Tónlistarmyndir á Riff

29.9.2010 - Kristjana

Á Riff kvikmyndahátíðinni þetta árið er flokkur sem er toppfimmurum að skapi. Flokkurinn heitir einfaldlega Tónlistarmyndir. Í honum eru 6 myndir – allt frá mynd um Ragga Bjarna (Með Hangandi Hendi) yfir í mynd um Airwaves 2009 (Where’s the Snow?). Auk þess var í gærkvöld boðið upp á kvöld með Mathieu Saura (sem reyndar kallar sig Vincent Moon) á Rósenberg. Sem einlægur aðdáandi bæði Airwaves og Vincent Moon (Concerts à Emporter eru í svo miklu uppáhaldi hjá mér!) mætti ég auðvitað á Rósenberg í gærkvöld og Iðnó á sunnudagskvöldið til að sjá Where’s the Snow?

Agent Fresco og Mammút koma ansi mikið fyrir í Where’s the Snow? og báðar hljómsveitir spiluðu nokkur lög í anddyri Iðnó áður en myndin hófst. Eftir smá skipulagsleysi hófst myndin og 5 mín síðar var ansi mikill Airwaves fiðringur kominn í mig. Ein sýning er eftir á myndinni – í Hafnarhúsinu á laugardaginn (2. okt) kl. 16:00. Mæli klárlega með henni fyrir smá Airwaves upphitun. Gunnar og Bowen, sem gerðu myndina, hafa líka báðir verið að gera styttri þætti um íslenska tónlist auk þess sem Gunnar gerði mynd um Ólaf Arnalds sem sýnd var á Riff í fyrra. Tékkið á Sleepless in Reykjavík og Don’t Panic Films

Agent Fresco, “Eyes Of A Cloud Catcher” acoustic, live at The Nordic House from Bowen Staines on Vimeo.

Nú viðurkenni ég að ég hef hingað til ekki fallið fyrir Agent Fresco. Mér fannst Eyes of a Cloud Catcher fínasta lag og sönglaði með því. Mér fannst söngvarinn góður sem og hljóðfæraleikararnir. Þetta var svona ég-heyri-að-þeir-eru-að-gera-góða-hluti-en-það-grípur-mig-samt-einhvern-veginn-ekki dæmi. Í miðri Where’s the Snow? var hins vegar sýnd upptaka af þeim taka Eyes of a Cloud Catcher í Norræna húsinu í fyrra og það þurfti ekki meira til. Lagið er búið að vera fast í hausnum á mér alla vikuna og nú langar mig að heyra allt með þeim. “Tími til kominn” myndu sumir segja. “Betra er seint en aldrei” segi ég ;)

Fiume Night 11 _ Lhasa de Sela & Patrick Watson _ Montreal, april 2009 from vincent moon / temporary areas on Vimeo.

Mathieu Saura sat einn úti í horni með tölvuna sína þegar við mættum á næstum tóman Rósenberg í gærkvöldi. Á klukkutíma troðfylltist staðurinn og Hr. Saura skottaðist ‘upp á svið’ til að kynna sig og myndirnar sínar. Hann sagðist m.a. líta á svona kvöld sem tækifæri til að kynna minna þekkta tónlist og því ætlaði hann að sýna fleiri video af lítt þekktum tónlistarmönnum og hljómsveitum. Kvöldið byrjaði engu að síður á upptöku af Patrick Watson og Lhasa de Sela taka Elliott Smith lagið Between the Bars saman í Montréal og Bon Iver taka For Emma í París. Hann hélt svo áfram með Retro Stefson í Austurbæjarskóla, Pascal Pinon á golfvelli, Efterklang (sem ég hlakka hrikalega til að sjá á Airwaves) með fjölskyldum sínum á heimaslóðum á Als eyjunni ásamt argentínskum og japönskum tónlistarmönnum sem hann hefur verið að taka upp á árinu.

Bon Iver – For Emma, For Ever Ago – A Take Away Show from La Blogotheque on Vimeo.

Upptökurnar voru frábærar, Mathieu skemmtilegur og við röltum út syngjandi lag með Tomi Lebrero sem tekið var í Buenos Aires í febrúar. Ég hef svo sem minnst á Blogothèque og Concerts à Emporter áður en ég er enn sannfærðari núna. Vincent Moon (Mathieu Saura) er snillingur, videoin hans frábær og maður kynnist fullt af góðri tónlist á því að skoða þau. Mæli því með að þið eyðið helginni í að horfa á hundruði videoa sem hann er búin að gera!

Take Away Show #104 _ TOMI LEBRERO from vincent moon / temporary areas on Vimeo.

Rósenberg kvöldið verður því miður ekki endurtekið en Little Blue Nothing (ein af myndunum í tónlistarmyndaflokki Riff) er gerð af Vincent Moon og Antoine Viviani og verður sýnd í kvöld og á föstudag í Bíó Paradís. Allt önnur pæling en mögulega þess virði að tékka á engu að síður.

Svo er líka um að gera að fylgjast með Vincent Moon (hann er með mynd í vinnslu sem á að vera tilbúin í febrúar) á Twitter og Vimeo, Bowen Staines og Gunnari sem gerðu Where’s the Snow?

Tags: , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Airwaves, Kristjana, Óflokkað | Comments Off

Lokauppgjör 2008 – Krissa

10.1.2009 - Kristjana

1. Bestu tónleikar sem þú sást á árinu?

Jebus minn ég sá svo mikið af góðum tónleikum á árinu, litlum sem stórum, nýju dóti og gömlu. Smærri tónleikarnir stóðu samt eiginlega upp úr á þessu ári og ég held ég þurfi að segja að Man Man (hversu oft get ég sagt það eiginlega) hafi verið bestir á Le National í Montréal í apríl. Voru á fullkomnum tíma, á fullkomnum stað, mér veitti svooo ekki af smá break og að skreppa í ofurhressleikann var exactly what I needed.

A close second var líklega að sjá The Kills þegar Kristín heimsótti Montréal deildina í maí. Bjóst einhvern veginn ekki við miklu en svo voru þau bara geðveik og það var svo brjálæðislega mikill kynþokki á sviðinu að maður varð næstum vandræðalegur við að horfa á það haha

2. Gamalt dót sem ég uppgötvaði á árinu:

Nashville Skyline plata Dylan var bara plata ársins hjá mér – eða allavega soundtrack fyrri hluta ársins! Úff púff! Hún hafði bara einhvern veginn farið alveg framhjá mér.

Svo telst það nú kannski ekki gamalt, en kom allavega ekki út á árinu, að ég afrekaði loksins að hlusta á Panda Bear eftir að hafa keypt Person Pitch í byrjun ársins. Og ég skil engan veginn afhverju ég hlustaði ekki á hann fyrr? Hvaða rugl var það eiginlega? Ég meina, Bros er bara svo fáranlega æðislega awesomely gott lag!

Og já, svo tók ég allsvaðalegt æði aftur fyrir The Milk of Human Kindness með Caribou eftir að sjá hann í apríl – hann var bara simply of góður og ég var með plötuna á repeat næstu vikurnar þegar ég rölti um götur Montréal – endurtók algjörlega æðið sem ég fékk þegar hún kom út :)

3. Vonbrigði ársins
Engin ein plata eða hljómsveit sem ég varð fyrir neinum gríðarlegum vonbrigðum með á árinu. En tónlistartengd vonbrigði ársins eru samt svo mörg að þau eru í punktaformi:

  • að missa af Dodos live í Montréal út af einhverju asnalegu eins og að þurfa að skila verkefni í skólanum eða e-ð.
  • að neyðast til að sitja undir Rihanna á undan Kanye. Ég bjóst nú við að það yrði allavega hresst eða e-ð en það var bara…leiðinlegt! Held í alvöru að það skásta sem ég hafi um málið að segja sé að sviðið var alveg fínt haha. Hún var allavega engan veginn góð upphitun!
  • að hafa gleymt (nei sko, bókstaflega, gleymt!) að mæta á El Perro del Mar og Lykke Li eftir að vera löngu búin að kaupa miða og vera búin að tala um tónleikana oft í vikunni. Fatta svo í hádeginu daginn EFTIR tónleika að ég átti að vera e-s staðar kvöldið áður.
  • að hafa ekki skellt mér á M.I.A. þegar hún var að spila úti. Man ekki hvort það var forgangsröðun sem réði eða hvað en það var klárlega rugl að fara ekki!
  • að hafa ekki séð Duchess Says þegar ég var nýkomin út til Kanada – heyrði plötuna viku seinna eða e-ð og varð ansi fúl!
  • Xiu Xiu tónleikarnir sem ég fór á voru pínu vonbrigði. Upphitunin (Thao Nguyen and the Get Down Stay Downs) var betri en sjálft aðalnúmerið, allavega það kvöldið!
  • Og síðast, en alls ekki síst, sé ég eftir að hafa gengið út úr miðasölunni 5 mín áður en Tom Waits hóf spilerí í Mobile í Alabama í sumar – út af einhverju svona asnalegu eins og að sætin væru svo fáranlega léleg og miðaverðið svo hátt. Ég meina, hversu oft fær maður tækifæri til að sjá Waits live? Þó það sé bara í partial view? ;/

4. Ætlaði alltaf að tékka á en trassaði:

Bon Iver! Veit ekki hversu oft ég hugsaði að ég yrði að fara að tékka á honum en gerði ekki. Bara búin að heyra svona lag og lag og öll hljóma þau fáranlega vel. Spurning um að verða sér úti um hana hið fyrsta :)

5. Bjartasta vonin

Úff to the púff! Uhh…á ég að vera fyrirsjáanleg og segja bara Fleet Foxes? Kemur allavega fáranlega sterklega til greina! Verður spennandi að heyra plötu nr. 2 :)

6. Hvaða tónleikar komu þér mest á óvart á árinu?

Ég fór að sjá Patrick Watson ásamt alveg heilum helling af e-m öðrum tónlistarmönnum frá Montréal í janúar. Kvöldið var til að vekja athygli á Baie Déception sem er um inúítana í Nunavik og vesenið þar. Meira vissi ég eiginlega ekki áður en ég fór. Þegar ég mætti í Corona tók svo allt annað við mér en ég bjóst við. Flott gamalt leikhús, hálfkjánaleg mynd um inúítana til að byrja með, endalaust mikið af góðri tónlist, Patrick Watson auðvitað frábær en Brad Barr ekki síðri og ég hafði aldrei heyrt neitt með honum áður. Upplestur á frönsku og ég geðveikt sátt við að skilja part og part, þrátt fyrir að vera nýkomin út…úff þetta kvöld var bara yfirmáta frábært á allan hátt! Betri lýsing fæst á Midnight Poutine :)

Svo kom Sam Amidon mér skemmtilega á óvart á Airwaves :)

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Listar | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin