CCBB – Airwaves kvöld á Amsterdam 12. okt.

10.10.2011 - Georg Atli

CCBB, skammstöfun fyrir Ching Ching Bling Bling plötuútgáfuna, mun halda sitt fyrsta tónlistarpartíkvöld í samstarfi við Airwaves og mun partíið eiga sér stað á Amsterdam 12. okt og byrjar stundvíslega
kl. 19.10.

Fyrstur á svið með döbb raftónana er HaZaR sem er talinn vera einn af þeim ferskari hér á skerinu þegar kemur að tilraunakenndri en músíkalskri raftónlist. Kl. 20.00 mun The Way Down gengið, leitt áfram af Ara Eldon, telja í með sitt kántrískotna rokk og brandarast á milli laga. Skorpulifur þekkja ekki margir, en þeir sem hafa séð þá einu sinni á tónleikum geta ekki gleymt þeim (þótt þeir vilji), margt er gert út á að matreiða músíkina sjónrænt svo að upplifunin verði algjört gúmmelaði. Spacevestite gáfu nýverið út sína fyrstu skífu, sem innihélt hress og tímalaust nostalgíurokk og það er fyrir löngu kominn tími á tónleika frá þessari miklu sveit.Pornopop þekkja þeir sem grúska í músík, en tvær skífur liggja eftir þá og sú þriðja er í smíðum og þetta kvöld verða eingöngu ný lög leikin og prufukeyrð í akústískum búningi. Hljómsveitin Ég er óstöðvandi þessa dagana, þriðja breiðskífa þeirra LÚXUS UPPLIFUN fékk glimrandi dóma og ný plata er í vinnslu. Róbert og félagar munu sjá til þess að fólk svitni eins mikið og bandið sjálft. IKEA SATAN
er á fleygiferð, ný smáskífa komin út sem heitir White Cat Blues og heyrst hefur að bandið ætli að reyna að leika öll 8 lögin sem þau kunna. Blúsmetalpartí framundan og mikið tónlistarsvall.

00.10 IKEA SATAN
23.20 Hljómsveitin Ég
22.30 Pornopop
21.40 Spacevestite
20.50 Skorpulifur
20.00 The Way Down
19.10 HaZaR

Tags: , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning | Comments Off

Topp 5 sunnudagslög – Einar Birgir (gestalisti)

29.4.2011 - Georg Atli

Jæja… það var dræm þáttaka í listunum yfir páskana en nú komum við aftur með stæl…. eða eitthvað svoleiðis. Við fengum amk aldeilis frábæran gestalistamann með okkur. Einar Birgir er/var einn af skemmtilegustu tónlistarbloggurum landsins og það væri alls ekki vitlaust ef að þið fylgdust með blogginu hans (sem uppfærist vonandi einhvern tímann…), hann fékk sjálfur að velja sér þema og hann ákvað að taka fyrir sunnudagslög, gott stöff.

Listinn hans Einars Birgis:
Zunnudagur. Það er eiginlega óhugsandi fyrir mig að velja 5 topp sunnudagslög. Lagavalið breytist nær örugglega á hverjum sunnudegi eftir ástandi og skapi. En núna (allavega þegar þetta er skrifað) er sunnudagur og hér koma því fimm fín sunnudagslög. Reyndar verður þessu listi birtur á föstudegi en það er alveg óhætt fyrir þig, lesandi góður, að hlusta ótæpilega því það er enginn föstudags-partí-púper í þessu. Eða svona næstum því.

John Maus – Quantum Leap

John Maus er vanmetinn snillingur og fyllilega verðskuldað sæti á sunnudagslistanum. Ég vona að 2011 og væntanleg plata hans færi honum lo-fi frægð og frama. Quantum Leap gefur fögur fyrirheit enda hreinræktaður dúndursmellur. Quantum Leap voru einnig uppáhald sjónvarpsþættirnir mínir í æsku. Scott Bakula 4eva og allt það.

Pornopop – Death Tape

Pornopop eru að fara gefa út nýja á plötu eftir smástund og er eftirvæntingin gríðarlega mikil hér á bæ. ‘Death Tape‘ lagið af síðustu plötu þeirra er alveg svakalegur sunnudagur. Drungi og melankólía og hin snargeðveiki Jim Jones að lesa síðustu orðin yfir söfnuðinum sínum áður en fjöldasjálfsmorðin í Jonestown urðu að veruleika 1978. http://en.wikipedia.org/wiki/Death_tape fyrir áhugasama.

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Robin Pecknold – I’m Losing Myself (feat. Ed Droste)

Sunnudagslegasta lagið. Angurvært og undurfallegt. Robin Pecknold, forsprakki Fleet Foxes, gaf nýverið frá sér 3 laga vef/smáskífu fríkeypis sem vert er að gefa ærlegan gaum. Á þessu lagi sönglar Ed Droste úr Grizzly Bear einnig með honum. Fínt. Þess má kannski til gamans geta að hann hefur áður gefið út svona sóló stöff undir nafninu White Antelope sem er ekki síður æðislegt.

Pepper Rabbit – Older Brother

Einstaklega næs lag frá Pepper Rabbit. Voðalega upbeat og ljúft. Ég veit eiginlega ekkert um þennan dúett en þetta lag er góður sunnudagur.

Lykke Li – Sadness is a Blessing

Sunnudagur fyrir þunglyndissjúklingana. Ég reyndi einu sinni að hata Lykke Li en það gekk ekki upp, hún er alltof fín. Þetta er uppáhaldið af nýju plötunni og mikið sunnudagslag.

Tags: , , , , , , ,
Flokkað undir Gestalisti, Listar | Comments Off

Black Valentine

19.1.2011 - Georg Atli

Eins og ég sagði um daginn þá erum við að vinna í því að bæta við fólki/útgáfum til að plögga. Nú þegar erum við búin að bæta við og nú komum við til með að birta fréttir af útgáfum jaðarútgáfunnar Ching Ching Bling Bling. Það er ekkert nema gott mál og í morgun þá fengum við tilkynningu frá þeim um plötu frá Black Valentine sem heitir Sex on the Beach.

Einfarinn Black Valentine.
Black Valentine fer huldu höfði, leigir sér spólur hjá James Böndum, nær sér einstöku sinnum í Devitos pizzur og er lítið að stressa sig á plöggi eða sölu platna sinna. Vaninn er að hann gefi út plötur á allra síðustu dögum ársins og var síðasta ár engin undantekning en í desembermánuði kom út lostaskífan Sex on the beach.

Hann er stolt íslensku jaðarútgáfunnar Ching Ching Bling Bling og hafa komið út tvær Black Valentine plötur á vegum hennar: Rehab is for quitters (2009), Sex on the beach (2010) og sú þriðja í smíðum ber vinnutitilinn Emirald M’s.


Black Valentine er Pétur Úlfur Einarsson, sem hefur fest puttana í ansi mörgum útjaðarböndum og má þar á meðal nefna Pornopop, California Cheeseburger, Peter and Wolf & Ikea Satan. Fyrir óþjálfuð eyru getur verið erfitt að greina á milli hvar tónlist Péturs hættir að heita eitt og fer að heita annað en þetta er allt spurning um tilfinningu og innsæi. Stundum er köttur ekki bara köttur og verður að vera loðin dúfa. Ching Ching Bling Bling útgáfan er tilraun til að halda utan um alla þessa sköpun Péturs og vina hans í hvaða formi sem hún brýst fram og bjóða öðrum að vera með í partíinu.

Mæli með að fólk tjékki þessu og hérna getiði heyrt tónæmi, fyrst eitt frá nýju plötunni Sex on the Beach og svo 2 frá fyrri plötunni Rehab is for Quitters:

Tags: , , , ,
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin