Cheek Mountain Thief heldur í tónleikaferð

5.9.2012 - Georg Atli

Við vorum að fá fregnir af því að Mike Lindsay og hljómsveitin hans Cheek Mountain Thief væri að fara í tónleikaferð um evrópu og héldi meira að segja tvenna tónleika hér á landi. Þeir fyrri verða í kvöld á Faktorý en þeir seinni verða á Húsavík, nánar til tekið í Gamla Bauk. Héðan heldur hann svo yfir til Englands, Frakklands og svo Hollands.

Þeir sem ekki kannast við Cheek Mountain Thief ættu kannski að muna eftir því þegar að gamla hljómsveitin hans Tunng kom og spilaði á góðum Airwavestónleikum 2010. Á þeirri hátíð hreifst Lindsay svo af landi og þjóð (sumum betur en öðrum) að hann ákvað að flytja hingað og hefur verið að semja tónlist undir merkjum Cheek Mountain Thief. Samnefnd plata kom svo út á þessu ári og hefur verið að vekja verðskuldaða athygli í erlendum fjölmiðlum.

Á tónleikunum í kvöld ætla Þórir Georg (sem virðist vera manna duglegastur við tónleikaspilerí þessa dagana) og Good Moon Deer spila með Cheek Mountain Thief og því má búast við ansi góðri skemmtun. Tónleikarnir byrja kl. 21:00 og það kostar 1000 krónur inn.

Öll fréttatilkynningin fylgir hér fyrir neðan en fyrst ættuð þið að hlusta á nýjustu smáskífu kappans, Showdown, en þar er hinn magnaði Mugison til aðstoðar. Plötuna má svo hlusta á í heild sinni á Gogoyoko.

Tilkynningin:
Breski tónlistarmaðurinn Mike Lindsay og íslenska hljómsveitin hans, Cheek Mountain Thief, hefur fengið afbragðsviðtökur við nýrri breiðskífu þeirra, Cheek Mountain Thief. Platan kom út í ágúst í Bretlandi á vegum breska útgáfufélagsins Full Time Hobby (á vegum Kimi Records hér á landi) og hefur fengið frábæra dóma víðsvegar um Evrópu og í Bretlandi. Cheek Mountain Thief fékk meðal annars 4/5 í Q og The Sunday Times fór lofsamlegum orðum um plötuna og kallaði hana “a bizarrely beautiful album” – (The Sunday Times).

Cheek Mountain Thief er nú á leið í tónleikaferð um Evrópu til að fylgja eftir þessum vinsældum og mun koma fram í Bretlandi, Frakklandi, Hollandi sem og Íslandi, en tvennir tónleikar verða hér á landi áður en hljómsveitin leggur í hann.
Þeirri fyrri verða á Faktorý Bar í miðborg Reykjavíkur miðvikudagskvöldið 5. ágúst kl. 22 og er miðaverð 1.000 kr. Ásamt Cheek Mountain Thief koma fram Þórir Georg og spútníksveitin Good Moon Deer.

Föstudaginn 7. september verður svo haldið til Húsavíkur og haldnir heimkomutónleika á Gamla Bauk, tónleikarnir hefjast kl. 23 og kostar sömuleiðis 1.000 kr. inn.

Tags: , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning, Tónleikar | Comments Off

Reykjavík Music Mess haldin í annað sinn

27.4.2012 - Kristjana

Tónlistarhátíðin Reykjavík Music Mess verður haldin í annað sinn helgina 25. til 27. maí næstkomandi. Hátíðin mun fara fram á Faktorý Bar og Kex Hosteli. Meðal þeirra sem munu koma fram á hátíðinni eru Benni Hemm Hemm, Snorri Helgason, Jarse (FI), My Bubba & Mi (DK), Cheek Mountain Thief (UK/IS), Legend, Úlfur og fleiri. Tilkynnt verður um endanlega dagskrá og uppröðun þann 4. maí.

Reykjavík Music Mess var haldin í fyrsta sinn síðasta vor og komu þá fram meðal annars Deerhunter, Mugison, Lower Dens, Sin Fang og Nive Nielsen.

Miðasala á hátíðina hefst föstudaginn 4. maí og mun hún fara fram á www.midi.is. Frítt verður inn á þá viðburði sem haldnir verða á Kex Hosteli.

Tags: , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Tilkynning | Comments Off

Cheek Mountain Thief heldur tónleika og frumsýnir myndband

27.3.2012 - Kristín Gróa

Hljómsveitin Cheek Mountain Thief mun halda sína fyrstu tónleika á árinu á Faktorý Bar miðvikudagskvöldið 28. mars. Tónleikarnir hefjast á slaginu kl. 22 og miðaverð er aðeins 1.000 kr. Þeim til halds og traust er hin frábæra Gang Related.

Tilgangur tónleikana er að frumsýna nýtt myndband úr smiðju Mána M. Sigfússonar við lagið Cheek Mountain. Lagið er titillag væntanlegrar breiðskífu hljómsveitarinnar og það fyrsta sem fer í almenna spilun á ljósvakamiðlum Íslendinga.

Cheek Mountain Thief er spáný hljómsveit leidd af Mike Lindsay (úr Tunng) og inniheldur meðlimi sem eiga rætur að rekja til Húsavíkur (undan Kinnafjöllum) en þar var væntanleg plata hljómsveitarinnar tekin upp og samin. Cheek Mountain er væntanleg í búðir á næstu misserum á vegum Kimi Records og enska útgáfufélagsins Full Time Hobby. Meðal gesta á plötunni eru Mugison, Sin Fang, Mr. Silla og Kaffibarskórinn. Cheek Mountain Thief er svo á leið í tónleikaferð til að kynna plötuna, bæði um Ísland og svo Bretland.

Cheek Mountain Thief – Cheek Mountain

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Tags: , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Tilkynning | Comments Off

Topp 5 íslenskar plötur 2011 – Kristín Gróa

13.1.2012 - Kristín Gróa

Árið 2011 er í mínum huga ár íslenskrar tónlistar. Það kom út alveg gríðarlegt magn af vönduðum og skemmtilegum plötum og ég hef persónulega aldrei hlustað jafn mikið á íslenska tónlist. Húrra fyrir íslenskum tónlistarmönnum! Að vanda skulum við byrja á 10 plötum sem náðu ekki á topp fimm en mér þykir samt vert að minnast á:

Lay Low – Brostinn strengur
GusGus – Arabian Horse
Snorri Helgason – Winter Sun
Nolo – Nology
Vigri – Pink Boats
FM Belfast – Don’t Want To Sleep
Orphic Oxtra – Kebab diskó
Gang Related – Stunts & Rituals
ADHD – ADHD2
Ben Frost & Daníel Bjarnason – SÓLARIS

5. Reykjavík! – Locust Sounds

Rokkplata ársins! Gríðarlega metnaðarfull og skemmtileg plata sem rokkar fyrir allan peninginn. Ég hafði fram að þessu aldrei hlustað mikið á Reykjavík! en hafði horft dáleidd á þá live enda leitun að betra live bandi. Nú er ég farin að hlusta og mun aldrei hætta.

4. Mugison – Haglél

Þetta er líklega plata ársins svona almennt séð enda náði hún til allra. Ég hef aldrei hitt neinn sem hefur nokkuð slæmt um Mugison eða hans tónlist að segja og þar held ég einmitt að töfrarnir séu. Hann er allra. Hann er nógu kúl fyrir hipsterana en nógu alþýðlegur fyrir ömmurnar. Allir vinna. Það er frábært að sjá viðtökurnar við þessari plötu og þær eru algjörlega verðskuldaðar. Þetta er í raun látlaus lítil plata en stundum er minna meira.

3. Sin Fang – Summer Echoes

Þessi plata er líklega andstaðan við Haglél. Hér er ekkert lítið, látlaust eða einfalt heldur allt svo gríðarlega flókið og samofið að þegar ég hlusta þá get ég ekki annað en velt því fyrir mér hvernig í fjáranum maðurinn fer að því að láta þetta allt passa svona fullkomnlega saman. Mér finnst platan sterk út í gegn en ég heillaðist samt mest af laginu Fall Down Slow sem varð mitt fyrsta ofspilaða lag ársins 2011.

2. Sóley – We Sink

Ég viðurkenni að þegar ég hlustað á Theater Island í fyrsta sinn þá náði ég henni ekki alveg en eftir að hafa séð Sóley spila live þá gaf ég henni annan séns og heillaðist algjörlega. Ég beið því We Sink með mikilli eftirvæntingu og varð engan veginn fyrir vonbrigðum. Mér finnst ég vera að fara inn í annan heim þegar ég set þessa plötu af stað og í hvert sinn hlusta ég frá upphafi til enda… nema kannski þegar ég er að spila Smashed Birds á repeat en það er algjörlega uppáhalds. Það er líka alveg ofboðslega gaman að heyra lögin af plötunni live en Sóleyju og Jóni Óskari tekst á einhvern undraverðan hátt að spila bara tvö en koma samt öllu til skila.

1. Of Monsters And Men – My Head Is An Animal

Það má alveg ásaka mig um að vera hlutdræga þegar kemur að Of Monsters And Men og ég skal alveg gangast við því. Ég get hins vegar lofað því að ég myndi ekki setja þau á toppinn á árslistanum mínum óverðskuldað og staðreyndin er sú að hef ekki hlustað jafnmikið á nokkra íslenska plötu á árinu. Mér finnst hún alltaf skemmtileg, fæ aldrei leið á lögunum og syng með hverju lagi. Mér finnst ekki eitt slakt lag á þessari plötu og ég er ekki hissa á að EP platan Into The Woods hafi toppað Billboard Heatseekers listann. Framtíðin er björt!

Tags: , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off

Annáll Kimi Records

13.1.2012 - Kristín Gróa

Kimi Records átti glimrandi gott ár í músík og stóð að útgáfu nokkurra hljómplatna sem hafa fengið prýðilegar viðtökur, eins sáu þeir um dreifingu og kynningu á nokkrum titlum. Árið hófst með útgáfu á annarri breiðskífu Sin Fang, Summer Echoes, en hún kom út í mars. Fékk hún prýðilegar viðtökur, en fólki þykir þetta að öllu jöfnu mjög góð plata. Því næst kom platan Don’t Want to Sleep með FM Belfast (Morr music gaf út). Platan fór í verslanir þann 3. júní síðastliðinn. Í ágúst gáfum við út aðra breiðskífu Snorra Helgasonar og nefnist hún Winter Sun. Sú plata féll vel í kramið hjá skrípentum og hlustendum og meðal annars valdi Dr. Gunni hana sem plötu ársins.

Um mitt sumar fór allt að tryllast á skemmtistöðum miðborgarinnar sökum óvæntasta smells ársins. Niðrá strönd í sexy schidt endurgerð fékk fólk til að æpa af fögnuði og gleði. Í tilefni því gaf Kimi lagið út á rafrænu formi í þessari dansvænu útgáfu og var því vel tekið.

Í lok ágúst gáfu jaðarjazzararnir í ADHD út sína aðra breiðskífu, ADHD 2 og sömuleiðis komu út plöturnar Stop That Noise með Hellvar og Hermigervill leikur fleiri íslenzk lög, en Kimi sá um dreifingu á þessum titlum.

2. september gáfum við út plötuna We Sink (í samstarfi við Morr music) með henni Sóley. Sú plata endaði ofarlega á flestum árslistum og þykir platan frábær í alla staði.

Þann 1. október kom platan Haglél út með Mugison og hefur hún slegið öll met og hefur meðal annars verið seld í um 28 þús eintökum. Um miðjan október komu svo út tvær plötur. Við upphaf Airwaves hátíðina kom út platan Mount Modern með Dad Rocks! í tilefni af fyrstu tónleikum hans hér á landi, en Snævar Albertsson er að öllu jöfnu búsettur í Danmörku. Svo kom út platan Locust Sounds með Reykjavík!, 14 laga plata sem fer alla leið í rokkinu.

Sömuleiðis gáfum við í Kima út okkar fyrstu kvikmynd, í samstarfi við Kjartansson ehf, en myndin Backyard kom út á DVD og fylgir hljómdiskur með myndinni og inniheldur hann lög úr myndinni.

Í nóvember kom svo út platan Nology með Nolo. Unggæðingarnir úr úthverfum höfuðborgarinnar enduðu útgáfuárið okkar með bravúr, en platan þykir unaðsleg.

Í apríl hélt Kimi Records sína fyrstu tónlistarhátíð og kölluðum við hana Reykjavík Music Mess, þar úði og grúði af músík og minnistæðustu tónleikar hátíðarinnar voru frábærir tónleikar Deerhunter, goðsagnakennd framkvæmd Sudden Weather Change á tónlist Ghostigital, en þar nutu þeir aðstoðar Einars Arnar Benediktssonar. Reykjavík Music Mess verður svo haldin aftur á þessu ári, en að þessu sinni í maí.

Allt í allt gott ár hjá þeim tónlistarmönnum sem Kimi leggur lag sitt við.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa | Comments Off

Topp 5 lög ársins – Georg Atli

30.12.2011 - Georg Atli

Ég á alltaf í erfiðleikum með þennan lista, ég er einhvern vegin bara þannig að ég er miklu meira fyrir plötur en stök lög… eða það held ég alltaf, en svo fer ég að hugsa þetta aðeins betur og þá koma alltaf fullt af lögum í hugan á mér sem mér finnst alveg frábær, með eða án hinna laganna á plötunni. Mér fannst líka ótrúlega erfitt að skera niður í þessi lög og enn erfiðara að skera niður í topp 5 (sem sést líklega best á því að þau eru 6), öll hin lögin sem ég nefni eru nefnilega líka frábær. Hérna koma sem sagt lög ársins að mínu mati, fyrst nokkur sem komust ekki alveg á listann (í engri sérstakri röð) og svo topp fimm sex lögin mín.

Cass McCombs – The Lonely Doll
Kurt Vile – Baby’s Arms
Lower Dens – A Dogs Dick
PJ Harvey – The Words that Maketh Murder
James Blake – Wilhelm Screams
Foster the People – Pumped up Kicks
Skurken – Stiklur
Tune-Yards – Gangsta
Reykjavík! – Sneak
Unknown Mortal Orchestra – Ffunny Ffrends
FM Belfast – Happy Winter
Fist Fokkers – Emilio, Don by the Schoolyard
IMMO – Barcelona
Sir Michael Rocks – I See
Samaris – Góða Tungl

Topp 5-6 lög ársins:

5. – 6. Lana del Rey – Video Games

Söngurinn rétt svo lekur útúr henni en er samt ótrúlega flott.

5.- 6. Snorri Helgason – River

Frábært lag, frábær plata. að velja þetta lag fram yfir hin lögin á plötunni er samt smá svindl því að það græðir á myndbandinu, sem mér finnst vera vel heppnað.

4.The Antlers – I Don’t Want Love

Falsettan nær mér alltaf! Mér finnst The Antlers vera vanmetin hljómsveit, sé eiginlega eftir því að hafa sleppt þeim á Airwaves…

3. Náttfari – Lævís Köttur

Náttfari gerðu virkilega góða plötu og þetta lag er einfaldlega rosalegt.

2. Mugison – Stingum Af

Þetta er eins nálægt þvíað vera jafntefli og það getur orðið… en samt ekki. Mugison gaf út rosa flotta plötu og þetta lag er frábært, nær einhvern veginn til allra og fangar íslenskan sumarandi (úff.. háfleygt!) betur en flest annað.

1. Gotye – Somebody I used to know

Ég er búinn að vera með þetta lag á heilanum síðan ég heyrði það fyrst, eina lagið sem að ég veit um (sem kom út í ár) sem náði til breiðaðr hóps en Mugison. Virkilega flott popp.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off

XMAS 2011 – til minningar um Hermann Fannar Valgarðsson

19.12.2011 - Georg Atli

Annað kvöld verður blásið til stórviðburðar í Hafnarfirðinum. Þar verða árlegir jólatónleikar X-ins (XMAS) sem að í þetta skiptið verða haldnir í minningu Hermanns Fannars, fyrrum alt muligt manns sem lést langt fyrir aldur fram í nóvember. Tónleikarnir eru (svona svolítið eins og Hemmi) aðeins öflugri en flest annað sem er í gangi í dag og flest stærstu nöfnin eru þarna (smellið á myndina að ofan til að sjá betur) og svo er líka mjög gaman að geta bent á það að hljómsveitin Súrefni ætlar að koma aftur saman og trylla gesti.

Allir eru að gefa vinnu sína og allur ágóði af miðaverðinu (sem er, að ég held, allt verðið) rennur svo í styrktar sjóð fjölskyldu Hemma þannig að þarna gætuði verið að skemmta ykkur frábærlega OG gera jólagóðverk ársins, sem verður að segjast að er ansi góður díll!

Svo ef að þið komist ekki eða hreinlega nennið ekki á tónleikana þá er líka hægt að leggja inn á þennan reikning:
Reikningsnr: 545-14-403403
Kennitala: 180507-3610

Eftir tónleikana verða svo fríar rútuferðir úr Hafnarfirði og inn í Kópavog, Garðabæ og að sjálfsögðu líka inn í höfuðborgina, þannig að fjarlægðin er engin ástæða fyrir því að sleppa þessu!
Hérna er hægt að kaupa miða og svo er hægt að læka hér og horfa á smá vídjó/auglýsingu fyrir viðburðinn sem útskýrir allt aðeins betur.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

Ókeypis Mugison tónleikar!!!!

7.12.2011 - Georg Atli

Öðlingurinn hann Mugison hefur ákveðið að halda ókeypis tónleika í Eldborgarsal Hörpu, til þess að fagna/þakka fyrir góðar móttökur á síðustu plötu sinni Haglél. Tónleikarnir verða 22. desember kl. 19:30. Eins og Mugison sagði sjálfur þá er “Besta leiðin til að segja takk, er að spila tónlist“. Þegar að þetta spurðist út þá var alveg ljóst að það yrðu gríðarlega góð viðbrögð og mikil eftirspurn og til að mæta því þá var ákveðið að bæta við öðrum tónleikum! Þeir tónleikar verða sama dag en seinna um kvöldið (kl. 22:00).

Þið getið nálgast miða á harpa.is frá kl. 12:00 í dag. Nánari upplýsingar um það eru í vídjóhlekknum hér að neðan.

Facebook miðasölu vídjó

Staðreyndir um Haglél
12.000 heimaföndruð eintök hafa ratað inná heimili landsmanna. Fjölskylda og vinir hafa eitt ófáum klukkustundum með Mugison að föndra plötuna og hefur það tvímælalaust styrkt fjölskylduböndin og tryggt vinskap (í flestum tilfellum).

Mugison flokkurinn fór í 5 vikna tónleikaferðalag um landið og var spilað í 18 bæjarfélögum, á 24 tónleikum, í öllum landsfjórðungum. Hópurinn fékk gríðarlega góðar móttökur í túrnum og var ekki annað að sjá en gestir skemmtu sér konunglega.

Beint af býli
Sá valkostur að versla plötuna beint af býli hefur farið vel í landann og hafa yfir 2.000 eintök selst á www.mugison.is. Augljóst er að þessi leið til að miðla afurðum virkar vel og er augljóst að fólk er óhrætt við að versla milliliðalaust beint af internetinu.

Tags:
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

Topp 5 Airwaves tilhlökkun – Kristín Gróa

12.10.2011 - Kristín Gróa

Það er alveg ótrúlegt að það sé komið að Airwaves hátíðinni enn einu sinni. Mér telst svo til að ég sé búin að fara á hverju ári síðan 2002 sem gerir þetta að tíundu hátíðinni minni í röð og geri aðrir betur! Ef það kemur ár sem ég fer ekki á Airwaves (án þess að vera hreinlega erlendis eða á sjúkrahúsi eða eitthvað álíka) þá veit ég að ég er orðin gömul. Ég er spennt fyrir rosalega mörgu í þetta sinn og þó ég hafi ákveðið að fylla listann minn með frekar fyrirsjáanlegum erlendum tónlistarmönnum þá mun ég reyna að missa ekki af eftirfarandi íslenskum tónlistarmönnum:

Berndsen
Borko
El Camino
Elín Ey
Fist Fokkers
Gang Related
GusGus
Hljómsveitin Ég
Just Another Snake Cult
Kiriyama Family
Markús and the Diversion Sessions
Mugison
Náttfari
NOLO
Of Monsters And Men
Orphic Oxtra
Prins Póló
Sin Fang
Snorri Helgason
Sóley
Stafrænn Hákon
Vigri

Ef ég næ að sjá helminginn af þessu þá verð ég mjög kát. Það má svo auðvitað ekki gleyma því að það skemmtilegasta við Airwaves er allt það sem maður sér óvart og heillar mann samstundis. Ég veit að þetta er orðin pínu klisja en þetta er það sem gerir hátíðina svona skemmtilega. Á hverju ári lendi ég í því að hugsa viku fyrir hátíð “ó shit ég er ekki búin að kynna mér hverjir eru að spila” en svo skiptir það aldrei máli. Það er ekki hægt að undirbúa Airwaves… það er bara hægt að njóta.

Jæja without further ado þá eru þetta þær erlendu sveitir sem ég er spenntust fyrir að sjá!

5. Iceage

Ungir danskir strákar sem eru búnir að vera fastir í hæpmaskínunni síðustu mánuði og það er alveg verðskuldað. Platan þeirra New Brigade er algjört monster og þetta ættu að verða alveg brjálæðislegir tónleikar. Það liggur við að mig langi til að vera tvítugur strákur í eina kvöldstund svo ég geti misst mig yfir þeim eeeen ég verð væntanlega aftast með krosslagðar hendur að missa mig innan í mér.

Iceage – White Rune

4. John Grant

Ég sé fyrir mér að þetta verði mjög tilfinnaþrungnir og innilegir tónleikar þar sem John Grant er rosalega mikið þannig. Textarnir hans eru alveg ótrúlega góðir og hreinskilnir. Lagið I Wanna Go To Marz er líka virkilega gott.

John Grant – I Wanna Go To Marz

3. Glasser

Það hefur ekki farið mikið fyrir Glasser en Ring var ein af betri plötum síðasta árs og hún læddist pínu aftan að mér. Þetta eru tónleikar sem gætu verið hit eða miss en ég hallast frekar að hit, sérstaklega ef maður þekkir lögin.

Glasser – Home

2. tUnE-yArDs

W H O K I L L er ein hæpaðasta plata ársins svo ég er væntanlega ekki ein um það að ætla að sjá tUnE-yArDs. Hæpið finnst mér reyndar algjörlega verðskuldað því þetta er líklega ein besta og jafnframt óvenjulegasta plata ársins og þau live clip sem ég hef séð eru ansi mögnuð. Algjört must-see.

tUnE-yArDs – Killa

1. Beach House

Þetta er líklega stærsta nafnið á hátíðinni í ár ef maður er svona pínu indísnobbari (eins og ég). Ég er búin að vera mjög hrifin af þeim frá því þau gáfu út plötuna Beach House árið 2006 og þau verða bara betri með hverri plötu.

Beach House – Gila

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Airwaves, Kristín Gróa, Listar, Tónleikar | Comments Off

Ný tónleikaröð í haust: Kaffi, kökur & rokk & ról

30.8.2011 - Kristjana

Þriðjudaginn 6. september hefst ný og spennandi tónleikaröð. Dagskrárstjóri verður Arnar Eggert Thoroddsen sem segist vilja “búa til tónleikaröð sem snýst um tónleika, eins barnalega og það hljómar”. Mér finnst það hljóma vel! Með Kaffi, kökur & rokk & ról vilja aðstandendur raðarinnar brjóta upp hið hefðbundna tónleikaform. Tónleikarnir verða því á hverju þriðjudagskvöldi. Húsið opnar 20:00, tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 20:30 og klárast fyrir 22:00. Aðgangseyrir verður aðeins 500 kr á hvert kvöld og innifalið er kaffi og nýbakaðar kökur eins og fólk getur í sig látið.

Margir skemmtilegustu og áhugaverðustu tónlistarmenn landsins munu koma fram á þessum sælkeratónleikum – þar sem meiningin er að tónlistaráhugamenn geti mætt, í upphafi viku, og notið tónlistarinnar. Benni Hemm Hemm og Prins Póló ríða á vaðið þann 6. september. Í haust munu svo t.d. Mugison, Jónas Sig, Agent Fresco, Lára, Skálmöld og Samúel Jón Samúelsson Big Band koma fram – ásamt fjölmörgum öðrum.

Kaffi, kökur & rokk & ról mun eiga samastað í Edrúhöllinni, Efstaleiti 7, einnig þekkt sem Vonarhús SÁÁ, og munu aliir tónleikar fara þar fram. Nóg verður því af kökum og kaffið mun flæða, en annað ekki – enda tónlistin í fyrirrúmi.

Semsagt: Benni Hemm Hemm og Prins Póló þann 6. í Efstaleiti 7 kl. 20:00. Fylgist svo með á næstunni fyrir frekari upplýsingar um næstu þriðjudagskvöld.

Tags: , , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin