. 23:00, 1000 kall inn og það verða allskonar tilboð á Legend varningi!

Tags: , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

Reykjavík Music Mess meðmæli #2 – Legend

23.5.2012 - Kristjana

Legend er dúett skipaður ekki ómerkari mönnum en Krumma Björgvinssyni og hljómborðsleikaranum Halldóri Björnssyni. Þeir Krummi og Halldór hafa lengi verið vinir og hafa verið að gera tónlist sitt í hvoru lagi í næstum 20 ár.

Þeir deila áhuga á elektrónísku goth poppi hljómsveita eins og Depeche Mode, Ministry, Bauhaus og Throbbing Gristle og tónlist Legend er í svipuðum dúr.

Spurningarnar 5

Legend voru svo vingjarnlegir að svara spurningunum okkar 5:

Hverjir eru stærstu áhrifavaldarnir ykkar?

“Fyrir þetta samstarf þá er það aðallega iðnaðarrokk frá áttatíu áratugnum. Mikill drif bassi og gamlir hljóðgervlar. Allt soldið ljúfsárt og kuldalegt.”

Hvað er næst á dagskrá hjá ykkur eftir RvkMM?

“Við erum að koma mikið fram og fylgja plötunni okkar, Fearless, eftir. Við erum að spila á tónlisthátið í Keflavík í næsta mánuði. Útgáfutónleikar í bígerð. Við erum bókaðir á Lunga á Seyðisfirði síðan er það Akureyri í Sept og fullt meira. Við erum með 3 tónlistamyndbönd á klippiborðinu, þannig að í sumar munu nokkur af þeim líta dagsins ljós.”

Með hverju mælið þið á RvkMM?

“Við mælum með því að þú reynir að sjá sitt hvor af öllu. Þetta eru allt frábærir listamenn sem koma þarna fram! En það má alls ekki missa af okkur ;-)

Bestu tónleikar sem þú/þíð hafið haldið?

“Okkur leið gríðarlega vel að spila á síðustu Airwaves hátið. Það voru vel heppnaðir tónleikar!”

Á hvað eruð þið að hlusta á núna?

Killing Joke – Discography, The Germs- The Complete Anthology, Gatekeeper – GIZA Ep, Nitzer Ebb – Showtime.”

Hvar og hvenær?

Legend spila á Reykjavík Music Mess aðfararnótt laugardags kl. 02:00 á Faktorý. Enn er hægt að nálgast einhverja miða á midi.is.

Hægt er að nálgast plötu Legend, Fearless, hjá vinum okkar gogoyoko.

Tags: , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað | Comments Off

Reykjavík Music Mess haldin í annað sinn

27.4.2012 - Kristjana

Tónlistarhátíðin Reykjavík Music Mess verður haldin í annað sinn helgina 25. til 27. maí næstkomandi. Hátíðin mun fara fram á Faktorý Bar og Kex Hosteli. Meðal þeirra sem munu koma fram á hátíðinni eru Benni Hemm Hemm, Snorri Helgason, Jarse (FI), My Bubba & Mi (DK), Cheek Mountain Thief (UK/IS), Legend, Úlfur og fleiri. Tilkynnt verður um endanlega dagskrá og uppröðun þann 4. maí.

Reykjavík Music Mess var haldin í fyrsta sinn síðasta vor og komu þá fram meðal annars Deerhunter, Mugison, Lower Dens, Sin Fang og Nive Nielsen.

Miðasala á hátíðina hefst föstudaginn 4. maí og mun hún fara fram á www.midi.is. Frítt verður inn á þá viðburði sem haldnir verða á Kex Hosteli.

Tags: , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Tilkynning | Comments Off

LEGEND á Hressó – styrktartónleikaröð gogoyoko og Hressó

18.4.2012 - Kristjana

Hressó og gogoyoko hafa startað nýrri tónleikaröð fyrir þá sem vilja láta gott af sér leiða. Hljómsveitin sem fram kemur hverju sinni velur sér málefni til að styrkja og verða tónleikagestir hvattir til þess að leggja málefninu lið með frjálsum framlögum, en frítt verður inn. Auk þess hafa gogoyoko og Hressó fengið 10 fyrirtæki með sér í lið sem, hvert um sig, munu leggja fram 50 þúsund krónur í söfnunina.

Tónleikaröðin hófst síðasta fimmtudag. Þá komu fram þau Elín Ey, Daníel Jón og Ylfa Marín en þau söfnuðu fyrir Médecins sans frontières eða Lækna án landamæra.

Annað kvöldið verður svo haldið á morgun, fimmtudaginn 19. apríl. Í þetta skiptið mun LEGEND mæta á Hressó og spila til styrktar Samhjálp.

LEGEND

LEGEND er skipuð þeim Krumma Björgvinssyni og Halldóri Á. Björnssyni en þeir hafa áður starfað saman í hljómsveitinni Esju. Legend varð til árið 2009 og heitir í höfuðið á samnefndri ævintýramynd Ridley Scott frá árinu 1985.

LEGEND sendu nýverið frá sér sína fyrstu breiðskífu, Fearless, sem trónir nú efst á vinsældarlista gogoyoko.com. Á Fearless má heyra drungalegt norrænt rafpopp í anda Depeche Mode, Bauhaus og The Knife.

Svo er hægt að plana fram í tímann – því þetta eru þeir sem fram munu koma á styrktartónleikunum:

12. apríl – Elín Ey og Day (Daníel Jón og Ylfa Marín)
19. apríl – LEGEND
26. apríl – Ljósvaki, M-Band og ReTroBot
3. maí – Kiriyama Family
10. maí – Snorri Helgason
17. maí – For a Minor Reflection
24. maí – Eldar
31. maí – Kynnt síðar

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Tónleikar | Comments Off

Tónleikar með Legend

11.5.2011 - Georg Atli

Við fengum póst um ókeypis tónleika á föstudaginn.

Tuborg og Bar 11 hafa tekið höndum saman og halda að bjóða til tónlistarveislu á Bar 11 í allt sumar. Það verður frítt inn á alla tónleikana og sá græni verður auðvitað á vinalegu verði á barnum.

Það verður boðið uppá allt það besta í íslensku tónlistarlífi í allt sumar!!

Það er LEGEND sem ríður á vaðið föstudagskvöldið 13. maí.

LEGEND er samstarfsverkefni vinanna Krumma Björgvinssonar (Mínus, Esja) og Halldórs Björnssonar (Esja).
Það var sameiginlegur áhugi þeirra á rafrænni tónlist sem að leiddi þá félaga saman og þegar þeir gerðu sér grein fyrir því að samstarfið yrði meira en tilraunin ein tóku þeir sér nafnið LEGEND sem vísar í fræga mynd Ridley Scott um baráttu ljóss og skugga.
Legend hafa þegar sent frá sér 2 lög “Devil In Me” og “Sister” sem bæði hafa komist ofarlega á vinsældarlista X-977 og von er á fyrstu plötu sveitarinnar í sumar.

Hvar: Bar 11. Hverfisgötu 18.
Hvenær: föstudagskvöldið 13. maí. Húsið opnar kl 21:00!
Hvað kostar: Frítt inn!

Sister by Legend band

Fariði svo á Soundcloudið hjá LEGEND og hlustiði á fleirri lög.

Tags: , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

X-977 og Tuborg kynna: Mars Attack, tveggja daga tónlistarveislu á Sódómu Reykjavík helgina 11. -12. mars

9.3.2011 - Georg Atli

Við fengum auglýsingu um “tónlistarveislu” á Sódómu um helgina:

Í þessum harðasta mánuði ársins, þegar þykkur snjórinn liggur yfir mannabyggðum hér nyðra og sálartetrin þrá hita og félagsskap, er oft nauðsynlegt að gera sér ærlegan dagamun.
Maður er manns gaman, er oft sagt og fáum líður betur en í góðum félagsskap með drykk í hönd og góða músík sem kitlar skilningarvitin. Með þessum formerkjum kynnum við tveggja daga tónlistarveislu með flestum af frambærilegustu hljómsveitum landsins.

Cliff Clavin
Valdimar
Jónas Sigurðsson og Ritvélar Framtíðarinnar
Insol
Legend
Noise
XIII
Endless Dark
Reason to Believe
Benny Crespo’s Gang
Vicky
Blaz Roca
Sing For Me Sandra

Miðaverð í forsölu er fáránlegt 1500 krónur armbandið sem gildir á báða dagana !!! Sá græni verður auðvitað á sérstöku Mars Attack tilboði, aðeins 500kr! Skot á 500kr og 10 bjóra kort á 4500kr.
Miðasala fer fram í Levi´s Smárlind og Kringlunni.
Xið 977 og Tuborg það er alveg málið….

Nánar á http://www.sodoma.is

Hlustum á lag ársins til að komast í gírinn.

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Tags: , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin