Reykjavík Music Mess hefst í kvöld!

24.5.2012 - Kristjana

Loka loka áminning – Reykjavík Music Mess hefst í kvöld! Dagskrá kvöldsins er ekki af verri endanum en fram koma Cheek Mountain Thief, Tilbury, Dikta og Morðingjarnir. Tónleikarnir verða á Nasa, Reykjavík Music Mess miði veitir aðgang en einnig er hægt að kaupa miða einungis fyrir kvöldið í kvöld á miði.is.

Er ekki við hæfi að fá létta upphitun?

Cheek Mountain Thief (spila kl. 21:45)

Tilbury (spila kl. 22:30)

Dikta (spila kl. 23:15)

Morðingjarnir (spila kl. 00:30)

Tags: , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað | Comments Off

Reykjavík Music Mess kveður Nasa með aukatónleikum

23.5.2012 - Kristjana

Reykjavík Music Mess gleðin eykst með hverjum deginum því nú hefur verið tilkynnt að sérstakir aukatónleikar verði haldnir á Nasa á fimmtudaginn, þann 24. Dikta, Tilbury, Cheek Mountain Thief og Morðingjarnir munu koma fram og tónleikarnir hefjast upp úr kl. 21. Reykjavík Music Mess miði mun veita aðgang en einnig verður hægt að kaupa miða einungis fyrir fimmtudagskvöldið á miði.is og við inngang og er miðaverðu einungis 1.000 kr.

Eins og við höfum áður nefnt munu alls 18 hljómsveitir koma fram á hátíðinni yfir helgina – á Nasa, Kex Hosteli og Faktorý. Meðal þeirra eru Reykjavík!, Benni Hemm Hemm, My Bubba & Mi frá Danmörku, Snorri Helgason og Laura J. Martin frá Englandi. Dagskrá hátíðarinnar má nálgast á heimasíðu hennar www.reykjavikmusicmess.com. Svo er um að gera að minna enn og aftur á að frítt er inn á þá viðburði sem haldnir verða á Kex Hostel.

Tags: , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað | Comments Off

Jólajólalög

7.12.2011 - Georg Atli

Desember og allt sem honum fylgir er farið að íþyngja sumu fólki. Á meðal þeirra hluta sem geta farið í taugarnar á fólki svona í kringum jólin eru léleg/leiðinleg jólalög, það virðist nefnilega vera alveg ótrúlega mikið af þeim til og líka alveg ótrúlega mikið af fólki sem vill spila þau upp á nýtt og þá jafnvel í verri útgáfum. Sem betur fer eru samt ekki öll jólalög leiðinleg. Til dæmis þá gaf Stafrænn Hákon út heila jólaplötu í fyrr sem er afspyrnu skemmtileg og Morðingjarnir gerðu líka jólalag og m.a.s. var (fín) jólaábreiða á þeirri smáskífu.

Í ár koma líka jólalög og núna um daginn sendi Melchior frá sér jólalag sem er hægt að kaupa á hjá gogoyoko.

Það er svo orðin árlegur viðburður að jaðarútgáfan Bedroom Community sendi frá sér jólatengdann safndisk (kom líka út í fyrra, er það ekki þá orðin hefð?!). Lagalistinn í ár lítur svona út:

Puzzle Muteson — Will You Love Me Tomorrow
Nico Muhly — Once in Royal David’s City
Daníel Bjarnason — Spindrift / Montauk in February Remix
Valgeir Sigurðsson — Flesh and Wine and Firewood
Ben Frost — Stomp / Scanner Remix
Nico Muhly — The Holly and the Ivy
Ben Frost — The Gravity of Numbers
Daníel Bjarnason — Air to Breath / Montauk in February Remix
Sam Amidon — How Come That Blood / FM Belfast Remix

og að lokum þá sendi hljómsveitin Gang Related (sem á eina af topp plötum ársins) frá sér jólalag á dögunum og það er ókeypis að sækja á soundcloud síðunni þeirra, næs!

Gang Related – Jesú Jólasveinn

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Tags: , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off

Morðingjarnir senda frá sér Blóð…

13.7.2011 - Georg Atli

- Blóð flæðir um götur borgarinnar -

Hljómsveitin Morðingjarnir hafa látið lítið fyrir sér fara síðan þeir sendu frá sér jólalagið Jólafeitabolla við góðar undirtektir landsmanna. Þeir hafa þó verið að vinna að nýjum lögum sem mögulega kannski verða á nýrri plötu þegar fram líða stundir. Fyrsta lagið af þessari væntanlegri plötu hefur nú verið sett í spilun sem og verður fáanlegt á tónlistarveitunum www.tonlist.is og www.gogoyoko.com. Lagið heitir Blóð og er fyrirtaks spaghettíkántrívestra slagari í anda KK og Ennio Morricone. Lagið er tekið upp af Helga Sæmundi Kaldalón Guðmundssyni, liðsmanni Bróðir Svartúlfs, sem einnig leikur á munnhörpu. Smári Tarfur leikur svo á slædgítar og Ólafur Torfi leggur til bakraddir, en hann þykir víst djúpraddaðri en Barry White á góðum degi. Umslag smáskífunnar Blóð er svo hannað af Morðingjunum sjálfum.

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Tags: , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning | Comments Off

Sumarhreinsun Kimi Records í Kolaportinu

13.5.2011 - Georg Atli

Í ljósi þess hvað geisladiskar og plötur og hljómsveitamerkturfatnaður er oft ógeðslegadýr, þá er þessi póstur sem að okkur barst í gær afskaplega gleðilegur:

Útgáfufélagið KIMI RECORDS ætla sér að hreinsa til af lagernum sínum fyrir komandi sumar og rýma fyrir nýjum stefum. Þeir munu því fylla hjólbörurnar af húrrandi flottum geisladiskum og vínilplötum, íslenskum sem og erlendum, ásamt æðislega töff hljómsveitabolum í ýmsum stærðum og litum og öllu þessu verður skúrrað í KOLAPORTIÐ um helgina. Músík og fatnaður eftir Fm Belfast, kimono, Reykjavík!, Morðingjana, Sin Fang, Seabear, Sudden Weather Change og hvaðeina.

Við lofum slefandi góðum tilboðum, fallegustu plötum í heimi, skýtnu samblandi af lakkrís- og hákarlsilmi, dynjandi rytma og reyk. Komdu í heimsókn! Svo verður boðið upp á kennslustund í prútti, fyrir þá sem kæra sig um það.

Sumarhreinsun Kimi Records stendur yfir um helgina 14. og 15. maí og Kolaportið er opið á milli kl. 11-17 eða eitthvað.

Tags: , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off

Kimi Records annáll!

14.1.2011 - Georg Atli

Kimi Records árið 2010

2010 var mjög viðburðaríkt ár hjá Kimi Records. Útgáfan blómstraði og gaf út 15 breiðskífur í það heila, 2 tíu tommu EP plötur, eina 7″ og nokkrar rafrænar smáskífur. Sumar þeirra höfðu þó komið út á Íslandi á árinu 2009 en útgáfa erlendis hefur aukist svo um munar hjá Kimi Records og stefnir félagið á frekari landvinninga í þeim efnum. Að auki gaf hliðarútgáfan Brak hljómplötur út níu plötur. Eins tók útgáfan fullan þátt í rekstri menningarafurðarstöðvarinnar Havarí ásamt Svavari Pétri og Berglindi (úr Skakkamanage), stóð að fjölmörgum tónleikum og viðburðum og var með áberandi dagskrá á tónlistarhátíðinni Airwaves.
Árið hófst á útgáfu fyrstu breiðskífu FM Belfast í Evrópu og Bandaríkjunum, en sú plata hafði komið út árið 2008 hér á landi. Platan var gefin út á geisladiski og forláta vínylplötu (þar sem diskurinn fylgir með). Í raun má segja að frá 21. janúar (útgáfudegi FM Belfast) hafi komið út efni frá útgáfunni í hverjum mánuði allt þar til tíutomma með hljómsveitinni The Heavy Experience kom út 20. desember. Hápunktar verða að teljast útgáfa á safnskífunni Hitaveitan (kom út 17. júní) þar sem 20 hljómsveitir stóðu að 14 frábærum lögum og endurútgáfa á Goð með S.H. Draumi en báðar útgáfur fengu mikið lof fyrir metnað og gæði. Eins var Brak útgáfan í heild sinni að fá mikið lof fyrir metnaðarfullt og þarft starf í grasrót íslensks tónlistarlífs. Brak er sönnun þess að á Íslandi þarf ekki hrúgu af aurum og græjum til að búa til góða músík, hún sprettur af fólki og hæfileikum og engu öðru.

Kimi Records
Fm Belfast – How to Make Friends (LP)

Seabear – We Built You a Fire (LP)
Benni Hemm Hemm – Retaliate (EP)
Stafrænn Hákon – Sanitas (LP)

Sudden Weather Change – The Whaler (7” single)
Safnskífa – Hitaveitan (LP)
Miri – Okkar (LP)
Tape Tum – The Night We Called It a Day (LP)

kimono – Easy Music For Difficult People (LP)
Hjaltalín – Terminal (LP)
Snorri Helgason – I’m Gonna Put My Name On The Door (LP)
Swords of Chaos – The End is As Near As Your Teeth (LP)
S.H. Draumur – Goð+ (2LP)
Retro Stefson – Kimbabwe (LP)
Reykjavík! – Cats (Single)

Orphic Oxtra – Orphic Oxtra (LP)
Prinspóló – Jukk (LP)
Benni Hemm Hemm – Skot (LP)
Morðingjarnir – Jólafeitabolla (Jólakort)
The Heavy Experience (10” EP)

Brak Records
Nolo – No-Lo-Fi
Buxnaskjónar – Nýtt lýðveldi
Loji – Skyndiskyssur

Quadruplos – Quadruplos
Markús & The Diversion Sessions – Now I Know

Hairdoctor – Wish You Were Hair
Just Another Snake Cult – The Dionysian Season
Stafrænn Hákon – Glussajól

-Baldvin Esra Einarsson

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Gestalisti | Comments Off

Jóla…

1.12.2010 - Georg Atli

Jájá 1. des kominn og 1. í aðventu búinn og allt það. Jólin er alveg að koma, Sigga Beinteins er farin að hljóma í Kringlunni og allir farnir að kvíða því að Jólahjól og öll hin hræðilega ofspiluðu jólalögin festist í hausunum þeirra…. er þá ekki snilld að fá eitthvað brakandi ferskt og íslenskt til að koma manni í jólagírinn??!!

Fyrst þá eru það Morðingjarnir. Þeir sendu frá sér jólasmáskífu og við fengum bréf um það:


Morðingjar fara í sparifötin

Popppönk hljómsveitin Morðingjarnir hefur sent frá sér jólasmáskífuna Jólafeitabolla. Fæst hún í rafrænu formi á öllum helstu tónlistarveitum landsins, svo sem gogoyoko, tónlist.is og vefverslun Havarí. Smáskífan inniheldur tvö jólalög, annað er nýtt lag úr smiðju Morðingjanna sjálfa og nefnist það Jólafeitabolla og hitt er ábreiða á hinu þekkta lagi Þú komst með jólin til mín. Morðingjarnir fengu góða gesti til aðstoðar við upptökur á lögunum tveim. Jens Hansson úr Sálinni hans Jóns míns þenur saxófóninn í Jólafeitabollu og svo syngur Þórunn Antonía með Hauki í Þú komst með jólin til mín.

Jólafeitabolla hefur fengið að hljóma talsvert í eyrum landsmanna síðustu daga þar sem lagið er notað af Skjánum til að kynna jóladagskrá sína.

Lögin munu einnig koma út sem jólakort á næstu dögum og munu þau fást í öllum helstu verslunum. Hverju korti fylgir niðurhalskóði og geta viðtakendur kortanna náð sér í lögin á heimasíðunni www.kimirecords.com. Kortið er hannað af Hauki Morðingja og Svavari Pétri Eysteinssyni.

Lögin voru tekin upp og að öllu leyti unnin af upptökusnillingnum Axeli ‘Flex’ Árnasyni í Stúdíó Reflex.

og svo var Stafrænn Hákon að gera Glussajól. Það er heil jólaplata og kemur út á miðvikudag í gegnum Brak. Þetta er snilld!

og hljómsveitin Króna (BiggiBix fyrrum Maus, Hjalti úr Miri og Jón Valur úr Who Knew) var líka að skella í eitt jólalag, það heitir Jólin Koma of Seint og var sungið með 2. bekk í Vesturbæjarskóla. Ég get því miður ekki póstað því hér en hvet ykkur til að tjékka á því á myspace-inu þeirra og/eða tónlist.is.

Tags: , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin