Nýtt frá Man Man og Battles
4.5.2011 - Kristjana
Það er kominn maí. Það er gleðiefni. Ekki bara vegna þess að það er allt í einu komið sumar heldur einnig vegna þess að í maí kemur ný plata frá hinum súperdúperofurmegasega hressu Man Man! Gott ef hún kemur ekki bara formlega 10. maí – semsagt innan við vika í hana! Live Fantastic, pródúseruð af engum öðrum en Mike Mogis er eitthvað sem getur held ég bara ekki klikkað.
Við slík tækifæri er við hæfi að fagna…og dilla sér. Við heyrum því lag og sjáum öskrandi hressleika frá (einu) skemmtilegasta live bandi sem ég hef nokkurn tíma séð.
Í byrjun júní kemur svo önnur plata Battles, Glass Drop. Söngvari Battles, Tyondai Braxton, er ekki memm lengur en það sem heyrst hefur so far hljómar vel og það er hellingur af spennandi gestasöngvurum á plötunni. Þetta lofar góðu og það verður forvitnilegt að heyra hvernig platan kemur út með söngvurum úr öllum áttum.
Battles feat. Matias Aguayo – Ice Cream
Tags: Battles, Man Man, Mike Mogis, Tyondai Braxton
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað | Comments Off
Fimmtudagshressleiki!
19.2.2009 - Kristjana

Tags: arcade fire, Bright Eyes, Calvin Harris, Caribou, Carla Bruni, Chromeo, Dr. Dog, Eureka Birds, First Aid Kit, Fleet Foxes, Gogol Bordello, Man Man, Midnight Poutine, Plants & Animals, The Sarcastic Dharma Society, The Tom Fun Orchestra, Tom Waits
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað | 3 athugasemdir »
Lokauppgjör 2008 – Krissa
10.1.2009 - Kristjana
1. Bestu tónleikar sem þú sást á árinu?
A close second var líklega að sjá The Kills þegar Kristín heimsótti Montréal deildina í maí. Bjóst einhvern veginn ekki við miklu en svo voru þau bara geðveik og það var svo brjálæðislega mikill kynþokki á sviðinu að maður varð næstum vandræðalegur við að horfa á það haha
2. Gamalt dót sem ég uppgötvaði á árinu:
Svo telst það nú kannski ekki gamalt, en kom allavega ekki út á árinu, að ég afrekaði loksins að hlusta á Panda Bear eftir að hafa keypt Person Pitch í byrjun ársins. Og ég skil engan veginn afhverju ég hlustaði ekki á hann fyrr? Hvaða rugl var það eiginlega? Ég meina, Bros er bara svo fáranlega æðislega awesomely gott lag!
Og já, svo tók ég allsvaðalegt æði aftur fyrir The Milk of Human Kindness með Caribou eftir að sjá hann í apríl – hann var bara simply of góður og ég var með plötuna á repeat næstu vikurnar þegar ég rölti um götur Montréal – endurtók algjörlega æðið sem ég fékk þegar hún kom út
3. Vonbrigði ársins
Engin ein plata eða hljómsveit sem ég varð fyrir neinum gríðarlegum vonbrigðum með á árinu. En tónlistartengd vonbrigði ársins eru samt svo mörg að þau eru í punktaformi:
- að missa af Dodos live í Montréal út af einhverju asnalegu eins og að þurfa að skila verkefni í skólanum eða e-ð.
- að neyðast til að sitja undir Rihanna á undan Kanye. Ég bjóst nú við að það yrði allavega hresst eða e-ð en það var bara…leiðinlegt! Held í alvöru að það skásta sem ég hafi um málið að segja sé að sviðið var alveg fínt haha. Hún var allavega engan veginn góð upphitun!
- að hafa gleymt (nei sko, bókstaflega, gleymt!) að mæta á El Perro del Mar og Lykke Li eftir að vera löngu búin að kaupa miða og vera búin að tala um tónleikana oft í vikunni. Fatta svo í hádeginu daginn EFTIR tónleika að ég átti að vera e-s staðar kvöldið áður.
- að hafa ekki skellt mér á M.I.A. þegar hún var að spila úti. Man ekki hvort það var forgangsröðun sem réði eða hvað en það var klárlega rugl að fara ekki!
- að hafa ekki séð Duchess Says þegar ég var nýkomin út til Kanada – heyrði plötuna viku seinna eða e-ð og varð ansi fúl!
- Xiu Xiu tónleikarnir sem ég fór á voru pínu vonbrigði. Upphitunin (Thao Nguyen and the Get Down Stay Downs) var betri en sjálft aðalnúmerið, allavega það kvöldið!
- Og síðast, en alls ekki síst, sé ég eftir að hafa gengið út úr miðasölunni 5 mín áður en Tom Waits hóf spilerí í Mobile í Alabama í sumar – út af einhverju svona asnalegu eins og að sætin væru svo fáranlega léleg og miðaverðið svo hátt. Ég meina, hversu oft fær maður tækifæri til að sjá Waits live? Þó það sé bara í partial view? ;/
4. Ætlaði alltaf að tékka á en trassaði:
5. Bjartasta vonin
6. Hvaða tónleikar komu þér mest á óvart á árinu?
Svo kom Sam Amidon mér skemmtilega á óvart á Airwaves
Tags: 2008, Árslisti, Bob Dylan, Bon Iver, Brad Barr, Caribou, Duchess Says, El Perro Del Mar, Fleet Foxes, Kanye West, Lykke Li, M.I.A., Man Man, Panda Bear, Patrick Watson, Rihanna, Sam Amidon, Thao Nguyen and the Get Down Stay Downs, The Dodos, The Kills, Tom Waits, Uppgjör, Xiu Xiu
Flokkað undir Kristjana, Listar | Comments Off
Lokauppgjör – Erla Þóra
9.1.2009 - Erla Þóra
1. Hverjir voru bestu tónleikar sem þú sást á árinu?
Why? í Montréal í mars.
2. Hvaða gamalt dót uppgötvaðir þú á árinu?
Leonard Cohen. Hálfkjánalegt að uppgötva hann svona seint, en gamla stöffið hans er flott.
3. Hver voru mestu vonbrigði ársins?
Erfitt að segja… en ég ætla að segja Fuck Buttons á Airwaves. Úff.
4. Hverju ætlaðirðu alltaf að tékka á á árinu en trassaðir?
Lykke Li. Stefni nú samt enn á að tékka á skvísunni!
5. Hver er bjartasta vonin?
Fleet Foxes.
6. Bónusspurning að eigin vali
Hvaða tónleika öfundaði ég aðra af að fara á á árinu?
Klárlega Man Man tónleikarnir í Montréal í Apríl sem Krissa fór á! Hefði nú reyndar líka alveg verið til að í að hafa farið með henni að sjá Kanye West for that matter.
Tags: 2008, Árslisti, Fuck Buttons, Kanye West, Leonard Cohen, Lykke Li, Man Man, Uppgjör, WHY?
Flokkað undir Erla Þóra, Listar | Comments Off
Topp 5 lagatitlar – Krissa
5.12.2008 - Kristjana
5. Man Man – 10 lb moustache
VÍJJ! Hver syngur um 10 punda moustache?
4. Maus – Síðasta ástin fyrir pólskiptin
3. Birdy Nam Nam – Il y a un cauchemar dans mon placard
2. British Sea Power – Apologies to Insect Life
Eitthvað sem ég mun aldrei gera! Most aaawesome lag samt!
1. Nouvelle Vague – Too Drunk to Fuck
Tags: Birdy Nam Nam, British Sea Power, Man Man, Maus, Nouvelle Vague
Flokkað undir Kristjana, Listar | 2 athugasemdir »
Topp 5 live lög – Kristjana
14.11.2008 - Kristjana




Tags: arcade fire, Glastonbury, Jeff Buckley, Man Man, nina simone, Radiohead, The Who, Tom Waits
Flokkað undir Kristjana, Listar | Comments Off
Topp 5 dýralög – Krissa
16.6.2008 - Kristjana
The Unicorns – I Was Born (A Unicorn)
Man Man – Push the Eagle’s Stomach
The Beatles – Blackbird
Einfalt, stutt og fallegt
Bonnie ‘Prince’ Billy – Wolf Among Wolves
Tags: Bonnie Prince Billy, Calexico, Caribou, Iron&Wine, Man Man, the beatles, The Unicorns
Flokkað undir Kristjana, Listar | Comments Off
Topp 5 lög til að elda við – Vignir
2.5.2008 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn
Að elda mat er góð skemmtun. Og góðri skemmtun fylgir góð tónlist. Þegar ég elda vil ég hafa skemmtilega tónlist sem hægt er að hreyfa líkamann við því það er ekki hægt að gera salsa sósu nema kokkurinn dansi með.
5. Of Montreal – She’s a Rejector
Hissing Fauna er frábær plata til að dansa við og elda við. Maður hreinsar úr sér existential vandræði, hommast aðeins upp og fær gott glam beint í æð. Matargerð við svona tónlist verður alltaf tilfinningarík og ekki kæmi á óvart ef að útkoman væri ekki gott og létt salat.
4. Man Man – Mister Jung Stuffed
Man Man eru rosa góðir í að fá mann til að hreyfa sig og eru mjög skemmtilegir við eldamennsku. Athyglisbresturinn og geðveikin skila sér í matargerðina og maður skiptir oft um skoðun, prófar nýja hluti og reynir að hafa eins mikið með og mögulegt er. Uppistaðan hér gæti t.d. verið Billy Madison kjúklingasalatið sem varð til hér í Montréal í seinustu viku: Ávaxtalegt salat með fjólubláum kjúkling (Well, I made the duck blue because I’d never seen a blue duck before and I wanted to see one). That’s quacktastic!
3. Metallica – Blackened
Metall hentar alveg vel í matargerð og sérstaklega ef maður er einn heima að elda. …And Justice For All hentar rosalega vel í þetta. Bannað að elda í öðru en gallabuxum og bol. Útkoman hér verður hamborgari steiktur upp úr bjór.
2. Daft Punk – The Prime Time of Your Life / The Brainwasher / Rollin’ & Scratchin’ / Alive
Það er ekki hægt að klikka með Daft Punk. Ef maður vill hafa eitthvað sem heldur manni við efnið þá er Alive platan ekki að fara að svíkja neinn. Ef maður væri með þetta í gangi myndi maður gera eitthvað snöggt, einfalt, flott og stílhreint eins og nýtt lobby í flottu hóteli. Maður gerir örugglega eitthvað með japönskum áhrifum, marinerar eitthvað upp úr teriyaki, soya sósu og sesamfræjum.
1. Red Hot Chilli Peppers – Throw Away Your Television (Live at Slane Castle)
Það var þannig á tímabili á seinustu dögum mínum í Breiðholtinu að eina leiðin til að hafa einhverja tónlist með þegar maður var að elda var að taka fartölvuna með inn í eldhús og láta hana vera græjurnar. Ég er alltaf með tónlistina mína á flakkara og átti því ekkert til að hlusta á. Ég var hins vegar með þessa tónleika piprana á DVD og setti það oft á. Áður en ég horfði á þessa tónleika var ég ekki voða hrifinn af RHCP en eftir þetta seldist ég alveg og sá að þeir virka greinilega langbest á tónleikum. Þar fá allir að njóta sín sem best og fer John Frusciante alveg á kostum á þessum tónleikum og gefur hverju lagi nýja hlið. Ef maður eldar með þetta undir endar maður alltaf í einhverju suður-amerísku með guacamole til hliðar.
Tags: Daft Punk, John Frusciante, Man Man, Metallica, Of Montreal, Red Hot Chili Peppers
Flokkað undir Listar | 2 athugasemdir »
Topp 5 New York lög – Krissa
20.4.2008 - Kristjana
Ég ætlaði að gera topp5 lista yfir lög með New York tónlistarmönnum/hljómsveitum um New York o.s.frv. o.s.frv. Ég skipti hinsvegar um skoðun á miðri leið, ákvað að vera sjálfhverf og velja þau 5 lög sem mér finnst vera ofur-New-York lög, lög sem ég tengi á einhvern hátt við borgina, lög sem ég myndi hlusta á væri ég þar and all that jazz so voila:
5. TV on the Radio – The Wrong Way
TV on the Radio eru reyndar frá New York, Brooklyn to be precise (auðvitað eru þeir baseaðir í Brooklyn). Fáranlega skemmtilegir og ég hefði í raun getað valið hvaða lag sem er með þeim. Þetta er hinsvegar í örlitlu uppáhaldi þrátt fyrir að ég sé búin að vera að hlusta á það stanslaust síðan það kom út – það er einfaldlega ekki hægt að fá nóg af þessu lagi.
Lagið sem þú hlustar á í subwayinu while discreetly peoplespotting.
4. Death From Above 1979 – Black History Month
Las einhvern tíma að hugmyndin að þessu lagi hefði komið í subway ferð í New York. Hvort sem eitthvað er til í því eður ei dettur mér borgin alltaf í hug þegar ég heyri lagið.
Lagið sem þú hlustar á þegar þú situr í garði/úti á svölum/uppi á þaki og spjallar
3. Man Man – Push the Eagle’s Stomach
Man Man eru ekki frá New York og lagið er ekki um New York (ekki svo ég viti allavega) en það spliffar ekki donk, ég sá þá fyrst í Bowery Ballroom og var ekki mikið búin að hlusta á þá fyrir tónleikana þannig að fyrir mér eru Man Man New York tónlist. Þetta lag er eins og borgin: skemmtilegt, allt að ske, smá af öllu, ört og brjálæðið allsráðandi.
Lagið sem þú hlustar á þegar þið langar að dansa um í 37fm íbúðinni þinni, hoppa í sófanum og syngja með: “moustache, moustache, moustache”.
2. Bonde Do Role – Marina Gasolina
Sjáið þið ekki fyrir ykkur að vera í einni af þessum alræmdu pínulitlu Manhattan leiguíbúðum og dilla ykkur í ‘stofunni’ við þetta lag meðan þið takið ykkur til fyrir kvöldið?
Lagið sem þú hlustar á þegar þú ert á leiðinni út í ógó pógó góðan mat og djamm með stelpunum/strákunum.
1. British Sea Power – Apologies to Insect Life
Undir-þriggja-mínútna-brjálæði. Fullkomið fyrir borgina þar sem allstaðar er fólk og freistingar og tónlist og eitthvað skemmtilegt að gera og góður matur til að borða og og og…fullkomið lag fyrir fullkomna borg
Lagið sem þú hlustar á í headphones meðan þú röltir um, air-trommar óvart pínu og syngur með vegna einskærrar gleði yfir að vera í borg borganna…
TV on the Radio – The Wrong Way [.mp3] [myspace] [video]
Death From Above 1979 – Black History Month [.mp3] [myspace] [video]
Man Man – Push the Eagle’s Stomach [.mp3] [myspace] [video - live í Nashville]
Bonde Do Role – Marina Gasolina [.mp3] [myspace] [video]
British Sea Power – Apologies to Insect Life [.mp3] [myspace} [video - live í Brixton]
Tags: Bonde Do Role, British Sea Power, Death From Above 1979, Man Man, TV on the Radio
Flokkað undir Kristjana, Listar | Comments Off
Topp 5 tiltektarlög – Vignir
18.1.2008 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn
Þegar ég tek til þá þarf ég að hafa mikið stuð í kringum mig. Þessvegna set ég oft mjög hressa tónlist á enda á ekki að vera leiðinlegt að taka til að óþörfu. Þótt að listinn sýni það ekki þá lendir oft metall í hlustun hjá mér. Það er t.d. mjög gott að taka til undir …and Justice For All eða hressum slögurum með Opeth.
5. Feist – I Feel it All
Það er frekar kjánaleg ástæða fyrir því að ég er með þetta lag á listanum en ég er búinn að vera með þetta lag á heilanum alla vikuna og ég er einnig búinn að vera með þennan lista á öðru heilahvelinu alla viku. Þetta olli samruglingu sem olli því að ég er búinn að vera að raula: “I Clean It All, I Clean It All” alla viku.
4. Maximo Park – Postcard of a Painting
Árið 2004 kom alveg fullt af hressleikarokki frá Bretlandseyjum: Maximo Park, Futureheads, Franz Ferdinand og Dogs Die in Hot Cars svo dæmi séu nefnd. Þessar hljómsveitir gerðu rosalega góð tiltektarlög og ef maður hendir saman playlista með þeim verður tiltektin barasta mjög hress skemmtileg.
3. Man Man – Banana Ghost
Eftir að ég flutti inn til minnar heitelskuðu þá verður tiltektin oft að samvinnuverkefni. Þar af leiðandi verður tónlistin sem spilar undir að falla að eyrum allra íbúa. Þetta hefur sína kosti og galla. Ekki má lengur setja Lamb of God en hinsvegar koma upp nýjar hugmyndir sem manni hefði kannski ekki dottið í hug. Auk þess þá er líka til fullt af góðri tiltektartónlist sem að báðir aðilar hafa gaman af og bera jafnvel sameiginlegar tilfinningar til. Dæmi um þetta er hljómsveitin Man Man sem við uppgötvuðum svo skemmtilega saman í úgglandaferð.
2. Tina Turner – I Can’t Stand the Rain
Þegar pabbi fór að taka til þá fór alltaf Live platan með Tinu Turner á fóninn. Þessi plata og Brothers in Arms plata Dire Straits voru uppáhalds plötur pabba á þessum tíma. Ein af mín elstu minningum er einhvern laugardaginn þegar verið var að taka til og pabba vantaði diskinn. Hann átti þó þessa tónleika á VHS spólu en hann var þá búinn að tengja hljóðið við stofugræjurnar. Svo stóð hann stoltur fyrir framan slökkt sjónvarpið og montaði sig yfir því að geta hlustað á hljóðið á spólunni án þess að þurfa að kveikja á sjónvarpinu. Ég held að þetta sé það tæknilegasta sem ég hef séð hann gera.
1. At the Drive-In – Arcarsenal
Relationship of Command er all-time uppáhalds tiltektarplatan mín og fær hún lang oftast að fara á fóninn þegar taka á til. Það er svo mikill kraftur í þessari plötu að hann smitar alveg rosalega og maður vaskar upp eins og enginn sé morgundagurinn. Svo getur maður líka öskrað með óskiljanlegum textunum og fengið fínustu útrás!
Tags: ...and Justice For All, At the Drive-In, Dire Straits, Dogs Die in Hot Cars, Feist, Franz Ferdinand, Futureheads, Lamb of God, Man Man, Maxïmo Park, Opeth, Tina Turner
Flokkað undir Listar | Comments Off




