Sarpurinn
17.3.2011 - Kristín Gróa
Sarpur vikunnar flokkast eiginlega sem kaliforníu kántrírokk sem mér hefur alltaf fundist hálf gelt “genre”. Ég meina stærsta hljómsveitin í þeim flokki er Eagles! Já og btw ætlar fólk í alvörunni að borga 20þús kall til að standa og horfa á Eagles? Góða skemmtun!
Hmm en nú er ég komin út fyrir efnið. Sarpur vikunnar er sem sagt platan Running On Empty með tónlistarmanninum Jackson Browne. Það má eiginlega segja að Jackson Browne sé rosalega amerískur tónlistarmaður svona á svipaðan hátt og Bruce Springsteen er amerískur tónlistarmaður. Alls ekki á þennan verkamanna-námugraftar-fátæktar-hátt heldur er tilfinningin í tónlistinni hans bara þannig að hún er mjög amerísk… eða allavega finnst mér það.
Browne hóf ferilinn ekki sem sólótónlistarmaður heldur spilaði hann með öðrum og samdi einnig tónlist fyrir aðra. Eitt af hans allra bestu lögum, These Days, er t.d. þekktast í flutningi Nico en hann spilaði á plötunni Chelsea Girl og átti tvö lög til viðbótar á plötunni.
Running On Empty kom hins vegar út árið 1977 og var fimmta plata Browne. Hún þótti merkileg fyrir þær sakir að vera live plata sem samanstóð af lögum sem hann hafði aldrei áður gefið út á plötu. Þetta var því í glæný plata en um leið live plata. Lögin voru ýmist tekin upp á tónleikum, baksviðs og jafnvel í tónleikarútunni. Fyrir vikið er platan mjög einlæg og kannski dálítið einföld. Þegar hún kom út voru viðtökurnar misjafnar og þótti fólki þetta vera hálfgjör metnaðarleysi hjá Browne en engu að síður hefur þessi plata síðan náð sjöfaldri platínusölu og er söluhæsta plata Browne frá upphafi. Málið við þessa plötu er nefnilega að lögin eru góð og ef maður getur losað sig við softrock Eagles tenginguna sem loðir alltaf við Browne þá er þetta hin ánægjulegasta plata áheyrnar.
Jackson Browne – Running On Empty
Jackson Browne – Cocaine
Jackson Browne – Stay
Tags: Bruce Springsteen, Eagles, Jackson Browne, Nico
Flokkað undir Kristín Gróa, Sarpurinn | Comments Off
Topp 5 lög from the movies – Erla Þóra
14.9.2010 - Erla Þóra
Þessi listi skrifaði sig nánast sjálfur, en kom seint inn sökum vinnuhelgar. Aðalvandinn í þetta sinn var að takmarka mig við fimm lög. En ég ákvað að halda mig við myndir sem eru í uppáhaldi hjá mér (þó að ég fatti það reyndar núna að það er engin Tim Burton mynd þarna.. hmm). Allavega..
5. Stealers Wheel – Stuck in the middle with you (úr Reservoir dogs)
Svona hresst lag í svona atriði er í einu orði sagt magnað. Það má ýmislegt segja um Tarantino en maðurinn er snillingur í að velja töff lög í myndirnar sínar (Ekki virðist vera hægt að skella atriðinu hérna inn.. en hvet ykkur til að you-tube-a það).
4. Air – Playground Love (úr Virgin Suicides)
Epískt myndband með tyggjóklessunni! Annars finnst mér þetta lag passa svo vel inn í flotta seventies andrúmsloftið í myndinni.
3. Elliot Smith – Needle in the Hay (úr Royal Tenenbaums)
Þessi mynd er klárlega ein af topp 5 bíómyndum sem ég hef séð. Því er tilvalið að hafa eitt lag úr henni á þessum topp 5 lista. Ég var næstum því búin að skella inn atriðinu með Nico-laginu These Days, enda er það awesome.. en þetta er jafnvel betra.
2. The Shins – New Slang (úr Garden State)
“You’ve got to hear this one song, it will change your life I swear”. Love it.
1. Elton John – Tiny Dancer (Almost Famous)
Mér hefur alltaf fundist þetta vera svo fullkomið lag fyrir þetta atriði. Svo fallegt.. Svo yndislegt.. Og allir syngja saman!
Tags: Air, Elliott Smith, Elton John, Nico, Stealers Wheel, The Shins
Flokkað undir Erla Þóra, Listar | 1 athugasemd »
Topp 5 listamenn sem bera aðeins eitt nafn – Clara
19.2.2010 - Clara
Ég ákvað að gera topp 5 kvenkynslistamenn sem bera aðeins eitt nafn
Leslie Feist ein af meðlimum hinnar stórgóðu hljómsveitar Broken Social Scene sem rokkar eyru allra sem heyra er einnig frábær sóló artisti og síðasta plata hennar frá 2007 The Reminder fór varla framhjá neinum sem elskar tónlist…… frábær plata sem ég get hlustað á endalaust með hvern smellinn á eftir öðrum sem koma mér sólskins skap….. koma svo í stuðið með sesame street útgáfuna
Tags: Björk, Broken Social Scene, Feist, Kelis, Lulu, Nico, Velvet Underground
Flokkað undir Clara, Listar | Comments Off
Topp 5 spes rödd – Kristín Gróa
26.6.2009 - Kristín Gróa
Við vorum greinilega öll of utan við okkur til að birta lista síðustu viku… ég var m.a.s. búin með minn en birti hann samt ekki! Rugl. Við skulum því líta á síðustu viku sem frí og hér koma mínar topp 5 spes raddir.
Nico er ekki fölsk en manni finnst það samt sem er nokkuð magnað. Já og btw þá er þetta mögulega eitt af topp 5 skrítnustu lögum sem er að finna í tónlistarsafninu mínu.

4. Songs: Ohia – Peoria Lunch Box Blues
Önnur sérkennilega fölsk en samt ófölsk söngkona hér á ferð en það er enska tónlistarkonan Scout Niblett sem syngur þetta lag fyrir hann Jason Molina.

3. Clap Your Hands Say Yeah – Let The Cool Goddess Rust Away
Ég held að söngurinn hjá blessuninni honum Alec Ounsworth sé frekar sérkennilegur by choice heldur en af náttúrunnar hendi en það breytir því ekki að þegar hann syngur þá á gler það til að brotna.

2. Antony & The Johnsons – Knockin’ On Heaven’s Door
Antony Hegarty er með eina skrítnustu en jafnframt fallegustu rödd sem ég hef heyrt á upptöku.

1. Megas – Jónas Ólafur Jóhannesson
Það er merkilegt að bestu textar íslenskrar tónlistar séu sungnir á svo einkennilegan hátt að yfirleitt skilur maður ekki bofs… en kannski er það einmitt snilldin?
Tags: Alec Ounsworth, Antony & The Johnsons, Antony Hegarty, Clap Your Hands Say Yeah, Jason Molina, Megas, Nico, Scout Niblett, Songs: Ohia
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | 2 athugasemdir »
Topp 5 Dylan cover
31.8.2007 - Kristín Gróa

Jimi Hendrix fær honourable mention vikunnar en uppreisnarseggurinn í mér getur bara ekki fengið sig til að elta hjörðina og segja að All Along The Watchtower sé besta cover allra tíma. Það er gott cover en kommon, hleypum öðrum að!
Hippadrottningin Melanie skrúfar upp í dramatíkinni og sleppir ofvirkum þverflautuleikara lausum en samt gengur þetta fyllilega upp. Mjög hippalegt þó.
Það voru fáir duglegri við að covera Dylan heldur en The Byrds enda er ég með greatest hits plötuna þeirra og þar eru heil átta Dylan lög! Mér finnst þetta standa langt upp úr þeim, einfaldlega því harmónískur söngurinn og hringlandi hljóðfæraleikurinn undirstrikar alla styrkleika lagsins. Svo er live útgáfan af þessu lagi þar sem Dylan spilar það með Byrdsaranum Roger McGuinn, Tom Petty, Neil Young, Eric Clapton og George Harrison ansi mögnuð en þar spila þeir einmitt Byrds útgáfuna í stað þeirrar upprunalegu.
3. Nina Simone – I Shall Be Released
Örugglega besta lagið frá trúartímabili Dylans er hér flutt í fallegum gospelbúningi af sjálfri Ninu Simone. Hún segir við hljómsveitina í upphafi upptökunnar You’re pushing it… it’ll go out by itself… don’t put nothing in it unless you can feel it og ég trúi virkilega að hún hafi fundið það. Það hlýtur að vera galdurinn við að taka gott cover, að finna lagið eins og það væri þitt eigið.
2. Nico – I’ll Keep It With Mine
Æjj ég veit ég er eiginlega að svindla því þetta er ekki beint eiginlegt cover lag. Dylan lét Nico fá þetta lag til að setja á Chelsea Girl og það kom ekki út með honum sjálfum fyrr en mörgum árum seinna og þá á samtíningnum Biograph. Þetta er aftur á móti eitt af ótalmörgu uppáhalds lögunum mínum svo ég stenst einfaldlega ekki freistinguna að setja það á listann… það sleppur alveg er það ekki?
1. Them – It’s All Over Now Baby Blue
Þetta er nú alveg með fallegri Dylan lögum en svo er þar að auki búið að bæta við svo flottu stefi að Beck ákvað að nota það bara óbreytt í laginu Jackass með svona líka góðum árangri. Þetta stef og geltið í Van Morrison taka orginalinn og snúa honum á hlið en halda samt í sömu tilfinninguna. Er það ekki þannig sem gott cover á að vera?
Tags: Beck, Bob Dylan, Eric Clapton, George Harrison, Jimi Hendrix, Melanie, neil young, Nico, nina simone, Roger McGuinn, The Byrds, Them, Tom Petty, Van Morrison
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | 1 athugasemd »


