Tónleikasamantektin
11.5.2011 - Kristín Gróa
Það er ekki jafn rosalegt framboð af tónleikum og um síðustu helgi en það er samt fullt skemmtilegt í gangi! Ef við erum að missa af einhverju þá megið þið endilega láta okkur vita.
Miðvikudagur
Á Rósenberg verður léttur djazz og blús en þar mun nýskipað og (að okkur vitandi) ónefnt tríó koma fram. Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og það kostar 1000 krónur inn. Sjá nánar hér.
Fimmtudagur
Á Rósenberg spilar dúettinn MoR en hann samanstendur af Margréti Eir og Róberti Thórhallssyni. Tónleikarnir hefjast kl. 21:30. Sjá nánar hér.
Á Dillon verða styrktartónleikar en hljómsveitin Morning After Youth er að vinna að sinni fyrstu plötu og vantar smá aur. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það kostar litlar 500 krónur inn. Sjá nánar hér.
Föstudagur
Á Rósenberg ætlar hljómsveitin Árstíðir að spila efni af væntanlegri plötu í bland við eldra efni. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það kostar 1500 krónur inn. Sjá nánar hér.
Á Dillon spila hljómsveitirnar Caterpillarmen, Bob og Coral. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það kostar ekkert inn. Sjá nánar hér.
Á Faktorý ætlar hljómsveitin XIII að spila plötuna SALT í heild sinni. Einnig koma fram In Memoriam og Hoffman. Tónleikarnir hefjast á miðnætti og það kostar 1000 krónur inn. Sjá nánar hér.
Laugardagur
Á Dillon verður Proggóvisjón fyrir þá sem hafa ekkert gaman að júróvisjón en þar koma fram Murrk, Postartica og Draumhvörf. Tónleikarnir hefjast kl. 10:00 og það kostar ekkert inn. Sjá nánar hér.
Á Faktorý verður kanilkvöld #3. Hefst kl. 23:30 og það kostar ekkert inn. Sjá nánar hér.
Á NASA verður mikil júró gleði en þar verður Eurovision partý Páls Óskars með fullt af júró hetjum. Húsið er opið frá 00:00 – 05:00. Það kostar 2000 krónur í forsölu á midi.is en 2500 krónur við dyrnar. Sjá nánar hér.
Ef þig langar í algjört mótvægi við júróbrjálæðið verður opið hús í Hörpu allan daginn. Húsið opnar á laugardagsmorgun kl. 11 í tveimur minni tónleikasölunum, Norðurljósum og Kaldalóni. Þar koma fram Karlakórinn Fóstbræður, Gissur Páll Gissurarson, Kammersveit Reykjavíkur, Ólafur Arnalds, Caput-hópurinn, kór Íslensku óperunnar, Kristinn H. Árnason, Björn Thoroddsen og Kazumi Watanabe og tríó Tómasar R. Einarssonar.
Á laugardagskvöld kl. 20:00 byrja svo tónleikar í Silfurbergi, næststærsta sal Hörpunnar. Þar munu koma fram Apparat Organ Quartet, Mammút, Agent Fresco, Valdimar, Hjaltalín, Jónas Sigurðsson og ritvélar framtíðarinnar, Lights on the Highway og HAM. Ókeypis er á alla tónleika í Hörpunni á laugardag.
Sunnudagur
Í Merkigili á Eyrarbakka koma söngvaskáldin Uni og Jón Tryggvi sem hluti af menningar- og bæjarhátíðinni Vor í Árborg. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 og það kostar ekkert inn. Sjá nánar hér.
Tags: Agent Fresco, Apparat Organ Quartet, Árstíðir, Björn Thoroddsen, Bob, Caput-hópurinn, Caterpillarmen, Coral, Draumhvörf, Gissur Páll Gissurarson, Ham, Hjaltalín, Hoffman, In Memoriam, Jón Tryggvi, Jónas Sigurðsson og ritvélar framtíðarinnar, Kammersveit Reykjavíkur, Karlakórinn Fóstbræður, Kazumi Watanabe, kór Íslensku óperunnar, Kristinn H. Árnason, Lights on the Highway, Mammút, MoR, Morning After Youth, Murrk, Ólafur Arnalds, Páll Óskar, Postartica, Tríó Tómasar R. Einarssonar, Uni, Valdimar, XIII
Flokkað undir Kristín Gróa, Tónleikar | Comments Off
Tónleikasamantekt
4.5.2011 - Georg Atli
Fullt af tónleikum eins og venjulega og við ætlum að taka þá saman og setja í eina færslu ykkur til yndisauka. Ef það er eitthvað sem að við gleymum/vitum ekki af endilega látiði okkur vita með því að senda okkur smá línu, t.d. hér, hér eða jafnvel í pósti, toppfimmafostudegi[hjá]gmail.com
Miðvikudagur
Á Rósenberg verða Steini Eggerts og Óperuídýfurnar að syngja um lífið. Byrjar kl. 21:00 og miðinnm kostar 1500 kr.
Fimmtudagur
Í Tjarnarbíói munu Bjartmar og Bergrisarnir fagna plötunni Skrýtin veröld og góðu ári með tónleikum. Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og það kostar 2500 krónur inn. Miðasala á midi.is.
Á Rósenberg verður Rokkabillýband Reykjavíkur með sína árlegu vortónleika. Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og það kostar 1800 krónur inn. Miðasala á midi.is. Sjá nánar hér.
Á Dillon verður mikið af tónlist en þar koma fram The Assasin Of A Beautiful Brunette, Postarctica og The Wicked Strangers. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það er frítt inn. Nánari upplýsingar hér.
Á Norðurpólnum verða þriðju tónleikarnir í tónleikaröðinni ‘Rafmagnslaust á Norðurpólnum’ og í þetta sinn eru það Svavar Knútur og Hljómsveitin Ég sem koma fram. Tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 21:00 og það kostar 1500 krónur inn. Sjá nánar hér.
Á Hressó verður Valdimar með tónleika sem eru hluti af tónleikaröð Gogoyoko. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og er frítt inn á meðan húsrúm leyfir. Sjá nánar hér.
Á Faktorý verður rótarkvöld með Atla Kanilsnúð. Sjá nánar hér.
Á Boston verður franski tónlistarmaðurinn Michael Wookey að spila frá kl. 21:00.
Á Prikinu verður mánaðarlegt breakbeat.is kvöld en þar koma fram Maggi B, Kalli og Skeng. Hefst klukkan 21:00 og það er frítt inn. Sjá nánar hér.
Föstudagur
Á Dillon koma fram hljómsveitirnar Gang Related, Ofvitarnir og No To Self. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það er frítt inn. Sjá nánar hér.
Á Faktorý verður Svínarí #2 og þar verða hljómsveitirnar Who Knew, Hellvar og The Hydrophobic Starfish. Húsið opnar kl. 22:00, tónleikarnir hefjast kl. 23:00 og það er frítt inn. Sjá nánar hér.
Á Sódóma verður bandaríska hljómsveitin White Cowbell Oklahoma með tónleika. Einnig koma fram The Vintage Caravan og Texas Muffin. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það kostar 1000 krónur inn. Sjá nánar hér.
Á BAR11 verður Wildcat rockabilly tryllingur með El Camino, 59′ers, Haffa Haff, Daníel Ágúst og Krumma. Frítt inn. Sjá nánar hér.
Laugardagur
Á Rósenberg verða tónleikar með Láru Rúnars og Lay Low. Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og það kostar 1000 krónur inn. Sjá nánar hér.
Á efri hæðinni á Faktorý verða hljómsveitirnar Valdimar og Æla með tónleika. Tónleikarnir hefjast kl. 23:00 og það kostar 1000 krónur inn. Sjá nánar hér. Á neðri hæðinni verður DJ Margeir og það kostar ekkert inn. Sjá nánar hér.
Sunnudagur
Á Rósenberg verður Thor Kristinsson með tónleika, þeir byrja kl. 21:00 og það kostar 1500 kr. inn
Á Faktorý verður SunnuJazzinn á sínum stað
Tags: 59'ers, Bjartmar og Bergrisarnir, Daníel Ágúst, El Camino, Gang Related, Haffi Haff, Hellvar, Hljómsveitin Ég, Kalli, Krummi, Lára Rúnars, Lay Low, Maggi B, No To Self, Ofvitarnir, Postartica, Rokkabillýband Reykjavíkur, Skeng, Svavar Knútur, Texas Muffin, The Assassin of a Beautiful Brunette, The Hydrophobic Starfish, The Vintage Caravan, The Wicked Strangers, Valdimar, White Cowbell Oklahoma, Who Knew, Æla
Flokkað undir Georg Atli, Kristín Gróa, Tónleikar | 2 athugasemdir »
Tónleikar um páskana
20.4.2011 - Georg Atli
Það er lygilega mikið að gerast í tónleika haldi um páskahelgina og þá sérstaklega í kvöld (miðvikudagskvöld). Við erum búin að uppfæra dagatalið okkar þannig að þið skuluð endilega tjékka þar því að ég er ekki alveg viss um að við náum að taka saman alla helgina að þessu sinni.
Eins og venjulega þá má endilega benda okkur á það sem að við erum að missa af, veljiði bara ykkar uppáhalds samskiptaform hér að neðan (og endilega like-ið eða follow-ið í leiðinni):
Facebook
Twitter
Athugasemd við þessa færslu
tölvupóstur
Miðvikudagur:
Reykjavík Blues festival hófst 16. apríl síðastliðinn og hátíðin er allstaðar og úti um allt. Tjékkiði hér fyrir nánari upplýsingar.
Á Faktorý flæða elektrónískir tónar. Það kostar 1000 kr. inn og það byrjar kl. 21:30. Nánar hér.
Á Bakkus verða ókeypis tónleikar með hljómsveitunum Miri, Swords of Chaos, The Cocksucker Band og Kristin Allen-Zito, þeir hefjast kl. 22:00
Á Dillon verður dansiball og þar mun Spacevestite leika fyrir dansi. Byrjar kl. 22:00 og frítt inn.
Á Sódómu verða hljómsveitirnar Agent Fresco, Vigri, Saytan og Postartica. 1000 kall inn og tónleikarnir byrja kl. 23:00
Á Hemma og Valda helda TomTom Records áfram með Heiladansinn sinn. Að þessu sinni verða það Steve Sampling (útgáfutónleikarnir hans), ThizOne og Fu Kaisha trylla lýðinn ásamt því að Futuregrapher mun “bræða mp3 fæla á tölvunni sinni á milli atriða”
Fimmtudagur:
Á Dillon verður sumardagirinn fyrsti haldinn hátíðlegur með hljómsveitunum Morgan Kane, Hek og Heima. Byrjar kl. 21:30
Blues festivalið heldur áfram.
Aldrei fór ég suður hefst líka í dag með off-venue viðburðum, nánar á heimasíðunni þeirra.
Föstudagur:
Meira af Aldrei fór ég suður.
Á miðnætti hefjast síðan tónleikar með Friðriki Dór, Blazroca og Emmsjé Gauta á Sódóma. Húsið opnar kl. 00:15 og það kostar 1000 kr. inn.
vonandi náum við að bæta restinn inn síðar en annars þá er það bara dagatalið sem gildir.
Tags: Agent Fresco, BlazRoca, Emmsjé Gauti, Friðrik Dór, Fu Kaisha, Futurgrapher, Heima, Hek, Kristin Allen-Zito, Miri, Morgan Kane, Postartica, Saytan, Spacevestite, Steve Sampling, Swords of Chaos, The Cocksucker Band, ThizOne, Vigri
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off
Músíktilraunir 2011 úrslit.
2.4.2011 - Georg Atli

Músíktilraunir 2011 voru að klárast og sigurvegarinn er…. Samaris!
Hljómsveitin Samaris samanstendur af 3 krökkum sem heita Áslaug Rún Magnúsdóttir, Jófríður Ákadóttir (úr Pascal Pinon) og Þórður Kári Steinþórsson. Þau eru öll í tónlistarnámi og öll eru þau úr Reykjavík.
Við hjá Topp 5 óskum þeim að sjálfsögðu til hamingju með sigurinn. í öðru sæti var hljómsveitin Súr og The Wicked Strangers tóku 3. sætið. Hljómsveit fólksins var valin með símakosningu og það voru krakkarnir í Primavera sem að sigruðu þar.
Glæsilegt hjá öllum og ég býst fastlega við að við eigum eftir að heyra meira frá öllum þessum böndum.
Heyrum eitt lagið Morgunn til heiðurs sigurvegurunum.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Svo voru veitt einstaklingsverðlaun í ýmsum flokkum:
Askur Yggdrasils fékk verðlaun fyrir Íslenska textagerð
Gítarleikari Músíktilrauna var Hafsteinn Þráinsson úr Postartica
Bassaleikari Músíktilrauna var Alexander Örn Númason úr Postartica
Verðlaun fyrir Hljómborðslei/forritun fékk Þórður Kári Steinþórsson úr Samaris
Trommuleikari Músíktilrauna var Jósep Helgason úr The Wicked Strangers
Söngvari Músíktilrauna var Gunnar Guðni Harðarson úr The Wicked Strangers
Tags: Askur Yggdrasils, Postartica, Primavera, Samaris, Súr, The Wicked Strangers
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off
Músíktilraunir 2011
30.3.2011 - Georg Atli

Nú eru öll undankvöld Músíktilrauna búin og bara úrslitakvöldið eftir, það verður haldið núna á laugardaginn (2. apríl) í Íslensku óperunni. Tónleikarnir byrja kl. 16 en miðasalan byrjar kl. 12:00 og miðinn kostar 1500 kr. Böndin sem að koma fram eru (í sviga er hver valdi þau komust áfram):
For the Sun is Red (salurinn), Samaris (dómnefnd), Murrk (salurinn), Súr (dómnefnd), Virtual Times (salurinn), Postartica (dómnefnd), Primavera (salurinn), My final Warning (dómnefnd),The Wicked Strangers (aukasæti dómnefndar), Askur Yggdrasils (aukasæti dómnefndar) og Joe and the Dragon (aukasæti dómnefndar)
Það stefnir í spennandi úrslitakvöld í óperunni og ég hvet alla til þess kynna sér þessi bönd og að sjálfsögðu að mæta. Eins og áður sagði þá hefst miðasala kl. 12:00 og tónleikarnir byrja kl 16:00 en þá munu sigurvegarar síðustu Músíktilrauna, hresssveitin Of Monsters and Men stíga á svið.
Tags: Askur Yggdrasils, For the Sun is Red, Joe and the Dragon, Murrk, My final Warning, of monsters and men, Postartica, Primavera, Samaris, Súr, The Wicked Strangers, Virtual Times
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

