Íslenskur vínylmarkaður á Kexinu!

22.11.2012 - Georg Atli

Íslensk vínyl útgáfa stendur í miklum blóma þessi misserin enda er fátt eigulegra en góð (íslensk) tónlist á vínylplötu. Titlarnir hrúgast út í búðirnar í allskonar útgáfum, litaðar plötur, númeraðar plötur tvöfaldar plötur, 10″ plötur og allskonar margt fleira. Þess vegna er mér sérstaklega gleðilegt að birta þessa tilkynningu sem við fengum um Íslenskan vínyl markað semverður á Kex hostel á laugardag. Það Snorri Helgason sem stendur á bak við þetta skemmtilega framtak og þú getur (ef þú ert tónlistarmaður með “brakandi ferskan vínyl í pokahorninu”) meira að segja fengið að vera með, sendu bara póst á Snorra Helgason

Þeir sem ætla að vera með eru (ekki tæmandi listi því að það er alltaf að bætast nöfn við, best að fylgjast með á facebook):

Snorri Helgason, Borko, Tilbury, Retro Stefson, Ojba Rasta, Múm, Ásgeir Trausti, Ólöf Arnalds, Sin Fang, Legend, The Heavy Experience, Prinspóló, Hjálmar, Sigurður Guðmundsson og Memfismafían, Of Monsters and Men, For a Minor Reflection, Moses Hightower, Kira Kira, Valdimar, Berndsen og Lay Low.

Markaðurinn verður á Kex hostel á laugardaginn á milli 13 og 17 og það verður meira að segja lifandi tónlist líka! Hér er event-inn aftur.

Þangað til getið fengiuð smá innsýn inn í plötusafn Cut Chemist (Ozomatli, Jurassic 5)

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning | Comments Off

Gleðilega Airwaves hátíð!

31.10.2012 - Kristjana

Næstu 5 dagana er ekki annað hægt en brosa stanslaust út að eyrum, njóta lífsins, uppgötva nýtt og enduruppgötva gamalt. Airwaves er hafið og strax í dag er erfitt að velja – bæði á opinberu dagskránni og off-venue. Í dag eru 20 off-venue staðir með uppákomur og 8 opinber Airwaves venue.

Ég held að það sé nokkurn veginn gulltryggt að sama hvaða venue gengið er inn á í dag/kvöld – maður mun mæta fullt af fólki, upplifa góða stemningu, heyra góða tónlist og finna fiðrildunum í maganum fjölga við (enn) aukna tilhlökkun.

Gleðilega hátíð – njótið hverrar mínútu!

Mér finnst við hæfi að fagna með partí- og singalong klassík frá Prinspóló

Tags: ,
Flokkað undir Airwaves, Kristjana | Comments Off

Miðvikudagsmeðmæli

31.10.2012 - Georg Atli

Það er svo gott að hafa plan þegar að það er mikið að gera og þess vegna ætla ég að búa til smá plan yfir það sem að mig langar að sjá í dag og deila því hérna með ykkur! Planið byrjar snemma þá svo að ég nái ekki alveg að byrja jafn snemma vegna vinnu en það er samt gott fyrir alla að vita hvað mig myndi langa að sjá kæmist ég frá. Að mínu mati þarf að taka einn dag í flakk milli staða og sjá sem flest. þessi dagskrá hérna fyrir neðan er skrifuð með það í huga.

15:00 Íslenski barinn (off- venue) – Futuregrapher (fínt að byrja á gæða elektróník)
16:00 Hressó (off- venue) – Blouse (útlenskt)
17:00 Eymundsson (off- venue) – Rif (Nýtt og lofar góðu)
19:00 Bar 11 (off- venue) – Jón Þór (Jón Þór (Lada Sport) var að senda frá sér fyrstu sólóplötuna)
20:00 Kaldalón – Úlfur (bassaleikari Swords of Chaos er að gera góða hluti sóló)
20:50 Iðnó – Pascal Pinon (ný plata væntanleg)
21:40 Silfurberg – Ojba Rasta (Hin stóra reggae sveitin á íslandi er mjög hressandi)
22:30 Iðnó – Prinspóló (Vææntanlega fullt af nýju efni)
23:20 Iðnó – Sin Fang (Klikkar aldrei)
00:10 Silfurberg – Retro Stefson (frábær leið til að slútta fyrsta í Airwaves)

Tags: , , , , , , , , ,
Flokkað undir Airwaves, Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

Tipp Topp Prinspóló!

27.9.2012 - Georg Atli

Ég vona að þið séuð flest fullkomlegameðvituð um þetta en til að vera viss þá kann ég ekki við annað en að láta ykkur vita að Prinspóló var að senda frá sér nýtt lag. Það er fyrsta lagið sem Prinsinn flytur alveg sjálfur og það eingöngu á Casio skemmtara.

Frábærlega hresst og það fjallar um það að vera hress eða ekki hress og “mikilvægi þess að tala saman”.

Tags:
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off

Föstudagslagið

6.7.2012 - Georg Atli

Það er komið að enn einum föstudeginum og það eru listar væntanlegir, viðo ákváðum að breyta aðeins til og rugla í listaröðinni og hafa Topp 5 most listened to þema dagsins, í stað Topp 5 Veikinda.

En fyrst…. er það föstudaglagið okkar og af því að okkur finnst það vera svo frábært þegar að Prinspóló sendir frá sér eitthvað nýtt og ferskt þá er það einmitt sú heiðurshljómsveit sem á föstudagslagið okkar. Lagið Lúxuslíf er einmitt ný komið út, þetta er þriðja lagið sem Prinsinn sendir frá sér í ár og líkt og með fyrri lögin fylgir glæsilegt vídjó, um það sá Sara Riel.

Njótið föstudagsins, helgarinnar, sumarsins og myndbandsins að neðan, svo er hægt að kaupa lagið hér.

Tags:
Flokkað undir Föstudagslagið, Georg Atli | Comments Off

Þoka, Funk That Shit, Prinspóló og Agent Fresco á Bar 11

8.5.2012 - Kristjana

Það er allt morandi í tónleikum þessa vikuna. Við fengum eftirfarandi frá Bar 11 en þar verður boðið upp á live tónlist á fimmtudags-, föstudags- og laugardagskvöld.

Fimmtudagurinn 10.maí: Þoka – Funk That Shit

Hljómsveitirnar Þoka og Funk That Shit munu leiða saman hesta sína á tónleikum í kjallar Bar 11 fimmtudagskvöldið 10. maí. Sveitirnar vöktu báðar verðskuldaða athygli á Músíktilraunum en þar lenti hljómsveitni Þoka í öðru sæti og Funk That Shit í því þriðja en auk þess unnu liðsmenn hljómsveitanna til einstaklingsverðlauna. Það er því frábært tækifæri fyrir alla tónlistarunnendur að sjá þessar skemmtilegu sveitir á fimmtudaginn.

Tríóið Þoka var stofnað í ársbyrjun 2012 af gítarleikaranum Reyni Haukssyni og hljómborðsleikaranum Heimi Klemenzsyni en síðar bættist svo Agnes Björgvinsdóttir söngkona í hópinn. Þoka leikur ljúfa og ómstríða tóna og stefnir á að gefa út sína fyrstu plötu nú á árinu

Funk That Shit er instrumental fönk band skipað af rythma hljóðfærum, gítar, bassa og trommum. Þeir byrjuðu að “djamma” síðasta sumar en höfðu lítið gert áður en þeir skráðu sveitina í Músíktilraunir 2012. Þar nældi sveitin sér í 3. sætið og bassa- og gítarleikari sveitarinnar fengu titlanna “Bassaleikari Músíktilrauna 2012″ og “Gítarleikari Músíktilrauna 2012″. Gerið ykkur tilbúin fyrir hina nýu “skagfirsku sveiflu”!

Húsið opnar klukkan 21:00 og er aðgangur ókeypis. Einnig verður DJ í búrinu fyrir og eftir tónleika.

Föstudagurinn 11.maí: Prinspóló

Allir tónlistaráhugamenn á Íslandi ættu að hafa heyrt um Prinspóló en hljómsveitin þykir ein sú skemmtilegasta þegar kemur að tónleikahaldi. Hljómsveitin sendi nýverið frá sér lagið Landspítalinn sem þegar hefur fengið góðar viðtökur í útvarpi.

Húsið opnar klukkan 21:00 og verður aðgangur ókeypis. Eftir tónleikar verður svo DJ í búrinu

Laugardagurinn 12.maí: Agent Fresco

Hljómsveitina Agent Fresco þarf ekki að kynna fyrir neinum enda hljómsveitin búin að vera ein öflugasta rokksveit landsins undanfarin ár. Hljómsveitin er einmitt að halda í víkíng til Evrópu og er þetta því kjörið tækifæri til að sjá hljómsveitina á tónleikum áður en að hún heldur út.

Húsið opnar klukkan 21:00 og er aðgangur ókeypis. Eftir tónleika verður svo DJ í búrinu

Tags: , , ,
Flokkað undir Kristjana, Tilkynning | Comments Off

Prinspóló gefur út nýtt lag OG myndband!

29.3.2012 - Georg Atli

Það eru stórar fréttir á hverjum hér á Topp 5! Nú fengum við þær gleðifregnir að sjálfur Prinspóló væri búinn að senda frá sér nýtt lag og meira að segja fylgir því myndband. Það eru góðar fréttir!

Fyrir stuttu kom lagið Föstudagsmessa og þetta nýja lag kallast svo Landspítalinn og það er greinilegt á þessum nýju lögum Prinsins að hann er eitthvað að skipta um gír, það er ef maður ber saman við hina stórkostlegu Jukk sem kom út 2010. Nýju lögin er töluvert frábrugðin því en samt stórgóð og gera það að verkum að væntingar fyrir nýja plötu eru orðnar nokkuð háar. Annars er hann með ókeypis tónleika í Hörpu á morgun kl. 17:00

Myndbandið er hér og tilkynningin er öll fyrir neðan það og svo má nálgast lagið í stafrænu formi á gogoyoko.com:

Prinspóló sendir í dag (fimmtudaginn 29. mars) frá sér nýtt lag og heitir það Landspítalinn. Lagið er meðal annars óður til upphafs- og endastöðvar þeirra Íslendinga sem kjósa að fæðast á Landspítalanum. Þetta er ekki fyrsta þemalagið sem Prinspóló sendir frá sér því á plötunni Jukk er að finna lagið Mjaðmir sem er stuðningslag fótboltafélagsins KF Mjöðm, en það er önnur saga.

Til að kóróna allt saman þá kemur líka út myndband við lagið en það er hin konunglega hirð sem græjaði það. Hægt er að horfa á myndbandið á heimasíðunni www.prinspolo.com en lagið er svo fáanlegt til kaups og niðurhals á www.gogoyoko.com, nema hvað!

Samverkafólk Prinsins við gerð lagsins og myndbandsins voru Berglind Häsler, Árni Rúnar Hlöðversson, Kristján Freyr Halldórsson, Guðm. Kristinn Jónsson, Birgir Jón Birgisson, Baldvin Esra Einarsson, Loji Höskuldsson og einhverjir fleiri.

Þess má geta að Prinspóló fer til Danmerkur í maí og kemur fram á tónleikum í Kaupmannahöfn 3. maí og á Spot festival í Árósum 5. maí.

Á morgun (föstudag) er hljómsveitin með tónleika ásamt Sudden Weather Change í Kaldalóni Hörpu. Tónleikarnir eru klukkan 17.30, allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis.

Með hátíðarkveðju,
Yðar náð

Tags:
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning, Tónleikar | Comments Off

Prinspóló heldur tónleika á Faktorý fimmtudagskvöld

14.2.2012 - Georg Atli

Rétt í þessu barst okkur þessi stórfrétt, lesið hana! Líka fín mynd, skoðið hana! Ég setti gott lag í lokin, hlustið á það! Það er allt frábært, finnið það!!

Prinspóló heldur tónleika á Faktorý fimmtudagskvöld, hinn funheiti Loji hitar upp.

Prinspóló er að fara í tónleikaferð til Noregs, Sviss og Belgíu. Hirðinni fannst í besta falli kjánalegt að fara í tónleikaferð til þessara landa og halda ekki tónleika á Íslandi því öll þessi lönd eru tengd í gegnum Fríverslunarsamtök Evrópu, EFTA.

Prinspóló mun því halda tónleika á Faktorý næstkomandi fimmtudagskvöld kl. 22:00. Hinn óviðjafnanlegi Loji hitar upp með söngvum og gamanmáli. Miðaverð er 1.000 kr við hurðina og um miðasölu sér Sigurður Magnús Finnsson, aka Iggy Sniff. Hljóðmaður er enginn annar er Friðfinnur Oculus Sigurðsson þannig að það eru margar gildar ástæður fyrir því að forðast raðir og mæta snemma.

Tónleikadagskrá Prinspóló í Febrúar:

16. febrúar: Faktorý Bar, Reykjavík, Ísland
17. febrúar: By:larm hátíðin, Osló, Noregur
18. febrúar: By:larm hátíðin, Osló, Noregur
22. febrúar: Café Video, Gent, Belgía
25. febrúar: Nordklang Festival, St. Gallen, Sviss

Tags: ,
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning | Comments Off

Föstudagslagið

20.1.2012 - Georg Atli

Föstudagslagið að þessu sinni er meira en viðeigandi. Í gær þá sendi ein af uppáhaldshljómsveitum Topp 5, Prinspóló, frá sér nýtt lag og það heiti Föstudagsmessan. Þið getið hlustað á (og keypt ykkur) lagið á gogoyoko og svo er líka búið að gera þetta fína myndband við lagið. Það var Árni +1 sem pródúsar og Prinsinn sjálfur leikstýrir ásamt Berglindi Häsler.

Tags:
Flokkað undir Föstudagslagið, Georg Atli | Comments Off

Annáll Kimi Records

13.1.2012 - Kristín Gróa

Kimi Records átti glimrandi gott ár í músík og stóð að útgáfu nokkurra hljómplatna sem hafa fengið prýðilegar viðtökur, eins sáu þeir um dreifingu og kynningu á nokkrum titlum. Árið hófst með útgáfu á annarri breiðskífu Sin Fang, Summer Echoes, en hún kom út í mars. Fékk hún prýðilegar viðtökur, en fólki þykir þetta að öllu jöfnu mjög góð plata. Því næst kom platan Don’t Want to Sleep með FM Belfast (Morr music gaf út). Platan fór í verslanir þann 3. júní síðastliðinn. Í ágúst gáfum við út aðra breiðskífu Snorra Helgasonar og nefnist hún Winter Sun. Sú plata féll vel í kramið hjá skrípentum og hlustendum og meðal annars valdi Dr. Gunni hana sem plötu ársins.

Um mitt sumar fór allt að tryllast á skemmtistöðum miðborgarinnar sökum óvæntasta smells ársins. Niðrá strönd í sexy schidt endurgerð fékk fólk til að æpa af fögnuði og gleði. Í tilefni því gaf Kimi lagið út á rafrænu formi í þessari dansvænu útgáfu og var því vel tekið.

Í lok ágúst gáfu jaðarjazzararnir í ADHD út sína aðra breiðskífu, ADHD 2 og sömuleiðis komu út plöturnar Stop That Noise með Hellvar og Hermigervill leikur fleiri íslenzk lög, en Kimi sá um dreifingu á þessum titlum.

2. september gáfum við út plötuna We Sink (í samstarfi við Morr music) með henni Sóley. Sú plata endaði ofarlega á flestum árslistum og þykir platan frábær í alla staði.

Þann 1. október kom platan Haglél út með Mugison og hefur hún slegið öll met og hefur meðal annars verið seld í um 28 þús eintökum. Um miðjan október komu svo út tvær plötur. Við upphaf Airwaves hátíðina kom út platan Mount Modern með Dad Rocks! í tilefni af fyrstu tónleikum hans hér á landi, en Snævar Albertsson er að öllu jöfnu búsettur í Danmörku. Svo kom út platan Locust Sounds með Reykjavík!, 14 laga plata sem fer alla leið í rokkinu.

Sömuleiðis gáfum við í Kima út okkar fyrstu kvikmynd, í samstarfi við Kjartansson ehf, en myndin Backyard kom út á DVD og fylgir hljómdiskur með myndinni og inniheldur hann lög úr myndinni.

Í nóvember kom svo út platan Nology með Nolo. Unggæðingarnir úr úthverfum höfuðborgarinnar enduðu útgáfuárið okkar með bravúr, en platan þykir unaðsleg.

Í apríl hélt Kimi Records sína fyrstu tónlistarhátíð og kölluðum við hana Reykjavík Music Mess, þar úði og grúði af músík og minnistæðustu tónleikar hátíðarinnar voru frábærir tónleikar Deerhunter, goðsagnakennd framkvæmd Sudden Weather Change á tónlist Ghostigital, en þar nutu þeir aðstoðar Einars Arnar Benediktssonar. Reykjavík Music Mess verður svo haldin aftur á þessu ári, en að þessu sinni í maí.

Allt í allt gott ár hjá þeim tónlistarmönnum sem Kimi leggur lag sitt við.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin