The Gun Club

20.3.2012 - Georg Atli

The Gun Club er mjög merkileg hljómsveit sem er ótrúlega lítið þekkt og vanmetin. Í rauninn eru alveg hrikalega margar hljómsveitir sem eiga sinn hljóm á einn eða annan hátt The Gun Club að þakka.

Hljómsveitin er virk á árunum 1980 -1993 og hápunkturinn þeirra er að mínu mati önnur plata þeirra Miami. En upphafslagið á þeirri plötu, Carry Home, er eitt af uppáhaldslögunum mínum.


Lagið var síðan coverað af Mark Lanegan nokkrum árum síðar, önnur nálgun og síður en svo verri.

Aðalnúmerið í hljómsveitinni var maður að nafni Jeffrey Lee Pierce en hann er einmitt ein af ástæðunum fyrir þessari færslu. Hann var magnaður söngvari og það er greinilegt að hann hafði mikil áhrif á t.d. Jack White (Live ábreiða af Jack on Fire) og áðurnefndan Mark Lanegan. Hann þótti hljóma eins og Jim Morrison og ég get alveg heyrt af hverju það var. Ef maður fer í gegnum plötur The Gun Club og sólóplötur Jeffery Lee Pierce þá heyrist vel að hann hafði mikil áhrif og ólíkir listamenn eins og The White Stripes, Screaming Trees, Nick Cave og Pixies hafa örugglega glósað eitthvað af þessu.

En sem sagt þá lést Jeffrey Lee Pierce 31. mars 1996 og af því tilefni á að gefa út tribute plötu. Sú plata heitir The Journey Is Long og fyrsta lagið af þeirri plötu er komið út, það er frábær útgáfa frá Nick Cave og Debbie Harry af laginu The Breakiing Hands og þið getið bara hlustað á það á Soundcloud. Þetta lag kom fyrst út á plötunni The Mother Juno (sem er líka góð).

The Journey is Long kemur út 30. mars og 6. apríl (af einhverjum undarlegum ástæðum) og hér að neðan geta áhugasamir séð lagalistann:

City In Pain – Nick Cave
I’m Going Upstairs – Hugo Race
From Death To Texas – Steve Wynn
The Breaking Hands – Mark Lanegan & Isobel Campbell
The Jungle Book – The Amber Lights
Rose’s Blues – Bertrand Cantat, Pascal Humbert, Warren Ellis, Cypress Grove
Zonar Roze – Thalia Zedek and Chris Brokaw
L.A. County Jail Blues – Cypress Grove
I Wanna Be You – Barry Adamson
Sonny Boy – Mick Harvey
Book Of Love – Vertical Smile (Youth from Killing Joke)
Body And Soul – Astro-Unicorn
The Brink – Lydia Lunch
The Breaking Hands – Nick Cave And Debbie Harry
In My Room – Tex Perkins & Lydia Lunch
The Jungle Book – Tav Falco & Panther Burns
St. Marks Place – Mick Harvey
Ain’t My Problem Baby – The Jim Jones Revue

Tags: , , , ,
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off

Topp 5 Break-up lög – Georg Atli *uppfært

4.3.2011 - Georg Atli

Ég hef eitthvað verið að flýta mér þegar að ég setti listann inn, gleymdi að setja 2 lög inn og svo sá ég að Pantera lagið er í einhverju rugli… virkar bara stundum, veit ekki af hverju. Ég er amk búinn að laga 2 efstu sætin og setti youtube fyrir Pantera, sorrý

Ástarsorg??? Þessi 5 lög ættu að hjálpa á einn eða annan hátt.

5. Pantera – This Love

Þetta lag er geðveikt! Ef að þú ert leið/ur eftir eitthvað drama þá sparka Pantera ÖLLU svoleiðis úr þér…. þeir skilja kannski mega reiði og biturð eftir í staðinn en það er amk engin leiði eftir!

Lag: This Love

4. Johnny Cash – Hurt

Er það ekki reiði og/eða biturð sem að þú ert að leita að? Vantar þig að finna einhvern sem hefur það meira skítt en þú?? Hlustaðu á þetta lag. Ef það er einhverjum manni sem að líður verr en þér þá er það Trent Reznor (OK kannski ekki alveg í augnablikinu, hann var að vinna óskarsverðlaunin og allt það… en svona venjulega þá er hann ekkert voðalega hress gaur) og sá eini sem að getur dregið enn meiri sorg og vanlíðan úr þessu lagi er Johnny Cash.

Lag: Hurt

3. Beck – Lonesome Tears

Af plötunni Sea Change (sem að er uppáhalds Beck platan mín). Ef þú varst að fatta að sambandið er ekki alveg að ganga upp… þá er þetta málið.

Lag: Lonesome Tears

2. Johnny Cash & Nick Cave – I’m so Lonesome I Could Cry
Hank Wiliams var alveg með þetta ástarsorgardæmi á hreinu. En lagið verður rosalegt þegar að það er coverað af Cash og Cave. Johnny Cash gerir þetta vel (að venju) en hlutar lagsins sem að Nick Cave syngur eru stórkostlegir, það er eins og lagið hafi verið samið fyrir hann.

Lag: I’m so Lonesome I could Cry

1. Spiritualized – Ladies and Gentlemen We are Floating in Space

Ekki lagið, heldur öll platan. Besta break-up plata sem að samin hefur verið. Ég skrifaði smá um hana einu sinni, þið getið lesið það hér en í stuttu máli þá fór Jason Pierce á mega bender eftir að kærastan hans stakk af og giftist Verve söngvaranum Richard Ashcroft og samdi svo þessa plötu. LAAAAAANG besta plata Spiritualized

Lag: Stay With Me

Tags: , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off

Tónleikar vikunnar! – Uppfært

1.3.2011 - Kristín Gróa

Miðvikudagur

Nemendur á Hugvísindasviði Háskóla Íslands fagna 100 ára afmæli háskólans með dagskrá öll miðvikudagskvöld í mars. Í þetta sinn eru það guðfræði- og heimspekinemar sem sjá um dagskrána og mun hún verða sambland af erindum og tónlist. Við höfum auðvitað mestan áhuga á tónlistinni og verður m.a. hljómsveit að spila Nick Cave lög og Soffíubandið ætlar að spila heimspekilög (hvað svo sem það á að þýða!). Á Faktorý kl. 20:00. Sjá nánar hér.

Fimmtudagur

Á Faktorý verður aldeilis veisla á fimmtudagskvöldið því Rökkurró og Sudden Weather Change ætla að troða upp. Húsið opnar 21:00 en tónleikarnir hefjast 22:00. Þúsundkall inn. Sjá nánar hér.

Á Dillon stíga Gang Related á svið kl. 22:00. Á eftir koma Markús and the Diversion Sessions og að lokum . Ókeypis inn. Sjá nánar hér.

Gogoyoko heldur fyrstu tónleikana í nýrri tónleikaröð í samvinnu við Hressingarskálann, samkvæmt facebook-eventinum þá “munu gogoyoko.com og Hressó standa fyrir tónleikum fyrsta fimmtudag hvers mánaðar með frambærilegustu böndum landsins.Bloodgroup er fyrsta bandið til að spila og þau byrja kl. 22:00 og það er ókeypis inn.

Föstudagur

Á Dillon verður Creedence Clearwater Revival heiðurskvöld og er það hljómsveitin Gutl sem mun sjá um spileríið. Tónleikarnir hefjast 22:30 og það er frítt inn. Sjá nánar hér.

Á NASA verður danssprengja og mikil gleði því Alex Metric verður með DJ set og Bloodgroup munu hita upp fyrir hann. Miðaverð í forsölu er 1500 kall og er miðasalan á midi.is. Sjá nánar hér.

Laugardagur

Fyrsta Kanilkvöldið fer fram á Faktorý á laugardagskvöld en það er röð af dansidjammkvöldum sem fer fram í hliðarsalnum á neðri hæðinni. Frítt inn! Sjá nánar hér.

Á efri hæðinni verður ekki síðri dagskrá því þar munu Berndsen, Jungle Fiction og Ultra Mega Technobandi Stefán halda uppi stuðinu. Húsið opnar 23:00 og það er frítt inn! Sjá nánar hér.

Á Sódómu fer fram hljómsveitakeppnin Wacken Metal Battle þar sem sex hljómsveitir munu berjast um heiðurinn að komast út til Þýskalands að spila á Wacken Open Air og taka þátt í lokakeppninni. Í viðbót við hljómsveitirnar sex munu sveitirnar Skálmöld, WistariaMoldun koma fram. Byrjar 20:30 og kostar þúsundkall inn. Sjá nánar hér.

Á Bakkus verður sannkölluð karnivalstemning í tilefni carnivalsins í Rio De Janeiro. Fram koma Tropicaliasveit Kristínar og Samúel Jón Samúelsson Big Band. Húsið opnar 21:00 og það er frítt inn! Sjá nánar hér.

Á Relax (sem er á Dalshrauni í Hafnarfirði) verða Blues Willis og Mighty Good Times með tónleika. Ókeypis inn og partíið byrjar kl 23:00

Sunnudagur
Á Faktorý verður sunnudagsjazzinn eins og alltaf. Byrjar kl. 21:00, ókeypis inn og “Áhugasamir jazzarar eða söngvarar eru velkomnir í hópinn.”

Eins og áður biðjumst við velvirðingar á því ef eitthvað vantar en bendum ykkur jafnframt á að láta okkur vita af því með athugasemd eða tölvupósti á toppfimmafostudegi[at]gmail.com eða með því að skrifa á Facebook vegginn okkar.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Tónleikar | Comments Off

Topp 5 Airwaves tilhlökkun *Gestalisti* – Dr. Gunni

7.10.2010 - Georg Atli

Annar gestalistamaðurinn í dag er enginn annar en Dr. Gunni, en hann er eins og alþjóð veit mikill tónlistarspekingur og hefur gefið út spil og stjórnað útvarpsþáttum og sjónvarpsþáttum og skrifað í blöðin og bækur og ég veit ekki hvað og hvað. Hann er líka einn af vinælli bloggurum landsins og það er alveg þess virði að kíkja á síðuna hans. Ekki nóg með það þá er goðsagnakennda hljómsveitin hans S/H Draumur eitt af aðalnúmerum Airwaveshátíðarinnir í ár. Það er líka vert að minnast á það að sú hljómsveit ætlar að endurútgefa plötuna sína Goð og það ætti að vera hægt að kaupa snilldina í stafrænni forsölu hér! (það er m.a.s. hægt að hlusta frítt!)

OG svo á hann líka afmæli í dag, þannig að topp 5 óskar Dr. Gunna til hamingju með afmælið!

S/H Draumur er að spila á NASA á fimmtudag kl. 23:00

Dr. Gunni – 5 atriði á Airwaves 2010

Sko, Airwaves er algjör frumskógur og alveg frábærlega mikið af fínu stöffi þarna. Ég tók þá ákvörðun að velja bara erlent efni, en það er auðvitað geðveikt mikið af spennandi íslensku stöffi líka. Ég mæli með Airwaves fitubrennslu mixinu 2010 (http://this.is/drgunni/mp3/Airwaves-fitubrennsla-2010.mp3), þar sem þú heyrir 30 erlend Airwaves bönd og getur brennt af þér fitu í leiðinni. En ok, skellum oss í þetta:

5. Toro Y Moi / Neon Indian
Hér eru tvö atriði sem merkimiðanum “Chillwave” hefur verið slengt á. Hljómsveitin Beach House er líklega þekktasta bandið í þessari deild. Músík er einhvers staðar mitt á milli Beach Boys, House tónlistar og My Bloody Valentine – nokkuð ferskt og svalandi stöff. Toro Y Moi er aðallega einn gaur, Chazwick Bundick, og fyrsta platan hans Causers of This kom út á þessu ári og er nokkuð fín. Neon Indian er í svipuðum fílingi, en það er bara meira popp í gangi hjá honum og meira bít. Það verður gaman að sjá hvernig þetta stöff er læf. Toro Y Moi er á Venue á föstudaginn kl. 23.30, Neon Indian er líka á Venue, en á laugardaginn kl. 23.30.

Toro Y Moi – Blessa á YouTube

4. Tunng
Bresk “þjóðlaga-rafræna”. Flott popp umvafið flottum rafstælum, án þess að það sé keyrt í kaf. Flottar raddir og gott stöff. Tékkaðu á síðustu tveimur plötunum með þeim, sú frá 2007, Good Arrows er tilraunakenndari. Svo held ég að þetta sé helvíti fínt læf. Tunng spila kl. 21.30 á laugardaginn í Listasafninu.

3. Diamond Rings
Demantahringirnir er nú bara einn Kanadamaður sem heitir John O’Regan. Hann er nýbyrjaður, fyrsta platan hans heitir Special Affections og er að koma út. Þetta er dáldið gott og hressandi indie popp, melódískt og röddin í gaurnum minnir mig á David Bowie, en samt bara smá. Ég vona að hann mæti með band en verði ekki bara einn eins og kleina með kassagítar, því það er mikið lagt í útsetningar í þessari tónlist og það væri gaman að sjá þetta á góðu blasti. Diamond Rings er á Venue á laugardaginn kl. 23.30.

2. Crocodiles / The Vandelles
Tvö góð bandarísk, sem koma úr sama bekk og Singapore Sling, þ.e. það má finna fyrstu plötu Jesus & The Mary Chain í plötuskápunum þeirra, plús Velvet Underground, The Sonics, The Stooges, Suicide o.s.frv. Það er þó alltaf einhver framþróun og hvorugt bandið – ekki frekar en Singapore Sling – að stæla hrátt. Crocodiles halla sér ítrekað í átt að taktföstu krautrokki og eru með góðan sens fyrir melódískri uppbyggingu. Tvær góðar plötur eru komnar út með þeim, sú seinni, Sleep Forever, var tekin upp af Simian Mobile Disco manninum James Ford. Minna bözz er í kringum The Vandelles, en þetta er þétt band engu að síður og fullt af góðu hrámeti á nýjustu plötunni þeirra, Del Black Aloha. Crocodiles spila á Sódómu á laugardaginn kl. 22.50. The Vandelles spila í Iðnó á föstudaginn kl. 20.
 

1. Timber Timbre
Ef ég mætti bara sjá eitt band á Airwaves myndi ég sjá þetta. Bandið er eins manns, aðalkarlinn heitir Taylor Kirk og er Kanadamaður, en hann er væntanlega með eitthvað lið með sér þegar hann spilar læf. Hann hefur víst gert 3 plötur, en ég hef bara heyrt þá nýjustu, samnefnda bandinu, sem er ógeðslega góð. Taylor er með þýða og flotta rödd og tónlistin er svona einhvers staðar á milli Julee Cruise (David Lynch dívan) og örlí Nick Cave með dassi af Mazzy Star og jafnvel furðumenninu Jandek – en samt er útkoman algjörlega sérstök. Ég heyrði lagið Magic Arrow í einum Breaking Bad þætti og vissi ekkert hvað þetta var. Þetta var bara svo flott að ég linnti ekki látum fyrr en ég var búinn að finna úr úr þessu á netinu. Timber Timbre spila kl. 19.30 á laugardaginn í Listasafninu.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Airwaves, Georg Atli | Comments Off

Topp 5 brúðkaupslög – Krissa

12.10.2009 - Kristjana

Úbbs, ‘örlítið’ sein ;/

5. The Cure – Love Song

“However far away
I will always love you
However long I stay
I will always love you”

Need I say more?

4. The Avett Brothers – Matrimony
“I ain’t through I ain’t walking out
Leaving ain’t what I’m about,
You may scream and I may shout.
But baby I love you.”

Tíhí fyrir hressa brúðkaupið!

3. The Moldy Peaches – Anyone Else But You (Michael Cera og Ellen Page eru jafnvel enn betri!)
“I will find my niche in your car
With my MP3, DVD, rumble pack, guitar
I don’t see what anyone can see in anyone else
But you”

Sætast!

2. Bright Eyes – First Day of My Life
“And you said
This is the first day of my life
Glad I didn’t die before I met you
Now I don’t care, I could go anywhere with you
And I’d probably be happy”

Mwaww…

1. Nick Cave – Into My Arms
“I don’t believe in an interventionist god
But I know, darling, that you do
But if I did I would kneel down and ask him
Not to intervene when it came to you”

Því í sumar fór ég í brúðkaup þar sem þetta lag var sungið í kirkjunni og það var fullkomið! Ótrúlega fallegt lag og fullkominn texti! :)

Tags: , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Listar | Comments Off

Topp 5 konur – Kristín Gróa

24.7.2009 - Kristín Gróa

Þessar konur er mér efst í huga þessa stundina.


5. PJ Harvey

PJ Harvey er rokkari eins og Nick Cave er rokkari. Það virðist augljóst að nefna þau í sömu setningunni í ljósi þeirra tengsla en það sem ég er að meina með þessu er að mér dettur enginn önnur tónlistarkona í hug sem er svona hrá og gróf. Hún er karlmannleg í tónlistinni sinni.

PJ Harvey – C’mon Billy

PJ Harvey – Snake


4. Joni Mitchell

Ef PJ Harvey er karlmannleg í sinni tónlist þá er Joni Mitchell andstæðan og ef ég ber saman PJ Harvey og Nick Cave þá myndi ég bera saman Joni Mitchell og Leonard Cohen. Ég veit ekki hversu hátt hlutfall af hennar aðdáendum eru konur en ég myndi giska á svona 85%.

Joni Mitchell – A Case Of You
Joni Mitchell – Free Man In Paris


3. Björk

Jú hún er mér ofarlega í huga, verandi íslensk og allt það, en ég held það sé erfitt að mótmæla því að hún er einn íkonískasti (vont orð en það eina sem mér finnst passa!) tónlistarmaður síðustu 15 ára.

Björk – 5 Years
Björk – Play Dead


2. Kate Bush

Eina leiðin til að lýsa Kate Bush er að segja að hún er öðruvísi. Ég kynntist tónlistinni hennar upphaflega í gegnum bróður minn og stundum var verið að gera grín að mér fyrir að hlusta á þessa kellingatónlist eins og einhver orðaði það. Ég hef sjaldan hlustað á tónlist sem er eins lítil “kellingatónlist” (hvað svo sem það nú er) og þetta. Þetta er öðruvísi, skrítið, skemmtilegt og ögrandi.

Kate Bush – The Big Sky
Kate Bush – The Man With The Child In His Eyes


1. Stevie Nicks

Ó Stevie. Söngvar hafa verið sungnir um þessa konu og það er ekki að ástæðulausu. Hún var auðvitað meðlimur í einni vinsælustu hljómsveit áttunda áratugarins og þegar frægðarsól hennar skein sem hæst þá var hún fögur, hæfileikarík og á einhvern hátt bæði sterk og brothætt í senn. Það er ekki skrítið að karlmenn hafi ædolæserað hana.

Ef þið hafið ekki enn séð þetta vídjó af henni að syngja alternate útgáfu af Wild Heart þá er það skylduáhorf. Það er eiginlega skylduáhorf samt og ég held ég horfi bara á það núna í þúsundasta skipti því ég fæ gæsahúð í hvert sinn.

Fleetwood Mac – Angel
Stevie Nicks – Wild Heart

Tags: , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | 2 athugasemdir »

tikk tikk tikk tikk… ping!

10.2.2009 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn


Ritvélar eru stundum notaðar sem hljóðfæri eða til að skapa takt. Hér eru 3 dæmi um lög sem innihalda ritvélarleik:

No Pussy Blues – Grinderman


Rivélatikkið hefur lagið og gefur taktinn fyrir trommarann sem tekur við stefinu. Næst kemur Cave og svo bassinn og lagið fer að fá á sig meiri mynd.
Hver segir að sitja einmana við ritvél á skrifstofu 9 til 5 gefi manni ekki hugmyndir? tikk tikk tikk tikktikk tikktikk…

William Pierce – Arcade Fire

Ritvélin lemur lúmskt undir laginu og er eini taktgjafinn í versunum en grófari bumbur eru barðar í viðlaginu. Ekki veit ég hvaða William Pierce er verið að yrkja um (wiki benti á 4 mögulega gaura) eða hvort ritvélin tengist honum en hún gefur laginu ákveðinn blæ.

Derek – Animal Collective


Lagið skiptist nákvæmlega í tvennt og seinni hluti þess hefst með og er leiddur í gegn af þéttum ritvélakór sem dúndrar laginu áfram.

Tags: , , ,
Flokkað undir Óflokkað | Comments Off

Topp 5 Plötur 2008 – Georg

2.1.2009 - Georg Atli

1. Bon Iver – For Emma, Forever Ago

Einlægasta og fallegasta og sárasta og besta plata sem ég hef heyrt í langan tíma… (ok hún kom út í des 2007 en mér finnst hún svo góð að ég ætla samt að hafa hana efsta á 2008 listanum)

Skinny Love à la Blogothèque

2. Cut Copy – In Ghost Colors

…sækadelic-elektró-rokk??? Rosalega flott og gott og hressandi, soldið líkt MGMT en mér finnst þetta betra.

Hearts On Fire:

3. Fleet Foxes – Fleet Foxes

Nýliðar ársins með ótrúlega þægilega plötu (þægilegt er meint á sem bestan hátt), þeir fá fullt lánað allstaðar frá og gera það bara mjög vel.

White Winter Hymnal

4. Marnie Stern – This Is It And I Am It And You Are It And So Is That And He Is It And

She Is It And It Is It And That Is That

Óhljóða-pönk-krútt (eða eitthvað svoleiðis) með geðveikt flottum gítar!

Ruler

5. Flying Lotus – Los Angeles

Hipp-hopp plata ársins

Vídjóið er hér, en það er víst ekki við allra hæfi (enda var það bannað af Youtube)… og það eru blikkljós svo ekki horfa ef þið eruð flogaveik…

Komust-ekki-alveg-á-listann-listinn

MGMT – Oracular Spectacular

Fucked Up – The Chemistry Of Common Life

Glasvegas – Glasvegas

Beck – Modern Guilt

Nick Cave – Dig, Lazarus Dig!

Vampire Weekend – Vampire Weekend

Portishead – Third

TV On The Radio – Dear Science

Tags: , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | 1 athugasemd »

topp 5 lifandi lög – zvenni

14.11.2008 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn

bob hund – Istället För Musik: Förvirring [Från Replokalen -95]
Hef séð þessa kappa þrisvar á sviði en vildi svo mikið hafa séð þennan flutning. Frekar mikið rugl, einn fer út af laginu og hinir sjá hvað er að gerast, í stað þess að stemma hlutina af og laga þá eru allir á einu um að einfaldlega halda áfram og rugla enn meira í taktinum, erindum, versum og því meira fokk í forminu því betra. Algjör ringulreið. Mikið rokk og mikið ról.

Sufjan Stevens – Casimir Pulaski Day
Tuesday?, no, Sunday night….

Því miður ekki góð hljóð- eða myndgæði en þvílíkir tónleikar. Fær mann til að langa til að fara oftar í kirkju.

Nick Cave – Wild World
Lifandi á Íslandi, eitt það magnaðasta sem ég hef séð, Cave að taka gamalt Birthday Party lag. Byrjar rólega með hægri en öruggri uppbyggingu, píanó, trommur, bassi og smá Warren Ellis á fiðlu en áður en yfir lýkur er Cave farinn að hamra á lyklaborðið með mikrafóninum og væla eins og heróínfíkillinn sem hann var.

Arcade Fire – Wake Up
Ein svakalegasta hópupplifun sem ég ef verið lent í. Band í þvílíkri stemmningu og spilagleðin allsráðandi. Heyra og sjá fjöldann taka undir. Vel þess virði að vera blautur í nokkra daga.

Tom Waits – Innocent When You Dream
Í raun er þetta eini maðurinn sem ég þarf að sjá á tónleikum. Er búinn að sjá allt sem mig langar mest að sjá, Pixies, Cave, bob hund, Who, Tull, Dylan, Young, Waters… en þessi er eftir. Sögumaður dauðans.

Tags: , , , , , , , , ,
Flokkað undir Listar | Comments Off

dansilög – zvenni

24.10.2008 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn

Luftgítar – Johnny Triumph
Dans bælda karlmannsins…

Total Eclipse of the Heart – Bonnie Tyler
…fyrir Óskar Hafnfjörð, Dillon og mig.

Atlas – Battles
Á afar drónalegan og dáleiðandi hátt rekur vélrænn taktur lagsins líkamann á fætur og af stað. Hópur uppvakninga hlykkjast til í átt að borginni undir stjórn lágvaxins og skræks illmennis… hlustið…

Tiny Dancer – Elton John
Hópdill og hendur á öxlum… vinir, djammfélagar, ókunnugir og vafasamir mótorhjólagaurar sem voru búnir að standa kyrrir og sötra bjórinn sinn allt kvöldið þangað til þetta lag hófst, allir fallast í faðm, vagga og væla í kór… “When I say softly… slowly…¨

Sad Punk – Pixies
One thousand miles an hour
Im just like anyone
I want to feel the road of tar beneath the wheel
named extinction

Það er eitthvað við þetta lag sem fær mann til að rjúka á fætur, ryðja sér leið inn í miðjann pyttinn, taka nokkur högg, detta, standa upp ögn vankaður, líta í kring um sig og þá gerist það, augun mætast. Þú veist samstundis að þetta er stúlkan… skrítna gotagellann með skítuga hárið og nokkra heimagerða dredda sem stangast út í loftið. Hún er götuð á öllum réttu stöðunum og fölari en máninn endurspeglaður í ræsinu í Nick Cave lagi. Tónlistin hægist en dæluklumpurinn heldur áfram að pumpa rauða vökvanum á vörpu 9 og krómuð rómantíkin kikkar inn…

And evolving from the sea
Would no be too much time for me
To walk beside you in the sun…

Tags: , , , , ,
Flokkað undir Listar | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin