Finnsk tónlistarveisla á Bakkus

14.6.2011 - Georg Atli

Fonal Records heimsækir Ísland

Fjórar finnskar hljómsveitir heimsækja Ísland í næstu viku og munu meðal annars halda tónleika á skemmtistaðnum Bakkus laugardaginn 18. júní. Engin aðgangseyrir er að tónleikunum og hefjast tónleikar um 22. Hljómsveitirnar Es, Islaja, Jarse og Lau Nau koma fram. Þær tengjast allar hinu mjög svo framsækna og virta hljómplötufyrirtæki Fonal Records frá Tampere í Finnlandi. Fonal Records er fremsta jaðarútgáfa Finnlands og þykir bjóða upp á það besta sem er að gerast í finnskri tónlistarsenu og hafa listamenn á mála hjá útgáfunni fengið mikla athygli á alþjóðavettvangi og má þar helst nefna Islaja, Paavuhaarju, TV-resistori, Es og Kemialliset Ystävät. Ákveðin samhljómur er meðal þeirra tónlistarmanna er gefa út á Fonal og má rekja hann til þjóðlagatónlistar, sækadelíu og tilraunakenndrar raftónlistar. Tónleikarnir eru liður í tónleikaferð félagsins um Norðurlöndin.

Heimsókn Fonal Records til Íslands er styrkt af Kimi Records, Sendiráði Finnlands, Bakkus Bar og Nokia.

Es:
Es er tónlistarlegt sjálf útgáfustjórans og eiganda Fonal, Sami Sänpäkkilä. Raftónlist Es er í senn tilraunakennd og poppuð og uppfull af allskyns skringilegheitum.

Islaja:
Islaja er sólóverkefni tónlistarkonunnar Merja Kokkonen. Síðasta plata hennar, Keraaminen Pää, hefur fengið frábærar viðtökur um heim allan. Í kjölfar útgáfu hennar hefur hún komið fram á tónleikum með Animal Collective og Thurston Moore. Tónlist Islaja má reyna að flokka sem þjóðlagarafpopp undir sækadelískum áhrifum.

Jarse:
Jarse er sólóverkefni Jari Suominen, en hann hefur getið sér gott orð með sveitum á borð við Shogun Kunitoki og Kiila. Tónlist Jarse er ekki ólík samstarfsmönnum hans hjá Fonal, þjóðlagaskotin raftónlist undir sækadelískum áhrifum.

Lau Nau:
Lau Nau er hliðarsjálf Lauru Naukkarinen. Lau Nau leikur þjóðlagaskotið skrýtipopp og er hljóðheimur hennar uppfullur af ólíklegum hljóðfærum og umhverfishljóðum.

(innsk.) Hér að neðan er svo sampler frá Fonal, bendi líka á flott lag frá íslandsvinunum í Tomutonttu, ef það er eitthvað sem að má treysta á þá er það að Finnar framleiði áhugaverða raftónlist þannig að ég hvet alla til að mæta þangað… svo er líka frítt inn þannig að það er ekki hægt að tapa á þessu!

Fonal sampler 2011 by Fonal Records

Tags: , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin