Kaffi, Kökur og Rokk og Ról!!

27.10.2011 - Georg Atli

Einhverra hluta vegna virðist það hafa farið framhjá mörgum að það er alveg gríðarlega skemmtileg tónleikaröð er í fullum gangi. Á (næstum) hverjum þriðjudegi síðan í byrjun september hefur Arnar Eggert Thoroddsen haft yfirumsjón með Kaffi, kökum og rokki og róli og fengið stórann hóp af skemmtilegustu hljómsveitum íslands til að spila saman.

Tónleikaformið er aðeins öðruvísi en gengur og gerist því húsið opnar kl. 20:00, tónleikarnir byrja svo hálftíma seinna og eru búnir um kl. 22:00. Já og það kostar bara 500 kall inn OG það eru kökur og kaffi! og allt áfengislaust að sjálfsögðu. Þriðja hvern þriðjudag er svo UNG SÁÁ með dagskrá.

Ég er búinn að ná að mæta tvisvar og sjá Agent Fresco og Mammút og síðan Retro Stefson og NOLO og í bæði skiptinn hefur verið frábær skemmtun. Það er einhvern veginn allt miklu afslappaðra á þessum kvöldum, salurinn er í minni kanntinum, hljóðið fínt og stemningin hefur verið mjög innileg og þægileg. Ég mæli hiklaust með þessu!

Hingað til hafa eftirfarandi bönd mætt og leikið listir sínar:
Benni Hemm Hemm + Prinspóló, Saktmóðigur + Hellvar, Agent Fresco + Mammút, Sóley + Samaris, Snorri Helga + Hermigervill.

Í gær voru svo Retro Stefson og NOLO að spila þar sem NOLO spiluði lög af væntanlegri plötu og Retro Stefson sýndi það og sannaði að það er enginn (í heiminum!?) betri í því að byrja partý en þau, þegar að þau fengu fullt af ófullu fólki til að dansa eins og enginn væri morgundagurinn auk þess að standa og sitja nákvæmlega eins og Retro-liðar sögðu til um og mér skilst að það sé ekkert svo auðvelt.

Næsta þriðjudag verða svo svakalegir rokktónleikar þegar að Reykjavík! og Hljómsveitin Ég mæta í Edrúhöllina (Efstaleiti 7) og ég ætla að halda því fram að það megi enginn missa af því.

Það sem eftirlifir vetri lýtur dagskráin þannig út:
8. nóv: UNG SÁÁ með dagskrá
15. nóv: Ekki Búið að Tilkynna (EBT)
22. nóv: Lára + Rúnar Þórisson
29. nóv: EBT
6. des: UNG SÁÁ með dagskrá
13. des: SKÁLMÖLD + Angist
20. des: Lay Low + gestir
27. des: Mugison + Jónas Sig

Tags: , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off

Sykur sendir frá sér nýja breiðskífu

26.10.2011 - Georg Atli

Record Records gaf í dag út aðra breiðskífu hljómsveitarinnar SYKUR. Nýja skífan heitir Mesópótamía og fylgir á eftir frumburði sveitarinnar, Frábært eða frábært, frá árinu 2009.

SYKUR var stofnuð árið 2008 og hefur komið fram með ýmsum söngvurum síðan þá, má þar nefna; BlazRoca, Rakel Mjöll Leifsdóttir (Útidúr) og Katrína Mogensen (Mammút).
Nú nýverið gekk til liðs við sveitina nýr fullgildur meðlimur sem sér um söng, hún heitir Agnes Björt Andradóttir og hefur vakið mikla lukku og athygli með sveitinni undanfarið og nú síðast á nýliðinni Iceland Airwaves hátíð þar sem sveitin fékk mjög góða dóma í erlendum fjölmiðlum. SYKUR fær þó gesti til liðs við sig á nýju plötunni í tveimur lögum en Árni Vilhjálmsson úr FM Belfast syngur fyrstu smáskífu plötunnar, Shed Those Tears og Kormákur Örn Axelsson syngur lagið 7am.

SYKUR sá um upptökur plötunnar en Styrmir Hauksson hljóðblandaði og tónjafnaði.
Myndskreyting og hönnun umslags var í höndum Sigga Odds.

Mesópótamía er komin í verslanir um land allt.

Tags: , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning | Comments Off

Faktorý heldur upp á eins árs afmæli sitt!

13.7.2011 - Georg Atli

Tónleika- og skemmtistaðurinn Faktorý er orðinn eins árs gamall og fagnar því með látum þessa vikuna.

Það var helgina 15. – 18. júlí 2010 sem að hljómsveitirnar Hjálmar, Agent Fresco, Mammút, Feldberg, Benni Hemm Hemm og Retro Stefson stigu á svið og vígðu tónleikastaðinn Faktorý.

Nú þegar tónleikastaðurinn er orðinn eins árs gamall ber að fagna því með mikilli veislu og hefur Faktorý ákveðið að bjóða vinum sínum í fría tónleikaveislu alla næstu helgi.

Svona er dagskrá vikunnar:
Miðvikudagur:
Classic Pub Quiz kl. 20:00 – Ekkert þáttökugjald – fullt af vinningum!

Fimmtudag:
Dj Danni Deluxe kl. 22

Föstudagur:
Agent Fresco
For a Minor Reflection
Lockerbie
Úlfur Úlfur

Hefst kl. 23 – Frítt inn!
+ DJ KGB á neðri hæð frá miðnætti

Laugardagur:
Brain Police
The Vintage Caravan
Spector

Hefst kl. 23 – Frítt inn!
+ Dj Anna Rakel og Halli á neðri hæð frá miðnætti

Sunnudagur:
Sunnudagsjazzinn verður á sínum stað
Hefst kl. 21:30 – Frítt inn!

Tags: , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning, Tónleikar | Comments Off

Tónleikasamantektin

11.5.2011 - Kristín Gróa

Það er ekki jafn rosalegt framboð af tónleikum og um síðustu helgi en það er samt fullt skemmtilegt í gangi! Ef við erum að missa af einhverju þá megið þið endilega láta okkur vita.

Miðvikudagur

Á Rósenberg verður léttur djazz og blús en þar mun nýskipað og (að okkur vitandi) ónefnt tríó koma fram. Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og það kostar 1000 krónur inn. Sjá nánar hér.

Fimmtudagur

Á Rósenberg spilar dúettinn MoR en hann samanstendur af Margréti Eir og Róberti Thórhallssyni. Tónleikarnir hefjast kl. 21:30. Sjá nánar hér.

Á Dillon verða styrktartónleikar en hljómsveitin Morning After Youth er að vinna að sinni fyrstu plötu og vantar smá aur. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það kostar litlar 500 krónur inn. Sjá nánar hér.

Föstudagur

Á Rósenberg ætlar hljómsveitin Árstíðir að spila efni af væntanlegri plötu í bland við eldra efni. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það kostar 1500 krónur inn. Sjá nánar hér.

Á Dillon spila hljómsveitirnar Caterpillarmen, Bob og Coral. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það kostar ekkert inn. Sjá nánar hér.

Á Faktorý ætlar hljómsveitin XIII að spila plötuna SALT í heild sinni. Einnig koma fram In Memoriam og Hoffman. Tónleikarnir hefjast á miðnætti og það kostar 1000 krónur inn. Sjá nánar hér.

Laugardagur

Á Dillon verður Proggóvisjón fyrir þá sem hafa ekkert gaman að júróvisjón en þar koma fram Murrk, Postartica og Draumhvörf. Tónleikarnir hefjast kl. 10:00 og það kostar ekkert inn. Sjá nánar hér.

Á Faktorý verður kanilkvöld #3. Hefst kl. 23:30 og það kostar ekkert inn. Sjá nánar hér.

Á NASA verður mikil júró gleði en þar verður Eurovision partý Páls Óskars með fullt af júró hetjum. Húsið er opið frá 00:00 – 05:00. Það kostar 2000 krónur í forsölu á midi.is en 2500 krónur við dyrnar. Sjá nánar hér.

Ef þig langar í algjört mótvægi við júróbrjálæðið verður opið hús í Hörpu allan daginn. Húsið opnar á laugardagsmorgun kl. 11 í tveimur minni tónleikasölunum, Norðurljósum og Kaldalóni. Þar koma fram Karlakórinn Fóstbræður, Gissur Páll Gissurarson, Kammersveit Reykjavíkur, Ólafur Arnalds, Caput-hópurinn, kór Íslensku óperunnar, Kristinn H. Árnason, Björn Thoroddsen og Kazumi Watanabe og tríó Tómasar R. Einarssonar.

Á laugardagskvöld kl. 20:00 byrja svo tónleikar í Silfurbergi, næststærsta sal Hörpunnar. Þar munu koma fram Apparat Organ Quartet, Mammút, Agent Fresco, Valdimar, Hjaltalín, Jónas Sigurðsson og ritvélar framtíðarinnar, Lights on the Highway og HAM. Ókeypis er á alla tónleika í Hörpunni á laugardag.

Sunnudagur

Í Merkigili á Eyrarbakka koma söngvaskáldin Uni og Jón Tryggvi sem hluti af menningar- og bæjarhátíðinni Vor í Árborg. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 og það kostar ekkert inn. Sjá nánar hér.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Tónleikar | Comments Off

Nýtt lag frá Mammút

28.4.2011 - Georg Atli

Hljómsveitin Mammút er á fullu að græja nýja plötu, hún á að koma út í haust en af því að það er fáránlega erfitt að bíða eftir óútkomnum plötum þá fengum við smá sýnishorn af lagi. Lagið heitir Bakkus og birtist á soundcloudi Record Records (sem gefur plötuna út) þann 27. apríl, tjékkiði á þessu:

Mammút – Bakkus by RecordRecords

Tags:
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off

Tónleika samantekt!

2.2.2011 - Georg Atli

Við feiluðum í síðustu viku þannig að þetta kemur bara tekið með trompi núna og linkað hægri-vinstri, til að bæta það upp! Eins og alltaf þá reynum við að fylgjast með öllu en það er bara ekki alveg nógu auðvelt þannig að stundum þá er eitthvað í gangi sem að við vitum ekki um. Ef að það gerist og þú veist af því þá má alveg endilega senda okkur áminningu um það á þetta póstfang: toppfimmafostudegi@gmail.com eða setja það í komment hér fyrir neðan!

Miðvikudagur
Á Faktorý verða styrktartónleikar fyrir Davíð Örn Arnarsson en þar ætla Johnny Stronghands, Brother Grass, Illgresi, Johnny and the Rest og Lay Low, húsið opnar kl. 20:30 og aðgangseyririnn er 1500 kr og allur ágóði rennur beint til Davíðs Arnar.

Fimmtudagur
Á fimmtudagskvöldið verða rosalegir rokktónleikar en Benny Crespo’s Gang og Cliff Clavin að halda tónleika á Faktorý. Húsið opnar kl. 21:00 og það kostar 1000 kall inn

Á Sódómu verða 3B Bitter Blues Band með tónleika. 1000 kall inn og húsið opnar kl. 22:00

Föstudagur
Þetta föstudagskvöldið verður Muckfest á Faktorý þar kostar 1000 kr. inn og tónleikarnir byrja stundvíslega kl 21:30. Fram koma hljómsveitirnar Mammút, MUCK, Sudden Weather Change, Swords of Chaos og Me, The Slumbering Napoleon þannig að þetta verður væntanlega rosalegt.

Á Sódómu verður Óli Dóri, útvarpsmaður á X-inu og gestalistamaður Topp 5 með DJ-set.

Laugardagur
Faktorý heldur áfram með góða dagskrá og nú er komið að tónleikum með hljómsveitinni Æla og Sin Fang tónleikarnir byrja kl. 23:00 og það kostar 1000 kr inn.

Klassart verða með tónleika á Sódómu á laugardagskvöldinu, þeir byrja kl. 22:00 og klassísku 1000 krónur veita þér aðgang

Tags: , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

Agent Fresco gefur út A Long Time Listening

11.11.2010 - Kristjana

Agent Fresco er í uppáhaldi hjá mér. Mér fannst því svooolítið mikið gaman að fá þetta sent:

Agent Fresco var stofnuð í byrjun árs 2008 og vakti sveitin fyrst verðskuldaða athygli þegar hún sigraði Músíktilraunir 2008. Í kjölfarið gaf sveitin út sína fyrstu smáskífu Eyes of a Cloud Catcher sem fékk mjög góðar viðtökur og náði m.a. topp sæti X-dómínós listans á X-inu FM 97,7. Í desember sama ár kom EP platan Lightbulb Universe út og fékk hún frábærar viðtökur tónlistarunnenda og gagnrýnenda. Ber þar m.a. að nefna að platan hlaut verðlaun hjá Kraumi tónlistarsjóði, gagnrýnandi Morgunblaðsins veitti plötunni fjórar og hálfa stjörnu og breska tónlistarritið Kerrang gaf smáskífunni fullt hús stiga. Á íslensku tónlistarverðlaununum var Agent Fresco kosin Bjartasta vonin árið 2008.

Upptökur á breiðskífunni A Long Time Listening hófust í júlí á þessu ári. Í september sl. kom fyrsta smáskífan af laginu Translations út og hefur lagið verið í spilun á útvarpsstöðvum undanfarnar vikur.

Þann 22. nóvember n.k. sendir hljómsveitin frá sér sína fyrstu breiðskífu sem ber heitið A Long Time Listening. A Long Time Listening hefur verið í vinnslu í rúm 2 ár en meðlimir hljómsveitarinnar þeir Arnór Dan Arnarson, Hrafnkell Guðjónsson, Þórarinn Guðnason og Vignir Rafn Hilmarsson sem gekk til liðs við sveitina í júlí 2010, hafa undanfarna 3 mánuði lokað sig af inni í stúdíói við upptökur. A Long Time Listening inniheldur 17 lög sem mynda eina heild, þar af eru 12 splunkuný en fimm laganna, hér í nýrri upptöku, er einnig að finna á smáskífuplötunni Lightbulb Universe sem út kom árið 2008.


Á lokastigi upptökuferilsins fengu strákarnir góða vini til að syngja kór í titillagi plötunnar. Þar ber m.a. að nefna hljómsveitarmeðlimi hljómsveitanna Mammút, Dikta, Rökkurró, For A Minor Reflection o.fl.

Agent Fresco bjóða í hlustunarpartý á breiðskífunni A Long Time Listening á Kaffibarnum 17. nóvember kl 21:00. Boðið verður upp á léttar veitingar og platan spiluð í heild sinni. Úgáfutónleikar verða haldnir á nýju ári.

Tags: , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað | Comments Off

Topp 5 Airwaves tilhlökkun – Georg Atli

8.10.2010 - Georg Atli

Þegar að ég fór að hugsa um þennan lista þá fattaði ég fljótlega að það væri miiiiklu meira en 5 atriði sem mig langaði m”mest” til að sjá á Airwaves í ár, þannig að ég ákvað að pikka bara eitthvað eitt út fyrir hvern dag. Ég hélt  sem sagt að það yrði frekar auðvelt að nefna eitt atriði á hverjum degi… ég hafði rangt fyrir mér.

Af því að ég gerði þetta svona þá verða engin númer á listanum mínum, bara dagarnir.

Miðvikudagur:

Strax á fyrsta degi byrjar valkvíðinn. Snorri Helgason, Ólafur Arnalds, Miri, Nolo, Prins Póló, Bloodgroup, Benny Crespo’s Gang,  Stafrænn Hákon, Mammút og fullt í viðbót sem mig dauðlangar að sjá…. ég held að ég velji samt að halda mig á Venue þetta kvöldið (þar verður sérstakt Kimi Records kvöld) þar sem hápunkturinn (hjá mér amk)verður sá að loksins drattast til að sjá Sin Fang Bous spila.

Fimmtudagur:

Á fimmtudag verð ég næstum því alveg örugglega í Listasafninu til þess að ná örugglega að sjá Moderat og Efterklang. Svo er örlítill séns (ég vona það að minnsta kosti) á því að ég nái að troða mér inn á NASA og sjá smá af Ham.

Föstudagur:

Ég er svo rosalega hrifinn af plötunni frá Toro y Moi að ég verð að sjá hann, fyrir mig er hann það sem mig langar mest að sjá á Föstudeginum…. í augnablikinu.

Laugardagur:

Laugardaginn er dagur/kvöld dauðans fyrir valkvíðafólk, það er allt of mikið að gerast á nánast sama tímanum. Næstum öll stóru erlendu nöfnin: Robyn, Hercules & Love Affair,Tunng, Apparat Organ Quartet, Bombay Bicycle Club, Diamond Rings, Neon Indian og sú hljómsveit (The Antlers) sem ég er hvað mest spenntur yfir á hátíðinni er allt á bilinu 21:30 til 00:00 og mér finnst næstum því vonlaust að gera upp á milli. The Antlers er alveg pottþétt ekki mesta partýbandið þannig að það er hugsanlegt að það verði pínu buzzkill að sjá þá en ég ætla samt að fara þangað. Platan þeirra frá því í fyrra (Hospice) er bara svo fáránlega góð. Eftir það mæli ég hiklaust með OFURtöffurunum í 200 á Amsterdam.

Sunnudagur:

Ekkert rosa mikið að gerast á sunnudeginum en þar er samt bæði Dan Deacon og FM Belfast og það er ansi frábært!

Lög:
Sin Fang Bous – Clangour and Flutes
Toro y Moi – Talamak
Moderat – Nasty Silence
The Antlers – Shiva
FM Belfast – Underwear

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off

Tónlistarmyndir á Riff

29.9.2010 - Kristjana

Á Riff kvikmyndahátíðinni þetta árið er flokkur sem er toppfimmurum að skapi. Flokkurinn heitir einfaldlega Tónlistarmyndir. Í honum eru 6 myndir – allt frá mynd um Ragga Bjarna (Með Hangandi Hendi) yfir í mynd um Airwaves 2009 (Where’s the Snow?). Auk þess var í gærkvöld boðið upp á kvöld með Mathieu Saura (sem reyndar kallar sig Vincent Moon) á Rósenberg. Sem einlægur aðdáandi bæði Airwaves og Vincent Moon (Concerts à Emporter eru í svo miklu uppáhaldi hjá mér!) mætti ég auðvitað á Rósenberg í gærkvöld og Iðnó á sunnudagskvöldið til að sjá Where’s the Snow?

Agent Fresco og Mammút koma ansi mikið fyrir í Where’s the Snow? og báðar hljómsveitir spiluðu nokkur lög í anddyri Iðnó áður en myndin hófst. Eftir smá skipulagsleysi hófst myndin og 5 mín síðar var ansi mikill Airwaves fiðringur kominn í mig. Ein sýning er eftir á myndinni – í Hafnarhúsinu á laugardaginn (2. okt) kl. 16:00. Mæli klárlega með henni fyrir smá Airwaves upphitun. Gunnar og Bowen, sem gerðu myndina, hafa líka báðir verið að gera styttri þætti um íslenska tónlist auk þess sem Gunnar gerði mynd um Ólaf Arnalds sem sýnd var á Riff í fyrra. Tékkið á Sleepless in Reykjavík og Don’t Panic Films

Agent Fresco, “Eyes Of A Cloud Catcher” acoustic, live at The Nordic House from Bowen Staines on Vimeo.

Nú viðurkenni ég að ég hef hingað til ekki fallið fyrir Agent Fresco. Mér fannst Eyes of a Cloud Catcher fínasta lag og sönglaði með því. Mér fannst söngvarinn góður sem og hljóðfæraleikararnir. Þetta var svona ég-heyri-að-þeir-eru-að-gera-góða-hluti-en-það-grípur-mig-samt-einhvern-veginn-ekki dæmi. Í miðri Where’s the Snow? var hins vegar sýnd upptaka af þeim taka Eyes of a Cloud Catcher í Norræna húsinu í fyrra og það þurfti ekki meira til. Lagið er búið að vera fast í hausnum á mér alla vikuna og nú langar mig að heyra allt með þeim. “Tími til kominn” myndu sumir segja. “Betra er seint en aldrei” segi ég ;)

Fiume Night 11 _ Lhasa de Sela & Patrick Watson _ Montreal, april 2009 from vincent moon / temporary areas on Vimeo.

Mathieu Saura sat einn úti í horni með tölvuna sína þegar við mættum á næstum tóman Rósenberg í gærkvöldi. Á klukkutíma troðfylltist staðurinn og Hr. Saura skottaðist ‘upp á svið’ til að kynna sig og myndirnar sínar. Hann sagðist m.a. líta á svona kvöld sem tækifæri til að kynna minna þekkta tónlist og því ætlaði hann að sýna fleiri video af lítt þekktum tónlistarmönnum og hljómsveitum. Kvöldið byrjaði engu að síður á upptöku af Patrick Watson og Lhasa de Sela taka Elliott Smith lagið Between the Bars saman í Montréal og Bon Iver taka For Emma í París. Hann hélt svo áfram með Retro Stefson í Austurbæjarskóla, Pascal Pinon á golfvelli, Efterklang (sem ég hlakka hrikalega til að sjá á Airwaves) með fjölskyldum sínum á heimaslóðum á Als eyjunni ásamt argentínskum og japönskum tónlistarmönnum sem hann hefur verið að taka upp á árinu.

Bon Iver – For Emma, For Ever Ago – A Take Away Show from La Blogotheque on Vimeo.

Upptökurnar voru frábærar, Mathieu skemmtilegur og við röltum út syngjandi lag með Tomi Lebrero sem tekið var í Buenos Aires í febrúar. Ég hef svo sem minnst á Blogothèque og Concerts à Emporter áður en ég er enn sannfærðari núna. Vincent Moon (Mathieu Saura) er snillingur, videoin hans frábær og maður kynnist fullt af góðri tónlist á því að skoða þau. Mæli því með að þið eyðið helginni í að horfa á hundruði videoa sem hann er búin að gera!

Take Away Show #104 _ TOMI LEBRERO from vincent moon / temporary areas on Vimeo.

Rósenberg kvöldið verður því miður ekki endurtekið en Little Blue Nothing (ein af myndunum í tónlistarmyndaflokki Riff) er gerð af Vincent Moon og Antoine Viviani og verður sýnd í kvöld og á föstudag í Bíó Paradís. Allt önnur pæling en mögulega þess virði að tékka á engu að síður.

Svo er líka um að gera að fylgjast með Vincent Moon (hann er með mynd í vinnslu sem á að vera tilbúin í febrúar) á Twitter og Vimeo, Bowen Staines og Gunnari sem gerðu Where’s the Snow?

Tags: , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Airwaves, Kristjana, Óflokkað | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin