topp 5 dúettar – zvenni
12.9.2008 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn

Iggy og Peaches að berjast við uppvakninga… tvöfalt pönk.
Blixa Bargeld (Einstürzende Neubauten) og Meret Becker – Stella Maris

Wir haben uns im Traum verpasst…
Du träumst mich ich dich
Keine Angst ich finde dich
Bevor du noch von selbst erwachst
Stilla Maris sem síðar var skrifað Stella Maris er latína og þýðir Stjarna hafsins. Þessi stjarna hafsins er í raun María mey en lagið fjallar um draumfarir, misskilning, stefnumót dúettsins og ranga póla.
Bob Dylan og Johnny Cash – Girl From the North Country Fair

Tveir sveitó að syngja um sæta stelpu.
Cerys Matthew og Tommy Scott – The Ballad of Jom Jones

You stopped us from killing each other
(Tom Jones, Tom Jones)
You’ll never know but you saved our lives
(Tom Jones, Tom Jones)
I could never throw my knickers at you
And I don’t come from Wales
Hjúskaparráðgjafinn Tom Jones.
David Bowie og Mick Jagger – Dancing in the Street

OK…
Tokyo… South America…
Australia… France…
Germany… UK…
Africaaaaaaaa…
Klæðnaðurinn, dansinn, dillið… Magnaður dúett.
Tags: Blixa Bargeld, Bob Dylan, Cerys Matthew, David Bowie, Iggy Pop, Johnny Cash, Meret Becker, Mick Jagger, Peaches, Tom Jones, Tommy Scott
Flokkað undir Listar | 1 athugasemd »
Tiltektarlög – zvenni
18.1.2008 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn
Burtséð frá smekk og gæðum hefur ólík tónlist mismunandi áhrif á mannveruna. Þegar ég var krakki spilaði kennarinn minn klassíska tónlist í kennslustofunni á mánudagsmorgnum til að róa bekkinn niður. Ég gæti vel trúað að það sé eitthvað til í því.
En þegar á að taka til hendinni held ég að taktfastari og meira ögrandi músík hjálpi.
Kick It – Peaches og Iggy Pop
Hresst lag til að komast í ham.
Sugar – System of a Down
Drifkraftur, hasar og læti. Gott á erfiða bletti.
Hyper Cleaner- Cleaning Women
Finnarnir í Cleaning Women með hljóðfæri búin til úr þvottagrindum, vírum og alls kyns smádóti sem kemur í ljós við góða tiltekt.
Skítapakk – Dr. Spock
Öskrar á að heimilið sé tekið í gegn.
100% – Sonic Youth
Gott band til að ryksuga við. Suguvælið passar líka ágætlega við surgleik bandsins.
Tags: Cleaning Women, Dr. Spock, Iggy Pop, Peaches, Sonic Youth, System of a Down
Flokkað undir Listar | Comments Off
Topp 5 lög flutt af stelpnahljómsveitum – Kristín Gróa
4.5.2007 - Kristín Gróa
1. The Supremes – You Can’t Hurry Love
No I can’t bear to live my life alone
I grow impatient for a love to call my own
Ég sagði alltaf að þetta væri einkennislagið mitt enda krónískt einhleyp og þó það eigi ekki við lengur þá er þetta samt eitt af uppáhalds lögunum mínum. Ég er reyndar með fáránlegt 60′s stelpnahljómsveita fetish og hefði auðveldlega getað fyllt listann með slíkum lögum. The Shirelles, The Ronettes, The Shangri-Las, The Angels, The Tammys, The Dixie Cups og ég gæti talið endalaust áfram. Þetta er þó toppurinn og það tekur efsta sætið á listanum fyrir hönd allra hinna.
2. Client feat. Carl Barat – Pornography
And I love the way you talk to me
And I love your whole philosophy
Þó ég og Krissa höfum upplifað mikið af tónlist saman þá er þetta pottþétt “lagið okkar”. Það minnir mig bara alltaf á Krissuna mína… páskadaginn sem við héldum upp á saman, ótalmörgu margarítukvöldin á Freyjunni og síðast en ekki síst Glastonbury ferðina þar sem við þraukuðum einmitt í gegnum heilt Client sett í klessu dauðans til að vera í fremstu röð á Bright Eyes. Ahhh good times… og þó við séum hvorugar sérlega miklir aðdáendur Client þá er þetta lag bara alveg fáránlega gott og það skemmir svo sem ekkert fyrir að Carl Barat skuli stynja þarna með
3. OOIOO – UMA
Ef þið hafið ekki heyrt þetta lag þá VERÐIÐ þið að tékka á því ekki síðar en núna! OOIOO er hliðarverkefni trommarans úr japönsku noiserokksveitinni The Boredoms en ólíkt þeirri sveit eru hér bara stelpur innanborðs. Ég held ég hafi aldrei heyrt jafn geðveikislega en um leið catchy tónlist og þessa. Hearing is believing.
4. Le Tigre – Deceptacon
I’m a gasoline girl with a vaseline mind but
Wanna disco?
Wanna see me disco?
Ég tengi þetta lag einhverra hluta alltaf við Ellefuna og kannski hefur það eitthvað að segja um það af hverju ég kemst alltaf í stuð við að heyra það. Le Tigre hafa orð á sér fyrir að vera mjög pólitískar og miklir femínistar en ég er svo grunn að mér finnst þetta bara hresst og það er nóg fyrir mig.
5. Chicks On Speed feat. Peaches – We Don’t Play Guitars
We like using gaffer tape
But we don’t play guitars
Ég held að allt sem Peaches kemur nálægt verði sjálkrafa alveg óendanlega töff og þetta lag er óneitanlega mjög töff.
Tags: Carl Barât, Chicks on Speed, Client, Le Tigre, OOIOO, Peaches, The Supremes
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | 3 athugasemdir »
