Tónleikasamantekt

8.6.2011 - Georg Atli

Margir tónleikar á döfinni og allt það… hafiði samband ef við erum að gleyma einhverju eða bara ef ykkur langar til að hafa samband, það er alltaf gaman að fá aðdáendapóst. Facebook, Twitter, comment, tölvupóstur

Þetta verður unnið í einhverjum skorpum þannig að það er ágæt að tjékka á okkur reglulega ef þið viljið hafa allt á hreinu. og þó að það sé langt liðið á Miðvikudag, þá byrjum við á honum…

Miðvikudagur
Á Faktorý verða Berndsen og Forgotten Lores. Tónleikarnir byrja kl. 21:00 og það kostar 1000 kall inn

Á Rósenberg verður Solla Soulful með útgáfutónleika í tilefni þess að platan hennar Open a Window var að koma út, þeir byrja kl. 21:30 það kostar 1000 kr. inn og það er enginn posi á staðnum en aftur á móti verður platan seld þar.

Á NASA verða svo Steelheart að spila. Það kostar 3500 kr. inn og Dúndurfréttir, Atrum og Exizt hita upp. Húsið opnar kl. 19:00. Mér skilst að það sé uppselt í forsölu en einhverjir miðar séu seldir við hurð.

Fimmtudagur
Á Sódómu verða Andvari, Mukkaló og Vigri með tónleika. Það kostar einungis 500 kall inn og tónleikarnir byrja kl. 21:00

Gogoyoko verður með Sumarpartý á Hressó. Partýið byrjar kl. 20:00, það er ókeypis inn og hljómsveitirnar Agent Fresco og Sudden Weather Change verða að spila.

Á Dillon verða hljómsveitirnar The Dandelion Seeds, No to Self og Moy.

Á Faktorý verða styrktartónleikar fyrir Útidúr (þau eru að fara til Þýskalands að túra). Nolo, Sóley og Jón Þór (úr Lada Sport og Dynamo Fog) ætla að spila með þeim. Það kostar 1000 kr. inn og húsið opnar kl. 21:00

Á Rósenberg verða Pétur Ben og Elín Ey að spila. Þar kostar 1000 kr. inn og tónleikarnir byrja kl. 21:30

Í Þjóðleikhúskjallaranum verða útgáfutónleikar Emmsjé Gauta. Það verður fullt af öðru fólki þarna líka eins og sjá má hér. 1000 kr. inn og tónleikarnir byrja kl. 21:30

Föstudagur
Þór Breiðfjörð verður að spila á Rósenberg ásamt hljómsveit. Tónleikarnir (afmælistónleikarnir hans) byrja kl. 22:00 og ég hreinlega veit ekkert hvort að það kostar inn…

Laugardagur
Á Faktorý verða plötusnúðarnir Joni (Slagsmålsklubben) og Viktor (My Empire) að spila. Það kostar 1500 kall in við hurðina og húsið opnar kl. 22:30

Á Sódóma verður sumargleði. Þar ætlar hljómsveitin Green Lights að koma saman aftur og Samaris verða þarna líka og svo hugsanlega fleirri (getið fylgst með hér)… Húsið opnar kl. 22:00 og það kostar 1000 kall inn.

Hljómsveitirnar Miri, Vigri og Bob verða á Faktorý, í tilefni þess að Miri er að fara að spila á NXNE. 1000 kr. inn og húsið opnar kl. 22:00

Á Faktorý verða plötusnúðarnir Karíus & Baktus (REYK VEEK) og Djezus (Boston/NY). Partýið þar byrjar kl. 23:00 og aftur veit ég ekki hvort að það kostar eitthvað inn, en ég býst við því.

Sunnudagur

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

Tónleikasamantekt *Uppfært*

23.3.2011 - Georg Atli

Að venju þá er bærinn fullur af tónleikum. Eins og alltaf þá reynum við að fylgjast með sem flestu en biðjum við ykkur um að senda okkur einhverskonar línu ef að þið vitið um eitthvað sem við gerum ekki. toppfimmafostudegi[hjá]gmail.com og svo líka facebook-ið eða klassíska commentið bara.

Núna tek ég aðallega saman dagskrána fyrir miðvikudaginn en dagskráin uppfærist eftir því sem að nær dregur helginni þannig að endilega að tjékka á okkur aftur.

Miðvikudagur
Á Sódómu verða árlegir styrktartónleikar Kvennaskólans. Þar verða Sin Fang, Mukkaló, Valdimar, Fonetik Simbol ásamt Kristrúnu Lárus, My Brother is Pale og Kvennókórinn að sjá til þess að kvöldið verði skemmtilegt. Tónleikarnir byrja kl. 20:00 og það kostar bara 500 kall inn sem er ekkert neitt.

Dúettinn Heima verður á Rósenberg. Tónleikarnir byrja kl. 21:30 og það kostar 1000 kall inn.

Á Dillon verður Miðvikudagsmosh. Chino, Klikk og The Neighbours sjá um tryllinginn sem byrjar kl. 22:00 og kostar ekkert inn á.

Fimmtudagur
Stærstu tónleikar kvöldsins verða án efa á Sódómu en þar verður Apparat Organ Quartet með fyrri tónleika sína af tveimur. Í kvöld er það Borko sem að hitar upp og tónleikarnir eru stílaðir inn á vinnandi fólk og byrja því kl. 21:00. Ég held að það séu enn til miðar en ég er ekki viss, best bara að tjékka á 12 Tónum.

Á Faktorý verða Jón Jónsson og Lifun með tónleika. 1000 kall inn og fyrsta band fer á svið kl. 22:00

Á Hemma og Valda verður fyrsta kvöld TomTom Records sem að ber nafnið Heiladans 1 Yoda Remote, Prince Valium, Bypass og Tonik. Kostar ekkert inn og tónleikarnir byrja kl. 21:00

Á Rósenberg verða tónleikar með Mogadon “ásamt vinum, gestum, leynigestum, gæludýrum og austur-evrópskri þjóðlagahljómsveit”. 1000 kr. inn og tónleikarnir byrja kl. 21:00

Föstudagur
Á föstudeginum verður brjálað að gera fyrir tónleikaþyrsta.

Í fyrsta lagi er fyrsta kvöld Músíktilrauna í Tjarnarbíó. Fullt af efnilegum hljómsveitum þar, tónleikarnir byrja kl. 19:00, og nánar hér.

Síðan eru seinni tónleikar Apparat Organ Quartet á Sódómu. Í þetta skiptið byrja þeir kl. 22:00 og Swords of Chaos hita upp.

Í Slippsalnum verða Agent Fresco og Árstíðir með órafmagnaða tónleika. Húsið opnar kl. 19:30 og það kostar skitnar 1000 kr. inn.

Á Amsterdam verða Vigri, Andvari og Örför. Ókeypis inn og tónleikarnir byrja kl. 23:00

Laugardagur
Á Faktorý ætlar Sin Fang að halda fría tónleika! Þar verður væntanlega hægt að fara og hlusta á lög af einni bestu plötu ársins og líklega eitthvað af eldra efni frá Sin Fang og svo ætla Munnfylli af Galli og O F F líka að koma fram. Húsið opnar kl. 22:00 og ég býst við því að það sé sniðugt að mæta snemma.

Á Sódómu verða styrktartónleikar. Þar verða hljómsveitirnar Morgan Kane, Finnegan, Noise, The Vintage Caraven, Endless Dark og Morning After Youth að troða upp ásamt Bödda úr Dalton. Allir listamennirnir ætla að gefa vinnu sína og allur ágóði rennur óskipur til Krabbameinsfélagsins. Aðgangseyrir eru 1500 krónur að lágmarki, nema að þeir sem eru með mottu borga 1000 kall (en auðvitað mega allir borga meira), húsið opnar 21:30.

Á Dillon verða síðan hljómsveitirnar Vigri, Virtual Times og Friday Night Idols. Þar er frítt inn og húsið opnar kl. 22:30

Sunnudagur
SunnuJazz á Faktorý.

Þá held ég að þetta sé komið í bili…

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

Topp 5 uppgjör 2010 – Georg Atli

29.1.2011 - Georg Atli

Síðasti árslistinn að sinni og nú er það eins konar uppgjör ársins. Við ákváðum 5 (staðlaðar) spurningar til að svara (alveg eins og í fyrra sökum gæða spurningana í fyrra og hugmyndaleysis). Næsta föstudag byrja svo “hefðbundnari” topp 5 listar aftur og það verður m.a.s. gestalisti þannig að það verður nú gaman! En nú er komið að lista dagsins og að þessu sinni er hann í öfugri röð.

1. Hverjir voru best tónleikar sem þú sást á árinu?


Ég var rosalega lélegur í því að fara á tónleika á síðasta ári (eitthvað sem ég ætla ekki að vera 2011) en Of Monsters and Men og Útidúr á jólaplöggi Record Records voru rosalega skemmtilegir og svo var náttúrulega Airwaves-hátíðin frábær í flesta staði….

2. Hvaða gamalt dót uppgötvaðir þú á árinu?



Harry Nilsson
. Frábær söngvari og lagasmiður sem ég vissi nánast ekkert um fyrr en ég kveikti á útvarpinu í vinnunni minni og heyrði Snorra Helgason tala um hann í Poppperraþættinum Yoko Dónó á X-inu. Ég fór nánast beina leið heim og las mér til um hann á netinu og fann mér plötur með honum sem mig langaði að kaupa.

Lag: Harry Nilsson – One

3. Hver voru mestu vonbrigði ársins?

Vonbrigði ársins… ég varð nú ekkert fyrir neitt rosalegum vonbrigðum með neitt á árinu.

4. Hverju ætlaðirðu alltaf að tékka á á árinu en trassaðir?


Fyrir nokkrum árum keypti ég mér plötu með Keith Jarrett (jazz píanisti) og er búinn að vera á leiðinni að skoða hann betur í langan tíma.

Lag: Keith Jarrett – Over the Rainbow (live @ La Scala)

5. Hver er bjartasta vonin

Ég er að hugsa um að fókusa mest á íslenska tónlist í þessu svari en nefna samt James Blake (lag: Wilhelms Scream) í útlenska geiranum (og hoppa þar með á hæp lestina!), ég er frekar spenntur fyrir komandi plötu frá honum. Hér heima er eins og venjulega fullt af efnilegum hljómsveitum (býð spenntur eftir Músíktilraunum, það kemur alltaf eitthvað gott fram þar). Ég ætla að byrja á því að segja Útidúr (sem gáfu út plötu í fyrra og ég hef ekki heyrt mikið af henni en hún lofar góðu) og Of Monsters and Men (sem að ég vona að komi með plötu í ár!) báðar þessar hljómsveitir heilluðu mig á tónleikum á árinu og ég held að þær geri góða hluti á næstu árum.
Ég ætla líka að nefna nokkrar aðrar hljómsveitir (sumar eru kannski ekki beint nýjar en er heldur ekki beint þekktar) sem að ég held að verði meira á milli tannana á fólki í komandi ári:

Brother Grass – skemmtilegt bluegrass band sem spilar m.a. á óvenjuleg hljóðfæri (þvottabretti)
Blæti - Einhverskonar jazzhrærigrautur mjög skemmtilegt
Porquesi - Instrumental rokk er að koma aftur, sá ekki tónleika með þeim á Hemma og Valda en gekk framhjá í flýti. Þetta hljómaði það flott að ég þurfti aðeins að stoppa og hlusta meira.
Groundfloor - heyrði þetta bara í gær á Rjómanum (takk fyrir það Rjóminn), þrusuflott tónlist.
Captain Fufanu – eins og ég sagði þá er þetta ekkert endilega listi af glænýjum böndum en Captain Fufanu er bara svo flott að það ættu fleiri að vita af henni, þess vegna set ég hana hér.
…og svo ætla ég að skjóta Mukkaló síðast (en ekki síst) á þennan lista.

og síðan átti að koma bónusspurning að eigin vali…. en ég nenni því ekki alveg núna, kemur kannski seinna.

Tags: , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off

Tónleika samantekt!!

5.1.2011 - Georg Atli

Eins og næstum alltaf þá er fullt að gerast í tónleikahaldi í Reykjavík.

Miðvikudagur
Þessi póstur kemur pínu seint fyrir miðvikudagstónleikana en kl. 22:00 verður hljómsveitin Blæti á Hemma og Valda

Fimmtudagur
Júníus Meyvant, Rökkurró, Mukkaló og Myrra Rós ætla að spila í Fríkirkjunni í Reykjavík. Tónleikarnir byrja kl. 20:00 og það kostar 1000 kr. inn

Á Faktorý ætla Moses Hightower og Forgotten Lores að spila saman og það meira að segja bókstaflega, því að á einhverjum tímapunkti verða hljómsveitirnar saman á sviðinu. Það ætti að verða mjög áhugavert því að þessar hljómsveitir eru svakalega flottar á sviði og það verður örugglega gaman að heyra það sem þau spila saman, svo verður líka áhugavert að sjá hvort að það komist allir fyrir á sviðinu í einu…. svo kostar bara 1000 kall inn og tónleikarnir byrja stundvíslega kl. 22:00

Síðan verða Retro Stefson með ókeypis tónleika á Bakkus og þar ætlar einhver leynigestur/hljómsveit að mæta líka. Partýið byrjar kl 10:30

Föstudagur
Á Sódómu verður FALK kvöld og þar verða Manslaughter, Krakkkbot, Krakkkslaughter, AMFJ, Oberdada von Brútal og Auxpan og á milli atriða ætlar DJ Djammhamar að spila.

Á Faktorý verða útgáfutónleikar We Made God en þeir voru að gefa út plötuna It’s Getting Colder með þeim ætla Rökkuró og Sleeps Like an Angry Bear að spila. Húsið opnar kl. 22:00 og fyrsta band fer á svið kl. 23:00, 500 kr. inn en fyrir 2000 færðu bæði plötuna og tónleikana.

Laugardagur
Á Laugardeginum verða svo ferðastyrktartónleikar Who Knew (eins og við sögðum frá í gær). Þeir fara fram á Sódómu og með Who Knew spila Sing for Me Sandra og Nolo að sjá um stuðið, 1000 kr. inn og tónleikarnir byrja 22:00

Allar nánari upplýsingar eru að finna í tónleikadagatalinu okkar (sem er til hægri) við erum hægt og rólega að vinna í því að fylla inn í það lengra fram í tímann.
Eins og alltaf er svo hægt að senda okkur tónleika ábendingar á póstfangið toppfimmafostudegi@gmail.com eða þá pósta því á facebook vegginn okkar (endilega að like okkur og jafnvel deila gleðinni!). Svo má alltaf líka senda okkur eitthvað annað áhugavert efni sem er ekki tónleikatengt.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | 2 athugasemdir »

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin