Topp 5 unglingsárin – Georg Atli

29.6.2012 - Georg Atli

Það verður bara að segjast að þegar að maður er unglingur þá er maður frekar asnalegur. Sorrý til allra (!?) unglingana sem lesa þetta, þetta er ekkert persónulegt og þið eruð örugglega ölla rosa næs en svona án djóks þá er þetta satt… þið fattið þetta seinna.

Ég var engin undantekning, alls ekki. Maður veit ekkert hvernig maður á að vera eða hvað maður á að gera eða neitt. EN það er eitt sem er sérstaklega frábært við unglinga og það er hversu margt þeir eru að uppgötva… svona tónlistarlega séð, og það var ótrúlega margt sem að ég fattaði að væri sniðugt og skemmtilegt að hlusta á á þessum tíma. Meðal annars þá byrjaði ég að hlusta á eftirtalda 5 listamenn og þeir höfðu allir gríðarlega mikil áhrif á hvernig og hvaða tónlist ég hlusta á í dag. Auðvitað hlustaði maður á allskonar ógeð en þetta er það besta af því sem að situr eftir. Ég ætla líka bara að hafa youtube myndbönd til heiðurs MTV því að þegar ég var unglingur þá spilaði MTV fullt af tónlist og var oft ágætis staður fyrir óharðnaða unglinga til að kynnast allskonar tónlist.

5. Radiohead

Það er náttúrulega frekar basic og kannski klisjukennt að nefna Radiohead en OK Computer er plata sem bara alveg fáránlega góður punktur til að byrja að pæla í tónlist. The Bends var fyrsta Radiohead platan mín en OK Computer er uppáhalds.

4. Megas

Einu sinni fannst mér Megas vera glataður kall og glataðari söngvari en sem betur fer eltist það af mér og smám saman þá fattaði ég hvað hann er frábær. Tvær stjörnur er eitt af allra bestu lögum Íslands fyrr og síðar.

3. Godspeed You Black Emperor!

Það verður að segjast að tónleikar þessara merku hljómsveitar höfðu töluverð áhrif á mig. Stafrænn Hákon hitaði upp. Hann gerði gott mót og spilaði á gítarinn sinn með skiptilykli, sem var mjög skemmtilegt og GYBE! rokkuðu meira og betur en nokkur önnur hljómsveit sem ég hafði séð. Endalaust epísk lög!

2. Beastie Boys

Ég þarf ekkert að skrifa hérna, það er alveg nóg að setja þetta lag… það útskýrir bara allt.

1. Tricky

Þegar að ég heyrði fyrst í Tricky þá var það í fyrsta skipti sem ég heyrði eitthvað sem var í alvöru alveg nýtt fyrir mér og mér fannst það frábært. Eftir þetta þá sökkti ég mér alveg í trip-hop og þaðan fór ég að hlusta á elektróník og hiphopp og rokk og soul og ég veit ekki hvað og hvað. Platan kom út 1995 og sprengdi algjörlega á mér hausinn.


Tricky – Hell Is Around The Corner by Tricky

Tags: , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off

Ný plata frá Radiohead!

14.2.2011 - Kristjana

Gerist ekki mikið meira spennandi en þetta gott fólk! Glæný plata frá Radiohead,The King of Limbs kemur út á laugardaginn. Það er hægt að panta hana núna. Strax. Núna segi ég! Hér! Víjjj

Tags:
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað | Comments Off

Girl Talk

20.11.2010 - Georg Atli

Um daginn þá ákvað Girl Talk að gefa nýju plötuna sína á netinu og af því að ég er tónlistaráhugamaður þá fór ég og sótti hana þó að ég væri ekkert rosa spenntur fyrir henni, hlustaði loksins á hana og hún kom mjög skemmtilega á óvart.

Þetta er ekkert sem maður hefur aldrei heyrt áður en það er einmitt snilldin við plötuna. Þetta er eitt langt mash-up (veit ekki íslenska orðið fyrir mash-up?), 70 min.  af snilldar lögum sem eru blönduð ofan í hvert annað, hér er listinn yfir sömplin og hérna getiði hlustað á lögin (stök) og séð hvaða sömpl eru í gangi.

Ef það er einhver sem getur hlustað á þetta án þess að fá amk 10 lög á heilann og brosa hringinn af nostalgískri sælu við sumum lögunum þá… finnst mér það mjög merkilegt!

Mér finnst hápunkturinn vera þegar Girl Talk blandar saman Creep (með Radiohead) og Shimmy Shimmy Ya (með Ol’ Dirty Bastard).

Sækið plötuna hér (mæli með því að hún sé sótt í seamless útgáfu, þá fáiði eitt 70 mín. langt lag… eins og hit-parade lífs þíns!)

Tags: , ,
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off

Komandi tímar….

9.6.2010 - Georg Atli

Nú þegar að fyrri helmingur ársins er alveg að verða búinn þá finnst mér alltaf pínu skemmtilegt að skoða hvaða tónlistamenn eru búnir að lofa nýrri plötu. Hérna kemur svo listinn yfir það sem mér finnst allra helst:

Nýja pltan hennar MIA kemur út seinna í þessum mánuði (hún heitir þessu svaka netvæna nafni:/\/\ /\ Y /\) og svo Trent Reznor hætti með NIN og stofnaði nýja hljómsveit sem heitir How to Destroy Angels og þau ætla að gefa út samnefnda EP plötu (held amk að það verði bara EP, er samt ekki alveg viss) í byrjun júlí.

Í ágúst kemur svo langþráð plata frá Arcade Fire og þau eru aðeins byrjuð að leka út kynningarefni sem lofar bara ansi góðu. Flippararnir í !!! eru líka með plötu í ágúst þrátt fyrir að trommarinn þeirra hafi dáið fyrr á árinu, hún á að heita Strange Wether, Isn’t It?.

Í september eru svo margar stórar plötur á leiðinni en Nick Cave og vinir hans í Grinderman senda frá sér Grinderman 2 og nýja Interpol platan kemur líka þá og Hot Sauce Comittee, Pt. 1 frá gamlingjunum í Beastie Boys. Kanye West platan  Good Ass Job á einnig að koma út í september og litli lærlingurinn hans Kid Cudi verður líka með nýja plötu þá og líka Panda Bear, Of Montreal og The Walkmen þannig að september verður ansi stór!

Svo skilst mér að hipparnir í Fleet Foxes og Anthony Hegarty að gefa út plötu í október… en ekki saman samt, þó að það yrði örugglega áhugavert.

Belle & Sebastian og danspoppararnir í Justice og Daft Punk ætla líka að gefa út plötu í ár en ég veit ekki hvenær.

og síðan en ekki síst þá eru Radiohead búnir að vera að teasa einhverri plötu í ár, en engin (nema kannski Thom Yorke) veit hvort það sé eitthvað til í því… það kom amk nýtt lag og þá vonar maður bara það besta.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off

Topp 5 vildaðkæmutilíslands

26.3.2010 - Erla Þóra

5. Queen


Já allt í lagi, þetta eru smá draumórar í mér. Og náttúrulega ekki að fara að gerast. En hafið þið séð Freddie Mercury á sviði?! Eðal.

Queen – Bohemian Rhapsody (Live at Wembley 1986)

4. Arcade Fire


Já takk! Ég vil endurtaka nákvæmlega þessa 2007 gleði aftur (og preferably í þetta sinn ekki knee deep í drullu)

Arcade Fire – Wake Up (Live at Glastonbury 2007)

3. Beyonce


Hún er með svo mikið “show”. Er alveg killer á sviði blessunin.. eða svo segir YouTube mér allavega.

Beyonce – Single Ladies (Live 2009)

2. Radiohead


Ég get ímyndað mér að það sé ansi mikið upplifelsi að vera á Radiohead tónleikum (sjá link hér að neðan).

Radiohead – Paranoid Android (Live 2008)

1. Tom Waits


Tom Waits – Jersey Girl (Live 1986)

Ó hvað ég væri til í að kallinn skellti sér á klakann. Og tónleikarnir yrðu að vera í litlum sal. Fullkomið.

Tags: , , , , ,
Flokkað undir Erla Þóra, Listar | Comments Off

Topp 5 plötur áratugarins – Georg Atli

1.2.2010 - Georg Atli

Að velja úr 5 bestu plöturnar sem komu út á heilum áratug er ansi erfitt, þess vegna ákvað ég bara að velja úr þær fimm plötur sem mér fannst merkilegastara á einn eða annan hátt. Ég gat engan veginn gert upp á milli tveggja plata þannig að þær deila 5. -6. sætinu.


5. – 6. Björk – Medúlla (2004)

Plata sem selst rosa vel hlýtur góða umfjöllun frá gagnrýnendum og tónlistarspekúlöntum og saman stendur eingöngu af hljóðum sem mannslíkaminn gefur frá sér… Þetta er ansi merkilegt.

Lag: Oceania

5. – 6. Bon Iver – For Emma, Forever Ago (2007/8)

Ég held að ég hafi aldrei (og mun kannski aldrei) heyrt einlægari plötu, Justin Vernon opnaði sig algerlega og (svo ég vitni í maus) þetta er hjartað hans blæðandi á plastdisk.

Lag: Re:Stacks


4. The White Stripes – Elephant (2003)


Valdi þessi plötu næstum af handa hófi, þetta er eiginlega platan sem gerði Jack White að stórstjörnu innan rokksins en allar hinar White Stripes plöturnar hefðu annars getað verið hér. Jack White snýr rokkþróuninni við (eða þannig sko) hann notar það sem gætu talist frumstæðar leiðir til þess að taka plöturnar upp og það tekst svona líka ótrúlega vel,hljómurinn er þykkur og hrár en tónlistin er samt einföld. The White Stripes sýna það að rokkið þarf ekki að vera íburðarmikið og flókið og það þarf ekki að taka marga mánuði og allkonar tæki til að taka upp góða plötu.


Lag: The Hardest Button To Button


3. The Strokes – Is This It (2001)


Þessum gæjum tókst að gera rokkið hipp og kúl aftur… það hefur alltaf verið töff en þegar Is This It? Kom út þá varð það að einhverju rosa hipstera trendi sem var spilað allstaðar og af öllum. Platan er þrusugóð og rosalega grípandi og ég held að það sé eiginlega bara rosalega erfitt að hafa ekki verið hrifinn með þessari hreyfingu sem Strokes liðar störtuðu. Þetta var ekkert nýtt en kom bara á akkúrat réttum tíma og var spilað af akkúrat rétta fólkinu.

Lag: Last Night


2. Clap Your Hands Say Yeah – Clap Your Hands Say Yeah (2005)


C.Y.H.S.Y. og Artic Monkeys fundu nýja leið inn í mainstream geirann. Í gegnum myspace og tónleika þá náðu þeir að byggja upp alveg rosalegt “buzz” og stórann aðdáendahóp. Síðan þegar þeir loksins tóku upp plötu og sömdu við einhverja litla plötubúð í Brooklyn (held það hafi verið í Brooklyn) um að selja fyrstu eintökin. Las það í viðtali við plötubúðar

eigandann að platan vara víst upp seld stuttu eftir að búðin opnaði og fólk byrjaði að hringja í hann daginn áður en hann fékk fyrstu sendinguna… allt þökk sé myspace tilkynningu.

Lag: Let the Cool Goddess Rust Away


1. Radiohead – In Rainbows (2007)


Þetta er náttúrulega bara mjög undarleg plata í alla staði. Hvort sem þetta hafi verið rosa vel heppnað markaðstrick eða stórt fokkjú merki í plötiðnaðinn þá á þetta örugglega eftir að breyta því hvernig hljómsveitir selja plöturnar sínar og breytingin á kannski eftir að vera meiri í því hvernig þær semja um sölu við stóru fyrirtækin, en þetta múv á samt örugglega ekki eftir að skipta litlu böndin neinu máli…

Lag: All I Need

Tags: , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off

Topp 5 plötur ársins… nr 1 – Georg Atli

17.1.2010 - Georg Atli

Númer 1… The Antlers með plötuna Hospice


Platan Hospice kom út í ágúst og þegar ég heyrði hana fyrst þá var ég alveg viss um að ég ætti ekki eftir að heyra neitt betra en þetta í ár. Þessi hljómsveit og þessi plata gripu mig alveg strax frá fyrstu tónunum í fyrsta laginu (sem var eiginlega annað lagið þar sem fyrsta lagið er svona intro). Eftir eina hlustun fékk ég alveg sömu tilfinninguna og maður fær stundum þegar eitthvað maður heyrir eitthvað í alveg fyrsta skipti og það er alveg stórkostlegt (eins og fyrst maður heyrði í t.d. Ok Computer með Radiohead), ég held að ég hafi verið með gæsahúð í tvo daga á eftir.

The Antlers var fyrst sólóverkefni manns sem heitir Peter Silberman en varð svo að alvöru hljómsveit rétt áður en átti að taka þessa plötu upp. Sagan á bak við plötuna er sú að Silberman fylgdist með barni úr fjölskyldunni deyja úr krabbameini og lokaði sig af í tæp tvö ár án þess að tala við neinn og samdi bara þessa plötu.

Hospice er Concept plata og öll lögin fjalla um unga stelpu sem deyr úr krabbameini en sagan segir frá þessari stelpu alveg frá því hún er greind og þangað til hún deyr og svo eru eftirmæli (epilogue). En öll lögin eru sungin útfrá þremur mismunandi sjónarhornum, frá stelpunni, frá hjúkrunarfræðingnum sem hugsar um hana og svo virðist vera sagt frá sjónarhorni kærasta.

Mér finnst þessi plata alveg einstök, hún er drungaleg og þung og erfið hlustunnar og sorgleg (það er soldið eins og að hafa verið kýldur í magann þegar hún klárast) en hún er líka einhvern veginn alveg rosalega falleg. Hún rís og fellur á dramatískan hátt og Silberman syngur stundum hátt og lagið verðu drynjandi kröftugt en í næsta lagi (eða bara næsta versi) rétt hvíslar hann í brotinni falsettu þannig að maður fær á tilfinningunni að maður standi við sjúkrarúm og verði að hvísla til að vekja einhvern. Það er einhvern veginn alltaf eins og þeir sem lögin fjalla um séu staddir bara rétt hjá manni.

Örugglega fallegasta plata sem ég hef heyrt en samt falleg á undarlegan og skrítinn hátt. Af því að þetta er Concept plata þá er það kannski ekki rétt að draga eitthvað eitt lag út því þá missir það allt samhengið við plötunna en mér finnst samt lagið Bear standa upp úr alveg frábærri plötu. En ég get samt eiginlega ekki mælt með henni af því það er bara svo erfitt að hlusta á hana!

Lög:

Bear

Kettering

Shiva

Two

Epilogue

Myndbönd:

The Antlers – Shiva – A Take Away Show from La Blogotheque on Vimeo.

The Antlers – Two / Epilogue – A Take Away Show from La Blogotheque on Vimeo.

Tags: , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off

Sarpurinn

26.11.2009 - Kristín Gróa


Það er nú oft þannig að það er ekki endilega besta eða mest groundbreaking plata hljómsveitar sem er í mestu uppáhaldi hjá manni. Mjög oft er það einfaldlega fyrsta platan sem maður heyrir og grípur með viðkomandi hljómsveit sem festir sig í sessi sem go-to platan. Sarpur vikunnar fjallar einmitt um þannig plötu en það er síðasta plata hljómsveitarinnar Pavement, Terror Twilight.

Þessi þykir yfirleitt alls ekki jafnast á við t.d. Slanted And Enchanted eða Crooked Rain, Crooked Rain en þegar ég ákvað 18 ára gömul að mig langaði að fara að tékka á þessari Pavement hljómsveit þá var þetta eina platan sem var til í Bókaskemmunni á Akranesi. Ó hve hlutirnir hafa breyst og ó hversu gömul ég er orðin (og ó hversu skrítið er að þessi plata hafi verið til í Bókaskemmunni svona eftir á að hyggja… en það er önnur saga).

Eins og fyrr segir þá er þetta síðasta plata hljómsveitarinnar og var upphaflega planið að fá engan utanaðkomandi pródúser en þar sem vinnan fór seint og illa af stað var Radiohead ofurpródúserinn Nigel Godrich fenginn til að pródúsera plötuna. Á þessum tímapunkti var kominn upp pirringur í hljómsveitinni og það dró ekki úr að hljómsveitarmeðlimum fannst pródúserinn leggja fullmikla áherslu á Stephen Malkmus enda er tilfellið að öll lögin á plötunni eru eftir Malkmus og hinir meðlimirnir fá bara rétt svo að spila með. Það var örugglega hundfúlt og fýlan jókst bara á túrnum sem fylgdi plötunni. Það var að lokum Malkmus sem tók af skarið og hætti í hljómsveitinni og þar með var allt bú.

Þrátt fyrir allt dramað við gerð plötunnar og túrinn þá er hún bara drullugóð enda af Pavement standard sem verður að viðurkennast að er mjög hár. Lagið Spit On A Stranger byrjar plötuna af krafti, um miðbikið má heyra Billie þar sem sjálfur Johnny Greenwood spilar á munnhörpu og svo lýkur henni á …and Carrot Rope sem mig minnir að hafi verið spilað eitthvað í íslensku útvarpi á sínum tíma.

Tags: , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Sarpurinn | Comments Off

Radiohead??

16.8.2009 - Georg Atli

Eru ekki allir í startholunum fyrir morgundaginn???

Radiohead Rumor Mill Steaming Ahead, Threatening to Devour Entire Internet

Shared via AddThis

Tags:
Flokkað undir Georg Atli, Óflokkað | Comments Off

Topp 5 prímtölur – Krissa

17.7.2009 - Kristjana

Architecture in Helsinki – It’s 5!
Hressleiki extraordinaire!

Noah and the Whale – 5 Years Time
Meira hresst!

Radiohead – 2+2=5
Prímtala + prímtala = prímtala? Uppfyllir klárlega skilyrðin (þrátt fyrir að vera vitlaust reiknað og allt það)…fáranlega gott lag

Elastica – 2:1
Röddin í Justine er bara æði æði æði…!!!

Broken Social Scene – 7/4 (Shoreline) og Anthems for a Seventeen Year-Old Girl
Það má ekki setja tvö lög með sama flytjanda á sama lista OG ég gat ekki valið milli laganna þannig að þau fá bara að deila fyrsta sætinu. Svindl jámm jámm

Tags: , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Listar | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin