Tónleikasamantektin
11.5.2011 - Kristín Gróa
Það er ekki jafn rosalegt framboð af tónleikum og um síðustu helgi en það er samt fullt skemmtilegt í gangi! Ef við erum að missa af einhverju þá megið þið endilega láta okkur vita.
Miðvikudagur
Á Rósenberg verður léttur djazz og blús en þar mun nýskipað og (að okkur vitandi) ónefnt tríó koma fram. Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og það kostar 1000 krónur inn. Sjá nánar hér.
Fimmtudagur
Á Rósenberg spilar dúettinn MoR en hann samanstendur af Margréti Eir og Róberti Thórhallssyni. Tónleikarnir hefjast kl. 21:30. Sjá nánar hér.
Á Dillon verða styrktartónleikar en hljómsveitin Morning After Youth er að vinna að sinni fyrstu plötu og vantar smá aur. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það kostar litlar 500 krónur inn. Sjá nánar hér.
Föstudagur
Á Rósenberg ætlar hljómsveitin Árstíðir að spila efni af væntanlegri plötu í bland við eldra efni. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það kostar 1500 krónur inn. Sjá nánar hér.
Á Dillon spila hljómsveitirnar Caterpillarmen, Bob og Coral. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það kostar ekkert inn. Sjá nánar hér.
Á Faktorý ætlar hljómsveitin XIII að spila plötuna SALT í heild sinni. Einnig koma fram In Memoriam og Hoffman. Tónleikarnir hefjast á miðnætti og það kostar 1000 krónur inn. Sjá nánar hér.
Laugardagur
Á Dillon verður Proggóvisjón fyrir þá sem hafa ekkert gaman að júróvisjón en þar koma fram Murrk, Postartica og Draumhvörf. Tónleikarnir hefjast kl. 10:00 og það kostar ekkert inn. Sjá nánar hér.
Á Faktorý verður kanilkvöld #3. Hefst kl. 23:30 og það kostar ekkert inn. Sjá nánar hér.
Á NASA verður mikil júró gleði en þar verður Eurovision partý Páls Óskars með fullt af júró hetjum. Húsið er opið frá 00:00 – 05:00. Það kostar 2000 krónur í forsölu á midi.is en 2500 krónur við dyrnar. Sjá nánar hér.
Ef þig langar í algjört mótvægi við júróbrjálæðið verður opið hús í Hörpu allan daginn. Húsið opnar á laugardagsmorgun kl. 11 í tveimur minni tónleikasölunum, Norðurljósum og Kaldalóni. Þar koma fram Karlakórinn Fóstbræður, Gissur Páll Gissurarson, Kammersveit Reykjavíkur, Ólafur Arnalds, Caput-hópurinn, kór Íslensku óperunnar, Kristinn H. Árnason, Björn Thoroddsen og Kazumi Watanabe og tríó Tómasar R. Einarssonar.
Á laugardagskvöld kl. 20:00 byrja svo tónleikar í Silfurbergi, næststærsta sal Hörpunnar. Þar munu koma fram Apparat Organ Quartet, Mammút, Agent Fresco, Valdimar, Hjaltalín, Jónas Sigurðsson og ritvélar framtíðarinnar, Lights on the Highway og HAM. Ókeypis er á alla tónleika í Hörpunni á laugardag.
Sunnudagur
Í Merkigili á Eyrarbakka koma söngvaskáldin Uni og Jón Tryggvi sem hluti af menningar- og bæjarhátíðinni Vor í Árborg. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 og það kostar ekkert inn. Sjá nánar hér.
Tags: Agent Fresco, Apparat Organ Quartet, Árstíðir, Björn Thoroddsen, Bob, Caput-hópurinn, Caterpillarmen, Coral, Draumhvörf, Gissur Páll Gissurarson, Ham, Hjaltalín, Hoffman, In Memoriam, Jón Tryggvi, Jónas Sigurðsson og ritvélar framtíðarinnar, Kammersveit Reykjavíkur, Karlakórinn Fóstbræður, Kazumi Watanabe, kór Íslensku óperunnar, Kristinn H. Árnason, Lights on the Highway, Mammút, MoR, Morning After Youth, Murrk, Ólafur Arnalds, Páll Óskar, Postartica, Tríó Tómasar R. Einarssonar, Uni, Valdimar, XIII
Flokkað undir Kristín Gróa, Tónleikar | Comments Off
Tónleikasamantekt *uppfært*
16.2.2011 - Georg Atli
Það er komið að samantektinni, en sökum þess að það er bara ansi mikið að gera hjá okkur núna þá erum við að setja hana saman í smá skömmtum. Þess vegna er alveg líklegt að við séum að missa af einhverju og þið verðið bara að tjékka reglulega á okkur næstu daga til að sjá hvort að þessi færsla verði ekki uppfærð (mér finnst það líklegt).
Ef þið vitið um eitthvað sem er ekki hérna inni þá er um að gera að senda okkur ábendingu um það í tölvupósti: toppfimmafostudegi[hjá]gmail.com setja comment eða bara að skella því á facebook vegginn okkar
Miðvikudagur
Í kvöld far náttúrulega allir á Faktorý að sjá myndina hans Vincent Moon. Byrjar um 21:00 og það er frítt inn!
Fimmtudagur
Í Austurbæ verða Agent Fresco með útgáfutónleika. Húsið opnar kl. 20:00 og miðaverðið er 1500 kall í forsölu en 2000 við hurð.
Prinspóló ætlar líka að vera með útgáfutónleika, þeir verða á Faktorý og byrja kl. 22:00. Einungis 1000 kr. inn.
Lights on the Highway verða á Sódómu. Tónleikarnir byrja kl. 21:00, 1000 kall inn og Arnar Ingi (The Johnny Cash Kid) sér um upphitun.
Brother Grass ætluðu svo að vera með tónleika á Rósenberg en þeim þurfti því miður að fresta þar til 8. mars.
Föstudagur
Á Sódómu verður Föstudagsgleði með Rökkurró, For a Minor Reflection, Útidúr og Lockerbie
Saytan og Nolo verða á Bakkus, tónleikarnir byrja kl. 22:00 og það kostar ekkert inn.
Two Tickets To Japan,Morgan Kane og Moy verða á Dillon. Herlegheitin byrja kl. 22:00 og eins og oftast þá kostar ekkert inn.
Laugardagur
Endless Dark verða með útgáfutónleika á Sódómu. Þarna verða tvennir tónleikar annars vegar kl. 16, þar sem að allir aldurshópar eru velkomnir og Helgi Valur spilar líka þá. Seinni tónleikarnir kl. 22:00, en þar er 18 ára aldurstakmark og þá bætist BlazRoca við flytjendur.
Mighty Good Times, Caterpillarmen og Dorian Gray spila á Dillon. Húsið opnar kl. 21:00 og það er ókeypis inn
Sunnudagur
Það verður Jazzað á Faktorý á sunnudagskvöld. Jazzkvöldið byrjar uppúr 21:00
Tags: Agent Fresco, Arnar Ingi, BlazRoca, Brother Grass, Caterpillarmen, Dorian Gray, Endless Dark, For a Minor Reflection, Helgi Valur, Lights on the Highway, Lockerbie, Mighty Good Times, Morgan Kane, Moy, Nóló, Prinspóló, Rökkurró, Saytan, Two Tickets To Japan, Útidúr
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off
Tónleika samantekt!
9.2.2011 - Georg Atli
Það er kominn miðvikudagur og það þýðir að það sé komin tími á samantekt. Fullt að gerast en af því að við erum örugglega að missa af einhverju þá biðjum við ykkur að senda okkur endilega línu um þá tónleika sem að vantar í dagatalið/smantektina okkar, þið getið gert það í comment eða skrifa á facebook-veggin okkar eða jafnvel sent okkur póst: toppfimmafostudegi@gmail.com
Við erum líka að reyna að muna að linka á facebook eventa en stundum þá er nennan takmörkuð og þá getiði alltaf ýtt á rauðu dagsetningarnar á dagatalinu til að fá frekari upplýsingar.
Miðvikudagur
Elín Ey og Johnny Stronghands verða á Boston kl. 21:00 og það kostar ekkert inn.
svo er líka Classic quiz á Faktorý… kannksi ekki alveg tónleikar en samt skemmtilegt!
Fimmtudagur
Á Sódómu verða Jimi Hendrix Project með tribute tónleika. Þeir ætla að flytja lög af helstu plötum Hendrix þannig að það verður örugglega gott. 1000 kall inn og það er enginn posi þannig að það verður bara tekið við peningum. Byrjar. kl. 21:00
Rósenberg ætlar svo áð hýsa Lights on the Highway, þeir tónleikar byrja kl. 21:00 og þar kostar líka 1000 kall inn
Á Dillon verða hljómsveitin My brother is pale og tónlistarmaðurinn Markús að spila. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og að sjálfsögðu kostar ekkert inn.
Stórmenningartónleikar kvöldsins verða svo í Háskólabíó en þar ætlar sinfóníuhljómsveitin að flytja m.a. verk eftir Richard Strauss, sem að Stanley Kubrick gerði ódauðlegt í 2001: A Space Oddysey. Tónleikarnir byrja kl. 19:30
Föstudagur
Á Bakkus verða útgáfutónleikar The Dandelion Seeds. Tónleikarnir byrja kl. 21:00, það kostar ekkert inn og hljómsveitirnar Just Another Snake Cult og Hollow Veins verða líka að spila.
Á Sódómu verða XXX Rottweilerhundar og kostar skitinn þúsundkall inn.
Á Dillon munu hljómsveitirnar Bob, Caterpillarmen og Lady in the Radiator koma fram. Frítt inn og allir velkomnir.
Svo verða styrktartónleikar á Faktorý. Þeir verða til styrktar Péturs Kristjáns sem að slasaðist í Austurríki í janúar síðastliðnum. Húsið opnar kl. 22:00 og það kostar 1000 kr. inn (má örugglega borga meira ef að maður vill!) Maður fær mikið fyrir þann pening því að Retro Stefson, Who Knew og Of Monsters and Men ætla allar að sjá til þess að engum leiðist.
Laugardagur
Techno.is heldur upp á 6 ára afmælið sitt á Faktorý og það kvöld er einmitt líka árslistakvöld. Exos, Balrock (Plugg’d), A.T.L, Invert, Richard Cuellar, Danni Bigroom og Oculus ætla að sjá um stuðið, sem að byrjar kl. 00:00.
Á Sódómu verður svo Rockabilly kvöld Glymskrattans. Þar verða hljómsveitirnar The 59′s, Langi seli & Skuggarnir og Blues Willis verða að spila og líka Arnar Ingi (The Johnny Cash Kid) og Óli Dóri verður að DJ-ast.
Tags: A.T.L., Arnar Ingi, Balrock, Blues Willis, Bob, Caterpillarmen, Danni Bigroom, Elín Ey, Exos, Hollow Veins, Invert, Jimi Hendrix Project, Johnny Stronghands, Just Another Snake Cult, Lady in the Radiator, Langi seli & Skuggarnir, Lights on the Highway, Oculus, of monsters and men, Retro Stefson, Richard Cuellar, Sinfóníuhljómsveit Íslands, The 59's, The Dandelion Seeds, Who Knew
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off
Airwaves – miðvikudagskvöld
18.10.2007 - Kristín Gróa

Ég ætlaði nú varla að nenna að drattast út úr húsi í gærkvöldi til að fara á tónleika en ég lét mig nú samt hafa það að labba niður í bæ í kuldanum. Það var í raun ekkert sérstakt sem heillaði á dagskrá Airwaves þetta kvöld en ég var einna helst spennt fyrir að sjá ungpíurnar í Smoosh svo ég skundaði niður á Austurvöll og beint inn á NASA um hálftíuleytið. Mér létti óneitanlega þegar ég sá að það var engin röð og svo voru fyrstu menn sem ég sá þarna inni góðvinir mínir þeir Davíð og Heiðar svo kvöldið byrjaði allavega vel.
Smoosh stigu á svið fljótlega eftir að ég kom inn og byrjuðu af krafti fyrir framan fullan sal af fólki. Þær eru auðvitað alveg ótrúlega góðar miðað við aldur og ég skil ekki hvernig litla systirin getur haldið á bassanum, hvað þá spilað á hann. Ég veit svo sem ekki hvort ég myndi hlaupa út og kaupa diskinn en þær eru mjög hæfileikaríkar og gætu orðið að einhverju miklu stærra með tímanum. Hvaða rugl er það líka að túra með Deerhoof og Bloc Party þegar maður er 15?
Næstir á svið voru Soundspell og ég ákvað að gefa þeim séns þrátt fyrir að lýsingin á sveitinni í Airwaves bæklingnum innihéldi orðin “Fans of Brit-pop in the style of Keane should look out”. Eftir að hafa lesið þetta var ég eiginlega búin að ákveða að þeir væru leiðinlegir en ég reyndi að hrista það af mér og hlusta með opnum hug. Ókei þeir eru bara 17-18 ára og söngvarinn var nú þokkalega góður þrátt fyrir of mikið handapat. Hinsvegar held ég að þetta hafi verið lengsti hálftími lífs míns, fullur af innantómri dramatík og klisjukenndum textum. Ef ég ætti að súmmera bandið upp væri það einhverskonar blanda af Keane, Muse, Leaves og Coldplay. Kannski eru þeir að gera þetta vel en ég er bara með ofnæmi fyrir svona tónlist svo ég er ekki dómbær. Hljómborðsleikarinn fær líka megamínus fyrir að vera með eitthvað frekjuattítjúd við hljóðmanninn… dúddi kurteisi kostar ekkert og attitjúd frá 17 ára strák er bara kjánalegt.
Eftir þetta allt saman meikaði ég ekki meira enda Lights On The Highway næstir á svið og ég hef séð þá nógu oft á einni ævi held ég.
Hvað á svo að sjá í kvöld? Það sem kemur einna helst til greina eru Jenny Wilson, Lay Low og Grizzly Bear í Listasafninu, My Summer As A Salvation Soldier og Ólöf Arnalds í Iðnó, Sprengjuhöllin og The Duke Spirit í Lídó, Best Fwends, Retro Stefson og The Teenagers á NASA eða Kimono, Skátar og Khonnor á Organ. Það er úr nógu að velja ójá.
Tags: Airwaves, Airwaves 2007, Bloc Party, Coldplay, Deerhoof, Grizzly Bear, Jenny Wilson, Keane, Khonnor, Kimono, Leaves, Lights on the Highway, Muse, My Summer as a Salvation Soldier, Ólöf Arnalds, Retro Stefson, Skátar, Smoosh, Soundspell, The Duke Spirit, The Teenagers
Flokkað undir Kristín Gróa, Óflokkað | 1 athugasemd »

