Ábreiða dagsins.
2.3.2009 - Georg Atli
Eins og ég sagði einhvern tímann finnast mér cover lög rosalega merkileg og ég á örugglega eftir að henda svona póstum inn svona semí-reglulega…
Lagið í dag er ‘Cape Cod Kwassa Kwassa’.
Hljómsveitin Vampire Weekend gaf út plötu í fyrr sem er/var rosa góð þar var þetta lag einn af hápunktunum. Það er alveg magnað, rímar luis vuitton við benetton við reggeaton og það eitt og sér er frábært.
Útgáfa tvö er með Hot Chip og Peter Gabriel, skemmtileg pörun þarna og útkoman líka. Hot Chip leynigrúvið í algleymingi og með Peter Gabriel að syngja verður það einhvern veginn eins og aukalag af Lion King sándtrakkinu. Fyndið þegar Peter Gabriel syngur ‘feels so unnatural to sing your own name.’
Þriðja útgáfan af þessu lagi er alls ekki sú versta. Kemur af Plötunni ‘Esau Mwamwaya and Radioclit are the Very Best’ með The Very Best (sem heita einmitt Radioclit og Esau Mwamwaya). Radioclit eru hálffrægir af netinu sem svona mixteip gaurar og ákváðu að gera heila plötu með söngvara frá Malaví. Platan kom út í fyrra og er klárlega ein af bestu plötum seinasta árs, þeir taka nokkur coverlög, en gera þau að sínum eigin (eins og heyrist kannski) m.a. eru lög þar eftir Bítlana og M.I.A.. Magnað stöff.
-Georg Atli
Tags: Esau Mwamwaya, Hot Chip, M.I.A., Peter Gabriel, Radioclit, the beatles, The Very Best, Vampire Weekend
Flokkað undir Georg Atli, Óflokkað | 4 athugasemdir »
Topp 5 myndbönd – Kristín Gróa
13.12.2008 - Kristín Gróa
5. Beyoncé – Single Ladies (Put A Ring On It)
Kannski ekki eitt besta myndband allra tíma en það er samt f*****g awesome og í mestu uppáhaldi hjá mér þessa dagana. Þessar mjaðmir! Ég dáleiðist við að horfa á hana…
4. Paul Simon – You Can Call Me Al
Lágvaxnasti maður poppsögunnar hittir hávaxnasta mann kvikmyndasögunnar og þeir bregða á leik. Bleika herbergið, Chevy Chase að mæma lagið og þessi absúrd stærðarmunur gera þetta að mjög eftirminnilegu myndbandi.
3. Peter Gabriel – Sledgehammer
Ótrúlega skemmtilegt myndband sem var mér skringilega ofarlega í huga við gerð þessa lista miðað við að ég hafði ekki séð það í mörg mörg ár.
2. Radiohead – Just
Hvað segir maðurinn í lokin?
1. Sigur Rós – Untitled 1 (Vaka)
Það er eiginlega ekki nokkur leið að velja eitt myndband frá Sigur Rós framyfir annað en þetta er ansi áhrifaríkt og fær því toppsætið.
Tags: Beyonce, Chevy Chase, Paul Simon, Peter Gabriel, Radiohead, Sigur Rós
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | 4 athugasemdir »
Topp 5 dúettar – Kristín Gróa
12.9.2008 - Kristín Gróa

5. Sonny & Cher – The Beat Goes On
Mér finnst þetta óskiljanlega skemmtilegt lag… ég held það sé takturinn.

4. Dolly Parton & Kenny Rogers – Islands In The Stream
Ég eins og allt of margir á mínum aldri heyrði þetta lag í fyrsta sinn sem rapp með viðlagið eitthvað í líkingu við Ghetto Superstar… that is what you are…. Þvílík misþyrming. Já en ég veit að þetta er nett hallærislegt lag en mér finnst það samt alveg æði. Ég er líka svoddan sökker fyrir hallærislegheitum.

3. Serge Gainsbourg & Jane Birkin – Je T’aime… Moi Non Plus
Hér er verið að taka dúettinn alveg á annað plan… fjúff ég roðna bara.

2. Peter Gabriel & Kate Bush – Don’t Give Up
Á einhvern hátt er alveg rökrétt að Peter Gabriel og Kate Bush hafi tekið upp lag saman. Lagið er ofboðslega fallegt og myndbandið mjög eftirminnilegt í einfaldleika sínum.

1. Nancy Sinatra & Lee Hazelwood – Some Velvet Morning
Mjög súrrealískt lag en samt svo frábært. Koverið hjá Primal Scream og Kate Moss er jafn vont og þetta lag er gott. Ughh.
Tags: Dolly Parton, Jane Birkin, Kate Bush, Kate Moss, Kenny Rogers, Lee Hazelwood, Nancy Sinatra, Peter Gabriel, Primal Scream, Serge Gainsbourg, Sonny & Cher
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | 1 athugasemd »
Peter Gabriel
2.6.2008 - Kristín Gróa

Það þyrmir reglulega yfir mig þegar ég fatta hvað það er til mikið af góðri tónlist sem ég hef aldrei hlustað á. Nú er ég með tónlist í eyrunum allan daginn alla daga en samt lendi ég reglulega í því að einhver segir við mig “hefurðu aldrei hlustað á so and so????!!!” í hneykslunartóni. Hvernig á maður að komast yfir þetta allt segi ég nú bara. Ég hef verið dálítið föst í nýrri tónlist síðustu mánuði en nú er ég markvisst að vinna í því að hlusta á gamalt dót sem ég hef látið framhjá mér fara.
Ég er þessa stundina aðeins að stúdera Peter Gabriel sem hefur satt að segja komið ánægjulega á óvart. Það er m.a.s. aldrei að vita nema ég þori í Genesis þegar ég hef melt Gabriel aðeins en það skelfir mig þó því það fer alltaf aðeins um mig þegar ég heyri minnst á prog. Það er aftur á móti alveg fáránlegt að vera með heilar sjö Genesis plötur við höndina en hlusta ekkert á þær. Ef ég pæli í gegnum þær þá kannski þori ég í allar átta Yes plöturnar sem ég er með. Sjáum samt aðeins til með það.
Peter Gabriel – Solsbury Hill af Peter Gabriel I (1977)
Peter Gabriel – Games Without Frontiers af Peter Gabriel III (1980)
Peter Gabriel – Blood Of Eden af Us (1992)
Tags: Genesis, Peter Gabriel
Flokkað undir Kristín Gróa, Óflokkað | Comments Off
Topp 5 Party Shuffle Spectacular – Kristín Gróa
25.4.2008 - Kristín Gróa
Það erfiða við þennan shuffle lista var að meirihluti laganna sem kom upp var bara eitthvað dót sem ég hafði aldrei hlustað á (Santana, Elvis Costello og Yes eru góð dæmi). Lærdómurinn sem ég get dregið af því er að ég á allt of mikið af tónlist og ætti annað hvort að drattast til að hlusta á hana eða rýma til fyrir einhverju sem ég hlusta virkilega á. Ég fann samt þessa fimm laga syrpu sem mér fannst ég geta tjáð mig um:

Hercules & Love Affair – Athene af Hercules & Love Affair
Úff þetta lag er svo svakalega slick. Hercules & Love Affair minna mig á Óla vin minn því ekki nóg með að hann sé slick þá fann ég fyrir hann eitthvað edit af Blind sem hann hafði verið að leita að í margar vikur. Hann varð svo ofsaglaður að ég held ég hafi bara aldrei glatt nokkurn mann svona svakalega áður!

Echo & The Bunnymen – My White Devil [Alternate Version] af Porcupine
Jakob góðvinur minn gaf mér Porcupine í afmælisgjöf fyrir nokkrum árum síðan ásamt hinni frábæru Standards með Tortoise. Ég var alltaf við það að demba mér af alvöru út í kanínumennina, var búin að melta best of plötuna ágætlega og hafði nýlega fjárfest í Ocean Rain en þessi plata fór alveg með mig. Ótrúlega flott og þetta lag finnst mér eitt af hápunktunum. Þetta er reyndar alternate version en það er ekkert verra.

The White Stripes – I Fought Piranhas af The White Stripes
Hrár blús af fyrstu plötu “systkinanna”. Kannski ekki eitt af þeirra sterkustu lögum en engu að síður er það frekar töff. Það er kannski ekki að marka mig því þetta er Jack White og hann tekur gítarsóló og það þarf ekki mikið meira til að gleðja mig.

Four Tet – You Were There With Me af Everything Ecstatic
Þetta er nú óttalegt gutl. Sorrí en ég á dálítið erfitt með Four Tet þó ég eigi reyndar þessa plötu. Hún er í heildina alveg ágæt og ég fíla alveg sumt þó þetta sé ekki mín tegund af tónlist. Þetta síðasta lag plötunnar finnst mér samt alveg ógeðslega leiðinlegt og boring því það geeeriiiiist baaaaraaaa eeeekkeeeert. GOD! Ég mæli ekkert sérstaklega með því að þið hlustið á þetta lag því það eru sex mínútur af lífi ykkar sem þið fáið ekki aftur.

Genesis – Invisible Touch af Invisible Touch
Ég hef aldrei hlustað neitt á Genesis þó ég sé með heilar sjö plötur með þeim í tónlistarsafninu. Bróðir minn var aftur á móti alveg svakalegur Genesis (og Yes) aðdáandi þegar hann var yngri svo þetta kemur allt frá honum. Hans tónlistarsmekkur er alveg frábær svo ég trúi nú varla öðru en að það sé eitthvað varið í þetta og er þess vegna alltaf á leiðinni að tékka á þeim.
Vandamálið við þetta tiltekna lag er að það er frá hallæristímabilinu eftir að Peter Gabriel var löngu farinn og hljómsveitin var farin að þróast út í eitthvað allt annað en hún var upphaflega. Ég verð samt að viðurkenna að þegar ég hlusta á það núna þá finnst mér það alveg fáránlega skemmtilegt. Þetta er svo geðveikt hallærislegt en samt svo catchy að ég get ekki annað en dillað mér. Er ég endanlega búin að má út línuna sem skilur að töff og vandræðalega tónlist? Hjálp!
Tags: Echo & The Bunnymen, Elvis Costello, Four Tet, Genesis, Hercules&Love Affair, Peter Gabriel, Santana, The White Stripes, Tortoise, Yes
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | 3 athugasemdir »
