Plata mánaðarins
17.6.2010 - Kristín Gróa
Janelle Monáe fékk alveg þokkalega stór nöfn til liðs við sig á nokkrum lögum á The ArchAndroid. Við höfum áður heyrt lag þar sem Big Boi aðstoðaði hana en hún fékk einnig til liðs við sig Deep Cotton, goðsögnina Saul Williams og glysindípopparana í Of Montreal. Kevin Barnes og félagar eru þó með sýnu stærsta framlagið þar sem lagið Make The Bus er samið af Barnes, hann syngur meirihlutann af því og það hljómar satt að segja mjög Of Montreal-lega. Það virkar dálítið random að Monáe hafi fengið Of Montreal til liðs við sig en samstarfið er væntanlega komið til vegna þess að hún hitaði upp fyrir þau á túr í fyrra.
Janelle Monáe – Make The Bus (feat. Of Montreal)
Tags: Janelle Monáe, Of Montreal
Flokkað undir Kristín Gróa, Plata mánaðarins | 3 athugasemdir »
Komandi tímar….
9.6.2010 - Georg Atli

Nú þegar að fyrri helmingur ársins er alveg að verða búinn þá finnst mér alltaf pínu skemmtilegt að skoða hvaða tónlistamenn eru búnir að lofa nýrri plötu. Hérna kemur svo listinn yfir það sem mér finnst allra helst:
Nýja pltan hennar MIA kemur út seinna í þessum mánuði (hún heitir þessu svaka netvæna nafni:/\/\ /\ Y /\) og svo Trent Reznor hætti með NIN og stofnaði nýja hljómsveit sem heitir How to Destroy Angels og þau ætla að gefa út samnefnda EP plötu (held amk að það verði bara EP, er samt ekki alveg viss) í byrjun júlí.
Í ágúst kemur svo langþráð plata frá Arcade Fire og þau eru aðeins byrjuð að leka út kynningarefni sem lofar bara ansi góðu. Flippararnir í !!! eru líka með plötu í ágúst þrátt fyrir að trommarinn þeirra hafi dáið fyrr á árinu, hún á að heita Strange Wether, Isn’t It?.
Í september eru svo margar stórar plötur á leiðinni en Nick Cave og vinir hans í Grinderman senda frá sér Grinderman 2 og nýja Interpol platan kemur líka þá og Hot Sauce Comittee, Pt. 1 frá gamlingjunum í Beastie Boys. Kanye West platan Good Ass Job á einnig að koma út í september og litli lærlingurinn hans Kid Cudi verður líka með nýja plötu þá og líka Panda Bear, Of Montreal og The Walkmen þannig að september verður ansi stór!
Svo skilst mér að hipparnir í Fleet Foxes og Anthony Hegarty að gefa út plötu í október… en ekki saman samt, þó að það yrði örugglega áhugavert.
Belle & Sebastian og danspoppararnir í Justice og Daft Punk ætla líka að gefa út plötu í ár en ég veit ekki hvenær.
og síðan en ekki síst þá eru Radiohead búnir að vera að teasa einhverri plötu í ár, en engin (nema kannski Thom Yorke) veit hvort það sé eitthvað til í því… það kom amk nýtt lag og þá vonar maður bara það besta.
Tags: !!!, arcade fire, Beastie Boys, Belle & Sebastian, Daft Punk, Fleet Foxes Antony & The Johnson, Grinderman, How To Destroy Angels, Justice, Kanye West, Kid Cudi, MIA, Of Montreal, Panda Bear, Radiohead, The Walkmen
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off
Topp 5 5 – Georg Atli
18.9.2009 - Georg Atli
Listinn minn samanstendur af allskonar böndum og upphaflega var eina tengingin þeirra við fimm í gegnum tónlistarsafnið mitt. Ég tók fimmta bandið sem byrjaði á ákveðnum staf (og fimmta lagið og fimmtu plötuna ef það var hægt), ég byrjaði á stafnum E, af því það er fimmti stafurinn í enska stafrófinu (valdi það enska af því að fimmti stafurinn í íslenska er Ð) og svo fimmta hvern staf á eftir E.
5. Eagles of Death Metal – Solid Gold
Þó að það séu bara tveir aðal töffarar í þessu bandi eru það 5 manns sem hafa spilað með því OG þetta er eitt af 5 böndum sem Josh Homme spilar í!
55. J.P. Nestor – Train on the Island
Þetta er eldgamalt, kom út á safnplötu sem heitir Anthology of American Folk Music sem er full af ansi flottu dóti, tjékkiði endilega á því
555. Of Montreal – Gronlandic Edit
Fimm manns í þessu bandi og aðallinn heitir Kevin… og það eru einmitt 5 stafir í því nafni!
5555. Taken By Trees – Tidens Gang
Norskt band, 5 stafir bæði í Taken og Trees!
55555. YACHT – Psychic City
Fimmta eiginlega platan (held ég) og orðið YACHT er líka fimm stafir.
Tags: Eagles of Death Metal, J.P. Nestor, Josh Homme, Kevin, Of Montreal, Taken By Trees, YACHT
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off
Dagsins…
14.4.2009 - Georg Atli
Á plötunni Kala með M.I.A. er coverlagið Jimmy. Það er upphaflega sungið, á Hindi, af Bollywood leikkonunni Parvati Kahn og var, held ég, í Bollywoodmynd sem heitir Disco Dancer (ef ekki þá er myndin sem fylgdi bara svona auka skemmtun) og þar heitir lagið Jimmy, Jimmy, aja, aja, ekki að það skipti neinu máli. En Bollywood er amk bæði fyndið og skemmtilegt…
…og síðan gerði gleðisveitin Of Montreal líka stórgóða útgáfu af þessu lagi.
Tags: M.I.A., Of Montreal
Flokkað undir Georg Atli, Óflokkað | Comments Off
Okkervil River
8.9.2008 - Kristín Gróa

Það sem heltekur hug minn í dag er að á morgun kemur út ný plata frá hinni frábæru sveit Okkervil River sem er í alveg rosalega miklu uppáhaldi hjá mér. Platan nefnist The Stand Ins og er víst einskonar seinni hluti meistaraverksins The Stage Names sem kom út í fyrra. Sú plata deildi toppsætinu á mínum árslista 2007 með Hissing Fauna, Are You The Destroyer? en ég er ekki frá því að núna sé hún í enn meira uppáhaldi. Það var svo æðisgengin plata að ég er pínku hrædd við að hlusta á þessa en ég hlakka samt til. Ég hlakka mikið mikið til.
Okkervil River – Singer Songwriter
Okkervil River – Lost Coastlines
Tags: Of Montreal, Okkervil River
Flokkað undir Kristín Gróa, Óflokkað | 2 athugasemdir »
Kings Of Leon + of Montreal
7.8.2008 - Kristín Gróa
Vignir skrifaði um nýju plötu hönkanna í Kings Of Leon um daginn og póstaði þar laginu Crawl sem hljómar ansi vel í mínum eyrum. Nú er komið á flakk annað lag af plötunni sem heitir Sex On Fire og er alveg æði… ég er reyndar með það innprentað í hausinn á mér hvernig Caleb leit út á Hróarskeldutónleikunum svo ég er tilbúin að gúddera allt sem ég heyri hann syngja en það er nú allt annað mál. Ég meina sjáið manninn… þetta er bara ekki hægt. Hehemm en þetta er í alvöru gott lag samt.
Kings Of Leon – Sex On Fire

Einnig er væntanleg á næstunni nýjasta afurð Kevin Barnes og félaga í of Montreal. Platan sú kemur til með að heita Skeletal Lamping og fyrsta lagið er farið að þeytast um internetið. Þetta er ekkert sjokkerandi fráhvarf frá því sem þau voru að gera á Hissing Fauna, Are You The Destroyer? nema það er ennþá meira diskó í gangi. Veit ekki alveg hvað mér finnst ennþá en þetta lofar allavega góðu.
Tags: Caleb Followill, Hróarskelda, Kings of Leon, Of Montreal, Roskilde
Flokkað undir Kristín Gróa, Óflokkað | Comments Off
Topp 5 lög til að elda við – Vignir
2.5.2008 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn
Að elda mat er góð skemmtun. Og góðri skemmtun fylgir góð tónlist. Þegar ég elda vil ég hafa skemmtilega tónlist sem hægt er að hreyfa líkamann við því það er ekki hægt að gera salsa sósu nema kokkurinn dansi með.
5. Of Montreal – She’s a Rejector
Hissing Fauna er frábær plata til að dansa við og elda við. Maður hreinsar úr sér existential vandræði, hommast aðeins upp og fær gott glam beint í æð. Matargerð við svona tónlist verður alltaf tilfinningarík og ekki kæmi á óvart ef að útkoman væri ekki gott og létt salat.
4. Man Man – Mister Jung Stuffed
Man Man eru rosa góðir í að fá mann til að hreyfa sig og eru mjög skemmtilegir við eldamennsku. Athyglisbresturinn og geðveikin skila sér í matargerðina og maður skiptir oft um skoðun, prófar nýja hluti og reynir að hafa eins mikið með og mögulegt er. Uppistaðan hér gæti t.d. verið Billy Madison kjúklingasalatið sem varð til hér í Montréal í seinustu viku: Ávaxtalegt salat með fjólubláum kjúkling (Well, I made the duck blue because I’d never seen a blue duck before and I wanted to see one). That’s quacktastic!
3. Metallica – Blackened
Metall hentar alveg vel í matargerð og sérstaklega ef maður er einn heima að elda. …And Justice For All hentar rosalega vel í þetta. Bannað að elda í öðru en gallabuxum og bol. Útkoman hér verður hamborgari steiktur upp úr bjór.
2. Daft Punk – The Prime Time of Your Life / The Brainwasher / Rollin’ & Scratchin’ / Alive
Það er ekki hægt að klikka með Daft Punk. Ef maður vill hafa eitthvað sem heldur manni við efnið þá er Alive platan ekki að fara að svíkja neinn. Ef maður væri með þetta í gangi myndi maður gera eitthvað snöggt, einfalt, flott og stílhreint eins og nýtt lobby í flottu hóteli. Maður gerir örugglega eitthvað með japönskum áhrifum, marinerar eitthvað upp úr teriyaki, soya sósu og sesamfræjum.
1. Red Hot Chilli Peppers – Throw Away Your Television (Live at Slane Castle)
Það var þannig á tímabili á seinustu dögum mínum í Breiðholtinu að eina leiðin til að hafa einhverja tónlist með þegar maður var að elda var að taka fartölvuna með inn í eldhús og láta hana vera græjurnar. Ég er alltaf með tónlistina mína á flakkara og átti því ekkert til að hlusta á. Ég var hins vegar með þessa tónleika piprana á DVD og setti það oft á. Áður en ég horfði á þessa tónleika var ég ekki voða hrifinn af RHCP en eftir þetta seldist ég alveg og sá að þeir virka greinilega langbest á tónleikum. Þar fá allir að njóta sín sem best og fer John Frusciante alveg á kostum á þessum tónleikum og gefur hverju lagi nýja hlið. Ef maður eldar með þetta undir endar maður alltaf í einhverju suður-amerísku með guacamole til hliðar.
Tags: Daft Punk, John Frusciante, Man Man, Metallica, Of Montreal, Red Hot Chili Peppers
Flokkað undir Listar | 2 athugasemdir »
Jimmy!
28.1.2008 - Kristín Gróa

Þar sem ég fer á framandi slóðir á morgun og verð í burtu alla næstu viku (Færeyjar here I come…) þá er ekki úr vegi að henda inn einni færslu fyrir svefninn. Heitasta lagið á músíkbloggunum þessa dagana er útgáfa of Montreal af laginu Jimmy sem flestir þekkja betur í flutningi M.I.A. á plötunni Kala. Mörgum finnst lagið stinga í stúf á plötunni og ég get svo sem tekið undir það en það er skemmtilegt engu að síður og útgáfa of Montreal er líka mjög góð. Lagið er reyndar ekki upprunalegt M.I.A. lag heldur var það upphaflega flutt af indversku poppsöngkonunni Parvati Khan í Bollywood myndinni Disco Dancer árið 1983. Mér finnst allar útgáfurnar góðar en það sem er virkilega óborganlegt er atriðið í kvikmyndinni…
of Montreal – Jimmy
M.I.A. – Jimmy
Parvati Khan – Jimmy Jimmy Jimmy Aaja
Bónus: M.I.A. feat. M.anifest (Muja Messiah’s Louder Than Bombs Edit) – Paper Planes
of Montreal á MySpace
M.I.A. á MySpace
M.anifest á MySpace
Muja Messiah á Myspace
Tags: M.I.A., Of Montreal, Parvati Khan
Flokkað undir Kristín Gróa, Óflokkað | 2 athugasemdir »
Lokauppgjör 2007 – Vignir
11.1.2008 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn
Já, þá er bara að svara nokkrum spurningum…
1. Hverjir voru bestu tónleikar sem þú sást á árinu?
Þetta var aldeilis gott tónleikaár og margt skemmtilegt sem maður náði að sjá. Á Airwaves stóðu uppi tónleikar Deerhoof, !!! og Of Montreal. En bestu tónleikar sem ég sá voru án alls vafa Arcade Fire á Glastonbury hátíðinni. Frábær tónlist vel spiluð, gríðargóð sviðsframkoma og ótrúlega góð stemning á tónleikum. Að lifa er að syngja með einhverjum þúsundum viðlagið í ‘Wake Up’.
2. Hvaða gamalt dót uppgötvaðir þú á árinu?
Ég fór aðeins að hlusta meira á Bob Dylan á árinu sem hafði fengið að sitja á hakanum í einhvern tíma. Einnig fór ég að dýfa tánni aðeins í gamalt soul. Al Green fékk stundum að fara á fóninn og ‘We’re Having a Party‘ með Sam Cooke er gamla lag ársins! Svo setti ég Magnýl frekar oft á fóninn sem er alltaf sterkur leikur.
3. Hver voru mestu vonbrigði ársins?
Plata Bloc Party, A Weekend in the City, voru mikil vonbrigði og kemst ekki í hálfkvisti við frumburðinn.
Modest Mouse á Glastonbury voru líka nokkur vonbrigði en því má nú bara kenna um greinilega þreytu í hógværu músunum.
4. Hverju ætlaðirðu alltaf að tékka á á árinu en trassaðir?
Panda Bear, nýju White Stripes plötunni, nýju Spoon plötunni og nýju Animal Collective plötunni, sem ég týndi.
5. Hver er bjartasta vonin?
Battles eiga ótrúlega góða debut plötu og eru því sterkir frambjóðendur í þetta. Hins vegar ætla ég að segja að Zach Condon og félagar í Beirut séu bjartasta vonin, því eftir tvær frábærar plötur er greinilegt að hér er mikilvægur unglingslistamaður á ferð. Svo má heldur ekki gleyma Flight of the Conchords sem komu virkilega sterkir inn!
6. Bónus: Hvaða mynd var með besta soundtrackið á árinu?
I’m not there kom út í fyrra en ég sá hana á þessu ári. Ég ætla samt að setja hana sem besta soundtrackið. Frábær Bob Dylan lög í flutningi mannsins sjálfs og leikaranna. Mér fannst mjög gaman að Christian Bale og svarta stráknum en Jim James úr My Morning Jacket stal senunni!
Tags: !!!, al green, Animal Collective, arcade fire, Battles, Bloc Party, Bob Dylan, Botnleðja, Deerhoof, Flight of the Conchords, Jim James, modest mouse, My Morning Jacket, Of Montreal, Panda Bear, Sam Cooke, Spoon, White Stripes, Zach Condon
Flokkað undir Listar | Comments Off
King Of Prussia
8.1.2008 - Kristín Gróa

Uppgötvun vikunnar er án efa hljómsveitin King Of Prussia sem kemur frá tónlistarborginni Athens í Georgíufylki eins og bæði Of Montreal, Neutral Milk Hotel og gömlu kempurnar í R.E.M. Það skyldi þó varast að draga einhverjar ályktanir af því þar sem tónlistin hljómar frekar eins og hún komi frá Englandi á sjöunda áratugnum. Platan þeirra, Save The Scene, kemur út í lok mánaðarins og ég held maður verði eitthvað að tékka á henni.
King Of Prussia – Spain In The Summertime
King Of Prussia – Terrarium
Tags: King of Prussia, Neutral Milk Hotel, Of Montreal, R.E.M.
Flokkað undir Kristín Gróa, Óflokkað | Comments Off



