Topp 5 erlendar plötur ársins – Kristín Gróa

6.1.2012 - Kristín Gróa

Að venju eru tíu runners up í engri sérstakri röð.

Kurt Vile – Smoke Ring For My Halo
Youth Lagoon – The Year Of Hibernation
tUnE-yArDs – W H O K I L L
EMA – Past Life Martyred Saints
The War On Drugs – Slave Ambient
TV On The Radio – Nine Types Of Light
Unknown Mortal Orchestra – Unknown Mortal Orchestra
Iron & Wine – Kiss Each Other Clean
Feist – Metals
Steven Malkmus and the Jicks – Mirror Traffic

5. John Maus – We Must Become The Pitiless Sensors Of Ourselves

Þessi slapp inn á þennan lista á síðustu metrunum. Ég fékk hana í hendurnar í ágúst og gaf henni bara engan séns því þá var ég með fullar hendur af nýrri tónlist. Það er líka dálítið yfirþyrmandi að setja þessa plötu af stað í fyrsta sinn og fá yfir sig ótrúlega háværa syntha-hríðskotaárás. Ég fór hins vegar að hlusta núna í nóvember og var alveg miður mín yfir því að hafa ekki gefið þessu séns strax. Þetta er alveg frábær plata. Ótrúlega hallærislega skrítin en samt svo töff um leið. Allir þessir eitís synthar og röddin sem minnir mig á Ian Curtis sem er líka eitís en samt á svo allt annan hátt en syntharnir. Undir öllu eru svo lögin sem eru alveg gjörsamlega frábær og fá mann ýmist til að dansa (Quantum Leap) eða verkja í hjartað (Believer).

John Maus – Quantum Leap

4. Bon Iver – Bon Iver

Það mun örugglega aldrei nein plata hafa jafnmikil áhrif á mig og For Emma, Forever Ago hafði (og hefur) enda varð mér á að ofspila hana akkúrat þegar ég var að ganga í gegnum erfiðasta tímabil lífs míns. Fyrir vikið stóðst þessi engan samanburð við þá plötu og ég náði ekki alveg að tengjast henni lengi vel en staðreyndin er sú að þetta er alveg frábær plata. Hún kom eiginlega pínu aftan að mér og svo er mjög góð tilbreyting að geta hlustað á Bon Iver án þess að fá tárin í augun.

Bon Iver – Towers

3. Lykke Li – Wounded Rhymes

Ég fílaði Youth Novels aldrei sem plötu en elskaði ákveðin lög af henni svo mikið að ég er enn að ofspila þau. Dance Dance Dance verður t.d. alltaf besta lagið til að spila þegar ég er á leiðinni á tjútt og er enn heima á sokkabuxunum að setja á mig ælæner með rauðvínsglas við höndina (já það er eitthvað sem gerist reglulega). Það er aðeins minna stuð hér en á fyrri plötunni en það gerir ekkert til því melankólía er líka góð og verður jafnvel hressandi hjá Lykke Li.

Lykke Li – Unrequited Love

2. Shabazz Palaces – Black Up

Rappið er alltaf að færa sig upp á skaftið hjá mér. Á síðasta ári náði Flockaveli með Waka Flocka Flame inn á runners up listann minn og þetta árið set ég í annað sætið alveg stórkostlega plötu sem vill svo til að er rappplata. Þegar ég setti þessa plötu í gang í fyrsta sinn þá rann ég svo blint í sjóinn að ég vissi ekki hvort ég var að fara að að hlusta á popp eða dauðametal. Það sem ég heyrði var frumlegasta og óvenjulegasta plata ársins. Að segja að þetta sé rapp nær eiginlega ekki utan um það sem er að finna hérna því þó þetta sé rapp þá er þetta svo miklu meira líka. Það er eiginlega ekki hægt að flokka þetta. Lögin flæða á svo ótrúlegan hátt að ég býst alltaf hálft í hvoru við því að allt fari út af sporinu en það gerir það aldrei. Sama lagið hefur mörg stef sem eru algjörlega ólík en tvinnast samt saman og fara í hringi. Ég get ekki útskýrt þetta nógu vel en þetta sprengdi á mér hausinn eins og merkur maður sagði eitt sinn.

Shabazz Palaces – Endeavors for Never (the Last Time We Spoke You Were Not Here I Saw You Though)

1. PJ Harvey – Let England Shake

Augljóslega fyrirsjáanlegasta valið á plötu ársins þar sem hún hefur verið nálægt toppnum á öllum árslistum sem ég hef lesið. Málið með þessa plötu er bara að ég vissi það eftir að ég hafði hlustað á hana í allra fyrsta sinn að þetta yrði besta plata sem ég myndi heyra á árinu. Það er ekki oft sem ég upplifi það að verða svona yfir mig heilluð af plötu við fyrstu hlustun og ég tel mig heppna ef ég upplifi það einu sinni á ári. Ég fattaði eftir að ég gerði lagalista ársins að þangað rataði ekkert lag af þessari plötu en það er ekki af því að þau ættu ekki heima á þeim lista heldur er erfitt að velja eitt lag umfram annað og þau mynda svo órjúfanlega heild að það er erfitt að meta þau án hvers annars. Ég gæti skrifað langa lofræðu um þessa plötu og aðra um PJ Harvey en það er kannski óþarfi. Það sem hún hefur fram yfir marga tónlistarmenn sem gáfu út spennandi plötur á árinu er umfram allt reynsla og aldur en án þessa held ég að það hefði ekki verið hægt að gera þessa plötu. Þetta er algjört meistaraverk.

PJ Harvey – The Last Living Rose

Tags: , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off

Topp 5 lög ársins 2011 – Snorri

30.12.2011 - Snorri

Fullt af frábærum lögum árið 2011 og alltaf jafn erfitt að setja saman svona lista. En fæst orð hafa minnsta ábyrgð…

Hér eru þau topp 20 lög sem fylgja fast á hæla þeirra 5 efstu – Í stafrófsröð:

Active Child – Hanging On
Adele – Set Fire to the Rain
Ane Brun – Do You Remember ?
The Antlers – I Don’t Want Love
Bombay Bicycle Club – Lights Out, Words Gone
First Aid Kit – The Lion’s Roar
Fleet Foxes – Sim Sala Bim
Gardens & Villa – Cruise Ship
James Blake – The Wilhelm Scream
Lia Ices – Daphne
Lykke Li – I Follow Rivers
Mason – Boadicea
Neon Indian – Polish Girl
Peter Bjorn and John – Second Chance
SBTRKT – Wildfire (feat. Little Dragon)
Slow Club – Two Cousins
Toro y Moi – New Beat
Tune-Yards – Bizness
When Saints Go Machine – Kelly
Youth Lagoon – 17

Og svo topp 5:

5. PJ Harvey – The Glorious Land
Það er erfitt að velja eitt lag af þessari mögnuðu plötu en þetta lag hitti beint í mark í fyrstu hlustun þrátt fyrir lúðurinn alræmda.

4. Washed Out – Amor Fati
Lag sumarsins. Eitt af mörgum myndböndum tekið á Íslandi á árinu.

3. iamamiwhoami – ; john
Kom tæknilega ekki út á plötu þar sem Jonna Lee fer óvenjulegar leiðir við að koma tónlist sinni til skila en myndbandið var sett á Youtube á árinu. Og þvílíkt myndband.

2. Wild Beasts – Bed of Nails
Af einni af bestu plötum ársins sem fékk ef til vill of litla athygli.

1. Bon Iver – Holocene
Það þarf nú ekki að segja meir um þetta lag og plötu en þegar hefur verið gert. Íslenskt landslag í aðalhlutverki í myndbandinu eina ferðina enn og svínvirkar eins og vanalega. Gæsahúð ársins 2011.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Listar, Snorri | Comments Off

Topp 5 lög ársins 2011 – Kristín Gróa

30.12.2011 - Kristín Gróa

Yfirleitt er það plötulistinn sem ég á í mestum vandræðum með en árið 2011 virðist hafa verið ár lagsins. Það voru ótrúlega mörg lög sem heilluðu mig þetta árið og ég átti í virkilegum vandræðum með að velja fimm uppáhalds. Að sjálfsögðu byrja ég á tíu runners up í engri ákveðinni röð…

Cass McCombs – County Line
Lykke Li – Sadness Is A Blessing
Kurt Vile – Jesus Fever
tUnE-yArDs – Bizness
Zoo Kid – Out Getting Ribs
John Maus – Believer
Bon Iver – Holocene
Adele – Someone Like You
Shabazz Palaces – Swerving The Reeping Of All That Is Worthwile (Noir Not Withstanding)
Azealia Banks – 212

5. Tyler, The Creator – Yonkers

Þetta er án efa svalasta lag ársins. Bítið í þessu er alveg sjúkt og ég elska þennan þunga tón sem ómar undir öllu svo djúpur að eyrun víbra. Alveg frá byrjunarlínunni I’m a fucking walking paradox… no I’m not yfir í I’m not gay, I just wanna boogie to some Marvin yfir í …and stab Bruno Mars in his goddamn esophagus þá er þetta brútal og offensive en samt pínu kómískt. Hvernig er þessi náungi bara tvítugur og samt að gera þetta?

4. Lana Del Rey – Video Games

Lana Del Rey er kannski úthugsað fyrirbrigði og markaðsbrella en vá hvað það virkar. Þegar vídjóið fyrir Video Games sprakk á internetinu þá skildi ég hæpið. Ég skildi alla strákana sem voru alveg spólandi þegar þeir sáu þessa gullfallegu stúlku í sixties múnderingu mala I heard that you like the bad girls honey… is that true?. Haba haba. Hvernig var þetta aftur… all the guys want her and all the girls want to be her?

3. Gotye – Somebody That I Used To Know ft. Kimbra
Þetta er eitt af þessum lögum sem ég vildi óska að hefði ekki orðið vinsælt. Ef þið eruð tónlistarelítubjánar eins og ég þá vitið þið alveg hvað ég er að meina. Ég vil ekki fíla lag svona ógeðslega mikið sem flíspeysukonan á undan mér í röðinni í Bónus raular með þegar það spilast á Bylgjunni. Ég vil ekki fíla það sama og hún. Henni finnst Bruno Mars örugglega æðislegur. Þetta lag er bara svo ógeðslega gott að ég get ekki afneitað því. Ég get ekki heldur neitað því að ég er óþolandi merkileg með mig þegar kemur að tónlist. It is what it is.

2. Lia Ices – Love Is Won

Ég skil þetta lag ekki. Það er svo sérstakt og rythminn í því er svo spes en á einhvern óútskýranlegan hátt er það samt fullkomið. Þegar viðlagið kikkar inn þá fæ ég í alvöru gæsahúð í hvert einasta sinn. Þó hún hafi ekki verið fullkomin þá fannst mér platan Grown Unknown mjög vanmetin og ég reyni oft að lauma laginu Daphne inn á playlista við góðar undirtektir (það er meira straightforward og svo er Bon Iver líka í bakröddum svo það rennur ljúflega í fólk).

1. EMA – California

Ég veit ekki hvað það er sem gerir það að verkum að ég fæ ekki leið á þessu lagi. Það er er eiginlega engin melódía og hún talar textann út í gegn en þegar það kemur smá vísir að laglínu þá hefur það þeim mun meiri áhrif. Hún hefur verið kölluð póser og ég get ekki beint hrakið það (sjáið myndbandið við þetta lag sem sönnunargagn A) en ég er samt ekki alveg viss. Ég held að hver einasti plötudómur sem ég las um Past Life Martyred Saints hafi vísað í hversu hryllilega hráir og opinskáir textarnir hennar eru enda er nánast sársaukafullt að hlusta á suma þeirra (eins og Butterfly Knife). Ég veit bara að í hvert skipti sem ég hlusta á þetta lag þá er það eins og hnefahögg í magann.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Óflokkað | Comments Off

Topp 5 sunnudagslög – Einar Birgir (gestalisti)

29.4.2011 - Georg Atli

Jæja… það var dræm þáttaka í listunum yfir páskana en nú komum við aftur með stæl…. eða eitthvað svoleiðis. Við fengum amk aldeilis frábæran gestalistamann með okkur. Einar Birgir er/var einn af skemmtilegustu tónlistarbloggurum landsins og það væri alls ekki vitlaust ef að þið fylgdust með blogginu hans (sem uppfærist vonandi einhvern tímann…), hann fékk sjálfur að velja sér þema og hann ákvað að taka fyrir sunnudagslög, gott stöff.

Listinn hans Einars Birgis:
Zunnudagur. Það er eiginlega óhugsandi fyrir mig að velja 5 topp sunnudagslög. Lagavalið breytist nær örugglega á hverjum sunnudegi eftir ástandi og skapi. En núna (allavega þegar þetta er skrifað) er sunnudagur og hér koma því fimm fín sunnudagslög. Reyndar verður þessu listi birtur á föstudegi en það er alveg óhætt fyrir þig, lesandi góður, að hlusta ótæpilega því það er enginn föstudags-partí-púper í þessu. Eða svona næstum því.

John Maus – Quantum Leap

John Maus er vanmetinn snillingur og fyllilega verðskuldað sæti á sunnudagslistanum. Ég vona að 2011 og væntanleg plata hans færi honum lo-fi frægð og frama. Quantum Leap gefur fögur fyrirheit enda hreinræktaður dúndursmellur. Quantum Leap voru einnig uppáhald sjónvarpsþættirnir mínir í æsku. Scott Bakula 4eva og allt það.

Pornopop – Death Tape

Pornopop eru að fara gefa út nýja á plötu eftir smástund og er eftirvæntingin gríðarlega mikil hér á bæ. ‘Death Tape‘ lagið af síðustu plötu þeirra er alveg svakalegur sunnudagur. Drungi og melankólía og hin snargeðveiki Jim Jones að lesa síðustu orðin yfir söfnuðinum sínum áður en fjöldasjálfsmorðin í Jonestown urðu að veruleika 1978. http://en.wikipedia.org/wiki/Death_tape fyrir áhugasama.

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Robin Pecknold – I’m Losing Myself (feat. Ed Droste)

Sunnudagslegasta lagið. Angurvært og undurfallegt. Robin Pecknold, forsprakki Fleet Foxes, gaf nýverið frá sér 3 laga vef/smáskífu fríkeypis sem vert er að gefa ærlegan gaum. Á þessu lagi sönglar Ed Droste úr Grizzly Bear einnig með honum. Fínt. Þess má kannski til gamans geta að hann hefur áður gefið út svona sóló stöff undir nafninu White Antelope sem er ekki síður æðislegt.

Pepper Rabbit – Older Brother

Einstaklega næs lag frá Pepper Rabbit. Voðalega upbeat og ljúft. Ég veit eiginlega ekkert um þennan dúett en þetta lag er góður sunnudagur.

Lykke Li – Sadness is a Blessing

Sunnudagur fyrir þunglyndissjúklingana. Ég reyndi einu sinni að hata Lykke Li en það gekk ekki upp, hún er alltof fín. Þetta er uppáhaldið af nýju plötunni og mikið sunnudagslag.

Tags: , , , , , , ,
Flokkað undir Gestalisti, Listar | Comments Off

Topp 5 lög ársins – Kristín Gróa

8.1.2010 - Kristín Gróa


Við skulum byrja á að rifja upp lagalistann minn frá því í fyrra:

5. Lykke Li – Dance, Dance, Dance af Youth Novels
4. Sigur Rós – Inní mér syngur vitleysingur af Með suð í eyrum við spilum endalaust
3. The Walkmen – In The New Year af You & Me
2. MGMT – Time To Pretend af Oracular Spectacular
1. The Dodos – Jodi af Visiter

Næst koma 10 runners up ársins 2009:

Bat For Lashes – Daniel af Two Suns
The Big Pink – Dominos af A Brief History Of Love
Bon Iver – Blood Bank af Blood Bank EP
Fever Ray – If I Had A Heart af Fever Ray
The Pains Of Being Pure At Heart – Young Adult Friction af The Pains Of Being Pure At Heart
Phoenix – Lizstomania af Wolfgang Amadeus Phoenix
Miike Snow – Animal af Miike Snow
Delorean – Seasun af Ayrton Senna EP
The Very Best – Warm Heart Of Africe (feat. Ezra Koenig) af Warm Heart Of Africa
Kurt Vile – Freeway af Constant Hitmaker

TOPP 5 LÖG ÁRSINS AÐ MATI KRISTÍNAR GRÓU!


5. Bibio – Ambivalence Avenue af Ambivalence Avenue

Fimmta sætið er alltaf erfiðast því þar skilur á milli þeirra sem komast á listann og þeirra sem gera það ekki. Ég verð að viðurkenna að fyrsta uppkast að þessum lista var með laginu Lizstomania með Phoenix í fimmta sæti en eftir því sem ég pældi meira í þessu þá fannst mér meira vit í því að láta Bibio ná inn á lista. Þetta frábæra byrjunarlag hinnar þokkalegu samnefndu plötu er því miður ekki alveg merki um heildargæði plötunnar (að mínu mati) en þetta lag eitt og sér er nægt tilefni til að gefa henni séns.


4. Julian Casablancas – Out Of The Blue af Phrazes For The Young

Það er nú reyndar lagið 11th Hour sem hefur feng en mér finnst þetta upphafslag hinnar frábæru Phrazes For The Young alveg kreisí gott og enn betra en hitt. Þessi plata kom mér reyndar algjörlega í opna skjöldu svo það er nokkuð óvænt sem Casablancas kemst á lista. Fyrir utan hvað kórusinn fær mig til að langa til að vera hífuð og syngja allt of hátt og snúa mér í hringi með hendurnar út í loftið (seriously… ég er að reyna að hemja mig akkúrat þessa stundina) þá er eitthvað svo frábært hvað gaurinn er ekkert að hlífa sér… Those who helped me along the way, I smacked them as I thanked them… Yes I know I’m going to hell in a leather jacket. Love it!


3. Animal Collective – My Girls af Merriweather Post Pavillion

Mér þykir mjög leiðinlegt að setja lag á lista sem bæði Pitchfork og Pop Matters settu á topp síns lista en ég get bara ekki litið framhjá því að þetta lag er eiginlega yfirnáttúrulegt. Percussionið, raddanirnar og öll skrítnu hljóðin gera þetta að einhverju algjörlega nýju og undarlegu en samt er það melódískt og grípandi og poppað.


2. Girls – Lust For Life af Album

Þegar gagnkynhneigður karlmaður byrjar fyrstu plötuna sína á Oh I wish I had a boyfriend þá langar mig að hlusta áfram. Tilfinningin hérna er svona “já ég er geðveikt klikkaður og messed up en þetta er allt á uppleið… kannski… vonandi”. Mér persónulega finnst Album vera frekar gloppótt plata (þrátt fyrir GRÍÐARLEGT hype) en það er ekki hægt neita því að væbið heillar mann og þarna eru nokkur killer lög, sérstaklega Lust For Life og Hellhole Ratrace.


1. Camera Obscura – French Navy af My Maudlin Career

Ég hef aldrei verið neinn sérstakur aðdáandi þessarar hljómsveitar þannig lagað en vá þetta lag er bara something else. Þetta fær pottþétt verðlaunin kórus ársins því ég iða í sætinu og sveifla hausnum til og frá þegar hann kemur. Þetta er óneitanlega stelputónlist en herregud þvílík stelputónlist!

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | 2 athugasemdir »

Topp 5 rerun – Kristín Gróa

6.11.2009 - Kristín Gróa

Rerun pælingin er sú að við fáum séns á að endurtaka gamlan lista eða gera lista sem við misstum af á sínum tíma. Ég er nú þokkalega sátt við listana mína og hef ekki misst af mörgum svo sá listi sem ég valdi er listi sem er líklega aldrei eins hversu oft sem maður gerir hann. Listinn er topp 5 á föstudegi og birtist upphaflega föstudaginn 1. ágúst 2008. Hugsunin á bak við þennan lista var sú að segja frá þeirri tónlist sem var okkur efst í huga þann föstudaginn. Síðast listaði ég upp stök lög en nú ætla ég að lista upp þær 5 plötur sem eiga hug minn allan þessa stundina. Síðasti listi hljóðaði svo:

5. Deer Tick – Art Isn’t Real (City Of Sin)
4. Fleetwood Mac – Angel
3. Beck – Gamma Ray
2. Lykke Li – Dance Dance Dance
1. The Felice Brothers – Roll On Arte

Nýi listinn er svona!


5. The Flaming Lips – Embryonic

Ég skal viðurkenna það að ég var búin að missa þann litla áhuga sem ég hafði á The Flaming Lips og var því nákvæmlega ekkert spennt fyrir þessari plötu. Ég hlustaði á sínum tíma talsvert á The Soft Bulletin og Yoshimi Battles The Pink Robots en þær kveiktu samt aldrei almennilega í mér og þegar kom að At War With The Mystics þá nennti ég henni ekki alveg. Það var því frekar af einhverri undarlegri skyldurækni sem ég gaf tvöföldu plötunni (já vei hugsaði ég kaldhæðnislega) Embryonic séns. Góð ákvörðun!

The Flaming Lips – Convinced Of The Hex


4. The Mountain Goats – The Life Of The World To Come

Ég hef aldrei almennilega kveikt á The Mountain Goats en gaurinn er nánast með cult following svo ég hef alltaf haft það á bak við eyrað að gefa honum almennilega séns. Viti menn, ég held að þessi nýja plata sem er uppfull af Biblíutilvísunum og frábærum textum hafi loksins kveikt á perunni minni.

The Mountain Goats – Genesis 30:3


3. Girls – Album

Topp fimm plata mánaðarins er að sjálfsögðu búin að vera í heavy rotation síðustu vikur. Tóndæmi birtist síðastliðinn mánudag og fleiri munu birtast út mánuðinn. Watch this space!


2. El Perro Del Mar – Love Is Not Pop

Eftir hina frekar daufu From The Valley To The Stars sem olli mér nokkrum vonbrigðum gefur Sarah Assbring allt í einu út alveg hreint frábæra plötu. Þetta er breakup plata með upphafi og endi og hún er bara ótrúlega heilsteypt og flott. Mæli með að þið tékkið á þessari.

El Perro Del Mar – Gotta Get Smart


1. Julian Casablancas – Phrazes For The Young

Þessi er gjörsamlega nýdottin í hús og er því last minute addition á listann. Julian Casablancas hefur í heildina fengið alveg ágætis dóma fyrir sólóplötuna sína og ég verð að segja að hún grípur mig gjörsamlega við fyrstu hlustanir. Þetta er öðruvísi en ég bjóst við en á góðan hátt. Þetta er partídansiplata með niðurdrepandi textum… svona það er allt svo mikill bömmer að það eina sem ég get gert er að fá mér einn drykk í viðbót og dansa dansa dansa til að gleyma. Namm.

Julian Casablancas – Out Of The Blue

Tags: , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off

Röyksopp

25.3.2009 - Kristín Gróa


Ég fékk nýju Röyksopp plötuna, Junior, í hendurnar um daginn og var satt að segja ekkert rosalega spennt fyrir henni. Einhvernveginn gerðist það þó að ég fór að hlusta og viti menn… ég fíla þetta! Þessa stundina er Karin Dreijer að heilla mig mest í laginu Tricky Tricky en það er af nógu að taka hérna. Robyn syngur hið frábæra The Girl And The Robot og ekki er síðra lagið Miss It So Much í flutningi krúttsins Lykke Li. Já og ef þið viljið komast í dansandi gott skap þá þurfið þið bara að hlusta á fyrsta síngúlinn Happy Up Here og dillið mun færast í kroppinn. Ég er öll æst yfir þessari plötu.

Röyksopp – Tricky Tricky

Tags: , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Óflokkað | Comments Off

Lokauppgjör 2008 – Krissa

10.1.2009 - Kristjana

1. Bestu tónleikar sem þú sást á árinu?

Jebus minn ég sá svo mikið af góðum tónleikum á árinu, litlum sem stórum, nýju dóti og gömlu. Smærri tónleikarnir stóðu samt eiginlega upp úr á þessu ári og ég held ég þurfi að segja að Man Man (hversu oft get ég sagt það eiginlega) hafi verið bestir á Le National í Montréal í apríl. Voru á fullkomnum tíma, á fullkomnum stað, mér veitti svooo ekki af smá break og að skreppa í ofurhressleikann var exactly what I needed.

A close second var líklega að sjá The Kills þegar Kristín heimsótti Montréal deildina í maí. Bjóst einhvern veginn ekki við miklu en svo voru þau bara geðveik og það var svo brjálæðislega mikill kynþokki á sviðinu að maður varð næstum vandræðalegur við að horfa á það haha

2. Gamalt dót sem ég uppgötvaði á árinu:

Nashville Skyline plata Dylan var bara plata ársins hjá mér – eða allavega soundtrack fyrri hluta ársins! Úff púff! Hún hafði bara einhvern veginn farið alveg framhjá mér.

Svo telst það nú kannski ekki gamalt, en kom allavega ekki út á árinu, að ég afrekaði loksins að hlusta á Panda Bear eftir að hafa keypt Person Pitch í byrjun ársins. Og ég skil engan veginn afhverju ég hlustaði ekki á hann fyrr? Hvaða rugl var það eiginlega? Ég meina, Bros er bara svo fáranlega æðislega awesomely gott lag!

Og já, svo tók ég allsvaðalegt æði aftur fyrir The Milk of Human Kindness með Caribou eftir að sjá hann í apríl – hann var bara simply of góður og ég var með plötuna á repeat næstu vikurnar þegar ég rölti um götur Montréal – endurtók algjörlega æðið sem ég fékk þegar hún kom út :)

3. Vonbrigði ársins
Engin ein plata eða hljómsveit sem ég varð fyrir neinum gríðarlegum vonbrigðum með á árinu. En tónlistartengd vonbrigði ársins eru samt svo mörg að þau eru í punktaformi:

  • að missa af Dodos live í Montréal út af einhverju asnalegu eins og að þurfa að skila verkefni í skólanum eða e-ð.
  • að neyðast til að sitja undir Rihanna á undan Kanye. Ég bjóst nú við að það yrði allavega hresst eða e-ð en það var bara…leiðinlegt! Held í alvöru að það skásta sem ég hafi um málið að segja sé að sviðið var alveg fínt haha. Hún var allavega engan veginn góð upphitun!
  • að hafa gleymt (nei sko, bókstaflega, gleymt!) að mæta á El Perro del Mar og Lykke Li eftir að vera löngu búin að kaupa miða og vera búin að tala um tónleikana oft í vikunni. Fatta svo í hádeginu daginn EFTIR tónleika að ég átti að vera e-s staðar kvöldið áður.
  • að hafa ekki skellt mér á M.I.A. þegar hún var að spila úti. Man ekki hvort það var forgangsröðun sem réði eða hvað en það var klárlega rugl að fara ekki!
  • að hafa ekki séð Duchess Says þegar ég var nýkomin út til Kanada – heyrði plötuna viku seinna eða e-ð og varð ansi fúl!
  • Xiu Xiu tónleikarnir sem ég fór á voru pínu vonbrigði. Upphitunin (Thao Nguyen and the Get Down Stay Downs) var betri en sjálft aðalnúmerið, allavega það kvöldið!
  • Og síðast, en alls ekki síst, sé ég eftir að hafa gengið út úr miðasölunni 5 mín áður en Tom Waits hóf spilerí í Mobile í Alabama í sumar – út af einhverju svona asnalegu eins og að sætin væru svo fáranlega léleg og miðaverðið svo hátt. Ég meina, hversu oft fær maður tækifæri til að sjá Waits live? Þó það sé bara í partial view? ;/

4. Ætlaði alltaf að tékka á en trassaði:

Bon Iver! Veit ekki hversu oft ég hugsaði að ég yrði að fara að tékka á honum en gerði ekki. Bara búin að heyra svona lag og lag og öll hljóma þau fáranlega vel. Spurning um að verða sér úti um hana hið fyrsta :)

5. Bjartasta vonin

Úff to the púff! Uhh…á ég að vera fyrirsjáanleg og segja bara Fleet Foxes? Kemur allavega fáranlega sterklega til greina! Verður spennandi að heyra plötu nr. 2 :)

6. Hvaða tónleikar komu þér mest á óvart á árinu?

Ég fór að sjá Patrick Watson ásamt alveg heilum helling af e-m öðrum tónlistarmönnum frá Montréal í janúar. Kvöldið var til að vekja athygli á Baie Déception sem er um inúítana í Nunavik og vesenið þar. Meira vissi ég eiginlega ekki áður en ég fór. Þegar ég mætti í Corona tók svo allt annað við mér en ég bjóst við. Flott gamalt leikhús, hálfkjánaleg mynd um inúítana til að byrja með, endalaust mikið af góðri tónlist, Patrick Watson auðvitað frábær en Brad Barr ekki síðri og ég hafði aldrei heyrt neitt með honum áður. Upplestur á frönsku og ég geðveikt sátt við að skilja part og part, þrátt fyrir að vera nýkomin út…úff þetta kvöld var bara yfirmáta frábært á allan hátt! Betri lýsing fæst á Midnight Poutine :)

Svo kom Sam Amidon mér skemmtilega á óvart á Airwaves :)

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Listar | Comments Off

Lokauppgjör – Erla Þóra

9.1.2009 - Erla Þóra

1. Hverjir voru bestu tónleikar sem þú sást á árinu?

Why? í Montréal í mars.

2. Hvaða gamalt dót uppgötvaðir þú á árinu?

Leonard Cohen. Hálfkjánalegt að uppgötva hann svona seint, en gamla stöffið hans er flott.

3. Hver voru mestu vonbrigði ársins?

Erfitt að segja… en ég ætla að segja Fuck Buttons á Airwaves. Úff.

4. Hverju ætlaðirðu alltaf að tékka á á árinu en trassaðir?

Lykke Li. Stefni nú samt enn á að tékka á skvísunni!

5. Hver er bjartasta vonin?

Fleet Foxes.

6. Bónusspurning að eigin vali

Hvaða tónleika öfundaði ég aðra af að fara á á árinu?
Klárlega Man Man tónleikarnir í Montréal í Apríl sem Krissa fór á! Hefði nú reyndar líka alveg verið til að í að hafa farið með henni að sjá Kanye West for that matter.

Tags: , , , , , , , ,
Flokkað undir Erla Þóra, Listar | Comments Off

Topp 5 lög ársins 2008 – Kristín Gróa

19.12.2008 - Kristín Gróa

Ókei ókei þetta er topp 5 en byrjum á 10 runners upp í engri sérstakri röð:

Sébastien Tellier – Divine
Vampire Weekend – Cape Cod Kwassa Kwassa
Beck – Gamma Ray
Fleet Foxes – White Winter Hymnal
Beyoncé – Single Ladies (Put A Ring On It)
Goldfrapp – A&E
Neon Neon – I Lust You (feat. Cate Lebon)
Wolf Parade – California Dreamer
Hercules & Love Affair Blind (feat. Antony Hegarty)
FM Belfast – Par Avion


5. Lykke Li – Dance, Dance, Dance af Youth Novels

Easy conversations, there’s no such thing
No I’m shy, shy, shy
My hips they lie ’cause in reality
I am shy, shy, shy

Þetta er eitt af þessum lögum sem ég elska að setja á þegar ég er ein heima með hvítvínsglas í hendi að finna mig til fyrir skemmtilegt kvöld. I was a dancer all along…


4. Sigur Rós – Inní mér syngur vitleysingur
af Með suð í eyrum við spilum endalaust

Ég er nýbúin að setja þetta lag á lagatitlalista en fyrir utan frábæran titil þá bara vá þetta er svo svakalega magnað lag. Ég held að ég hafi aldrei fílað Sigur Rósar lag svona rosalega… úffpúff.


3. The Walkmen – In The New Year af You & Me

Ég skal viðurkenna að ég hef ekki enn hlustað á þessa plötu í heild sinni því ég er búin að vera í plötukaupabanni en þetta lag hefur dugað mér alveg hreint ágætlega hingað til. Það er í augnablikinu mest spilaða lag í tónlistarsafninu mínu (ok sem núllstillist reyndar reglulega því iTunes er fucked en samt!).


2. MGMT – Time To Pretend af Oracular Spectacular

I’m feeling rough
I’m feeling raw
I’m in the prime of my life

Þetta átti svo vel við í ár að ég á bolinn.


1. The Dodos – Jodi af Visiter

Allt árið hefur ekkert lag hreyft jafn mikið við mér og þetta lag. Það eru svo mörg snilldarmóment hérna sem valda því að maginn tekur kipp og hoppar upp um 2 sentimetra að ég er alltaf í hálfgerðu uppnámi eftir að hlusta á það. Hvernig þeir geta spilað svona hratt og ákaft veit ekki… og samt er lagið ekkert hratt! Kreisí shit!

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin