Topp 5 Airwaves tilhlökkun – Kristín Gróa

12.10.2011 - Kristín Gróa

Það er alveg ótrúlegt að það sé komið að Airwaves hátíðinni enn einu sinni. Mér telst svo til að ég sé búin að fara á hverju ári síðan 2002 sem gerir þetta að tíundu hátíðinni minni í röð og geri aðrir betur! Ef það kemur ár sem ég fer ekki á Airwaves (án þess að vera hreinlega erlendis eða á sjúkrahúsi eða eitthvað álíka) þá veit ég að ég er orðin gömul. Ég er spennt fyrir rosalega mörgu í þetta sinn og þó ég hafi ákveðið að fylla listann minn með frekar fyrirsjáanlegum erlendum tónlistarmönnum þá mun ég reyna að missa ekki af eftirfarandi íslenskum tónlistarmönnum:

Berndsen
Borko
El Camino
Elín Ey
Fist Fokkers
Gang Related
GusGus
Hljómsveitin Ég
Just Another Snake Cult
Kiriyama Family
Markús and the Diversion Sessions
Mugison
Náttfari
NOLO
Of Monsters And Men
Orphic Oxtra
Prins Póló
Sin Fang
Snorri Helgason
Sóley
Stafrænn Hákon
Vigri

Ef ég næ að sjá helminginn af þessu þá verð ég mjög kát. Það má svo auðvitað ekki gleyma því að það skemmtilegasta við Airwaves er allt það sem maður sér óvart og heillar mann samstundis. Ég veit að þetta er orðin pínu klisja en þetta er það sem gerir hátíðina svona skemmtilega. Á hverju ári lendi ég í því að hugsa viku fyrir hátíð “ó shit ég er ekki búin að kynna mér hverjir eru að spila” en svo skiptir það aldrei máli. Það er ekki hægt að undirbúa Airwaves… það er bara hægt að njóta.

Jæja without further ado þá eru þetta þær erlendu sveitir sem ég er spenntust fyrir að sjá!

5. Iceage

Ungir danskir strákar sem eru búnir að vera fastir í hæpmaskínunni síðustu mánuði og það er alveg verðskuldað. Platan þeirra New Brigade er algjört monster og þetta ættu að verða alveg brjálæðislegir tónleikar. Það liggur við að mig langi til að vera tvítugur strákur í eina kvöldstund svo ég geti misst mig yfir þeim eeeen ég verð væntanlega aftast með krosslagðar hendur að missa mig innan í mér.

Iceage – White Rune

4. John Grant

Ég sé fyrir mér að þetta verði mjög tilfinnaþrungnir og innilegir tónleikar þar sem John Grant er rosalega mikið þannig. Textarnir hans eru alveg ótrúlega góðir og hreinskilnir. Lagið I Wanna Go To Marz er líka virkilega gott.

John Grant – I Wanna Go To Marz

3. Glasser

Það hefur ekki farið mikið fyrir Glasser en Ring var ein af betri plötum síðasta árs og hún læddist pínu aftan að mér. Þetta eru tónleikar sem gætu verið hit eða miss en ég hallast frekar að hit, sérstaklega ef maður þekkir lögin.

Glasser – Home

2. tUnE-yArDs

W H O K I L L er ein hæpaðasta plata ársins svo ég er væntanlega ekki ein um það að ætla að sjá tUnE-yArDs. Hæpið finnst mér reyndar algjörlega verðskuldað því þetta er líklega ein besta og jafnframt óvenjulegasta plata ársins og þau live clip sem ég hef séð eru ansi mögnuð. Algjört must-see.

tUnE-yArDs – Killa

1. Beach House

Þetta er líklega stærsta nafnið á hátíðinni í ár ef maður er svona pínu indísnobbari (eins og ég). Ég er búin að vera mjög hrifin af þeim frá því þau gáfu út plötuna Beach House árið 2006 og þau verða bara betri með hverri plötu.

Beach House – Gila

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Airwaves, Kristín Gróa, Listar, Tónleikar | Comments Off

Topp 5 lög ársins 2010 – Kristín Gróa

9.1.2011 - Kristín Gróa

Lög ársins? Úff! Ég verð að fá að gera tíu runners up. Í engri sérstakri röð:

Waka Flocka Flame – Hard In Da Paint
Fresh And Onlys – Waterfall
Gorillaz – On Melancholy Hill
Japandroids – Younger Us
Rihanna – Rude Boy
Vampire Weekend – White Sky
Prinspóló – Niðrá strönd
Gil Scott-Heron – New York Is Killing Me
Janelle Monáe – Cold War
Sufjan Stevens – I Walked

Að lokum, í mjög svo sérstakri röð:

5. Joanna Newsom – Good Intentions Paving Company

Þrátt fyrir að lagið sé sjö mínútur að lengd þá er ekki séns að fá leið á því. Það er gangur í því allan tímann og það er eiginlega ekki kórus en samt eiginlega næstum því. Ég féll ekki fyrir plötunni í heild sinni en þetta lag náði mér.

4. Sleigh Bells – Rill Rill

Rosalega catchy og krúttulegt. Þegar þetta lag byrjar að spilast á hljóðárásinni sem Treats er þá er það svona pínu break frá öllum hávaðanum.

3. Wild Nothing – Chinatown

Þetta lag er bara svo fallegt og hlýjar mér að innan og fær mig til að dilla mér og minnir mig á sól og drauma og ástina. Svo er stefið líka addictive.

2. The Arcade Fire – Sprawl II (Mountains Beyound Mountains)

Ég var rosalega lengi að koma mér í það að hlusta almennilega á The Suburbs . Ég fékk hana á sama tíma og ég fékk bunka af öðrum plötum og einhvernveginn varð hún útundan. Þar að auki er hún 16 lög og yfir klukkutími að lengd og athyglisgáfan mín er orðin svo skemmd að ég á erfitt með að melta svona mikið af tónlist í einu. Þegar ég loksins dembdi mér í þetta af alvöru og rakst á The Sprawl II (Mountains Beyound Mountains) þá var ég svo svekkt að hafa ekki hlustað fyrr. Ég missti úr alveg mánuð þar sem ég hefði getað verið að missa mig yfir þessu lagi!

1. Robyn – Dancing On My Own

Þetta er bara lag ársins í mínum huga og það kom aldrei neitt annað til greina. Það er til merkis um gæði lagsins að ég er búin að hlusta á það stanslaust síðan ég heyrði það fyrst en samt fæ ég ennþá pínu awesomeness kítl í magann þegar ég heyri það. Línan Stilettos on broken bottles, I’m spinning around in circles er ein besta lína í ástarsorgardansanthemi nokkurntíma!

Persónulega skiptir þetta lag mig líka máli því í byrjun maí fékk ég þá flugu í höfuðið að byrja að fara út að hlaupa þó ég gæti eiginlega ekki hlaupið á milli ljósastaura. Móð og másandi píndi ég mig áfram í margar vikur og var alltaf viss um að það myndi líða yfir mig sökum andnauðar. Ég gafst samt aldrei upp og núna hleyp ég eins og vindurinn! Alveg frá því í maí hefur Dancing On My Own verið á hlaupaplaylistanum svo í hvert einasta skipti sem ég heyri það þá hugsa ég um hvað ég er stolt af sjálfri mér fyrir að hafa aldrei gefist upp á því að vera móð með hlaupasting heldur að hafa alltaf þraukað og klárað. Go me! Lag ársins!

Tags: , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar, Óflokkað | Comments Off

Tónleikar vikunnar!

9.12.2010 - Kristjana

Ó elsku desember. Smákökur, heitt súkkulaði og endalausir tónleikar. Tónleikaroundup vikunnar er því stórt, mikið og fjölbreytt. Let the games begin…

Fimmtudagur 9. des.

  • Jóladagatal Norræna hússins í Norræna húsinu kl. 12:34-13:30. Fjórða árið sem Norræna húsið stendur fyrir þessu skemmtilega dagatali. Á hverjum degi, 1.-23. des verður óvænt atriði í Norræna húsinu kl. 12:34. Gefið er upp hverjir koma fram í mánuðinum en ekki hvenær. Þannig verður hver dagur óvæntur – svona eins og að opna hvern dag í jóladagatalinu sínu. Æði. Meðal þeirra sem taka þátt í ár eru Amiina, Árstíðir, Bloodgroup, Ómar Ragnarsson, Ragnheiður Gröndal, Víkingur Heiðar, Útidúr og Stilluppsteypa. Semsagt fáranlega fjölbreytt!

    Markmiðið með jóladagatalinu er að bjóða upp á öðruvísi dagskrá, þar sem jólin sjálf koma ekki endilega við sögu heldur reynt að skapa kósí og góða stemningu og sleppa öllu jólaundirbúningsstressi.
  • Uni og Jón Tryggvi standa fyrir ljúfum og fallegum jólatónleikum þar sem þau munu spila róleg og falleg jólalög ásamt lögum af sólóplötum sínum, sem komu út fyrir síðustu jól.

    Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 í Mosfellskirkju í Mosfellsdal og kostar 1.000 kr inn. Því miður er ekki posi á staðnum þannig að passið að taka pening með.
  • Neðanjarðarfélagið BRAK Hljómplötur ætlar að halda upp á 38 ára afmæli Tré Cool, trommara Green Day, með tónleikum. Góð ástæða fyrir tónleikum. Fist Fokkers, Quadruplos, Markús & the Diversion Sessions, Ljósvaki og Loji verða á Faktorý, tónleikarnir hefjast kl. 21:30 og frítt verður inn.

    Stafrænn Hákon verður andlegur leiðtogi og stuðningsaðili kvöldsins og verður nýjasta afurð hans fáanleg á staðnum.
  • Hljómsveitin Ég og Hellvar verða á Sódóma í kvöld. Stroff átti einnig að koma fram en í stað þeirra kemur háleynilegt og spennandi upphitunarband. Gamanið hefst um 21:30 og 1.000 kr kostar inn.

Föstudagur 10. des

  • Dagurinn byrjar vel í hádeginu með Jóladagatali Norræna hússins.
  • Myrká, Porquesi o.fl. sjá um kvöldið á Sódóma. Húsið opnar kl. 22:00 og 1.000 kr kostar inn.
  • Fyrra kvöld Jólaplöggs Record Records 2010 verður á Faktorý. Bloodgroup, Ensími, Of Monsters & Men og Sing For Me Sandra bjóða upp á tónlistarveislu kvöldsins sem hefst á slaginu 22:00. Hægt er að kaupa miða á annað kvöldið fyrir 1.000 kr en armband sem gildir bæði kvöldin kostar 1.500 kr. Annars eru allar nánari upplýsingar hér.

Laugardagur 11. des

  • Jóladagatal Norræna hússins heldur áfram og byrjar að venju kl. 12:34.
  • Benni Hemm Hemm heldur upp á útgáfu Skots með tónleikum á Bakkusi. Þetta verður magnað kvöld því auk Benna Hemm Hemm munu Retro Stefson sjá um undirleik (eins og við upptökur á Skoti), Prins póló hitar upp, Bárujárn leikur nokkur lög eftir að Benni Hemm Hemm klárar og að lokum tekur DJ Öfull við.

    Allt þetta fyrir 1.000 kr, sé keypt í forsölu í Havarí, eða 1.500 kr við hurð. Best að tryggja sér miða í forsölu og mæta svo tímanlega en tónleikarnir hefjast kl. 21:00.
  • Sé ætlunin að kíkja í Havarí til að tryggja sér forsölumiða á útgáfutónleikana er líklega sniðugt að gera það um 16:00 því þá mun Benni Hemm Hemm hita upp fyrir tónleikana – í Havarí. Að sjálfsögðu verður frítt inn.
  • Seinna kvöld Jólaplöggs Record Records 2010 á Faktorý. Í þetta skipti koma fram Agent Fresco, Moses Hightower, Útidúr og For a Minor Reflection. Fjölbreytt og frábært kvöld sem byrjar 22:00.
  • Berndsen og Valdimar verða á Sódóma. Húsið opnar kl. 22:00, Valdimar stígur á stokk á miðnætti og Berndsen ætti að byrja um 01:00. Miðaverð er 1.000 kr.

Sunnudagur 12. des

  • Jóladagatal Norræna hússins er góð leið til að byrja sunnudaginn. Hver ætli komi fram í dag?
  • Uni og Jón Tryggvi ætla að bjóða upp á aðventutónleika heima hjá sér á Merkigili, Eyrarbakka. Svavar Knútur kemur við og töfrar fram jólaandann.

    Tónleikarnir hefjast kl. 20:00, heitt verður á könnunni og piparkökur í boði. Frítt er inn en frjáls framlög verða vel þegin. Tilvalið til að koma sér í jólastemninguna.

Mánudagur 13. des

  • Jóladagatal Norræna hússins kl. 12:34

Þriðjudagur 14. des

  • Jóladagatal Norræna hússins kl. 12:34

Miðvikudagur 15. des

  • Jóladagatal Norræna hússins kl. 12:34

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Tónleikar | Comments Off

Kimi Kimi Kimi

18.11.2010 - Kristín Gróa

Heijjó. Mig langar örstutt að benda ykkur á nokkrar skemmtilegar plötur sem eru nýkomnar eða væntanlegar hjá plötuútgáfunni Kimi Records. Tóndæmi í boði Gogoyoko!

Gömlu “goðin” í S.H. Draumi gáfu út næstum allt hljóðritað efni hljómsveitarinnar 13. október og nefndu pakkann Goð+. Mikil og merk útgáfa það.

Við höfum áður talað um nýjustu afurð hinnar vinsælu sveitar Retro Stefson sem kom út 18. október síðastliðinn. Platan Kimbabwe fær mitt atkvæði fyrir besta íslenska plötunafn og cover þetta árið.

Stórsveitin Orphic Oxtra gaf út sína fyrstu plötu á palindrome daginn 1. nóvember. Platan bef nafn sveitarinnar og er gríðarlega vel heppnuð og skemmtileg.

12. nóvember gaf Prins Póló út plötuna Jukk sem er alveg geðveikt skemmtileg, sem kemur ekki á óvart miðað við hvað það er geðveikt skemmtilegt á tónleikum með þeim. Þau eru hress og brosandi og skemmtileg og fyndin og sniðug á einstaklega sérstakan og örlítið melankólískan hátt … þarf maður ekki dálítið svoleiðis í skammdeginu? Allir að fá sér jukk!

Að lokum er vert að minnast á Skot sem er nýjasta plata Benna Hemm Hemm og kemur út 24. nóvember næstkomandi. Við töluðum aðeins um hana um daginn.

Tags: , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa | Comments Off

Íslensk myndbönd

9.11.2010 - Georg Atli

Allt í einu hrúgast út íslensk tónlistarmyndbönd. Núna á mjög stuttum tíma komu þessi 3 frá Forgotten Lores, Dikta og Prinspóló:

alltaf gaman þegar að íslensk útgáfufyrirtæki (og tónlistarmenn) leggja metnað í gera tónlistarmyndbönd.

Tags: , ,
Flokkað undir Georg Atli | 1 athugasemd »

Prinspóló

4.11.2010 - Georg Atli

Í kvöld verða tónleikar með Prinspóló á Venue og við fengum fréttatilkynningu um það:

Hljómsveitin Prinspóló sló eftirminnilega í gegn í Kastljósþætti þriðjudaginn 2. nóvember og reyndist nauðsynlegt mótefni gegn drepleiðinlegu rausi siðlausra stjórnmálamanna. Í tilefni af því ætlar Prinspóló og mjög meðfærilegt útgáfufélag hljómsveitarinnar að forútgefa plötuna Jukk á vefnum www.gogoyoko.com. Aðalástæðan fyrir því að gogopókó var fyrir valinu er hreinlega sú að síðan er geðveikt næs og nýi meðfærilegi tónlistarspilarinn þeirra bráðnauðsynleg viðbót við vefrænan heim okkar. Þessi spilari gefur Óla Murtu, sem veit ekkert hvað gogoyoko er, tækifæri á að hlusta frítt á músík á einhverri vefsíðunni. Flestir myndu halda að hr. Prinspóló fái ekkert fyrir sinn snúð vegna þessa en það er ekki svo. Útgefandi Prinspóló fær rúmar 2 kr. fyrir það í vasann sinn og kaupir líklega bland í poka fyrir það. Útgefandinn gefur svo Prinspóló helminginn af gúmmulaðinu sínu. Hugsa sér hvað útgefandinn og Prinspóló geta borðað mikið nammi ef allir Íslendingar myndu nú hlusta einu sinni á Prinspóló? Og hvað ef allir íbúar Noregs og Hjaltlandseyja myndu bætast við? Ef það yrði raunin myndu þeir báðir líklegast setjast í helgan stein einhversstaðar á sólríkum stað, mögulega fyrir austan.

Einnig er vert að minnast á að Prinspóló ætlar að halda forútgáfufögnuð á Venue næstkomandi fimmtudagskvöld kl. 21. Miðaverð er ekkert og dyr standa opnar meðan húsrúm leyfir. Þá verður lokað.

Topp 5 fílar Prins Póló og ætlar þess vegna hiklaust að mæla með að fara á þessa tónleika og kaupa plötuna annað hvort á gogoyoko eða í eiginleiku eintaki þegar það verður hægt þann 12. nóvember!

Tags: ,
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

Tónleikar vikunnar *laugardagurinn uppfærður*

3.11.2010 - Georg Atli

Það er allt brjálað að gera í þessari tónleikaviku og þess vegna verður tónleika rándöppið þrískipt!!

Fyrst ber að nefna tónleikaröðina hjá Ting:Direkt, en þar eru aldeilis fínir tónleikar á döfinni.

Á Fimmtudeginum verður danska hljómsveitin Slaraffenland, færeyingarnir í Budam og íslenska stórsveitin Orphic Oxtra í Tjarnarbíó. Showið byrjar kl. 21:00, en þess má geta að balkansveitin Orphic Oxtra voru að gefa út sína fyrstu plötu og það sem ég hef heyrt lofar mjög góðu… en meira um það síðar.

Föstudagurinn stendur fyrir partý en þá verða norsararnir í Datarock og íslensku böndin Retro Stefson og Berndsen. Þetta verður á NASA og það opnar kl. 22:00 og stuðið verður væntanlega geðsjúkt því að öll þessi bönd kunna rosalega vel að spila á tónleikum!

Á laugardeginum verða Hjaltalín og Scola Cantorum að sýna listir sínar ásamt Wildbirds & Peacedrums, sem eru sænsk, að spila í Fríkirkjunni kl. 20:00. Miðar á alla hátíðina er hægt að kaupa á miði.is (3900 kr) og síðast þegar ég vissi var ekki uppselt og það er líka hægt að kaupa miða á stök kvöld (1500 á fyrri tvo tónleikana og 2900 kr fyrir miða á Hjaltalín og co.).

Hjá Hemma og Valda er svo allt morandi í gúmmelaði, þar verður haldin “Off-Venue Aftershock” helgi. Nánast non-stop tónleikar alla helgina og það kostar ekkert inn!!! Dagskráin er hér:

Föstudagur 5 nóv*

19:00 Jóhann Kristinsson
20:00 Danny Malone (US)
21:00 Blæti
22:00 Júníus Meyvant
23:00 Orphic Oxtra
00:00 Bróðir Svartúlfs
01:00 Vicky

*Laugardagur 6 nóv*

18:00 Heima
19:00 Ylja
20:00 TBA
21:00 Mukkaló
22:00 Andvari
23:00 7 Berg
00:00 Maxe and the crackers
01:00 Futuregrapher

*Sunnudagur 7. nóv*

18:00 The moody orchestra
19:00 Bowen Staines (US)
20:00 Ylja
21:00 Johnny Stronghands
22:00 Enkidu

Í kvöld (miðvikudag) verða svo Skúli Mennski og hljómsveitin Grjót á Rósenberg og á Faktorý verða ókeypis tónleikar í nafni Stage Europe Networks. Þar verða hljómsveitirnar Hunting the Robot, …Kleinstadthelden, California Stories Uncovered, Geriko, World Service og The Assassin of a Beautiful Brunette, sem sagt mikið stuð í gangi þar.

Á fimmtudagskvöldinu verða tvennir útgáfutónleikar. Á Faktorý verður Sing For Me Sandra að fagna plötunni sinni, sem heitir Apollo’s Parade (hægt að hlusta hér!) og hún verður amk spiluð öll og hver veit hvað gerist meira en það! Who Knew ætla að hita upp og það er Ókeypis inn. Hinir útgáfutónleikarnir verða svo á Sódómu, en þar verða Cliff Clavin liðar væntanlega að gera allt vitlaust með sinni plötu,The Thief’s Manual. Sú plata er ansi góð og lög af henni hafa verið í ansi mikilli útvarpsspilun. Þar kostar 1000 kr. inn og opnar húsið kl. 21:00. Ef að einhverjum þótti þetta ekki níg þá verður hinn frábæri Prins Póló líka með útgáfutengda tónleika. Þeir verða á Venue kl. 21:00. Þar kostar ekki krónu inn og er enginn veit hvað/hverjir/hver Prins Póló er þá er amk hægt að hlusta á plötuna Jukk hér (áfram gogoyoko!!)

Á föstudagskvöldið er planið svona:

Danny Malone & Jóhann Kristinsson verða á Rósenberg. Svo áttu DR. Spock að vera á Faktorý en þeir þurftu að aflýsa vegna veikinda. Í Staðinn er hægt að fara á “sveittra bar-tónleika” á Sódómu þar sem Hjálmar og Nolo verða með partý af því að það var að koma út 200 síðna(!) ljósmyndabók um Hjálma. 1500 kr. miðinn þangað, bara selt við hurð og hún opnar kl. 22:00.

Danny Malone ætlar að aftur að vera á Rósenberg á laugardaginn en að þessu sinni er það Lára Rúnars sem ætlar að spila með honum. Á Faktorý verða svo, ótrúlegt en satt, ókeypis tónleikar! Núna er Fuzzfest og þar ætla að spila Dandelion Seeds, The Vintage Caravan, Perla, Sleeping Giant og Stg.Miller Misbehavious Daughters. Á Sódóma verða svo stórstjörnurnar Sverrir Stormsker og Kalli Bjarni. Stormsker ætlar að flytja nýtt efni af væntanlegri plötu og samkvæmt fréttatilkynningu þá munu þeir “rugla saman reitum og reita af sér rugl í bland við gömlu góðu perlurnar sem verða teknar í nýjum búningum!!” að getur ekki orðið neitt annað en merkilegt, húsið opnar kl. 22:00 og það kostar 1000 kr. inn.

Nánari upplýsingar og hugsanlega tengla má svo finna í dagatalinu okkar hérna til hægri (og niður býst ég við…) og ég ætla að ítreka enn einu sinni að ef einhver veit um eitthvað sem hvorki er í upptalningunni né á dagatalinu að senda okkur endilega línu á toppfimmafostudegi@gmail.com.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

Prins Póló!

24.10.2010 - Georg Atli

Hljónsveitin Prins Póló er eitt af þessum skemtilegu böndum í dag, 10. nóvember kemur platan þeirra og það er hægt að hlusta á hana á heimasíðunni þeirra. Ég held að allir ættu að tjékka á henni. Við á á Topp 5 fengum svo fréttatilkynningu í dag:

Þann 10. nóvember kemur út hljómplatan Jukk með Prinspóló en þangað til ætla aðstandendur að gefa aðdáendum færi á að hlýða á alla plötuna endurgjaldslaust á glænýjum vef: www.prinspolo.com.

Skapari Prinspóló er Breiðhyltingurinn Svavar Pétur Eysteinsson. Svavar þessi lærði heimspeki hálfan vetur í lok síðustu aldar, nam síðan grafíska hönnun í Listaháskóla Íslands og reyndi án árangurs að útskrifast þaðan sem hljómlistamaður. Hann var í sveit sem barn þar sem hann lærði söng með aðstoð vasadiskós og heyhrífu. Hann starfar nú sem hönnuður hjá Kimi Records og rekur menningarmiðstöðina Havarí ásamt ástkonu sinni og vini. Þess á milli dælir hann tilfinningum sínum inn á segulband. Á bak við jukk er frekar einföld speki. Allt er jukk sem ekki á sér aðrar eðlilegar skýringar. Jukk er lýsing á atburði, ástandi eða verkfæri sem allir þekkja en á sér enga hliðstæðu. Jukk er skortur á ótilkvaddri hugsun. Allt er einhverntímann jukk. Kimi Records gefur út Jukk.

Verði ykkur að góðu: www.prinspolo.com


Tags:
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off

Topp 5 Airwaves 2010 – Kristín Gróa

22.10.2010 - Kristín Gróa

Þessi listi er grunsamlega líkur listanum um það sem ég hlakkaði mest til að sjá á Airwaves en það var svo sem við því að búast.

Í stafrófsröð (af því ég er svo dipló):

Jónas Sigurðsson og ritvélar framtíðarinnar

Betri helmingurinn benti á að nafn hljómsveitarinnar benti til þess að þetta væri einn gaur með rosa mikið af synthum og ég verð eiginlega að taka undir það. Það er þó alls ekki tilfellið heldur var bara stuð í gegn og fagmennskan alveg í fyrirrúmi. Þetta er svakalegt band! Ég skal viðurkenna að ég myndi ekki endilega hlusta á þessa tónlist dagsdaglega en á tónleikum í stemningunni þá er þetta alveg málið.

Of Monsters & Men

Besta sett sem ég hef séð þau spila. Ný lög, auka hljóðfæraleikarar, gaman og skemmtilegt. Ég er búin að vera með nýja lagið þeirra Little Talks á heilanum síðan þetta kvöld (tékkið á því á mæspeisinu… það er dead catchy).

Prins Póló

Ég sá þau bæði á Venue á miðvikudagskvöldinu og off venue í Sjoppunni á föstudeginum og skemmti mér virkilega vel í bæði skiptin. Þau eru svo skemmtileg og hress og gaman að vera á tónleikum með þeim. Uppgötvun hátíðarinnar!

Robyn

Sumum fannst hún ekkert spes en þar sem ég sé ekki sólina fyrir stúlkunni og hlusta alveg vandræðalega mikið á hana þá fannst mér hún alveg geðveik. Þetta var pínu kreisí (hver borðar banana á sviði?) og rosalega kraftmikið. Umfram allt þá naut tónlistin sín og þar sem mér finnst tónlistin frábær þá var þetta frábært. Við fórum þrjú saman að sjá Robyn á Hróarskeldu þegar hún spilaði 2008 og ég rakst á annan strákinn eftir tónleikana. Honum fannst hún ennþá betri núna en þá og ég verð að vera sammála.

Útidúr

Þau fá sæti á listanum af því ég hafði aldrei heyrt neitt í þeim eða um þau en svo þegar ég mætti þá voru sirka 15 manns á sviðinu og tónlistin svo skemmtileg að ég varð pínu orðlaus. Lofar virkilega góðu! Ég vil ekki vera leiðinleg en ég verð að gefa söngkonu hljómsveitarinnar mínus fyrir að vera með svo mikla sex kitten stæla að það skemmdi eiginlega fyrir allri hljómsveitinni. Hún hefði alveg verið nógu flott þó hún hefði látið eðlilega enda huggulegasta stúlka.

Tags: , , , , , ,
Flokkað undir Airwaves, Kristín Gróa, Listar, Tónleikar | Comments Off

Fyrsti í Airwaves

14.10.2010 - Kristjana

Þegar ég mætti á mína fyrstu Airwaves tónleika í gærkvöld náði Sódóma röðin að dyrum Venue (þangað sem ég ætlaði). Þó nokkrir löbbuðu fram hjá þar sem þeir héldu að röðin væri líka fyrir Venue. Nokkrir spurðu, t.d. stelpan á undan mér, dyraverðina til að fullvissa sig um að hægt væri að ganga beint inn. Svolítið skrítið fyrirkomulag.

Þetta var snemma kvölds á miðvikudegi, fyrsta degi Airwaves, og það var ekki troðfullt en samt myndaðist flöskuháls við innganginn (inn, niður 20 tröppur, framhjá bar/klósettum, upp aðrar 20 tröppur) og varð ansi heitt. Ég var spennt fyrir svona litlum stað fyrir minni tónleika en veit ekki hversu mikið mig langar þangað aftur um helgina – miðað við röðina sem myndaðist í gegnum allan ‘innganginn’ í gærkvöld. Því miður.

Ég rétt náði síðasta lagi Snorra Helgasonar þannig að ég er engan veginn dómbær á frammistöðu hans en ég hefði verið til í að heyra meira. Hann virtist hafa allan staðinn með sér enda tónlistin hans fullkomin fyrir litla intimate staði – róleg og einlæg. Við tók svo ágætis bið eftir Prins Póló og co. sem voru æðislega skemmtileg. Lengsta saga heimsins um Svalabolinn, fyndnir textar og hress lög. Þetta er stemningartónlist. Hlakka til að heyra meira.

Eftir Venue röltum við yfir á Nasa þar sem við tók röð sem náði út að English Pub. Á miðvikudagskvöldi. Daddara. Röðin haggaðist varla meðan Bloodgroup voru á sviði en við sluppum inn í öðru lagi Agent Fresco, sem var svo sem það sem við ætluðum að sjá. Ég las viðtal við Arnór, söngvara Agent Fresco, fyrr í vikunni þar sem hann sagðist eiga að þegja í Airwaves vikunni skv. læknisráði. Ég var því nokkuð viss um að það yrði minni kraftur í þeim, eða allavega honum, en svo virtist ekki vera. Kraftmiklir, góðir á sviði og náðu öllum á Nasa með. Svo mikið að eftir samsöng alls salarins í lokalaginu, Eyes of a Cloud Catcher, heyrði ég viðlagið áfram þangað til ég var komin út af Nasa – sungið af áhorfendum sem enn voru inni á gólfi. Gaman að því. Maður þyrfti eiginlega að sjá þá acoustic í Norræna húsinu líka – sjá ‘báðar hliðar’ hljómsveitarinnar.

Við röltum svo yfir á Sódóma þar sem ég bjóst við sams konar röð og fyrr um kvöldið en svo var ekki. Við komumst beint inn og 10 mín síðar byrjuðu Dikta. Miklu skemmtilegra að sjá þá á smærri stað en Listasafninu enda staðurinn fullur (en samt engin röð – merkilegt) og allir sungu með frá fyrsta lagi. Mér finnst Dikta alltaf góðir. Svo líta þeir líka alltaf út fyrir að hafa gaman af því sem þeir eru að gera – sem smitar út frá sér.

Allt í allt: góð byrjun á Airwaves hátíðinni en það lítur út fyrir að maður þurfi að velja sér nálgun fyrir helgina. Annað hvort vera nokk sama hvað maður sér og fara bara þangað sem maður kemst inn eða vera harður á forgangsröðuninni, velja helst einn stað fyrir hvert kvöld og halda sig þar. Ekki heppilegt fyrir fólk eins og mig, sem vill helst sjá allt OG er haldið valkvíða! Best að fara að plana daginn…bæði ‘on-venue’ og off.

Tags: , , , , , ,
Flokkað undir Airwaves, Kristjana | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin