Tónleikar um páskana

20.4.2011 - Georg Atli

Það er lygilega mikið að gerast í tónleika haldi um páskahelgina og þá sérstaklega í kvöld (miðvikudagskvöld). Við erum búin að uppfæra dagatalið okkar þannig að þið skuluð endilega tjékka þar því að ég er ekki alveg viss um að við náum að taka saman alla helgina að þessu sinni.

Eins og venjulega þá má endilega benda okkur á það sem að við erum að missa af, veljiði bara ykkar uppáhalds samskiptaform hér að neðan (og endilega like-ið eða follow-ið í leiðinni):
Facebook
Twitter
Athugasemd við þessa færslu
tölvupóstur

Miðvikudagur:
Reykjavík Blues festival hófst 16. apríl síðastliðinn og hátíðin er allstaðar og úti um allt. Tjékkiði hér fyrir nánari upplýsingar.

Á Faktorý flæða elektrónískir tónar. Það kostar 1000 kr. inn og það byrjar kl. 21:30. Nánar hér.

Á Bakkus verða ókeypis tónleikar með hljómsveitunum Miri, Swords of Chaos, The Cocksucker Band og Kristin Allen-Zito, þeir hefjast kl. 22:00

Á Dillon verður dansiball og þar mun Spacevestite leika fyrir dansi. Byrjar kl. 22:00 og frítt inn.

Á Sódómu verða hljómsveitirnar Agent Fresco, Vigri, Saytan og Postartica. 1000 kall inn og tónleikarnir byrja kl. 23:00

Á Hemma og Valda helda TomTom Records áfram með Heiladansinn sinn. Að þessu sinni verða það Steve Sampling (útgáfutónleikarnir hans), ThizOne og Fu Kaisha trylla lýðinn ásamt því að Futuregrapher mun “bræða mp3 fæla á tölvunni sinni á milli atriða”

Fimmtudagur:

Á Dillon verður sumardagirinn fyrsti haldinn hátíðlegur með hljómsveitunum Morgan Kane, Hek og Heima. Byrjar kl. 21:30

Blues festivalið heldur áfram.

Aldrei fór ég suður hefst líka í dag með off-venue viðburðum, nánar á heimasíðunni þeirra.

Föstudagur:
Meira af Aldrei fór ég suður.

Á miðnætti hefjast síðan tónleikar með Friðriki Dór, Blazroca og Emmsjé Gauta á Sódóma. Húsið opnar kl. 00:15 og það kostar 1000 kr. inn.

vonandi náum við að bæta restinn inn síðar en annars þá er það bara dagatalið sem gildir.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

Tónleikasamantekt *Uppfært*

23.3.2011 - Georg Atli

Að venju þá er bærinn fullur af tónleikum. Eins og alltaf þá reynum við að fylgjast með sem flestu en biðjum við ykkur um að senda okkur einhverskonar línu ef að þið vitið um eitthvað sem við gerum ekki. toppfimmafostudegi[hjá]gmail.com og svo líka facebook-ið eða klassíska commentið bara.

Núna tek ég aðallega saman dagskrána fyrir miðvikudaginn en dagskráin uppfærist eftir því sem að nær dregur helginni þannig að endilega að tjékka á okkur aftur.

Miðvikudagur
Á Sódómu verða árlegir styrktartónleikar Kvennaskólans. Þar verða Sin Fang, Mukkaló, Valdimar, Fonetik Simbol ásamt Kristrúnu Lárus, My Brother is Pale og Kvennókórinn að sjá til þess að kvöldið verði skemmtilegt. Tónleikarnir byrja kl. 20:00 og það kostar bara 500 kall inn sem er ekkert neitt.

Dúettinn Heima verður á Rósenberg. Tónleikarnir byrja kl. 21:30 og það kostar 1000 kall inn.

Á Dillon verður Miðvikudagsmosh. Chino, Klikk og The Neighbours sjá um tryllinginn sem byrjar kl. 22:00 og kostar ekkert inn á.

Fimmtudagur
Stærstu tónleikar kvöldsins verða án efa á Sódómu en þar verður Apparat Organ Quartet með fyrri tónleika sína af tveimur. Í kvöld er það Borko sem að hitar upp og tónleikarnir eru stílaðir inn á vinnandi fólk og byrja því kl. 21:00. Ég held að það séu enn til miðar en ég er ekki viss, best bara að tjékka á 12 Tónum.

Á Faktorý verða Jón Jónsson og Lifun með tónleika. 1000 kall inn og fyrsta band fer á svið kl. 22:00

Á Hemma og Valda verður fyrsta kvöld TomTom Records sem að ber nafnið Heiladans 1 Yoda Remote, Prince Valium, Bypass og Tonik. Kostar ekkert inn og tónleikarnir byrja kl. 21:00

Á Rósenberg verða tónleikar með Mogadon “ásamt vinum, gestum, leynigestum, gæludýrum og austur-evrópskri þjóðlagahljómsveit”. 1000 kr. inn og tónleikarnir byrja kl. 21:00

Föstudagur
Á föstudeginum verður brjálað að gera fyrir tónleikaþyrsta.

Í fyrsta lagi er fyrsta kvöld Músíktilrauna í Tjarnarbíó. Fullt af efnilegum hljómsveitum þar, tónleikarnir byrja kl. 19:00, og nánar hér.

Síðan eru seinni tónleikar Apparat Organ Quartet á Sódómu. Í þetta skiptið byrja þeir kl. 22:00 og Swords of Chaos hita upp.

Í Slippsalnum verða Agent Fresco og Árstíðir með órafmagnaða tónleika. Húsið opnar kl. 19:30 og það kostar skitnar 1000 kr. inn.

Á Amsterdam verða Vigri, Andvari og Örför. Ókeypis inn og tónleikarnir byrja kl. 23:00

Laugardagur
Á Faktorý ætlar Sin Fang að halda fría tónleika! Þar verður væntanlega hægt að fara og hlusta á lög af einni bestu plötu ársins og líklega eitthvað af eldra efni frá Sin Fang og svo ætla Munnfylli af Galli og O F F líka að koma fram. Húsið opnar kl. 22:00 og ég býst við því að það sé sniðugt að mæta snemma.

Á Sódómu verða styrktartónleikar. Þar verða hljómsveitirnar Morgan Kane, Finnegan, Noise, The Vintage Caraven, Endless Dark og Morning After Youth að troða upp ásamt Bödda úr Dalton. Allir listamennirnir ætla að gefa vinnu sína og allur ágóði rennur óskipur til Krabbameinsfélagsins. Aðgangseyrir eru 1500 krónur að lágmarki, nema að þeir sem eru með mottu borga 1000 kall (en auðvitað mega allir borga meira), húsið opnar 21:30.

Á Dillon verða síðan hljómsveitirnar Vigri, Virtual Times og Friday Night Idols. Þar er frítt inn og húsið opnar kl. 22:30

Sunnudagur
SunnuJazz á Faktorý.

Þá held ég að þetta sé komið í bili…

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

Tónleikar vikunnar

17.3.2011 - Kristín Gróa

Krakkar mínir! Bara komið fimmtudagskvöld og engin tónleikasamantekt. Afsakið, afsakið þúsund sinnum! Við tökum þetta þá bara létt og rennum yfir föstudags- og laugardagskvöld.

Föstudagur:

Mig langar alveg sérstaklega að benda ykkur á það sem er að gerast á Faktorý þetta kvöld því þar koma fram hljómsveitirnar Of Monsters And Men, Orphic Oxtra og Who Knew. Tilefni tónleikanna er að styrkja væntanlega plötugerð Of Monsters And Men en þau eru að fara í hljóðver að taka upp sína fyrstu plötu núna í lok mars. Það kostar þúsundkall inn, tónleikarnir hefjast kl. 23:00 og þetta verður geðveikt! Sjá nánar hér.

Á Sódóma verður líka gaman en þar munu Valdimar, Hljómsveitin Ég og Spacevestite troða upp. Húsið opnar 22:00, það kostar þúsundkall inn og nánari upplýsingar má finna hér.

Á Nasa spilar hljómsveitin Dr. Spock sem hluti af 10 ára afmælistónleikaröð staðarins. Húsið opnar 23:00 og það kostar þúsundkall inn. Nánari upplýsingar á nasa.is.

Á Rósenberg ætlar cover bandið A Band on Stage að rokka 80′s style. Byrjar kl. 22:00 og kostar 1000 kall inn.

Það verður Psychadelic Sonic Vibes kvöld á Dillon en þar ætla hljómsveitirnar Dandelion Seeds, Bob og Baku Baku að troða upp. Frítt inn og tónleikarnir byrja kl. 21:00

Tónleikar til styrktar kaffistofu Samhjálpar verða í Háskólabíó kl. 20:00. Fullt af atriðum m.a. Hjálmar, KK, Ferlegheit og Ellen Kristjáns, 2900 kr. inn

Síðan verða útgáfutónleikar hljómsveitarinnar Ferlegheit í Gamla Kaupfélaginu á Akranesi… bara svona ef einhvern langar í smá road-trip. 1000 kall inn, platan á tilboði og tónleikar byrja kl. 22:00

Laugardagur:

Á Sódóma verður annar tvípunktsdagurinn en það er tónleikaröð fyrir alla fjölskylduna! Pælingin er sú að kl. 16:00 eru áfengislausir tónleikar fyrir alla fjölskylduna þar sem kostar 500 krónur fyrir yngri en 18 ára en 1000 krónur fyrir þá sem eldri eru. Seinna um kvöldið (22:00) fara svo fram “fullorðins” tónleikar þar sem aldurstakmarkið er 18 ár og kostar þúsundkall inn. Í þetta sinn koma fram hljómsveitirnar Agent Fresco og Cliff Clavin á báðum tónleikunum en Ikea Satan bætist svo við um kvöldið. Nánari upplýsingar má finna hér.

A Band on Stage ætlar (aftur) að vera á Rósenberg. Næstum sömu formerki og á föstudagskvöldinu nema það að nú byrjar ballið kl. 20:00.

Í Tjarnarbíó verður rafveisla en þar ætla vinir hans Bjössa Biogen að vera með tribute tónleika. 6 tíma prógram með fáránlega flottu line uppi og meðal annars ætlar sjálfur Þórhallur Skúlason (Thor) að mæta og vera með AJAX tribute…. það má ekki missa af því! Miðasala fer fram á miði.is

Fyrir hörðu hausana þarna úti þá er skylda að benda á að Heaven Shall Burn er með tónleika á Amsterdam og þar verða líka Gone Postal, Angist og Ophidian I.

Á Dillon verða ókeypis tónleikar 22:00, eins og svo oft áður. Þetta kvöldið ætla Spacevestite, Morgan Kane og Örför á spila.

Sunnudagur
SunnuJazzinn verður á sínum stað á Faktorý. 21:00 og ókeypis inn.

Þetta er allt og sumt sem við vitum um í bili en gæðin á viðburðum eru svo mikil að það verður hvort sem er erfitt að velja! Ef þið vitið um eitthvað sem er í gangi, kommentið þá endilega eða skrifið á facebook síðuna okkar og við uppfærum yfirlitið.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Tónleikar | Comments Off

Tónleikasamantekt *uppfært*

16.2.2011 - Georg Atli

Það er komið að samantektinni, en sökum þess að það er bara ansi mikið að gera hjá okkur núna þá erum við að setja hana saman í smá skömmtum. Þess vegna er alveg líklegt að við séum að missa af einhverju og þið verðið bara að tjékka reglulega á okkur næstu daga til að sjá hvort að þessi færsla verði ekki uppfærð (mér finnst það líklegt).
Ef þið vitið um eitthvað sem er ekki hérna inni þá er um að gera að senda okkur ábendingu um það í tölvupósti: toppfimmafostudegi[hjá]gmail.com setja comment eða bara að skella því á facebook vegginn okkar

Miðvikudagur
Í kvöld far náttúrulega allir á Faktorý að sjá myndina hans Vincent Moon. Byrjar um 21:00 og það er frítt inn!

Fimmtudagur
Í Austurbæ verða Agent Fresco með útgáfutónleika. Húsið opnar kl. 20:00 og miðaverðið er 1500 kall í forsölu en 2000 við hurð.

Prinspóló ætlar líka að vera með útgáfutónleika, þeir verða á Faktorý og byrja kl. 22:00. Einungis 1000 kr. inn.

Lights on the Highway verða á Sódómu. Tónleikarnir byrja kl. 21:00, 1000 kall inn og Arnar Ingi (The Johnny Cash Kid) sér um upphitun.

Brother Grass ætluðu svo að vera með tónleika á Rósenberg en þeim þurfti því miður að fresta þar til 8. mars.

Föstudagur
Á Sódómu verður Föstudagsgleði með Rökkurró, For a Minor Reflection, Útidúr og Lockerbie

Saytan og Nolo verða á Bakkus, tónleikarnir byrja kl. 22:00 og það kostar ekkert inn.

Two Tickets To Japan,Morgan Kane og Moy
verða á Dillon. Herlegheitin byrja kl. 22:00 og eins og oftast þá kostar ekkert inn.

Laugardagur
Endless Dark verða með útgáfutónleika á Sódómu. Þarna verða tvennir tónleikar annars vegar kl. 16, þar sem að allir aldurshópar eru velkomnir og Helgi Valur spilar líka þá. Seinni tónleikarnir kl. 22:00, en þar er 18 ára aldurstakmark og þá bætist BlazRoca við flytjendur.


Mighty Good Times, Caterpillarmen
og Dorian Gray spila á Dillon. Húsið opnar kl. 21:00 og það er ókeypis inn

Sunnudagur
Það verður Jazzað á Faktorý á sunnudagskvöld. Jazzkvöldið byrjar uppúr 21:00

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin