Tónleikar vikunnar!
9.12.2010 - Kristjana
Ó elsku desember. Smákökur, heitt súkkulaði og endalausir tónleikar. Tónleikaroundup vikunnar er því stórt, mikið og fjölbreytt. Let the games begin…
Fimmtudagur 9. des.
- Jóladagatal Norræna hússins í Norræna húsinu kl. 12:34-13:30. Fjórða árið sem Norræna húsið stendur fyrir þessu skemmtilega dagatali. Á hverjum degi, 1.-23. des verður óvænt atriði í Norræna húsinu kl. 12:34. Gefið er upp hverjir koma fram í mánuðinum en ekki hvenær. Þannig verður hver dagur óvæntur – svona eins og að opna hvern dag í jóladagatalinu sínu. Æði. Meðal þeirra sem taka þátt í ár eru Amiina, Árstíðir, Bloodgroup, Ómar Ragnarsson, Ragnheiður Gröndal, Víkingur Heiðar, Útidúr og Stilluppsteypa. Semsagt fáranlega fjölbreytt!
Markmiðið með jóladagatalinu er að bjóða upp á öðruvísi dagskrá, þar sem jólin sjálf koma ekki endilega við sögu heldur reynt að skapa kósí og góða stemningu og sleppa öllu jólaundirbúningsstressi. - Uni og Jón Tryggvi standa fyrir ljúfum og fallegum jólatónleikum þar sem þau munu spila róleg og falleg jólalög ásamt lögum af sólóplötum sínum, sem komu út fyrir síðustu jól.
Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 í Mosfellskirkju í Mosfellsdal og kostar 1.000 kr inn. Því miður er ekki posi á staðnum þannig að passið að taka pening með. - Neðanjarðarfélagið BRAK Hljómplötur ætlar að halda upp á 38 ára afmæli Tré Cool, trommara Green Day, með tónleikum. Góð ástæða fyrir tónleikum. Fist Fokkers, Quadruplos, Markús & the Diversion Sessions, Ljósvaki og Loji verða á Faktorý, tónleikarnir hefjast kl. 21:30 og frítt verður inn.
Stafrænn Hákon verður andlegur leiðtogi og stuðningsaðili kvöldsins og verður nýjasta afurð hans fáanleg á staðnum. - Hljómsveitin Ég og Hellvar verða á Sódóma í kvöld. Stroff átti einnig að koma fram en í stað þeirra kemur háleynilegt og spennandi upphitunarband. Gamanið hefst um 21:30 og 1.000 kr kostar inn.
Föstudagur 10. des
- Dagurinn byrjar vel í hádeginu með Jóladagatali Norræna hússins.
- Myrká, Porquesi o.fl. sjá um kvöldið á Sódóma. Húsið opnar kl. 22:00 og 1.000 kr kostar inn.
- Fyrra kvöld Jólaplöggs Record Records 2010 verður á Faktorý. Bloodgroup, Ensími, Of Monsters & Men og Sing For Me Sandra bjóða upp á tónlistarveislu kvöldsins sem hefst á slaginu 22:00. Hægt er að kaupa miða á annað kvöldið fyrir 1.000 kr en armband sem gildir bæði kvöldin kostar 1.500 kr. Annars eru allar nánari upplýsingar hér.
Laugardagur 11. des
- Jóladagatal Norræna hússins heldur áfram og byrjar að venju kl. 12:34.
- Benni Hemm Hemm heldur upp á útgáfu Skots með tónleikum á Bakkusi. Þetta verður magnað kvöld því auk Benna Hemm Hemm munu Retro Stefson sjá um undirleik (eins og við upptökur á Skoti), Prins póló hitar upp, Bárujárn leikur nokkur lög eftir að Benni Hemm Hemm klárar og að lokum tekur DJ Öfull við.
Allt þetta fyrir 1.000 kr, sé keypt í forsölu í Havarí, eða 1.500 kr við hurð. Best að tryggja sér miða í forsölu og mæta svo tímanlega en tónleikarnir hefjast kl. 21:00. - Sé ætlunin að kíkja í Havarí til að tryggja sér forsölumiða á útgáfutónleikana er líklega sniðugt að gera það um 16:00 því þá mun Benni Hemm Hemm hita upp fyrir tónleikana – í Havarí. Að sjálfsögðu verður frítt inn.
- Seinna kvöld Jólaplöggs Record Records 2010 á Faktorý. Í þetta skipti koma fram Agent Fresco, Moses Hightower, Útidúr og For a Minor Reflection. Fjölbreytt og frábært kvöld sem byrjar 22:00.
- Berndsen og Valdimar verða á Sódóma. Húsið opnar kl. 22:00, Valdimar stígur á stokk á miðnætti og Berndsen ætti að byrja um 01:00. Miðaverð er 1.000 kr.
Sunnudagur 12. des
- Jóladagatal Norræna hússins er góð leið til að byrja sunnudaginn. Hver ætli komi fram í dag?
- Uni og Jón Tryggvi ætla að bjóða upp á aðventutónleika heima hjá sér á Merkigili, Eyrarbakka. Svavar Knútur kemur við og töfrar fram jólaandann.
Tónleikarnir hefjast kl. 20:00, heitt verður á könnunni og piparkökur í boði. Frítt er inn en frjáls framlög verða vel þegin. Tilvalið til að koma sér í jólastemninguna.
Mánudagur 13. des
- Jóladagatal Norræna hússins kl. 12:34
Þriðjudagur 14. des
- Jóladagatal Norræna hússins kl. 12:34
Miðvikudagur 15. des
- Jóladagatal Norræna hússins kl. 12:34
Tags: Agent Fresco, Amiina, Árstíðir, Bárujárn, Benni Hemm Hemm, Berndsen, Bloodgroup, DJ Öfull, Ég, Ensími, Fist Fokkers, For a Minor Reflection, Green Day, Hellvar, Jón Tryggvi, Ljósvaki, Loji, Markús and the Diversion Sessions, Moses Hightower, Myrká, of monsters and men, Ómar Ragnarsson, Porquesi, Prins Póló, Quadruplos, Ragnheiður Gröndal, Retro Stefson, sing for me sandra, Stafrænn Hákon, Stilluppsteypa, Stroff, Svavar Knútur, Tré Cool, Uni, Útidúr, Valdimar, Víkingur Heiðar
Flokkað undir Kristjana, Tónleikar | Comments Off

